Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Síða 44
44 Lífsstíll 22.–24. júní 2012 Helgarblað
Þyngdin meira áhyggjuefni en fjöldinn
n Heildarþyngd jarðarbúa er 287 milljón tonn en þar af eru 15 milljón tonn af spiki
V
ísindamenn telja aukinn fjölda
of feitra einstaklinga geta haft
jafn mikil áhrif á auðlindir
heimsins og auka milljarður
manna. Vísindamenn reiknuðu sam-
eiginlega líkamsþyngd allra jarðarbúa
sem 287 milljón tonn. Þar af, segja
þeir, eru 15 milljón tonn til komin
vegna offitu og 3,5 milljón tonn vegna
gríðarlegrar offitu (e. obesity).
„Þegar fólk hugsar um umhverfis-
lega sjálfbærni hugsar það fyrst og
fremst um mannfjölda. En þegar öllu
er á botninn hvolft skiptir ekki máli
hversu marga munna við þurfum að
metta. Magn holdsins skiptir meira
máli,“ sagði prófessor Ian Roberts í
viðtali við BBC News og bætti við að
vandinn við umræðuna væri sá að við
ræddum gjarnan um offitu ákveðinna
hópa. „Þannig ölum við á „við og þau“
hugmyndafræði. Í rauninni erum við
öll að verða feitari.“
Vísindamenn notuðust við tölur
WHO frá árinu 2005 og gerðu lista
yfir þyngstu og léttustu þjóðirnar.
Norður-Ameríkubúar eru þyngst-
ir en þar er meðalmaður 80,7 kíló
á meðan meðal þyngdin í Asíu er
57,7 kíló. Í niðurstöðum rannsókn-
ar, sem birtist í BMC Public Health,
kemur fram að einungis 6 pró-
sent jarðarbúa búa í Norður-Ame-
ríku en þar er að finna einn þriðja
hluta of feitra jarðarbúa. Asíubú-
ar eru 61 prósent af jarðarbúum
en þar er aðeins að finna 13 pró-
sent af heildarþyngdinni. „Ef all-
ir jarðarbúar fara að dæmi Banda-
ríkjamanna hefur það alvarlegar
afleiðingar fyrir jörðina. Það myndi
þýða sem samsvarar auka milljarði
einstaklinga í þyngd,“ úrskýrir Ro-
berts.
Þótt lönd eins og Erítrea, Víetnam
og Eþíópía séu á hinum enda listans
segja Roberts og félagar að það að
vera grannur sé ekki aðeins tilkom-
ið vegna fátæktar. Hann tekur Japani
sem dæmi. „Meðal BMI-þyngdar-
stuðull í Bandaríkjunum árið 2005
var 28,7 en í Japan 22. Þú getur verið
grannur án þess að vera fátækur. Jap-
anir sanna það.“
Flestir bjuggust við að Bandaríkja-
menn myndu sitja á toppnum en lönd
á borð við Kúveit, Króatíu, Katar og
Egyptaland voru einnig ofarlega og
komu á óvart. Roberts útskýrir mikla
þyngd í Arabalöndum með áhrifum
einkabílsins. „Þar borðar fólk ekki
mikið en það hreyfir sig enn minna af
því að það fer allra sinna ferða á bíl.“
n Kærustuparið og knattspyrnukonurnar Ólína og Edda eru orðnar mæður
Eignuðust dóttur!
M
eðgangan gekk vel og ég
náði að vinna fram að 39.
viku,“ segir knattspyrnu-
konan Ólína Viðarsdóttir
en hún og sambýliskona
hennar, knattspyrnukonan Edda
Garðarsdóttir, eignuðust sitt fyrsta
barn þann 2. júní. Ólína og Edda
fengu dóttur og hefur sú stutta hlotið
nafnið Bergþóra Hanna.
Ólína og Edda búa í Örebro í
Svíþjóð þar sem þær spila með
knattspyrnuliðinu KIF Örebro DFF.
Þrátt fyrir meðgönguna hélt Ólína
sér í formi og mætti á æfingar fram
eftir öllu. „Ég var dugleg að hreyfa
mig, fór í göngutúra, sund, hjólaði og
gerði óléttu-prógramm í ræktinni,“
segir Ólína sem sagði í viðtali við DV
í fyrra að hún væri alsátt við að leggja
knattspyrnuskóna á hilluna til að
takast á við nýtt hlutverk. „Ég er svo
tilbúin fyrir þetta. Þess vegna finnst
mér það ekkert erfitt. Mér finnst ekki
eins og ég sé að gera upp á milli.
Þetta verkefni er númer eitt, tvö og
þrjú hjá mér núna og það allra mikil-
vægasta. Ég lít ekki á þetta sem ein-
hverja fórn og þótt ég þurfi að hætta
að spila fótbolta í einhvern tíma þá
er það allt í lagi því ég fer að gera svo
miklu skemmtilegri hluti í staðinn,“
sagði Ólína í viðtalinu í nóvember
í fyrra og bætti við að það væri líka
ekkert því til fyrirstöðu að hún haldi
áfram að spila þegar barnið verði
komið í heiminn.
Aðspurð segir Ólína fæðinguna
hafa gengið vel. „Bergþóra er búin
að vera mjög vær hingað til,“ seg-
ir hún og bætir við að litla fjölskyld-
an sé ekki á leiðinni til Íslands í bráð.
„Við eigum von á fjölskyldum okkar í
heimsókn í sumar en komum líklega
ekki heim til Íslands fyrr en tímabilið
er búið hjá okkur Eddu í haust.“
Í viðtalinu í nóvember sagði Ólína
að þær stöllur hefðu dreymt um barn
í langan tíma. „En það var bara alltaf
spurning um hvenær væri rétti tím-
inn og hvor okkar væri tilbúin í hlut-
verkið. Í fyrra fann ég svo að ég var
tilbúin í þetta og þá sóttum við um
að komast í glasafrjóvgunarmeðferð
hér í Örebro. Glasameðferðin gekk
í fyrstu tilraun og þetta hefur allt
saman gengið framar vonum.“
indiana@dv.is
Meðgangan
gekk vel
Ólína var að
vinna fram
að 39. viku og
dóttirin, Berg-
þóra Hanna, er
vær og góð.
Hamingja Parið býr í Svíþjóð þar sem þær æfa fótbolta með KIF Örebro DFF.
Offita Að sögn vísindamanna eigum við
ekki að einblína á hversu mörg börn konur
eignast heldur hversu mikið er fólk að
borða.
Grafískar myndir
betri en texti
Samkvæmt nýrri rannsókn hafa
grafískar myndir af sjúkling-
um í öndunarvélum á sígar-
ettupökkum meiri varnaðar-
áhrif á reykingarfólk en textar.
Vísindamenn við háskólann í
Pennsylvaníu mældu hversu
lengi þátttakendur horfðu á
hvern hluta auglýsinga þar sem
varað er við skaðsemi reykinga.
Rannsóknin birtist í American
Journal of Preventive Med-
icine en þar kom í ljós að
83 prósent af 200 reyk-
ingarmönnum mundu
eftir viðvöruninni þegar
henni var
komið til
skila með
mynd
en 50
prósent
þegar
viðvör-
unin var
aðeins
í formi
texta.
Hættulega
mikið salt í
barnamat
Ef marka má nýja rannsókn þá
inniheldur einn barnaskammtur
margra af vinsælustu skyndi-
bitastöðum heims meira salt en
ráðlagt er að börn neyti á heil-
um degi. Börn ættu ekki að borða
meira en 4 grömm af salti á dag.
Margir barnaskammtar á veitinga-
húsunum Nando og Wetherspoon
innihéldu meira magn en það og
allt upp í þrisvar sinnum meira
salt en fannst í barnaskammtin-
um „happy meal“ frá McDonald‘s.
Stór hluti þeirra veitingahúsakeðja
sem komu illa út í rannsókn-
inni hafa sent frá sér tilkynningu
þar sem lofað var endurskoðun á
matseðlum.
Snjallsími
í stað snuðs
Foreldrar lána börnum sínum
frekar snjallsímann til að hugga
þau en að láta þau fá bangsa eða
snuð.
10 prósent foreldra leyfa smá-
börnum að leika sér með símann í
allt að tvær klukkustundir. Skoskir
foreldrar eru líklegastir til að leyfa
börnum sínum að leika með sím-
ana sína. Aðeins 9 prósent barna
fá nú snuð sér til huggunar með-
an eitt af fjórum foreldrum viður-
kennir að rétta börnunum símann
til huggunar.
Frá þessu segir The Daily Mail.