Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Side 40
4 Völvuspá 2013 28. desember 2012 Áramótablað
málum og hyggist hasla sér völl í
atvinnulífinu á ný en hann er lög-
fræðingur að mennt. Endar þar ferill
hans í stjórnmálum og er hann úr
sögunni eins og sagt væri í Njálu.
Björt framtíð
n Björt framtíð á bjarta framtíð.
Flokkurinn nær talsverðum skriði
í kosningabaráttu og fær að lok-
um 15 prósenta fylgi og verður með
réttu talinn sigurvegari kosning-
anna. Besti flokkurinn og hans sér-
stæðu áhrif verða Bjartri framtíð
gott veganesti í kosningabaráttu
og þykir framlag þeirra oft nokkuð
skemmtilegt en ekki að sama skapi
alvörugefið. Nokkur hávaði verður
vegna þess að hinir nýju vendir setj-
ast í stjórn með Sjálfstæðisflokknum
en það þykir draga út getu þeirra til
að sópa. Forystumenn segja að póli-
tík sé list hins mögulega og þeir séu
í þessum leik til þess að hafa áhrif
en ekki til þess að varðveita pólitísk-
an meydóm sinn. Þegar litið verður
til baka yfir veturinn kemur í ljós að
ýmsar ákvarðanir Bjartrar framtíðar
voru í raun til þess að undirbúa jarð-
veginn fyrir þetta samstarf.
Framsóknarflokkurinn
n Tími Framsóknar-
flokksins er liðinn.
Undir stjórn Sig-
mundar Davíðs
Gunnlaugssonar fer
flokkurinn í gegn-
um stórundarlega
kosningabaráttu sem
leiðir ótvírætt í ljós ýmsa vankanta á
forystuhæfileikum hans. Flokkurinn
fær 10 prósent greiddra atkvæða og
þingmönnum hans fækkar. Þetta
finnst flokksmönnum ekki góð latína
eftir heilt kjörtímabil í stjórnarand-
stöðu og kunna forystu flokksins litl-
ar þakkir fyrir leiðsögnina.
n Maðurinn sem bjargar flokknum
frá algerri niðurlægingu er Frosti Sig-
urjónsson sem kemst naumlega inn
í Reykjavík með tilstilli InDefence
samtakanna. Eftir kosningar beina
margir reiði sinni að Sigmundi Davíð
sem þeir telja hafa leitt flokkinn á vit
þröngrar bændahyggju.
n Á haustmánuðum stígur Sig-
mundur formaður fram og tilkynn-
ir afsögn sína. Vigdís Hauksdóttir
kemur fáum á óvart
þegar hún sæk-
ist eftir emb-
ætti formanns
flokksins af
talsverðri
hörku. Skag-
firskir fram-
sóknarmenn verða
taugaóstyrkir og senda
Gunnar Braga Sveinsson fram á völl-
inn gegn henni. Eftir snarpa glímu
stendur Gunnar Bragi upp sem sig-
urvegari með herkjum.
Höskuldur stingur af
n Völvan sér Hösk-
uld Þórhallsson
komast inn á
þing í Norðaust-
urkjördæmi.
Skömmu eftir
kosningar dregur
Höskuldur langan
hníf úr ermi sér og til-
kynnir úrsögn sína úr flokknum og
kveðst verða óháður þingmaður á
nýju þingi. Hann daðrar til hægri
og vinstri og völvan sér hann í
hlutverki Stefáns Valgeirssonar
síns tíma við myndun nýrrar rík-
isstjórnar.
Vinstri-grænir
n Vinstri-græn-
ir ganga sárir til
kosninga eftir
átök í prófkjör-
um þar sem ekki
tókst að fella Ög-
mund Jónasson úr
sessi. Þrátt fyrir ötul-
lega kosningabaráttu Steingríms Jó-
hanns Sigfússonar bíður flokkurinn
mikið afhroð í kosningum til alþing-
is. Upp úr kössunum koma aðeins
14 prósent atkvæða sem staðfesta að
fylgi við flokkinn er í sögulegu lág-
marki. Fyrir vikið hverfa margir nú-
verandi þingmenn flokksins af þingi
en eftir sitja hinir gömlu stríðshestar
Steingrímur og Ögmundur ásamt
Svandísi Svavarsdóttur og Katrínu
Jakobsdóttur og ýmsum samtíningi
öðrum. Flokkurinn tekur sitt gamla
sæti í stjórnarandstöðu að því er
virðist með nokkrum semingi. Stein-
grímur Jóhann verður eftir þessar
kosningar sá þingmanna sem hvað
lengst hefur setið og verða margir
til þess að nota það ýmis honum til
hnjóðs eða hróss.
Steingrímur
stingur af
n Fljótlega eft-
ir kosningar
verður ljóst að
flokkur Vinstri-
grænna er aðeins
skugginn af sjálf-
um sér og formaðurinn orkulítill og
vondaufur eftir vígaferli undanfar-
inna missera. Sending hans á Birni
Val Gíslasyni í prófkjör í Reykjavík
gróa illa eða ekki. Á haustdögum sér
völvan Þistilfirðinginn vaska taka
saman vopn sín og verjur og ganga
af vígvelli stjórnmálanna. Hann
hverfur til starfa erlendis nánar til-
tekið á Norðurlöndum og völvan sér
hann í verkefnum tengdu norrænu
samstarfi.
