Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Síða 10
10 Fréttir 22.–24. júní 2012 Helgarblað
L
andsbankinn og nokkrir ís-
lenskir lífeyrissjóðir þurfa að
afskrifa rúmlega fjóra milljarða
króna af kröfum sínum á hend-
ur Íslenskri afþreyingu ehf., sem
hélt meðal annars utan um eignarhald
á fjölmiðlum, sem í dag tilheyra 365,
þar til í nóvember 2008. Skiptum úr búi
félagsins er lokið eftir að það var tekið
til gjaldþrotaskipta sumarið 2009. Fé-
lagið var í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar og tengdra aðila. Þetta kemur
fram í Lögbirtingablaðinu.
Eignarhaldsfélagið Rauðsól keypti
fjölmiðlahluta Íslenskrar afþreyingar,
Stöð 2, Fréttablaðið, Bylgjuna og fleiri
fyrirtæki, út úr Íslenskri afþreyingu
í nóvember 2008 fyrir 5,9 milljarða
króna. 1,5 milljarðar af kaupverðinu
voru reiðufé en 4,4 milljarðar króna
af því var yfirtaka á skuldum. Salan á
fjölmiðlahluta 365 var gerð með vit-
und og vilja Landsbankans sem þá var
orðinn ríkisbanki eftir hrunið 2008.
Jón Ásgeir Jóhannesson og tengdir að-
ilar höfðu átt í nánum tengslum við
starfsmenn Landsbankans fyrir hrun,
meðal annars við Sigurjón Árnason
og Elínu Sigfúsdóttur, og höfðu félög
þeim tengd fyrir háar lánveitingar frá
bankanum. Jón Ásgeir og eiginkona
hans, Ingibjörg Pálmadóttir, eru enn-
þá eigendur 365. Heimildir DV herma
hins vegar að staðið hafi verið vel í
skilum með afborganir af lánum 365
hjá Landsbankanum og að bankinn
sé ánægður með viðskiptin við núver-
andi eigendur í þeim skilningi.
Gagnrýnin á Landsbankann
Sú ákvörðun Landsbankans að heim-
ila eigendum Íslenskrar afþreyingar
að selja fjölmiðlahluta félagsins yfir til
Rauðsólar hefur verið harðlega gagn-
rýnd opinberlega síðastliðin ár, meðal
annars af Páli Magnússyni sem hélt því
fram að Landsbankinn hefði komið að
viðskiptunum með óeðlilegum hætti
„Áður en til þess kom fékk Jón Ásgeir
Jóhannesson hins vegar að kaupa alla
fjölmiðlana út úr félaginu fyrir lítið en
skilja stærstan hlutann af skuldunum
eftir. Allar þessar tilfæringar voru gerð-
ar með tilstyrk Landsbankans, sem þá
var orðinn ríkisbanki, og höfðu tví-
þættan tilgang: annars vegar að tryggja
eignarhald og yfirráð Jóns Ásgeirs yfir
fjölmiðlunum en hins vegar koma
skuldunum yfir á einhverja aðra, þar
með talda skattgreiðendur sem voru
orðnir eigendur bankans,“ sagði Páll í
viðtali við Viðskiptablaðið árið 2010.
Elín tjáir sig ekki
Elín Sigfúsdóttir var bankastjóri
Landsbankans í nóvember 2008 og
hafði áður verið framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs bankans fyrir hrunið
og kom meðal annars að viðskipt-
um Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar, Baugs og tengdra aðila við bank-
ann. DV hafði samband við Elínu til
að spyrja hana hvort hún hefði kom-
ið að þeirri ákvörðun að leyfa Jóni
Ásgeiri Jóhannes syni að selja fjöl-
miðlahluta 365 frá Íslenskri afþreyingu
og til Rauðsólar. Elín neitar hins vegar
að tjá sig um málið og ber fyrir sig
bankaleynd. „Nú er það þannig að ég
get ekki tjáð mig um þau mál sem ég
kom að þegar ég var bankastjóri. Ég
held ég vilji bara ekki tjá mig um mál-
ið,“ segir Elín.
Elín varð bankastjóri Landsbank-
ans eftir hrunið 2008 og stýrði bank-
anum þar til í ársbyrjun 2009. Á
sama tíma, þessu nokkurra mánaða
tímabili, störfuðu tveir aðilar við bank-
ann sem höfðu talsverð tengsl við Jón
Ásgeir, þeir Tryggvi Jónsson, fyrrver-
andi forstjóri Baugs, og Sigurjón Árna-
son, fyrrverandi bankastjóri Lands-
bankans. Störf þessara manna fyrir
bankann voru gagnrýnd talsvert á sín-
um tíma og stöldruðu þeir aðeins stutt
við í hinum nýja Landsbanka.
Hagar töpuðu 300 milljónum
Í árslok í fyrra, í skráningarlýsingu
smásölurisans Haga, kom fram að
Hagar hefðu keypt hlut í 365 fyrir 810
milljónir króna. Um var að ræða hand-
bært fé frá rekstri Haga. Helming-
ur þessa hlutar í Högum var svo seld-
ur til Jóns Ásgeirs, sem þá var stærsti
eigandi Haga, á sama fjárhagsári á
sama gengi. Á næsta rekstrarári á eftir
var hinn helmingurinn seldur til 365
miðla, sem Jón Ásgeir átti og stjórnaði,
fyrir 100 milljónir króna. Hagar töp-
uðu því um 300 milljónum á þessum
viðskiptum.
Jón Ásgeir hagnaðist hins vegar
á viðskiptunum og heldur hann,
og tengdir aðilar, enn utan um
eignarhaldið á 365 eftir þessa snún-
inga.
Afskrifa 4 milljarða
eftir kennitöluflakk
n Landsbankinn gagnrýndur fyrir viðskiptin við Jón Ásgeir Jóhannesson
Fjármagnað af Högum Kaup Rauðsólar á fjölmiðlahluta 365 voru að hluta til fjármögnuð af Högum, sem Jón Ásgeir Jóhannesson átti á
þeim tíma. Félagið sem seldi fjölmiðlahluta 365 skilur eftir sig fjögurra milljarða króna skuldir.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is