Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Side 36
Hvað er að
gerast?
Laugardagur
Föstudagur
Sunnudagur
23
Jún
22
Jún
24
Jún
Partíþoka á Seyðisfirði
Tónlistarhátíðin Partíþokan verður
á Seyðisfirði helgina 22.–23. júní.
Fram koma Jónas Sigurðsson og
Ritvélar framtíðarinnar, Prins
Póló, Ojba Rasta, Snorri Helgason,
Mr. Silla, og Hugleikur Dagsson.
Helgarpassi á viðburði hátíðarinn-
ar kostar 3.500 krónur.
Ólöf Arnalds í Grasa-
garðinum
Sumarsólstöðutónleikar Ólafar
Arnalds ásamt Skúla Sverrissyni
í Grasagarðinum. Tilefnið er
sumarsólstöður
og fylgir Ólöf
þar með eftir
sumar- og vetr-
arsólstöðutón-
leikum sínum
á síðasta ári.
Ólöfu til halds
og trausts verður samverkamaður
hennar til margra ára, Skúli Sverr-
isson, bassaleikari og tónskáld.
Tónleikarnir fara fram í Café Flóru í
Laugardalnum.
Black í Bernie
Kvikmyndin Bernie er sýnd í
kvikmyndahúsum landsins. Bernie
er grínmynd í leikstjórn Richards
Linklater. Með
aðalhlutverk-
in fara Jack
Black, Shirley
MacLaine
og Matthew
McConaughey.
Myndin byggir
á sönnum atburðum en fylgst er
með útfararstjóranum Bernie í
smábæ í Texas.
Viltu læra að verða
Íslendingur?
How to become Icelandic in 60
minutes er leiksýning sem leikin er
á ensku, samin og flutt af Bjarna
Hauki Þórssyni
og leikstýrt
af Sigurði
Sigurjónssyni.
Sýningin er
sambland af
söguleikhúsi og
uppistandi þar
sem reynt verður að kenna þeim
sem sýninguna sækja að verða
Íslendingar. Þetta er sprenghlægi-
leg klukkustundarlöng sýning sem
ætluð er öllum þeim sem vilja læra
hvað það er að vera Íslendingur.
Intouchables
Ríkur aðalsmaður, sem býr í
stórhýsi í París, lendir í slysi og
lamast fyrir neðan mitti. Hann
auglýsir eftir aðstoðarmanni sem
getur búið hjá honum og hugsað
um sig. Ungur afbrotamaður úr fá-
tækrahverfunum mætir í viðtal en
hefur í raun ekki áhuga á starfinu.
Sér til undrunar er hann ráðinn.
Mennirnir tveir þróa með sér djúp-
an vinskap í kjölfarið. Myndin er
sýnd í Háskóla- og Laugarásbíói.
36 22.–24.júní 2012 Helgarblað
„Pólitískur farsi sem
fjallar um einræðisherra“
„Umgerð leiksins og öll myndræn
úrvinnsla er mikið augnagaman“Menning
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Gamanmynd
The Dictator
Brúðuleikhús
Gamli maðurinn og hafið
Þ
etta var svolítið gam-
an og svo held ég bara
seinna um daginn
þá rauk platan upp í
fjórða sæti yfir mest
seldu plötur í Þýskalandi.
Þannig að þetta skilaði sér
rosa vel og það voru greini-
lega margir að horfa,“ segir
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir,
söngkona hljómsveitarinn-
ar Of Monsters and Men.
Þann 18. júní síðastliðinn
fékk hljómsveitin það frábæra
tækifæri að fá að spila í EM-
stofu þýsku sjónvarpsstöðv-
arinnar ZDF fyrir leik Spánar
og Króatíu. En þátturinn var
sendur út í beinni útsendingu
frá „The Beach of Usedom“ við
Eystrasalt.
Um er að ræða glæsilegan
tökustað sem staðsettur er
í fjörborðinu á hvítri sand-
ströndinni. Sviði og stór-
um sjónvarpsskjá hefur
verið komið fyrir úti í sjó
en áhorfendur sitja í fjör-
unni og fylgjast með bæði
knattspyrnuleikjum og
skemmtiatriðum.
Mikið af eldra
fólki á svæðinu
„Þetta þykir ótrúlega gott tæki-
færi og við náttúrulega gripum
þetta strax og vorum meira en
til í að fljúga þarna út og spila.
Þetta var ótrúlega flott dæmi,“
segir Nanna en tilboðið barst
þeim í gegnum útgáfufyrirtæki
hljómsveitarinnar. Þau flugu
sérstaklega út til Þýskalands til
að koma fram í þættinum og
fluttu lagið Little talks við mik-
inn fögnuð áhorfenda. Hægt
er að finna upptöku af flutn-
ingi Of Monsters and Men í
þættinum á myndbandavefn-
um Youtube. Þar sést glögg-
lega að áhorfendur kunna vel
að meta tónlistina og margir
syngja með og dilla sér í sæt-
unum.
Nanna viðurkennir að
stemningin á svæðinu hafi
verið töluvert öðruvísi en þau
eiga að venjast. „Það var svo-
lítið skemmtilegt stemning
þarna. Þetta var svolítið skrýt-
ið. Það var rosa mikið af eldra
fólki en það var fallegt þarna
og þetta er flott svæði.“
Góður stökkpallur
Hljómsveitarmeðlimirnir
vissu í raun ekkert hvað þeir
voru að fara út í þegar hljóm-
sveitin var beðin um að spila í
umræddum þætti. Þegar þau
voru að undirbúa sig fengu
þau þó þær upplýsingar að
ástæðan fyrir því að söngkon-
an Nelly Furtado hefði orðið
svona vinsæl í Evrópu hefði
verið sú að hún hefði komið
fram við svipaðar aðstæður.
Það hefði vakið mikla athygli
á tónlist hennar og vinsæld-
irnar jukust til muna í kjölfar-
ið. Hljómsveitinni þótti það
ágætis viðmið og sló að sjálf-
sögðu til.
Í vikunni áður en Of Mon-
sters and Men kom fram í
þættinum stóð sænska söng-
konan Loreen, sem sigraði
í Eurovision á dögunum, á
sama sviði og flutti sigurlag
keppninnar, Euphoria.
Stormur setti strik
í reikninginn
Eftir að hljómsveitin var búin
að æfa sig á sviðinu fyrir beinu
útsendinguna kom þó babb í
bátinn sem hefði getað komið
í veg fyrir að þau flyttu lagið.
„Við æfðum okkur um daginn
og svo kom smá stormur og
það var óvíst hvort við mynd-
um ná að spila. En við náð-
um að spila á endanum,“ segir
Nanna sem er að vonum fegin
að það gekk eftir.
Blaðamanni leikur forvitni
á að vita hvort ekki hafi verið
slegið upp veislu á ströndinni
eftir knattspyrnuleikinn en
Nanna segir svo ekki hafa ver-
ið. Allavega hafi hljómsveitin
n Of Monsters and Men slær í gegn í EM-þætti í Þýskalandi n Flaug sérstaklega út fyrir þáttinn
„Þetta var ótrú-
lega flott dæmi“
Vel fagnað Of Monsters and Men
var vel fagnað í þýsku EM-stofunni
og áhorfendur kunnu augljóslega að
meta tónlistina.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Á barmi heimsfrægðar
Það er óhætt að segja að
hljómsveitin Of Monsters and
Men sé að slá í gegn, bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum.