Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Qupperneq 18
Á rið 2012 var viðburðaríkt á vettvangi stjórnmálanna. Tvennar kosningar fóru fram, annars vegar var kosinn forseti til næstu fjögurra ára og hins vegar tók þjóðin afstöðu til breytinga á stjórnarskrá lýðveldisins. Þingstörf hafa einkennst af hamagangi, málþófi og stóryrðum; ný framboð hafa ruðst fram á sjónarsviðið, valið hefur verið á prófkjörslista hjá stjórnmálaflokk­ unum og eru línur teknar að skýrast fyrir þingkosningarnar næsta vor. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráð­ herra Íslands, hefur ákveðið að setjast í helgan stein að þessu kjörtímabili loknu svo senn líður að leiðtogaskipt­ um í Samfylkingunni. Uppgjörið við bankahrunið hefur haldið áfram með sögulegri sakfellingu Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í lands­ dómsmálinu auk þess sem þrír leik­ menn í hruninu hafa lent á bak við lás og slá. Óhætt er að fullyrða að þjóð­ málaumræðan var fjörug á liðnu ári en hún einkenndist meðal annars af vitundarvakningu á sviði jafnréttis­ mála. Hér á eftir verður stiklað á stóru. 4. febrúar – Björt framtíð stofnuð Eftir langa leit að heppilegu nafni er stjórnmálaaflið Björt framtíð stofn­ að með pomp og prakt. Formenn flokksins eru tveir, þingmaðurinn Guðmundur Steingrímsson og Heiða Kristín Helgadóttir sem gat sér gott orð sem kosningastjóri Besta flokks­ ins árið 2010. Á meðal stefnumála flokksins eru óskir um að Ísland vinni Eurovision og að almennt ríki minna vesen. Jón Gnarr, borgarstjóri Reykja­ víkur, er á lista flokksins í Reykjavík og í októbermánuði gengur þingmaður­ inn Róbert Marshall til liðs við hann. 7. febrúar – Samstaða Lilju Stjórnmálaflokkurinn Samstaða er formlega stofnaður en forsvarsmenn hans eru þingmaðurinn Lilja Móses­ dóttir og veðurfræðingurinn góð­ kunni Sigurður Þ. Ragnarsson. Tæp­ lega mánuði síðar fer Sigurður í fússi eftir að hafa borist tölvupóstur frá Lilju sem ekki var ætlaður honum. Síðar lét Lilja af embætti formanns og tók lögreglumaðurinn Birgir Örn Guðjónsson við keflinu. 27. febrúar – Öflug jafnréttis- barátta Myndaalbúmið Karlar sem hata konur vekur gríðar­ lega athygli á Face­ book og verður á svip­ stundu afar umdeilt. Á bak við uppátækið er femínistinn Hild­ ur Lilliendahl Viggósdóttir sem látið hefur til sín taka. Mikil umræða hef­ ur verið um femínisma á liðnu ári og hafa aðgerðir á borð við þessa blásið jafnréttisumræðunni byr undir báða vængi. 18. mars – Dögun Dögunar Stjórnmálahreyfingin Dögun er stofn­ uð en þar sameinast Hreyfingin, Borg­ arahreyfingin og Frjálslyndi flokk­ urinn auk nokkurra ráðsmanna úr stjórnlagaráði í einni fylkingu. Enginn formaður verður í Dögun heldur tals­ menn sem hver tengist tilteknum málaflokki. Stjórnmálaaflið leggur áherslu á að bæta skuldavanda heim­ ilanna, lýðræðisumbætur, uppstokk­ un á stjórn fiskveiða, siðvæðingu stjórnsýslu og fjármálakerfis, uppgjör við hrunið og Evrópusambandið. 23. apríl – Geir sakfelldur „Sá dómur er fáránlegur og reyndar aðeins meira en það, hann er spreng­ hlægilegur,“ sagði Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, á þess­ um degi og var sannarlega heitt í hamsi. Skömmu áður hafði Geir ver­ ið sakfelldur af meirihluta dómara í landsdómi fyrir vítaverða vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins. Dagur­ inn er sögulegur í íslenskri stjórn­ málasögu því aldrei fyrr hefur maður verið sakfelldur fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð. Miklar deilur áttu sér stað á þingi vegna málsins fyrr á árinu, en Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­ flokksins, lagði fram tillögu um að ákæran gegn Geir H. Haarde yrði dregin til baka. Var tillögu hans