Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Page 56
Gáfu ókeypis miða
n Hljómsveitin Of Monsters and
Men leikur á tónleikum í Hljóm-
skálagarðinum 7. júlí. Athygli
vekur að aðgangur er ókeypis.
Mikill áhugi er fyrir tónleikun-
um enda hefur sveitin náð mikl-
um vinsældum erlendis og verða
þetta fyrstu tónleikar hennar á Ís-
landi á þessu ári. Þáttastjórnend-
ur útvarpsþáttarins Harmageddon
á X-inu ákváðu að sprella aðeins
í kjölfar fréttarinnar og tilkynntu
að þeir myndu gefa miða á tón-
leikana. Viðbrögðin létu ekki á
sér standa og
gerð ist einn
hlust-
and inn frek-
ar brattur og
bað um 200
miða á tón-
leikana sem
þáttastjórn-
endurn-
ir urðu
við með
glöðu
geði.
Hann gerir
þá ekki
Garðinn
frægan!
Spjallað á Skóla-
vörðustígnum
n Vegfarendur sem áttu leið um
Skólavörðustíginn á miðviku-
daginn sáu nokkuð skemmti-
lega sýn í götunni. Þar sat sjón-
varpskonan Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir á spjalli við söngvar-
ann Ragnar Þórhallsson í hljóm-
sveitinni Of Monsters and Men.
Allt í kringum þau voru svo upp-
tökuvélar enda standa yfir upp-
tökur fyrir næstu seríu
þáttanna Ísþjóðar-
innar. Ragnhild-
ur leggur sérstaka
áherslu á að ræða
við ungt fram-
úrskarandi fólk.
Þættirnir hafa þó
helst unnið sér það til
frægðar að Margit
Sandemo höf-
undur Ísfólks-
ins kom í
veg fyrir
upp-
runa-
lega
nafn-
gift
þáttanna.
Geir tryllti lýðinn
n Stórsöngvarinn Geir Ólafsson
er mikill Valsari og fastagestur á
heimaleikjum liðsins. Hann bætti
þó um betur á miðvikudaginn
þegar Valur tók á móti ÍA í Pepsi-
deildinni og tók lagið fyrir áhorf-
endur í stúkunni. Settar voru upp
sérstakar græjur fyrir leik svo tón-
ar Geirs fengju að njóta sín al-
mennilega. Mikil rign-
ing skall á um leið og
Geir hóf að syngja
en hann lét það
ekki á sig fá er
hann stóð úti á
vellinum í bleyt-
unni og tryllti
lýðinn með góðu
stuðlagi.
É
g er ekki að sækjast eftir stöðu
bæjarstjóra og ég er heldur ekki
að fara í framboð,“ segir útvarps-
maðurinn knái Heimir Karlsson
í samtali við DV. Hann sá sig knúinn
til þess að birta tilkynningu á Face-
book eftir að fjöldi fólks hafði haft
samband við hann og spurt hann út
í umsókn hans um bæjarstjórastöðu
í sveitarfélaginu Garði á Reykjanesi.
Facebook-tilkynning Heimis var
svohljóðandi: „Af gefnu tilefni vil ég
taka fram að ég er EKKI einn um-
sækjenda um bæjarstjórastólinn í
Garði. Hef verið mikið spurður í dag
en ég óska nafna mínum góðs geng-
is :)“
Á meðal 30 umsækjenda um stöðu
bæjarstjóra í Garði er Heimir Karls-
son. Sá sem þekktastur er undir nafni
þessu er sá ágæti útvarpsmaður í Bít-
inu á Bylgjunni. Eftir að opinberað var
hverjir sækja um hefur síminn ekki
stoppað hjá útvarpsmanninum sem
á endanum neyddist til að setja yfir-
lýsingu á Facebook og láta þess getið í
þætti sínum að hann hefði ekki áhuga
á bæjarstjórastólnum.
„Þetta er auðvitað ekki algengt
nafn þannig að það er kannski ekki
óeðlilegt að fólk hafi tengt þetta mér,“
segir Heimir í samtali við DV. Hann
segir fyrirspurnirnar ekki hafa stopp-
að og því hafi hann þurft að bregðast
við. „Ég sá mig tilneyddan til þess að
setja þetta inn á fésbókina, bara smá
status, og minnast á það í morgunút-
varpinu í morgun, að ég væri ekki að
sækjast eftir stöðu bæjarstjóra í Garði.“
Heimir segir gott að málið sé loks-
ins komið á hreint og bætir við í léttum
dúr: „Með fullri virðingu fyrir starf-
inu.“ Hann segist ekki vera á leiðinni
úr útvarpinu. „Hjá mér er bara allt í
lagi eins og staðan er, það er bara fínt.“
Vill ekki verða bæjarstjóri
n Útvarpsmaðurinn Heimir Karlsson sækist ekki eftir bæjarstjórastöðu
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 22.–24. Júní 2012 71. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Ekki bæjarstjóri Heimir Karlsson út-
varpsmaður á Bylgjunni hyggst ekki sækja
um bæjarstjórastöðu í Garði, það gerir nafni
hans hins vegar.