Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Page 39
Inngróin hár eftir vaxmeðferð
n Góð ráð til að losna við þennan hvimleiða vanda
Þ
að verður sífellt algengara að
konur fari í vax fremur en að
raka sig eða nota háreyðingar
krem. Hárin eru fjarlægð með
rótum og það getur valdið því að þær
fá inngróin hár.
Sumar konur fá meira af inngrón
um hárum en aðrar en fyrir þær sem
fá þau er þetta hvimleitt vandamál.
Það eru hins vegar til nokkrar aðferð
ir til að draga úr þessu til muna.
Lífsstíll 39Helgarblað 22.–24.júní 2012
1 Gefðu húðinni nógan raka Drekktu nóg af vatni. Ef húðin
og hárið fá nægan raka þá eru mikli
minni líkur á að fá inngróin hár og þú
finnur miklu minna til þegar verið
er að fjarlægja hárin. Talað er um
að 6–8 glös af vatni á dag séu alveg
kjörið magn. Líka er gott að nota
gott rakagefandi krem á húðina sjálfa.
2 Skrúbbaðu húð-ina reglulega Það
er ofboðslega mikilvægt
að skrúbba húðina vel og
reglulega. Með því ertu að losa
húðina við dauðu húðfrumurnar
sem geta átt það til að stífla hársekkina,
þaðan sem hárin koma.
3 Kældu húðina vel Eftir vax-
meðferðir er húðin
mjög viðkvæm og
rauð og þá er
mjög mikil-
vægt að kæla
húðina vel. Til
þess er gott að nota
til dæmis þvottapoka og ískalt
vatn. Þetta dregur mjög mikið
úr roða og sviða.
Inngróin hár Hvimleiður fylgifiskur vaxmeðferðar
Riðið og hlaupið
um Ásbyrgi
n Ný reiðleið í Ásbyrgi n Hlaupaferðaþjónusta ný af nálinni
Á
sbyrgi er að flestra mati ein
af fallegustu náttúruperlum
á Íslandi ef ekki í heimin
um öllum. Þar er boðið upp
á ýmislegt fyrir ferðamenn
og má til dæmis nefna reiðtúra,
gönguferðir og barnadagskrá. Einnig
er boðið upp á nýstárlega ferða
þjónustu þar og á svæðinu í kring,
hlaupaferðaþjónustu.
Árið 2007 var Gljúfrastofa opn
uð í Ásbyrgi og hefur það stóraukið
þjónustu við ferðamenn á svæðinu
en Ásbyrgi er partur af Vatnajökuls
þjóðgarði. Frá Gljúfrastofu er með
al annars boðið upp á skipulagðar
gönguferðir og skemmtidagskrá fyrir
börn auk þess sem fyrrnefndar reið
ferðir eru farnar þaðan.
Ný reiðleið
„Reiðferðin um Ásbyrgi er um
tveggja tíma löng,“ segir Inga Fann
ey Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
Active North. „Það er riðið eftir nýrri
reiðleið sem opnaði í september í
fyrra,“ en leiðin liggur í gegnum Ás
byrgi og inn í botn. „Það er riðið frá
Gljúfrastofu sem er í austurhluta Ás
byrgis, yfir Eyjuna eins og það kall
ast og í vesturhlutann. Þaðan er
riðið meðfram klettunum og inn í
Byrgi. Síðan er farið af baki og stopp
að við Botntjörn.“ Inga Fanney segir
leiðina einstaklega fallega þar sem
reiðmenn eru umkringdir gróðri og
klettahömrum.
Inga segir að einnig hafi verið
boðið upp á svokallaða hellareiðferð
frá Gljúfrastofu en þá er riðið í vestur
til Kelduhverfis. „Þar er farið í gegn
um svæði sem einkennast af jarð
skorpuhreyfingum. Þar sjást mjög
vel áhrif stóra skjálftans frá 1976. Síð
an eru skoðaðir hellar á þeirri leið
og stoppað og farið inn í einn þeirra.
