Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Page 4
4 Fréttir 28. desember 2012 Áramótablað
Lítið upp í skuldirnar
n Skiptum lokið á Tékklistanum, fyrrverandi eiganda Office 1
S
kiptum er nú lokið á félaginu
Tékklistanum ehf., sem sá
um rekstur ritfangaverslun
arinnar Office 1. Félagið hét
áður Egilsson hf. og var það alfar
ið í eigu Egils Þórs Sigurðssonar en
það fór í þrot í júní í fyrra. Skipt
um lauk þann 19. desember síð
astliðinn.
Lýstar kröfur í félagið voru tæp
ar 1.900 milljónir króna en upp í
þær fengust tæpar 320 milljónir.
Forgangskröfur greiddust að fullu,
en undir þær fellur meðal annars
launakostnaður. Þær námu alls
tæpum 20,5 milljónum.
Office 1 fór aftur í hendur fyrri
eigenda þegar félagið fór í þrot en
tvö ný félög voru stofnuð, annars
vegar Egilsson ehf. sem sér um
rekstur Office 1 og hins vegar
Office 1 ehf. sem heldur utan um
húsnæði þess.
Eigendur þeirra félaga voru
allir æðstu stjórnendur Office 1
þegar Tékklistinn sá um rekstur
fyrirtækisins. Ásamt Agli eru það
Brynja Brynleifsdóttir fjármála
stjóri, Kjartan Örn Sigurðsson for
stjóri og Bjarni Árnason og Ragnar
Ástvaldsson framkvæmdastjórar.
Egill átti Tékklistann alfarið en varð
stjórnarformaður nýju félaganna.
Kaup Egilsson ehf. á Office 1
voru að sögn Kjartans fjármögn
uð með lánum og eigin fé eigenda
þess. Nú starfa 70 manns hjá
Egilsson ehf. Félagið keypti í janúar
rekstur verslana A4 og í kjölfarið
var ráðist í miklar hagræðingar
aðgerðir. n
simon@dv.is
Keypti bréf í sjálfum
sér fyrir 30 milljarða
n Stjórnendur Landsbankans sakaðir um ýmiss konar lögbrot
S
litastjórn Landsbanka Ís
lands telur að stjórnendur
bankans hafi brotið ýmiss
konar lög í rekstri hans á
árunum fyrir hrun og byggir
stefna slitastjórnarinnar gegn endur
skoðendum bankans, PwC á Íslandi
og í London, á því að afleiðingar
þessara lögbrota hafi verið mikl
ar fyrir kröfuhafa hans. Þetta kem
ur fram í stefnunni, sem DV hefur
undir höndum, þar sem slitastjórnin
fer fram á um 100 milljarða króna
skaðabætur frá endurskoðanda
fyrirtækjunum.
Hin meintu lögbrot sem
slitastjórnin telur upp í stefnunni eru
þau að ekki hafi verið getið um allar
lánveitingar til aðaleigenda bankans,
feðganna Björgólfs Guðmundssonar
og Björgólfs Thors Björgólfssonar, í
ársreikningum bankans; að Björg
ólfsfeðgar hafi fengið lán sem námu
meira en 25 prósentum af eiginfjár
grunni bankans þrátt fyrir að lög
bundið hámark hafi verið bundið við
þá tölu; að bankinn hafi átt á bilinu
25 til 35 prósent af eigin hlutabréf
um þrátt fyrir að leyfilegt hámark
hafi verið tíu prósent af eigin bréf
um og loks að bankinn hafi ekki virt
flöggunarskyldu þegar eignarhald
hans á eigin bréfum fór yfir 10 pró
sent af heildarhlutafé bankans.
Eitt af þeim atriðum sem kemur
fram í stefnunni er að Landsbanki
Íslands hafi á síðustu tveimur
mánuðunum fyrir fall bankans, frá
byrjun ágúst 2008 til byrjun október
sama árs, keypt hlutabréf í sjálfum
sér fyrir rúmlega 29,4 milljarða
króna. Um sumarið 2008 hafði bank
inn hins vegar átt 30 prósenta hlut
í bankanum, 20 prósentustigum
meira en hann mátti eiga.
Stefnan í málinu er undirrituð
7. mars 2012 en málið var þingfest
síðast liðið sumar.
PwC sakað um slæleg vinnubrögð
Inntakið í stefnunni er PwC hafi ekki
endurskoðað ársreikninga bankans
með þeim hætti sem fyrirtækið hefði
átt að gera, meðal annars með því
að taka tillit til afleiðinga framan
greindra lögbrota á stöðu bankans og
reikningsskil hans. Þá hefðu endur
skoðendurnir átt að færa niður útlán
til viðskiptamanna bankans eftir að
byrjaði að harðna á dalnum í íslenska
fjármálakerfinu í byrjun árs 2008 og
fram eftir árinu. Þetta hafi hins vegar
ekki verið gert þrátt fyrir að tilefni
hefði verið til.
Orðrétt segir um þetta í stefnunni:
„Í málinu er byggt á því að stefndu
hafi ekki endurskoðað og kannað
ársreikning bankans samkvæmt
góðri endurskoðunarvenju, venju
um könnun árshlutareikningsskila,
réttarreglur og endurskoðunarstaðla.
