Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Side 32
32 22.–24. júní 2012 Helgarblað
Stórafmæli
35 ára 23. júní
Söngvarinn Jason Mraz hefur brætt
hjörtu stúlkna víða undanfarin ár
með silkimjúkri röddu sinni.
25 ára 24. júní
Knattspyrnumaðurinn Lionel Messi er ungur
að árum þrátt fyrir að hafa unnið ótrúleg afrek
á knattspyrnuvellinum.
63 ára 22. júní
Leikkonan Meryl Streep má
eiga það að aldurinn ber
hún betur en flestir.
Merkis-
atburðir
22. júní
1372 - Englendingar biðu ósigur
fyrir sameinuðum flota Frakka og
Kastilíumanna í orrustunni við La
Rochelle.
1636 - Herstjóraveldið í Japan
bannaði allar ferðir Japana til og
frá landinu. Bannið gilti til ársins
1853.
1939 - Hitamet var sett á
Teigarhorni í Berufirði: Mesti
mældur hiti á Íslandi frá upphafi
mælinga, 30,5°C.
1941 - Þýskaland hóf innrás í
Sovétríkin.
1977 - Hópferðabíll valt í Bisk-
upstungum og lá við stórslysi.
Í bílnum voru 46 farþegar af
skemmtiferðaskipi og meiddust
margir þeirra en enginn alvarlega.
1991 - Á Snæfellsjökli féllu hjón
niður í alldjúpa sprungu en var
bjargað.
23. júní
1439 - Eiríkur af Pommern var
sviptur embætti í Danmörku.
1787 - Eftir rannsókn á emb-
ættisfærslu Skúla Magnússonar
landfógeta úrskurðaði kansellíið
í Kaupmannahöfn að hann fengi
að halda embætti.
1893 - Karl Danaprins, sonarson-
ur Danakonungs kom til Íslands
á snekkjunni Dagmar með sveit
sjóliðsforingjaefna. Hann varð
síðar konungur Noregs og tók sér
nafnið Hákon 7.
1923 - Listasafn Einars Jóns-
sonar, Hnitbjörg, var opnað á
Skólavörðuholti í Reykjavík.
1925 - Skáksamband Íslands var
stofnað.
1926 - Jón Magnússon forsætis-
ráðherra sem var í för með kon-
ungshjónunum um Norðurland og
Austurland, lést á Norðfirði.
1946 - Skíðasamband Íslands var
stofnað.
1968 - Keflavíkurganga á vegum
hernámsandstæðinga var gengin
frá hliði herstöðvarinnar til
Reykjavíkur.
1996 - Leikjatölvan Nintendo 64
kom fyrst á markað í Japan.
24. júní
1000 - Kristni var lögtekin á
Alþingi.
1556 - Oddur Gottskálksson
lögmaður lést. Hann þýddi Nýja
testamentið á íslensku fyrstur
manna og var það fyrsta bók sem
prentuð var á íslensku. Oddur var
sonur Gottskálks biskups grimma
á Hólum.
1618 - Morðbréfamálið: Jón
Ólafsson lögréttumaður kærði
Guðbrand Þorláksson biskup fyrir
eftirlitsmönnum konungs.
1865 - Fyrsti keisaraskurður var
framkvæmdur á Íslandi. Móðirin
lést en barnið lifði. Einnig var
fyrstu svæfingu á Íslandi við
fæðingu að ræða.
1875 - W. L. Watts, enskur
vísindamaður, fór ásamt fjórum
Íslendingum norður yfir Vatna-
jökul og komu þeir til byggða á
Hólsfjöllum eftir mikla hrakninga í
rúman hálfan mánuð.
1886 - Stórstúka Íslands stofnuð.
1900 - 900 ára afmælis kristni-
tökunnar á Íslandi var minnst við
messur í landinu.
1956 - Hræðslubandalag Fram-
sóknarflokks og Alþýðuflokks
bauð fram í Alþingiskosningum.
1961 - Sigurhæðir á Akureyri, hús
Matthíasar Jochumssonar, voru
opnaðar sem safn í minningu
skáldsins.
1968 - Atlantshafsbandalagið
hélt ráðherrafund á Íslandi í fyrsta
sinn.
Syfjaður í stærðfræði
Komum að leika!
n Leikir sem börnin hafa gaman af
Þ
að er skemmtilegt að
hafa hópleiki í barna-
afmælum og að sjálf-
sögðu er best að for-
eldri hafi yfirumsjón með
leiknum og stjórni. Hér eru
nokkrir leikir frá Leikjabank-
anum sem gaman væri að
prófa í næsta barnaafmæli.
Ávaxtaleikur
Öll börnin velja sér eitt
ávaxtanafn og sitja í hring á
stólum. Stólarnir eru einum
færri en börnin. Sá sem ekki
hefur stól stendur í miðj-
unni og nefnir tvo ávexti, til
dæmis appelsínu og epli. Þá
standa þau upp sem heita
þeim nöfnum og eiga að
skipta um sæti og sá sem
er í miðjunni á að reyna að
ná öðru sætinu og sá sem
er ekki með sæti á að vera í
miðjunni. Einnig getur hann
sagt ávaxtakarfa og þá eiga
allir að skipta um sæti.
Mjálmaðu nú kisa mín!
Börnin setjast hvert á sinn
stól og raða sér í hring og einn
er fenginn til að „ver’ann“.
Trefill er bundinn um augu
hans og honum snúið í hring.
„Blindinginn“ á að þreifa sig
áfram þangað til hann finn-
ur einhvern og setjast ofan á
fórnarlambið. Þegar hann er
sestur segir hann: „Mjálm-
aðu nú kisa mín“ og á þá
fórnarlambið að mjálma og
er það gjarnan gert ámátlega.
Þá má sá sem „er’ann“ giska
á hver mjálmar. Giski hann
rétt eru höfð hlutverkaskipti.
Hægt er að setja reglur um að
sá sem „„er’ann“ megi giska
þrisvar sinnum, eða jafnvel
eins oft og menn vilja.
Handaklapp
Börnin sitja í hring og leggja
lófana flata á gólfið. Síðan
flytur hvert barn vinstri hönd
sína yfir hægri hönd þess
sem situr honum á vinstri
hönd. Einn byrjar að klappa
lófanum á gólfið einu sinni.
Klappið gengur réttsælis og
verða allir að einbeita sér að
því að fylgjast með hvenær
er komið að þeirra hönd. Það
getur ruglað þátttakendur í
ríminu að hendur þeirra eru
ekki hlið við hlið. Ef klappað
er tvisvar snýst hringurinn
við. Þegar einhver hönd
klappar á vitlausum tíma eða
gleymir að klappa er hún úr
leik. Þá á þátttakandi að setja
höndina aftur fyrir bak en hin
höndin hans er ennþá með í
leiknum. Þegar þátttakandi
hefur misst báðar hend-
ur er hann úr leik. Að lokum
stendur svo einn þátttakandi
uppi sem sigurvegari.
Þorgils Björgvinsson tónlistarmaður 40 ára 24. júní
É
g er fæddur í Reykjavík
og flutti tveggja ára í
Kópavog,“ segir Þorgils
Björgvinsson tónlist-
armaður. „Ég man að
við krakkarnir lékum okkur
rosalega mikið úti við þegar
ég var að alast upp.“
Valdi tónlistina
„Ég kláraði grunnskólann í
Kópavogi og fór svo að vinna
í eitt ár hjá Pósti og síma,
sem þá var, en fór svo fljót-
lega að spila í hljómsveitum.
Fyrsta hljómsveitin sem ég
var í hét Tríó Jóns Leifsson-
ar, svo fór ég að spila með
Ný danskri og seinna með
Snigla bandinu. Ég spilaði úti
um allt land með Ný danskri
og var líka byrjaður í Iðn-
skólanum. Ég ætlaði að læra
rafeindavirkjun en sá fljót-
lega, þegar ég var farinn að
sofna í stærðfræði, að ég gat
ekki gert hvort tveggja og tók
tónlistina fram yfir skólann.“
Besti versti
félagsskapurinn
Sniglabandið var mjög vin-
sælt hér á landi á sveita-
böllunum á árum áður. „Við
vorum mest að flakka um
víðan völl á árunum 1990
til svona 1995 og spiluðum
á böllum úti um allt. Það
hafa margir haldið að þessi
félagsskapur væri ekki góð-
ur en ég hef sagt að þetta sé
nú „besti versti félagsskap-
ur“ sem ég hef vitað um, en
það halda margir að Snigl-
arnir séu bara leðurklædd-
ir morðingjar,“ segir Þorgils
hálfpartinn í alvöru.
Fór út í skóla
Þorgils flutti árið 1998 til
Danmerkur og bjó þar í fjög-
ur ár. „Ég var fyrst að vinna
sem rótari hjá Sinfóníu-
hljómsveit Jótlands og svo
spilaði ég dálítið með þeim
líka, á gítar. Svo fór ég í skóla
þarna úti líka, í kerfisfræði,
og kláraði það nám. Að því
loknu kom ég heim og fór að
starfa í kerfisfræði ásamt því
að vera að spila.“
Nóg að gera
„Ég er alltaf að spila annað
slagið með Sniglabandinu og
svo spila ég með hinum og
þessum. Ég er líka að vinna
með guitarparty.com og við
stefnum á heimsyfirráð nátt-
úrulega, en heimasíðan var
að komast inn á Bandaríkja-
markað. Þess má til gamans
geta að ég er að spila með
Sniglabandinu á laugar-
daginn á Spot í Kópavogi.
Afmælisdeginum ætla ég
bara að eyða í mestu róleg-
heitum með fjölskyldunni en
verð með smá kaffiboð fyrir
þá allra nánustu,“ segir þessi
hressi tónlistarmaður að lok-
um.
Fjölskylda
Þorgils
n Foreldrar: Björgvin Jónsson
f. 15.11. 1934
Jóna Þórdís Eggertsdóttir f. 29.6.
1931– d. 30.8. 1991
n Maki: Elma Bjarney Guð-
mundsdóttir f. 29.1. 1974
n Systkini: Oddbjörg Ragnars-
dóttir f. 3.10. 1959
Jón Björgvinsson f. 1.10. 1962
Eggert Björgvinsson f. 27.4. 1965
n Börn: Bergur Þorgilsson
f. 23.2. 1994
Máni Þorgilsson f. 12.4. 2003
Leikir Gerum eitthvað skemmtilegt með börnunum