Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Qupperneq 15
Fréttir 15Helgarblað 22.–24. júní 2012
Dalvegi 16b Sími: 554-2727
Bakkmyndavélar og skjáir
7" TFT-LCD skjár
Skjástærð 7" / 16: 9:
Brightness 350cd/m2:
Resolution 336960 pixels:
Fyrir 2 myndavélar
Straumur 12V/24V DC:
7" Quad Digital Skjár
Skjástærð 7" / 16: 9:
Brightness 350cd/m2:
Resolution 336960 pixels:
Fyrir 4 myndavélar QUAD,
Straumur 12V/24V DC:
5.6" Digital Skjár
(Innolux panel)
5.6"TFT-LCD digital monitor
Skjástærð 5.6":
Brightness 300cd/m2:
Resolution 224640 pixels:
Fyrir 2 myndavélar
Straumur 12V/24V DC:
1/3"SONY Color CCD Myndavél
1/3"SONY Color CCD Myndavél
1/3"SONY Color CCD Myndavél
1 Hliðarmyndavél、
2 Vatnsheldni IP68、 :
3 IR LED ljós 10 PCS、 :
4 IR fjarlægð approx 6m、 :
5 Linsuvídd: 110° 120°、 ,
6 Straumur: DC6-20V、
1 Bakkmyndavél、
2 Vatnsheldni IP68、 :
3 IR LED Ljós 18pcs、 :
4 IR fjarlægð approx 10m、 :
5 Linsuvídd 110° 120°、 : ,
6 Straumur DC6-20V、
1 Bakkmyndavél、
2 Vatnsheldni IP68、 :
3 IR LED ljós 18pcs、 :
4 IR fjarlægð approx 10m、 :
5 Linsuvídd 110° 120°、 : ,
6 Straumur: DC6-20V、
Bakkmyndavél
1. Vatnsheld linsa
2. Vatnsheldni: IP 68
3. Linsuvídd: 170°
4. Straumur: DC6-16V
5. Með 3 fjarlægðarlínum
Bakkmyndavél
1. Color CMOS Bakkmyndavél
2. Vatnsheldni: IP68
3. Linsuvídd: 170°
4. Straumur: DC6-16V
n Átök að tjaldabaki við þinglok n Sigmundur Davíð lét sig hverfa n Hriktir í stoðum meirihlutans n Þáttur LÍÚ talinn meiri en af er látið
Orrusta aldarinnar
væri gert ráð fyrir þeim og þau opin
skátt rædd á þingfundi flokksins.
„Þeir leika þennan leik til að látast
harðari í samningaviðræðum en við,“
sagði þingmaður Sjálfstæðisflokks
ins.
Stjórnlaust stjórnarheimili
Tvennar kosningar á þriðjudag vekja
sérstaka athygli enda má á þeim sjá
að línur stjórnarliða virðast afar veik
ar. Breytingatillaga þingmanna Norð
austurkjördæmis á samgönguáætl
un virðist hafa verið samþykkt gegn
samkomulagi stjórnar og stjórnar
andstöðu um þinglok og virðist hafa
valdið nokkurri gremju meðal stjórn
arliða. Það má meðal annars greina á
ræðu Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur,
starfandi þingflokksformanns Sam
fylkingarinnar, sem sagði áætlun
ina eingöngu óskalista og skilaboð
þingmanna til kjördæma. „Frú for
seti. Það er ánægjulegt að greiða at
kvæði um samgönguáætlun. Ég hef
hér í dag fylgt forystu nefndarinn
ar enda hefur hún unnið málið ít
arlega og vandlega. Sem formað
ur fjárlaganefndar hef ég kynnt mér
stöðu samgönguáætlunar og kom
ist að því að hún er einhvers konar
óskalisti þingmanna um samgöngu
mál í héraði og breytingatillögurnar
endurspegla skilaboð þingmanna
heim í kjördæmi um að þeir hafi
ekki gleymt sínu fólki. Þar sem fjár
lög ganga framar samgönguáætlun
erum við óbundin af áætluninni við
gerð fjárlaga hvað varðar tímasetn
ingar þó að forgangsröðun liggi ljós
fyrir.“
Ræðan verður að teljast óvenju
hreinskipt fyrir Alþingi og skýr skila
boð til þeirra stjórnarliða sem studdu
tillöguna. Túlka má ræðu Sigríðar
sem svo að hún álíti atkvæðagreiðsl
una eingöngu til þess fallna að auka
vinsældir þingmanna Norðaustur
kjördæmis heima fyrir.
Ruglaðist Jóhanna?
Annað atvik á þessa vegu má nefna
atkvæðagreiðslur um breytingar
á gjaldþrotalögum. Magnús M.
Nordal, varaþingmaður Samfylk
ingarinnar, lagði fram breytinga
tillögu um lögin í óþökk meirihluta
allsherjarnefndar sem hafði talið að
ráðlagi réttarfarsnefndar að ákvæði
breytingatillögunnar væru til þess
fallin að skapa óvissu. Það átti sér
staklega við um ákvæði sem heimila
þrotamanni að leita úrlausnar hér
aðsdómara um lögmæti uppboða
á fasteignum til fullnustu kröfu í
ljósi hæstaréttardóma um lögmæti
og endurreikning gengistryggðra
lána. Breytingatillagan var fyrir mis
tök samþykkt í þeim mikla fjölda at
kvæðagreiðsla sem fór fram und
ir lok þingsins. Raunar var það hluti
af samkomulagi um þinglok að
breytingar á lögum um nauðungar
sölu og aðför yrðu samþykktar mið
að við tillögu meirihlutans.
