Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Side 38
n Kaffisopi og kýrnar í fjósinu n Grýla gamla í kjallaranum
Sjö hlutir til að
gera á Akureyri
1 Fáðu þér ís Brynjuís er skyldustopp hjá mörgum en það er hægt að fá ís á fleiri stöðum. Ísbúðin Joger
í Kaupangi er með þeim glæsilegri en þar sjá viðskiptavinir
um að skammta sér sjálfir. Mikið úrval er af jógúrtís sem
síðan er hægt að skreyta með sósum, sælgæti, ávöxtum
og flestu því sem hugurinn girnist. Auk þess sem rjómaís-
inn er skammt undan og safar og búst. Í miðbænum er svo
Litla ísgerðin ská á móti ÁTVR.
2 Jólahúsið Sama hvernig viðrar og á hvaða árstíma er alltaf sérstök upplifun að koma í Jólahúsið í
Eyjafirði. Tíminn stendur í stað og þar er alltaf aðfangadag-
ur. Léttir lund og kætir. Ekki skemmir fyrir að Grýla gamla
leynist í helli í kjallaranum. Svo er hangiketslærið alltaf uppi
fyrir svanga ferðamenn.
3 Fara í sund Sundlaug Akureyrar er ein sú glæsi-legasta á landinu og býður upp á allt það helsta:
Potta, barnalaug, rennibrautir, tvær sundlaugar, innilaug,
gufubað og nuddstúta. En einnig er stutt að fara í tvær aðrar
heillandi laugar skammt frá bænum, Þelamörk og Hrafna-
gil. Á Þelamörk er laugin sjálf heit og góð og á Hrafnagili er
glæsileg rennibraut.
4 Út að borða Á Akureyri er mikið úrval af veitinga-stöðum. Á Strikinu er hægt að sitja úti á fimmtu hæð í
sólinni með útsýni yfir bæinn, Pollinn og Vaðlaheiðina. Á Rub
23 er boðið upp á eitt besta Sushi á landinu að ógleymdum
hinum klassísku stöðum Greifanum og Bautanum. Inni í Eyja-
firði er einnig að finna nýjan og spennandi hráfæðisstað sem
heitir Silva. Hollustan er þar í fyrirrúmi og ekki spillir útsýnið.
5 Kaffibolli í Lystigarðinum Lystigarðurinn á Akureyri er glæsilegur og fallegt útivistarsvæði.
Hvort sem er til göngutúra, lautarferða eða til að skoða
flóru Íslands. Fyrir skömmu opnaði svo lítið og smekklegt
kaffihús í Lystigarðinum og því tilvalið að setjast niður og fá
sér kaffibolla.
6 Kaffi Kú Kaffi Kú er skemmtilegt og skrítið kaffihús á fjósaloftinu á bænum Garði, um 10 km suður af
Akureyri. Þar geta viðskiptavinir sest niður og drukkið
kaffi, fengið sér gúllassúpu og horft yfir beljurnar í fjósinu.
Einstaklega vinsælt hjá yngstu fjölskyldumeðlimunum og
þar er einnig góð leikaðstaða fyrir litlar hendur.
7 Bátar og blak Mikið framboð er af afþreyingu á svæðinu. Má nefna báta- og sjókattaleigu við Pollinn,
Strýtuköfun í Eyjafirði, Laser-Tag, bíó, keilu, golf, veiði,
strandblak, hestaleigur og fjórhjólaleigu í Hörgárdal. Kjarni- og
Vaglaskógur eru í grenndinni en vilji fólk leggja aðeins meira á
sig er svolítill akstur að Mývatni og Ásbyrgi.
38 Lífsstíll 22.–24.júní 2012 Helgarblað
Galdrar á
Ströndum
Galdrasafnið á Ströndum er stað-
sett á Hólmavík og er vel þess virði
að líta þangað inn ef fólk á leið
þar um. Þar getur að líta alls kyns
skemmtilega muni og fróðleik um
galdra og kukl en búið er að draga
saman vitneskju um galdraöldina
á Íslandi, þjóðsögur, hugmynda-
heim og menningararf Stranda-
sýslu sem tengist göldrum.
Djúpavík á
Ströndum
Ef þig langar að komast í eitthvað
allt annað umhverfi og náttúru en
þá sem þú býrð við er æðislegt að
fara til Djúpavíkur á Ströndum.
Þar er rekið hótel af hjónunum
Evu Sigurbjörnsdóttur og Ásbirni
Þorgilssyni og hafa þau verið þar í
rúmlega 25 ár. Í Djúpavík er margt
hægt að gera, til dæmis að skoða
gamla síldarverksmiðju með leið-
sögumanni, fara í gönguferð-
ir, sjóstöng, kajakróður og fleira.
Fjöllin í Djúpavík eru stórbrotin
og til gamans má geta þess að árið
2006 spilaði hljómsveitin Sigur
Rós í síldarverksmiðjunni þegar
hún var á tónleikaferð um landið.
Sundlaug
í grýttri fjöru
Sundlaugin á Krossnesi, í Árnes-
hreppi á Ströndum, er einstök á
svo afskaplega marga vegu. Hún
er staðsett í stórgrýttri fjöru rétt
hjá sjónum og gestir í henni heyra
sjávarniðinn meðan þeir liggja í
heitu vatninu í lauginni og ekki
skemmir útsýnið fyrir því stórbrot-
ið landslag er allt í kring. Ekkert
rafmagn er í litlu búningsklefun-
um og er það partur af sjarman-
um því ef gestir koma seint þarf
að koma með kerti með sér eða
klæða sig í myrkri.
Sundlaugin er lítil, aðeins um
það bil 12,5 metrar á lengd og svo
er einn heitur pottur þarna líka.
Alveg einstök náttúruperla sem
enginn ætti að láta fram hjá sér
fara.