Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Blaðsíða 14
14 Fréttir 22.–24. júní 2012 Helgarblað
Þ
að var tiltrú fulltrúa stjórnar-
flokkanna að samkomulagi
um þinglok yrði náð á föstu-
dag. Formenn stjórnmála-
flokkanna gengu til þing-
funda með drög að samkomulagi
sem í raun er sams konar og án efn-
islegra breytinga frá því samkomu-
lagi sem skrifað var undir af Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra og
Steingrími J. Sigfússyni, ráðherra
atvinnumála, seint á mánudag að
kröfu Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar, formanns Framsóknarflokks-
ins.
Sigmundur sagði opinberlega
að ástæða þess að farið væri fram á
skriflegan samning væri að ekkert
traust væri á milli stjórnar- og stjórn-
arandstöðu. Þáttur Sigmundar í töf-
unum á samkomulaginu er þó sam-
kvæmt heimildum DV meiri en hann
vill af láta. Viðmælendur DV úr öll-
um flokkum hafa staðfest að formað-
ur Framsóknarflokksins lét sig hverfa
á föstudag eins og það var orðað,
klukkustundum saman.
Sigmundur svaraði ekki sím-
hringingum og lét, svo vitnað sé í orð
stjórnarþingmanna, „eins og krakki“.
Þá hafa viðmælendur blaðsins
bent á að þáttur útgerðarmanna í
samkomulaginu sé ef til vill meiri
en opinberlega er af látið. Stjórn
LÍÚ hefur fundað nánast linnu-
laust að undanförnu vegna fyrirhug-
aðra breytinga á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu. Á allavega einum slíkum
fundi var samkomulag um þinglok
til umræðu samkvæmt heimildum
blaðsins.
Útvegsmenn funda um
samkomulagið
Deildar meiningar voru innan stjórn-
ar LÍÚ hvort vænlegt væri að komist
yrði að samkomulagi við stjórnar-
flokkanna um þingslit. Innan stjórn-
arinnar eru til þeir sem telja fátt
mikilvægara en að koma ríkisstjórn-
inni frá og að aldrei muni skapast
ró meðan núverandi stjórnarflokk-
ar eru við völd. Í þeim hópi eru sam-
kvæmt heimildum blaðsins fulltrú-
ar FISK, útgerðarfélags Kaupfélags
Skagfirðinga, Stálskips, Skinneyjar-
Þinganess, Ísfélagsins og Ramma hf.
en mörg þessara útgerðarfélaga hafa
lagt fé í rekstur Morgunblaðsins.
Blaðið hefur verið sakað um að draga
taum útgerðarmanna og stjórnar-
andstöðu. Ritstjóri Morgunblaðsins
er Davíð Oddsson, fyrrverandi for-
sætisráðherra, seðlabankastjóri og
formaður Sjálfstæðisflokksins.
Í annarri fylkingu eru aðilar sem
telja nokkurs virði að greiða hærra
auðlindagjald ef það leiði til sátta og
til þess að það sem þeir telja róttæk-
ustu breytingarnar í fiskveiðistjórn-
unarfrumvarpi Steingríms verði
dregnar til baka. Í samkomulaginu
um þinglok er ekki aðeins samið um
lækkun á veiðigjaldinu heldur einnig
málsmeðferð við afgreiðslu fisk-
veiðistjórnunarfrumvarpinu. Þar er
kveðið á um að 60/40 skiptareglan á
kvótaaukningu verði afnumin en sú
regla gerði ráð fyrir að færi úthlutun
aflaheimilda yfir ákveðið magn
rynnu 40 prósent í leigupott. Þá er
samkomulag um að þriggja pró-
sentu klípan af þeim heimildum sem
framseldar eru renni í pottinn sem
og ákvæði um að heimildir til ráð-
stöfunar á kvótaþingi verði 20 þús-
und tonn í þremur áföngum. Fyrir-
tækin Samherji, Brim og Grandi eru
talin til þeirrar fylkingar.
Eru ekki í pólitík
Í samtölum DV við stjórnarmenn
LÍÚ kemur berlega fram að þeir
telja hagsmunasamtök sín ekki virk í
stjórnmálum. Um hagsmunasamtök
sé að ræða en ekki flokks maskínu.