vís­ að frá. 7. júní – Stríðið um kvótann nær hámarki Fyrirhugaðar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerf­ inu voru eitt helsta hitamál stjórnmálanna á árinu. Þann 7. júní má segja að deilurnar hafi náð hápunkti en þá safnaðist fjöldi fólks saman á Austurvelli og skiptist mannfjöldinn í tvær fylkingar. Hags­ munaaðilar í sjávar útvegi boðuðu til mótmæla gegn áformum ríkisstjórn­ arinnar um breytingar á fiskveiði­ stjórnunarkerfinu og var um sjötíu skipum siglt til Reykjavíkur svo skip­ verjar gætu tekið þátt í mótmælunum. Annar hópur fólks sem kom saman á sama tíma hélt því fram að kvótakerf­ ið væri ekki einkamál útgerðarmanna. Eftir mikið japl, jaml og fuður á Al­ þingi var veiðigjaldafrumvarp ríkis­ stjórnarinnar samþykkt seinna í sama mánuði og gert er ráð fyrir að veiði­ gjöldin skili 12–13 milljörðum króna í ríkissjóð á næsta fiskveiðiári. 27. september – Jóhanna kveður Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis­ ráðherra Íslands lýsir því yfir að hún hyggist ekki sækjast áfram eftir for­ mennsku í Samfylkingunni á næsta landsfundi flokksins og draga sig í hlé að kjörtímabilinu loknu. „Nú tel ég tímabært að aðrir taki við keflinu sem mér var falið í kjölfar hrunsins,“ sagði hún í bréfi sem sent var öllum flokks­ systkinum hennar. 20. október – Stuðningur við stjórnarskrárbreytingar Í þjóðaratkvæðagreiðslu um breyt­ ingar á stjórnarskrá taka kjósendur einarða afstöðu með drögum stjórn­ lagaráðs. Um 64 prósent kjósenda vilja að drögin verði lögð til grund­ vallar nýrri stjórnarskrá en jafnframt vill meirihluti kjósenda að í nýrri stjórnar skrá verði ákvæði um þjóðar­ eign á náttúruauðlindum, persónu­ kjör, jafnt vægi atkvæða, þjóðar­ atkvæðagreiðslur og þjóðkirkju. 10. nóvember – Afdrifarík prófkjör í Kraganum Laugardagurinn 10. nóvember er við­ burðaríkur, bæði hjá Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum. Tilkynnt er um úrslit í flokksvali Samfylkingarinn­ ar í Suðvesturkjördæmi þar sem Árni Páll Árnason ber sigurorð af Katrínu Júlí­ usdóttur, fjármálaráð­ herra. Árni Páll leiðir lista Samfylkingarinnar í Kraganum, Katrín er í öðru sæti en Magnús Orri Schram í því þriðja. Sömu helgi kjósa sjálfstæð­ ismenn á lista í Kraganum og fékk Bjarni Benediktsson, formaður flokks­ ins, slæma útreið, aðeins 54 prósent atkvæða í efsta sætið. Annað og þriðja sæti á listanum skipa Ragnheiður Rík­ harðsdóttir og Jón Gunnarsson en Vilhjálmur Bjarnason, nýgræðingur í stjórnmálum, nær fjórða sætinu. 19. nóvember – Hernaði Ísraelsríkis mótmælt Um 1.200 manns safnast saman fyrir utan bandaríska sendiráðið og mót­ mæla hernaði Ísraelsríkis á hendur Palestínumönnum. Ögmundur Jón­ asson innanríkisráðherra heldur til­ finningaþrungna ræðu þar sem hann segir Ísraelsríki hafa breyst í ófreskju. Daginn eftir er Palestínudeilan rædd á Alþingi og hvetur Bjarni Benediktsson Ísraelsmenn til að gæta meðalhófs í aðgerðum sínum. Orð hans vekja tals­ verða athygli. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands, hefur látið sig Palestínumálin varða á árinu og beitt sér fyrir auknum áhrifum Palest­ ínu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. 