Þessi vanræksla fólst í því að stefndu
gerðu ekki athugasemdir við útreikn
ing á eigin fé bankans í reikningsskil
um hans og tilkynntu ekki um brot á
þýðingarmiklum reglum sem giltu
um starfsemi bankans.“
Þá segir enn frekar að PwC hefði
átt að vera ljóst að stjórnendur bank
ans höfðu framið áðurnefnd lögbrot
sem snertu of háar lánveitingar til
Björgólfsfeðga og viðskipti bankans
með eigin hlutabréf: „Stefndu var, eða
hefði mátt vera ljóst, að ef þeir hefðu
sinnt skyldum sínum í samræmi við
endurskoðunarvenjur, réttarreglur
og alþjóðlega reikningsskilastaðla, að
bankinn braut þýðingarmiklar reglur
sem giltu um starfsemi hans. Þeim
bar lögum samkvæmt að tilkynna
þessi brot til bankaráðsins, hluthafa
fundar og Fjármálaeftirlitsins.“
Afleiðingin af þessum brotum
bankans var sú, samkvæmt stefn
unni, að frá miðju ári 2008 var eigið
fé og eiginfjárgrunnur bankans undir
settum lögbundnum mörkum. PwC
undirritaði hálfsársuppgjör Lands
bankans þá um mitt ár en eftir þann
tíma runnu áfram verulegir fjármun
ir út úr bankanum og fram að falli
hans.
Mikið fjallað um lán
til Björgólfsfeðga
Í stefnunni er mikið fjallað um lán
veitingar til Björgólfsfeðga og þá
staðreynd að þeir voru ekki skil
greindir sem tengdir aðilar hjá bank
anum þrátt fyrir að skýrt sé kveðið á
um það í lögum að slíkt eigi að gera
við aðila sem tengdir eru svo nánum
fjölskylduböndum. „Ljóst er að skv.
þessum staðreyndum átti að tengja
þá feðga og þau félög sem að ofan
eru nefnd sem sameiginlega áhættu
gagnvart bankanum.“
Miðað við stefnuna námu sam
anlagðar lánveitingar til þeirra feðga
alltaf miklu meiru en þær máttu. Í
stefnunni segir meðal annars að í júní
2008 hafi lánveitingar til Björgólfs
feðga numið 75 prósentum af eigin
fjárgrunni bankans, 50 prósentustig
um meira en þær máttu nema.
Þá er það nefnt sérstaklega að
Fjármálaeftirlitið hafi gagnrýnt sér
staklega allt frá árinu 2005 að lán
veitingar til Björgólfs Thors og félaga
hans hafi numið meira en 25 prósent
um af eiginfjárgrunni Landsbank
ans. Landsbankinn kippti þessu hins
vegar ekki í liðinn þrátt fyrir gagn
rýni frá Fjármálaeftirlitinu. „Áfram
voru áhættuskuldbindingar Björg
ólfs Thors Björgólfssonar og Actavis
Group hf. langt yfir 25% mörkunum,“
segir í stefnunni.
Staðan á málinu fyrir dómi um
þessar mundir er sú að PwC á að
skila greinargerð sinni til Héraðs
dóms Reykjavíkur nú í janúar. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Áfram voru
áhættuskuld-
bindingar Björgólfs Thors
Björgólfssonar og Actavis
Group hf. langt yfir 25%
mörkunum.
75 prósent af eiginfjárgrunni Í stefnu slitastjórnar Landsbankans kemur fram að lánveitingar bankans til Björgólfsfeðga hafi numið 75
prósentum af eiginfjárgrunni bankans um sumarið 2008.
Stálu 300
kílóum af laxi
Þjófar stálu rúmlega 300 kílóum
af reyktum laxi úr gámi frá Eðal
fiski í Borgarnesi. Þegar gámur
inn var athugaður á jóladag fannst
hvorki tangur né tetur af fisknum,
sem geymdur var í 30 kössum.
Skessuhorn greinir frá því að fisk
urinn hafi verið í heilum flökum
og í sérstökum umbúðum sem
ekki eru til sölu hérlendis. Ekkert
athugavert var að sjá um miðjan
aðfangadag, en þjófarnir stálu eft
ir það fisknum sem er að andvirði
tæprar milljónar króna.
Réðst á
foreldra sína
Lögreglunni var tilkynnt um
heimilisofbeldi í fjölbýli í
Breiðholti aðfaranótt fimmtu
dags. Þar reyndist vera karlmaður
í annarlegu ástandi sem ráðist
hafði á foreldra sína. Sá var hand
tekinn og vistaður í fangageymslu.
Samkvæmt lögreglu var aðfaranótt
fimmtudagsins líkt og um helgi
væri að ræða, skemmtanahald var
mikið, eitthvað var um ölvunar
akstur og mikið var kvartað undan
hávaða.
Flatskjárinn
á brott
Á fimmtudagsmorgun var til
kynnt um innbrot í sumar
bústað við Hlíðarbraut í
Reykjaskógi. Þjófavarnarkerfi
hafði farið í gang rétt fyrir
klukkan ellefu kvöldið áður,
á annan dag jóla. Eigandinn
fékk boð í farsímann þar sem
tilkynnt var um innbrotið, en
þar sem hann var ekki við sím
ann þá varð hann ekki var við
skilaboðin fyrr en hann fór að
huga að símanum daginn eftir.
Bakdyr höfðu verið spenntar
upp og þjófurinn haft á brott 32
tommu Samsungflatskjá.
Miklar skuldir Skuldir Tékklistans ehf.,
áður Egilsson hf., námu alls um 1.900
milljónum króna. Upp í þær kröfur fengust
320 milljónir.