Þó sagði einn stjórnarmaður LÍÚ
að samtökin væru í raun eini her
landsins. „Það er eitt sem við erum –
eigendur og forstjórar þessara fyrir-
tækja, starfsmenn og yfirmenn, þeir
eru um allt land og þetta eru yfir-
leitt áberandi einstaklingar í öll-
um samfélögum sem þeir eru í. Þeir
eru kannski í bæjarstjórn eða ung-
mennafélagi eða eitthvað og það er
bara af því að þeir eru þannig karakt-
erar. Og þegar þessi risi vaknar þá er
þetta alveg ótrúlegur her. Þetta er eig-
inlega eini herinn á Íslandi. Þegar við
virkjum þennan her þá er hann of-
boðslega öflugur, af því hann er bara
um allt land, á öllum þjóðfélagsstig-
um, í öllum flokkum. Hann einhvern
veginn bara vaknar. Ingibjörg Sólrún
kynntist þessu árið 2003. Allt í einu
kom bara einhver ótrúlegur her og
lamdi hana algjörlega niður. Davíð
Oddsson gerði sama árið 1991 eða
1993, þegar hann fór að mótmæla
Hafró. Þá las Davíð skýrslur Hafró,
svo kom hann og sagði: þetta eru nú
bara einhverjar ágiskanir, þeir eru
ekki búnir að rannsaka eitt né neitt.
Hann varð reiður og vildi skera nið-
ur kvótann. Þá fékk hann bara kjafts-
högg hér og þar og svo bara bakk-
aði hann.“ Af þessum ummælum að
dæma má greina að útgerðarmenn
virðast innbyrðis nokkuð meðvitað-
ir um eigið afl til áhrifa þótt opinber-
lega vilji þeir ekki kannast við afskipti
af stjórnmálaflokkum og Alþingi.
Ítrekuð frestun
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
samþykkti samkomulag um þing-
lok fyrir sex á föstudaginn fyrir viku.
Þær sögur fara af fundinum að hann
hafi verið nokkuð erfiður fyrir Bjarna
Benediktsson, formann Sjálfstæð-
isflokksins, en einhverjir þingmenn
hafi ekki viljað neitt samkomulag.
Þó voru þingmenn í Sjálfstæðis-
flokknum sem tóku ekki undir þessa
lýsingu og sögðu meirihluta þing-
manna flokksins hafa viljað ganga
að samkomulaginu. Þingfundurinn
hafi því ekki verið sérstaklega erfið-
ur heldur þinglokin sjálf og það ferli.
Bjarni stóð einn
Framsóknarflokkurinn lét bíða eftir
sér á föstudag og ekkert bólaði á svari
frá þeim. Í samtölum við þingmenn
úr öllum flokkum kemur fram að
ekki hafi runnið upp fyrir þingmönn-
um annarra flokka fyrr en rétt fyrir
sex að Framsóknarflokkurinn ætl-
aði sér ekki að virða samkomulagið.
Það mun hafa komið fram í matsal
Alþingis að ekkert samkomulag væri
þegar Magnús Orri Schram, þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar,
ásamt Birni Val Gíslasyni, þingflokks-
formanni VG, ræddu við Gunnar
Braga Sveinsson, þingflokksformann
Framsóknar, um hvort lengi væri að
bíða þess að Framsóknarmenn yrðu
tilbúnir. Gunnar Bragi á að hafa svar-
að á þá leið að ekkert samkomulag
væri til staðar enda væri ekki hægt
að semja við stjórnarflokkanna.
Stuttu síðar gaf Sigmundur Davíð
út að hann vildi aðeins semja við
stjórnarflokkana skrifuðu þeir und-
ir samkomulagið. Framsókn hefði
enda slæma reynslu af samningum
við Samfylkingu og VG. Í yfirlýsingu
Sigmundar var vitnað í samninga-
viðræður Framsóknarflokksins við
minnihlutastjórnarviðræður flokk-
anna árið 2009.
Viðmælendur blaðsins í stjórnar-
flokkunum lýsa atvikinu sem fremur
neyðarlegu fyrir Bjarna Benedikts-
son. Sigmundur og Bjarni starfi mik-
ið saman við samningaviðræður við
stjórnarflokkana og þótti stjórnarlið-
um að Sigmundur hafi þarna skilið
Bjarna eftir einan. Undir þessa skýr-
ingu er þó ekki tekið meðal sjálfstæð-
ismanna og sagði einn viðmælandi
að þingmenn Sjálfstæðisflokksins
væru svo vanir því að Sigmundur
setti á svið leikrit sem þessi að raunar
n Átök að tjaldabaki við þinglok n Sigmundur Davíð lét sig hverfa n Hriktir í stoðum meirihlutans n Þáttur LÍÚ talinn meiri en af er látið
Orrusta aldarinnar
Stóð við sitt Þingflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins fól Bjarna Benediktssyni að handsala
samkomulag við oddvita ríkisstjórnarinnar.
Lét sig hverfa Þingmenn fréttu í matsal
þingsins að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
ætlaði ekki að standa við samkomulag.
„Og þegar þessi risi
vaknar þá er þetta
alveg ótrúlegur her. Þetta
er eiginlega eini herinn á
Íslandi.
Erfið þinglok Allir þingmenn sem
DV ræddi við voru sammála um að
þessi þinglok væru þau erfiðustu
sem þeir hefðu upplifað.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is