Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Síða 9
Fréttir 9Áramótablað 28. desember 2012
Starfsfólk DV og DV.is
Óskum landsmönnum
farsældar á nýju ári
og þökkum áhugann
á árinu sem er að líða
Leikskóla-
gjöldin hækka
Leikskóla- og frístundagjöld hækka
hjá flestum stærri sveitarfélögum
landsins um áramótin. Fréttastofa
RÚV greindi frá því á fimmtudag að
hækkunin nemi í flestum tilfellum
um fimm prósentum.
Á höfuðborgarsvæðinu hækkar
verðskráin um fimm til sex prósent
en mest hækkar fæðisgjald í grunn-
skólum í Reykjavík. Það mun verða
6.600 krónur á mánuði í stað 6.200
króna, sem nemur 6,45 prósenta
hækkun. Verðlag matar og drykkjar
hefur hækkað um rétt rúm fjögur
prósent á árinu samkvæmt tölum frá
Hagstofunni.
Ók á ljósastaur
Einn farþegi meiddist lítillega þegar
bifreið var ekið á ljósastaur við
Vallarbraut í Reykjanesbæ á mið-
vikudag. Tvær konur voru í bílnum.
Sú meidda var flutt með sjúkrabif-
reið til aðhlynningar á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja. Konurnar voru
báðar í öryggisbelti en bifreiðin
er mjög mikið skemmd á annarri
hliðinni eftir óhappið að því er fram
kemur í upplýsingum frá Lögreglu-
stjóranum á Suðurnesjum.
Óku inn
í snjóflóð
Þrír bílar óku inn í snjóflóð er hafði
fallið á veginn við Selabólsurð, um
5 kílómetra frá Flateyri, síðdegis á
fimmtudeginum síðasta. Bílarnir
sátu í kjölfarið fastir í flóðinu.
Björgunarsveitin Sæbjörg á Flat-
eyri var kölluð út og sótti hún fólkið,
en sjö manns voru í bílunum þrem-
ur. Björgunarsveit á Suðureyri var í
viðbragðsstöðu ef koma þyrfti að bíl-
unum Suðureyrarmegin.
Vel tókst að losa tvo bíla og aka
öðrum þeirra af svæðinu en vegna
aðstæðna þurfti að fresta flutn-
ingi á síðasta bílnum. Selabólsurð
er þekkt snjóflóðasvæði en að sögn
björgunar sveitarmanna var flóðið
nokkuð utar en venjulega og sýndist
þeim það vera um 100 m breitt.
Skyggni var lítið á staðnum, að því
er fram kom í upplýsingunum frá
Landsbjörg.
Endurskipulagningu lokið
n Álftanes skuldar 3,2 milljarða eftir afskriftir og hagræðingar
F
járhagslegri endurskipulagn-
ingu sveitarfélagsins Álftaness
er nú lokið. Fjárhaldsstjórn var
skipuð til þess að annast samn-
inga við lánardrottna sveitarfélags-
ins. Liður í þessari endurskipulagn-
ingu var sameining sveitarfélagsins
við Garðabæ. Eftir áramót verður
Álftanesið því hluti af Garðabæ.
Skuldir sveitarfélagsins voru í
árslok 2009 7.256 milljónir króna en
þær hafa minnkað töluvert. Sam-
kvæmt upplýsingum frá fjárhalds-
stjórninni standa skuldir þess nú í
3.263 milljónum. Að sögn stjórn-
arinnar hefur rekstrarafkomu
Álftaness einnig verið snúið við og
er hún nú jákvæð.
Álftanes fékk milljarð úr jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga gegn því að
sameinast Garðabæ en af skuld-
um sveitarfélagsins voru 3,2 millj-
arðar afskrifaðir, samkvæmt samn-
ingum við lánardrottna. Því standa
þær nú í 3.263 milljónum en það er
um 250 prósent af árlegum tekjum
Álftaness.
Skuldavandi sveitarfélagsins er
að hluta tilkominn vegna byggingar
nýstárlegrar sundlaugar og íþrótta-
húss á Álftanesi en byggingin kom
afar illa við fjárhag þess. Garðabær
mun eignast íþróttahúsið og sund-
laugina þegar sameining sveitarfé-
laganna gengur í gegn en það var fé-
lagið Fasteign sem átti mannvirkin.
Álftanes átti í töluverðum vandræð-
um með að greiða leigu af húsunum.
Alls verða íbúar hins sameinaða
sveitarfélags um 14 þúsund. Bæj-
arstjórn Garðabæjar mun um ára-
mótin taka við stjórn nýja sveitar-
félagsins og stýra því fram að
sveitarstjórnarkosningum 2014.
Bæjarstjórn Álftaness mun á þeim
tíma gegna hlutverki ráðgefandi
hverfisstjórnar.
simon@dv.is
Dýr sundlaug Skuldavandi sveitarfélagsins
er að hluta tilkominn vegna byggingar nýstár-
legrar sundlaugar og íþróttahúss á Álftanesi.