Þegar upp komst um mistök
in var frumvarpinu vísað aftur inn
í allsherjar og menntamálanefnd
þar sem meirihluti nefndarinnar
skilaði nýju áliti þar sem lagt var til
að breytingatillagan nýsamþykkta
yrði ekki samþykkt í endanlegri at
kvæðagreiðslu frumvarpsins. Atvikið
þótti vægast sagt vandræðalegt fyrir
stjórnarmeirihlutann og raunar enn
eitt dæmi þess hversu mikil lausung
er í þingflokkum Samfylkingar og VG.
Meðal þeirra sem greiddu atkvæði
með breytingunni var Jóhanna Sig
urðardóttir. Leiða má að því líkur að
um mistök hafi verið að ræða enda
tillagan samþykkt með aðeins 17 at
kvæðum. Þá er vert að hafa í huga að
sé atkvæði Sigríðar Ingibjargar, starf
andi þingflokksformanns Samfylk
ingarinnar, skoðað kemur í ljós að
Jóhanna greiðir í atkvæðagreiðslu
um breytingatillöguna andstætt eig
in þingflokksformanni en fylgir
henni að máli í öðru. Venjubundið er
við þinglok og eftir samkomulag að
þingmenn og ráðherrar flokka fylgi
atkvæði eigin þingflokksformanns.
Of mikil þjónkun við
minnihlutann
Margir þingmenn meirihlutans eru
afar ósáttir við hversu langt hefur
verið gengið í þjónkun við minni
hlutann. Ólína Þorvarðardóttir og
Lilja Rafney Magnúsdóttir hafa
viljað ganga lengst í breytingu fisk
veiðistjórnunarkerfisins. Það er
ljóst á samkomulagi Jóhönnu og
Steingríms við stjórnarandstöðuna
að þeim liðum sem þær hafa talið
forsendu þess að geta stutt frumvarp
Steingríms hefur verið skipt út í stað
inn fyrir samkomulag um stjórnar
lok. Þær eru báðar sagðar íhuga
stöðu sína og stuðning við ríkis
stjórnina. Báðar hafa þær látið í ljósi
óánægju með það umboð sem fimm
manna hóp innan atvinnunefnd
ar hefur verið veitt við meðferð fisk
veiðistjórnunarfrumvarpsins. Þeir
sem sitja í hópnum eru Einar K.
Guðfinnsson fyrir Sjálfstæðisflokk
inn, Sigurður Ingi Jóhannsson fyrir
Framsóknarflokkinn, Kristján Möll
er fyrir Samfylkinguna, Björn Valur
Gíslason fyrir Vinstri græna og Þór
Saari fyrir Hreyfinguna.
Því hefur verið haldið fram að
hópurinn sé gagngert stofnaður til
þess að draga úr vægi þeirra atkvæð
is innan nefndarinnar. Í raun sé ver
ið að mynda nýjan meirihluta. Þá
felst óneitanlega nokkur yfirlýsing í
því af hálfu Jóhönnu Sigurðardóttir,
formanns Samfylkingarinnar, að
Kristján Möller hafi valist til verks
ins fyrir hönd flokksins en ekki Ólína
Þorvarðardóttir. Hún er af flest
um talinn helsti talsmaður flokks
ins í fiskveiðistjórnun og hefur vilj
að mestar breytingar. Kristján hefur
hins vegar lýst miklum efasemdum
um stefnu flokksins í sjávarútvegs
málum.
Landsdómsbandalagið
Innan stjórnarliðsins og Hreyfingar
innar er stór hópur sem vill beita
64. grein þingskaparlaga og er afar
ósáttur við hversu langt var gengið
í að semja. Raunar var tilbúið skjal
með undirskriftum níu þingmanna
um að ganga ætti til atkvæða um
hvort ljúka ætti umræðu og kjósa
tafar laust fyrir nokkrum vikum þegar
stjórnarskrármálin voru til umræðu
í þinginu. Það þótti hins vegar ekki
líklegt að sú atkvæðagreiðsla næði
meirihluta enda höfðu Össur Skarp
héðinsson utanríkisráðherra, Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti
þingsins, Árni Páll Árnason og Krist
ján Möller lýst sig andvíg beitingu
ákvæðisins. Í þingflokki VG höfðu
Ögmundur Jónason innanríkis
ráðherra og Jón Bjarnason lýst yfir
að þeir myndu ekki styðja þá að
gerð. Sama á við um Guðfríði Lilju
Grétars dóttur en hún var ekki á þingi
við þinglok.
Við vinnslu fréttarinnar var rætt
við þingmenn úr öllum flokkum og
trúnaðarmenn þeirra. Þá var rætt
við stjórnarmenn LÍÚ og aðila sem
þekkja til samtakanna. Ekki náðist
í Sigmund Davíð Gunnlaugsson á
fimmtudag.
Deildar meiningar Meðal stjórnarliða eru deildar meiningar um samkomulagið. Flestir
fagna þeir samkomulaginu en margir telja of langt gengið í þjónkun við minnihlutann.„ Ingibjörg Sólrún
kynntist þessu árið
2003. Allt í einu kom bara
einhver ótrúlegur her og
lamdi hana algjörlega
niður.
Salurinn tekinn í gegn Nánast samstundis og þingfundur endaði á þriðjudag hófu iðnaðarmenn að tæma þingsalinn og lagfæra. Dyttað
er upp á þingsalinn á fjögurra ára fresti en tæma þarf salinn svo hægt sé að nýta hann við vígslu forseta.