Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Page 29
Úttekt 29Helgarblað 22.–24. júní 2012
„Reynslan gerði mig
að meiri femínista“
Helgar líf sitt baráttunni
É
g var fimmtán. Fór ásamt
nokkrum vinum mínum í
tjaldútilegu með stórum hópi
fólks. Á svæðinu voru tveir
menn, 27 ára gamlir. Þeir gáfu
mér vodka og spiluðu Cypress Hill
og buðu mér inn í tjaldið sitt og allir
voru glaðir. Svo gáfu þeir mér meiri
vodka og svo talsvert meiri vodka.
Ég kyssti og kelaði smá og þegar mér
fannst aðgangsharkan orðin óþægi
leg tók ég það mjög skýrt fram að
ég hefði ekki komið inn í þetta tjald
til að stunda kynlíf. Því var ágæt
lega tekið. Svo bara veit ég ekki meir.
Ég veit að ég var dauð. Ég rankaði
við mér og sá að það lá maður ofan
á mér. Ég fann að hann var inni í
mér. Ég sá fötin mín liggja í kuðli við
hliðina á mér. Ég æpti og sparkaði,
hrinti af mér manninum, fór í helm
inginn af fötunum, greip hin með
og hljóp yfir í mitt tjald. Þar lá ég og
skalf og starði upp í loft alla nóttina.
Vinir mínir sátu hjá mér til skiptis,
héldu í höndina á mér og sögðu mér
að þetta héti nauðgun. Ég skildi það
ekki. Vissi bara að mér fannst þetta
ógeðslegt og hræðilegt. Fannst ég
skítug og langaði að hreinsa mig ein
hvern veginn róttækt. Með vírbursta
og klór eða skipta um ysta lag húðar
innar.“
Langur tími að viðurkenna
nauðgunina
Þetta er saga Hildar Lilliendahl Vigg
ósdóttur, femínista með meiru. Það
tók Hildi fjölda ára að átta sig á því
að hún hafi ekki sjálf boðið upp á
það að vera nauðgað. „Ég vann mig
í gegnum þetta með aðstoð fjöl
skyldu og vina, ég talaði alla tíð op
inskátt um þetta við allt fólk sem ég
var í einhverjum nánum samskipt
um við,“ segir hún. Það var vendi
punktur hjá Hildi þegar hún heyrði
auglýsingu í útvarpinu frá Stígamót
um þar sem minnt var á það að fólk
sem ekki gæti spornað við verknað
inum væri nauðgað. „Það var þá sem
ég byrjaði að reyna að venja mig á
að segja: mér var nauðgað. Fram
að því hafði ég sagt fólki að ég hefði
verið full í útilegu, farið í tjald, farið
í sleik og rankað við mér við að það
var maður ofan á mér og inni í mér.
Það tók mig mörg ár að læra að segja
að mér hafi verið nauðgað án þess
að taka það sérstaklega fram að ég
væri mjög meðvituð um minn hluta
af ábyrgðinni. Ég er búin að læra það
núna,“ segir hún ákveðið.
Mikilvægt að ræða ofbeldið
Líkt og margir aðrir viðmælend
ur DV segir Hildur það mikilvægast
að ræða ofbeldið. „Það er það besta
sem maður getur gert. Að ræða of
beldið hefur gert mér kleift að kom
ast yfir það. Mér leiðist tal um sálar
morð og sár sem aldrei gróa – mitt
sár greri. Ef ég ber einhver ör á sál
inni eftir þetta atvik, þá veit ég ekki
af því.“
Heggur í múrinn
Hildur hefur á undanförnum
mánuðum tekið virkan þátt í um
ræðu í fjölmiðlum, einkum í mál
um tengdum femínisma en segir að
hún sjái breytingu á því hvernig við
ræðum um kynferðisbrot; gerend
ur og þolendur. „Já, mér finnst tví
mælalaust eitthvað vera að breytast.