24. nóvember – Hanna Birna leiðir lista Hanna Birna Kristjánsdótt­ ir vinnur öruggan sigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Illugi Gunnarsson lendir í öðru sæti, Pétur Blöndal í því þriðja og lögmaðurinn Brynjar Níelsson í því fjórða. Guðlaugur Þór Þórðarson nær ekki þeim árangri sem hann stefndi að, en hann lendir í fimmta sæti og Birgir Ármannsson í sjötta sætinu á eftir honum. Sú spurning vaknar eft­ ir prófkjörin hvort Hanna Birna hyggi á formannsslag að nýju gegn Bjarna Benediktssyni en það segist hún ekki ætla að gera. 30. nóvember – Guðbjartur gegn Árna Guðbjartur Hannesson velferðarráð­ herra lýsir yfir framboði til formanns Samfylkingarinnar en lengi hefur leg­ ið fyrir að Árni Páll Árnason sækist eftir formennskunni. Guðbjartur og Árni koma hvor úr sínum arminum innan Samfylkingarinnar. Þykir Árni Páll líklegri til að halla sér til hægri eftir næstu þingkosningar en Guð­ bjartur. STRÍÐIÐ UM KVÓTANN OG STJÓRNARSKRÁNA 18 Annáll 28. desember 2012 Áramótablað n Viðburðaríkt stjórnmálaár n Geir fundinn sekur n Fylkingarnar brýna sverðin „Klappstýra útrásarinnar“ mætir „skrautdúkku“ Þann 30. júní var Ólafur Ragnar Grímsson endurkjörinn í embætti forseta Íslands. Hóf hann því sitt fimmta kjörtímabil á árinu sem er að líða og hefur enginn gegnt embættinu jafn lengi. Lengi framan af var þó óljóst hvort Ólafur hygði á framboð eða ekki. Í nýársávarpi sínu gaf forsetinn í skyn að svo væri ekki og sagðist hann „hlakka til frjálsari stunda“. Það var ekki fyrr en 4. mars sem Ólafur tilkynnti um framboð sitt. Í útvarpsviðtali í Sprengisandi á Bylgjunni beindi Ólafur spjótum sínum sérstaklega að einum af mótframbjóð- enda sinna, Þóru Arnórsdóttur, sem þótti frá upphafi eini raunverulegi keppinautur forsetans. Sagði forsetinn framboð hennar „ofboðslega mikið 2007“ en sjálfum hefur honum lengi verið legið á hálsi að hafa verið „klappstýra útrásarinnar“. Einnig taldist það til stórtíðinda að í áðurnefndu viðtali skyldi Ólafur í fyrsta skipti tjá sig opinberlega um afstöðu sína til Evrópu- sambandsins og gagnrýndi hann Þóru harðlega fyrir að ætla ekki að gera slíkt hið sama. Þann 18. maí eignaðist Þóra Arnórsdóttir barn og fáeinum dögum síðar fór kosningabarátta hennar á flug. Svaraði hún forsetanum fullum hálsi, vísaði á bug orðum hans um „skraut- dúkku“ og sagði teygjanlega túlkun hans á valdsviði forseta vera helstu óvissuna í stjórn- skipan landsins. Kosningabaráttan var nokkuð hörð og náði hún ákveðnum hápunkti í fyrstu sjónvarpskappræðum frambjóðenda þann 3. júní. Þá gengu þrír frambjóðendur, þau Andrea J. Ólafsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson og Hannes Bjarnason, óvænt út úr sjónvarpssal þar sem þeir töldu Stöð 2 mismuna frambjóðendum. „Við viljum láta koma vel fram við okkur. Af öllum fjölmiðlum,“ sagði Andrea í sameiginlegri yfirlýsingu þremenninganna. Framan af var baráttan ansi tvísýn og skiptist þjóðin að mestu í tvo hópa, stuðningsmenn Ólafs annars vegar og Þóru hins vegar. Um það bil tveimur mánuðum fyrir kosningar mæld- ist Þóra með dágott forskot í skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Smám saman náði Ólafur þó yfirhöndinni og þegar gengið var til kosninga í júlílok hlaut Ólafur tæplega 53 prósent atkvæða en Þóra aðeins 33 prósent. Þó sigur Ólafs hafi verið tiltölulega öruggur var hann engu að síður sögulegur í ljósi þess að aldrei hefur sitjandi forseti hlotið eins laka kosningu. Ólafur Kjaran Árnason blaðamaður skrifar olafurk@dv.is Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannp@dv.is Heitt í hamsi Geir H. Haarde lét þung orð falla í kjölfar þess að hann var sakfelldur í landsdómi. Sakaði hann dómendur meðal annars um að hafa látið stjórnast af pólitík. „Það er stórfurðulegt að pólitíkin í landinu hafi laumað sér með þessum hætti inn í þennan virðulega dómstól.“ Ríkishjúin Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sig- fússon atvinnuvegaráðherra hafa staðið í ströngu á liðnu ári. Í júní síðastliðinn lyktaði deilum um sjávarútvegsmál með umtalsverðri hækkun á veiðigjöldum. Tveggja turna tal Um tíma leit út fyrir að Þóra Arnórsdóttir gæti skákað sitjandi forseta. Aðrir frambjóðendur voru aldrei líklegir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.