Hann er einn sá stærsti á Norðaust
urlandi en hefur þó ekki verið nefnd
ur ennþá.“
Hlaupið um stórbrotið landslag
Inga Fanney kemur að öðru nýstofn
uðu ferðaþjónustufyrirtæki sem
býður upp á heldur óvanalega þjón
ustu, hlaupaferðaþjónustu. „Fyrir
tækið heitir Arctic Running og býður
upp á hlaupa ferðir um svæðið. Allt
frá dags ferðum og upp í lengri ferð
ir,“ en Inga segir vega lengd irnar frá
13 kílómetrum á dag og allt upp í 35
fyrir vanari hlaupara. „Við bjóðum
til dæmis upp á ferðir frá Mývatni til
Ásbyrgis. Þá er verið að hlaupa 20 til
30 kílómetra á dag.“
Inga segir hið árlega Jökulsár
hlaup jafnvel tvinnað inn í lengri
ferðirnar sem eru í kringum þrjá til
fjóra daga. „Þá er fólk að ferðast fyrri
part ferðarinnar en keppa seinni
partinn fyrir þá sem hafa áhuga á
því.“ Inga segir hlaupaferðaþjón
ustu sameina útivist og heilsurækt
á einstakan hátt og að vel hafi ver
ið tekið í verkefnið. Auk dagsferða
og lengri ferða er einnig boðið upp
á svokallað miðnæturskokk frá Ás
byrgi.
Inga Fanney er áberandi í ferða
þjónustunni á svæðinu því að hún
er líka verkefnastjóri hjá ferðaþjón
ustuklasa á svæðinu sem nefnist
Norðurhjari. Hún segir mikið líf á
svæðinu og af nógu að taka hvert sem
komið er. Inga bendir áhugasöm
um á vefsíðuna edgeofthearctic.is
þar sem er að finna upplýsingar um
svæðið.
Trúin á Orm-
inn lífseig
„Hallormsstaðaskógur er mjög
vinsæll hjá íslenskum ferðamönn
um,“ segir Díana Mjöll Sveins
dóttir markaðsstjóri Tanni Tra
vel á Eskifirði sem segir veður og
náttúru heilla ferðamenn þegar
þeir heimsækja Austurland. „Fólk
eltir náttúrulega veðrið. Þeir Ís
lendingar sem gista á tjald
svæðum eru óöruggustu ferða
mennirnir því ef veðrið er ekki
gott eru þeir farnir. Skógurinn er
annálaður fyrir veðursæld. Þar er
skjól og hann langt frá sjó,“ segir
Díana Mjöll sem segir Borgarfjörð
Eystri einnig vinsælan áningastað.
„Og allir þessir staðir sem hafa
verið í umræðunni síðustu ára
tugi. Margir koma við í Steinasafni
Petru á Stöðvarfirði. Það er mjög
vinsælt.
Svo er sagan um Lagar
fljótsorminn alltaf lífseig. Trúin á
hann hefur líklega ekki verið jafn
mikil og síðan hann „sást“ í jan
úar. Ormurinn er klárlega lifandi
í hugum manna og margir sem
hingað koma spyrja um hann og
vilja kynnast sögunni.“
Hátíðir fyrir alla
Í sumar verður margt og mik
ið um að vera á Austurlandi. Til
að mynda eru það tónlistarhátíð
in Partíþokan sem er á Seyðisfirði
og skógarhátíðin Skógardagur
inn mikli í Hallormsstaðaskógi en
báðar hátíðirnar eru haldnar núna
um helgina. Einnig verður fjöl
skylduhátíðin Vopnaskak, rokk
veislan Eistnaflug, tónlistarhátíð
in Bræðslan og LungA, Listahátíð
unga fólksins, á sínum stað sem
og Maður er manns gaman, sjálf
bæra bæjarhátíðin á Stöðvar
firði. Hernámsdagurinn verð
ur á Reyðarfirði, auk Neistaflugs
og allra þeirra hátíða sem verða
haldnar um verslunarmanna
helgina. „Gönguvikan Á fætur í
Fjarðabyggð er einnig að byrja
núna um helgina og stendur fram
að 30. júní, þar sem öll fjölskyld
an getur fundið göngur og afþrey
ingu við hæfi. Það má segja að
sumarið á Austurlandi sé ein hátíð
og allir ættu að finna eitthvað við
sitt hæfi.“
Gönguleiðir.is
Á vefsíðunni gonguleidir.is er
hægt að finna gönguleiðir við allra
hæfi um allt Ísland. Við hverja
gönguleið er leiðarlýsing, ferl
ar, ljósmyndir og aðrar upplýs
ingar svo göngufólk getur ferðast á
ánægjulegan og öruggan hátt.
Hlaupið um Ásbyrgi og Norð-Aust-
urland Ferðalangur fær sér vatnssopa úr
læk til að svala þorstanum.
Inga Fanney Stýrir reiðtúrum og hlaupaferðum frá Ásbyrgi.
Stórbrotið umhverfi Það er ekkert slor að ríða út í hóffari Sleipnis.