Ég held að við höggvum alltaf smá
í múrinn þegar við tökum þenn
an slag, tökum þessa umræðu. Mér
hefur fundist alveg ótrúlegt að fylgj
ast með öllu fólkinu sem hefur kom
ið fram undanfarna daga og sagt
sögurnar sínar. Það krefst mikils
hugrekkis og það blæs öðrum hug
rekki í brjóst. Við fáum engu breytt
nema með hugarfarsbreytingu. Við
þurfum að ná til krakkanna, þau
þurfa að læra að bera virðingu hvert
fyrir annars líkama. Að vera fullviss
um að maður fer ekki inn á slíkt yf
irráðasvæði án þess að vita að það
sé velkomið,“ segir hún. „Ég held
nefnilega að fæstar nauðganir séu
framdar af illsku. Ég held að þær séu
framdar af heimtufrekju, sjálfselsku,
virðingarleysi og yfirgangssemi. Því
hlýtur að vera hægt að breyta.“
Meiri femínisti fyrir vikið
„Það eina sem ég veit fyrir víst er
að þessi reynsla gerði mig að meiri
femínista. Hún hefur að vísu líka
valdið minniháttar sálrænum trufl
unum – ég á það til að fá óviðráðan
legt brjálæðiskast ef mér finnst ein
hver vera að króa mig af eða halda
mér fastri, jafnvel þótt það sé bara í
einhverjum fíflagangi. En það gerist
blessunarlega ekki oft og ég er alltaf
fljótt að jafna mig,“ segir Hildur um
áhrif þessa á líf hennar. „Ég er alla
vega stolt af því að vera eins og ég er
og sú manneskja er meðal annars
afleiðing þess sem ég hef upplifað.
Þess vegna myndi ég ekki vilja taka
neitt af því til baka,“ segir hún og
bætir við: „Ég er hamingjusöm bar
áttukona sem vill gera heiminn betri
fyrir alla.“
astasigrun@dv.is
É
g þreytist ekki á að segja hvað
það að vera femínisti skiptir
miklu máli þegar maður vinn
ur úr reynslunni. Bara það að
þekkja helstu einkenni brota
þola hjálpar einmitt til við að kasta
skömminni á haugana,“ segir Þyrni
gerður Láfa sem er framhleypin og
hispurslaus ung kona sem vill kyn
frelsa fólk. Þyrnigerður kemur fram
undir dulnefni sökum þess að hún
skrifar píkusögur á netinu sem oft og
tíðum verða persónulegar. Sögurn
ar skrifar hún, þrátt fyrir að hafa
sjálf gengið í gegnum erfiða reynslu
af kynferðisbroti og nauðgunum.
Ástæðan fyrir dulnefninu hefur því
ekkert með brotin gegn henni að gera,
heldur frelsi hennar til að tjá sig áfram
á netinu.
Flóðgátt opnaðist
Hún sagði sögu sína á netinu á dögun
um og það opnaðist flóðgátt hjá kon
um og körlum sem fetuðu veginn á
eftir henni og sögðu sögu sína. „Ég var
hræddust við að fá að heyra að ég væri
að væla og vorkenna mér, því það var
ekki markmið þess að segja frá. Við
brögðin hafa verið ótrúleg og bara fal
leg. Ég vildi óska þess að allar konur
væru jafn heppnar og ég,“ segir hún.
Leitaði huggunar hjá vini
Eftir alvarlegt kynferðisbrot var Þyrni
gerði tvisvar sinnum nauðgað. Í fyrra
skiptið var henni nauðgað af besta vini
sínum. „Ég leitaði huggunar hjá besta
vini mínum sem nauðgaði mér, svo ég
hætti nú örugglega að vera leið,“ seg
ir hún. Í seinna skiptið var hún stödd
á sveitabæ og það var ókunnugur
maður sem braut gegn henni. „Þeim
manni þótti samþykki ekki sexí.“
Gott að segja frá
Hún segir að það hafi í öllum tilfellum
verið gott að segja frá brotunum, en
hún hafi ef til vill sagt of seint frá þeim.
„Ég hef valið gaumgæfilega hverj
um ég hef sagt frá og aldrei brennt
mig á því. Það er gott að segja frá og
það er mikilvægt að ræða það. Það að
ræða ofbeldið hefur kannski ekki haft
svo mikil áhrif á mína líðan enda var
ég aldrei þjökuð af því að eiga þetta
leyndarmál, en það er mikilvægt fyrir
samfélagið að ræða það. Það er mik
ilvægt að segja frá því hvað ofbeldið
hefur slæm áhrif og það er mikilvægt
að senda þau skilaboð að ofbeldi sé
ekki eitthvað til að skammast sín fyrir.
Ég mun segja börnunum mínum frá
þeim brotum sem ég hef orðið fyrir
og ég mun skrifa um þau í ævisöguna.
Þau eru hluti af lífi mínu alveg eins og
skólagangan eða fyrsti smókurinn,“
segir hún.
„Hættum að nauðga“
En hún segir að skilaboð samfélags
ins eigi fyrst og fremst að vera þessi:
„Hættum að nauðga. Hættum að
heimta það sem við eigum ekki skilið
og hættum að traðka á frelsi annarra
fyrir okkar eigið frelsi.“ En þessi
reynsla hefur breytt henni á margan
hátt. „Hún hefur ýmsu breytt hjá
mér, bæði jákvæðu og neikvæðu. Ég
hef fjarlægst foreldra mína sem ég er
sannfærð um að muni ekki bregðast
við á heilbrigðan hátt, að sumu leyti
því ég skammast mín fyrir að halda
þessu frá þeim. Þó það sé mótsagna
kennt. Ég hef líka þurft að berjast við
mína ára sem lýsa sér bæði í endur
liti og einstaka flækjum með það að
segja nei við kynlífi, þó ég eigi ótrú
lega góðan að sem passar að ég segi
alltaf nei við hann þegar hann sér að
ég er ekki á góðum stað,“ segir hún.
Það jákvæða, ef svo má að orði kom
ast, hefur haft þá þýðingu fyrir Þyrni
gerði að hún stundar aðeins kynlíf á
sínum forsendum og fyrir sjálfa sig.
„Ég er harðari í baráttunni en nokkru
sinni fyrr og ég hef ákveðið að helga líf
mitt því að hjálpa brotaþolum, helst
alla leið í gegnum kerfið,“ segir hún.
„Ég er hamingjusöm og sterkari en
nokkru sinni.“
astasigrun@dv.is
„Það er
gott að
segja frá og það
er mikilvægt að
ræða það
„Ég er alla-
vega stolt
af því að vera
eins og ég er
Mitt sár greri „Mér leiðist tal um sálar
morð og sár sem aldrei gróa,“ segir Hildur.
Skilaboðin einföld „Hættum að
nauðga,“ segir Þyrnigerður að skilaboð
samfélagsins eigi að vera.
Þau segja:
„Það er ótrúleg tilfinning að
hleypa þessu loksins út“
„Boðskapur minn er sá að
öllum getur verið nauðgað,
óháð kyni, stétt eða líkam-
legum burðum til að verjast
nauðgun“
„Ef þú kæri lesandi myndir
samt sjá mig, þá myndi þig
ekki gruna það að ég hafi lent
í þessu“
„Þetta er vandamál sem við
sem samfélag þurfum að taka
höndum saman um að eyða“
„Það skiptir máli, ekki bara
fyrir þolendurna, að finna
samstöðu og ekki síður skiptir
það máli að senda þau skila-
boð út í samfélagið að ofbeldi
er aldrei ásættanlegt“
„Samfélagið þarf að skera
upp herör gegn kynferðisof-
beldi“
„Við megum aldrei gleyma
því að taka höndum saman
þegar svo ber undir og
fordæma þessi varmenni,
þessa aumingja sem nauðga.
Hættið að nauðga! Hvað er að
ykkur?“
„Það að ég er femínisti
bjargaði mér frá skömm drusl-
unnar“
„Fólk og fjölmiðlar tala iðu-
lega um meintar nauðganir
og sú orðræða virðist aðeins
gilda um þennan brotaflokk.
Mun sjaldnar er talað um
meint innbrot eða meinta
líkamsárás“
„Lífið er stutt. Svo stutt að
það er ólíðandi að fávitar,
aðrir en maður sjálfur, fái að
komast upp með að eyði-
leggja það eða valda varan-
legum sárum“
Af drusluganga.org
Ef þú vilt
kæra brotið
Það eru ekki allir sem eru tilbún
ir til þess að kæra strax brotið.
Vilji viðkomandi hins vegar kæra
nauðgun er mikilvægt að leita til
neyðarmóttökunnar og til að auka
líkur á að finna sakargögn tengd
kynferðisbroti er mikilvægt að:
n Koma eins fljótt og hægt er eftir
meint kynferðisbrot á Neyðarmót
töku vegna nauðgana. Hægt er að
hafa samband við lögreglu sem
aðstoðar viðkomandi við að kom
ast á neyðarmóttökuna.
n Mikilvægt er að þvo sér ekki eða
fara í bað áður en skoðun og sýna
taka fer fram.
n Þá er einnig mikilvægt að þvo
hvorki né fleygja fötum, tíðabind
um eða tíðatöppum tengdum at
burði og ekki fleygja verjum.
n Vera í fötum sem tengjast broti
eða hafa meðferðis á neyðarmót
töku.
n Ekki hreinsa eða farga sakar
gögnum á sakarvettvangi (t.d.
rúmfatnaði, húsgögnum, húsbún
aði, tækjum og tólum).
(Heimild: Neyðarmóttaka vegna nauðgana).