Kata tekur við
gunnfánanum
n Katrín Jakobsdótt-
ir varaformaður
Vinstri-grænna
stígur fram við
brottför Steingríms
og tekur við gunn-
fána forystunnar.
Svandís Svavarsdótt-
ir verður varaformaður. Við þessa
breytingu vex kvenveldi í íslenskum
stjórnmálum talsvert og fljótlega og
kvenleg áhrif blíðlegra samskipta,
samvinnu og friðar fara að verða
meira áberandi en áður. Gárungar
kalla þetta östrógen áhrifin.
Dögun kemst á
blað með Þorvaldi
n Þorvaldur Gylfason
mun bjóða sig fram
til þings fyrir Dögun.
Þorvaldur nýtur
mikillar virðingar og
honum tekst að kom-
ast inn á þing einum
Dögunarmanna.
Aðrir smáflokkar
ná ekki í gegn
n Eins og fram kemur í
þessum spádómi hafa
aðrir smáflokkar sem
bjóða fram í kom-
andi þingkosning-
um ekki erindi sem
erfiði. Enginn þeirra
nær tilskildum lág-
mörkum til þess að koma manni að.
Þar endar þingmannsferill nokkurra
litríkra einstaklinga eins og Þórs
Saari, Birgittu Jónsdóttur, Lilju Mós-
esdóttur, Margrétar Tryggvadóttur
og fleiri. Völvan sér þetta hverfa út í
iðukast samfélagsins og úr augsýn.
Birgitta Jónsdóttir er sú eina þeirra
sem áfram verður áberandi í al-
mennri umræðu og er það einkum
vegna tengsla hennar við alþjóða-
hreyfingu Pírata sem komast í fréttir
vegna óhefðbundinna aðferða við
deilingu upplýsinga.
n Guðmundur Franklín og föru-
neyti hans í Hægri-grænum fer
mikinn á köflum í kosningabarátt-
unni og vekur framganga þeirra og
málflutningur á köflum bæði kátínu
og hneykslun. Undarlegt mál tengt
fjármálum framboðsins kemur upp
í kringum páskana og völvan sér
Franklín í kröppum dansi við að
verja sig og flokkinn.
Breytt landslag-
breytt samfélag
n Af þessum spá-
dómi má og ljóst
vera að þegar
talið verður upp
úr kjörkössum
að vori blas-
ir við gerbreytt
landslag í ís-
lenskum stjórnmál-
um. Sjálfstæðisflokkurinn fær með
þessum úrslitum stærsta tækifæri
sitt frá stofnun til þess að stjórna án
mikilla málamiðlana. Hanna Birna
á fullt í fangi með að verjast ásök-
unum um að hún sé í raun og veru
ekki boðberi nýrra tíma heldur þvert
á móti handbendi íhaldssamra afla
í flokknum. Margir verða til þess
að nugga sér utan í hana til þess
að fljóta með straumnum og þar
á meðal eru menn eins og Hann-
es Hólmsteinn Gissurarson, Kjart-
an Gunnarsson og Davíð Oddsson
ásamt leifunum af Eimreiðarhópi
flokksins. Henni tekst nokkuð vel að
halda sig í hæfilegri fjarlægð frá for-
tíðinni og með vali sínu á ráðherr-
um er mál manna að hún sýni hvert
hún raunverulega vill stefna flokkn-
um. Þar verða áberandi ný andlit
sem mörg hver eiga ekki langa þing-
setu að baki.
n Skipun Brynjars Níelssonar í
embætti dómsmálaráðherra vekur
nokkra athygli en í kosningabarátt-
unni kemur glöggt í ljós að tengslin
milli Hönnu Birnu og Brynjars eru
meiri en ætla mætti í fyrstu. Einar
Guðfinnsson, hinn dyggi flokks-
hestur fær laun fyrir langa þjón-
ustu með stóli sjávarútvegsráðherra.
Djarfasta útspil Hönnu Birnu verð-
ur þó talið þegar hún gerir Ásdísi
Höllu Bragadóttur að ráðherra sem
þykir mikil nýlunda en Ásdís Halla,
fyrrum eftirlæti flokksins, situr ekki
á þingi.
Hvað verður um
ESB viðræðurnar?
n Völvan sér enga
samstöðu um
það á Alþingi
að ESB við-
ræðum verði
hætt eða
þeim frestað
með einhverj-
um hætti. Í kosn-
ingabaráttunni á
vormánuðum mun Samfylkingin
ein flokka taka eindregna afstöðu
með inngöngu en aðrir flokkar
víkja sér undan því þótt einstak-
ir frambjóðendur taki lýsi andúð
eða stuðningi. Um mitt sumar lýk-
ur svo viðræðum Íslands við ESB
og samningurinn verður kynntur.
Samningurinn reynist hagstæðari
Íslendingum í ýmsum atriðum en
margir töldu að hann yrði. Völvan
sér stutt en snarpt áróðursstríð í að-
draganda kosninga haustið 2013 en
þar verður innganga Íslands felld
með mjög naumum meirihluta at-
kvæða. Í þeim átökum kemur ólík
afstaða þéttbýlis og landsbyggðar
sérlega skýrt í ljós en það eru fyrst
og fremst íbúar á landsbyggðinni
sem leggjast gegn inngöngu.
n Völvan sér eldgos
norðan Vatnajök-
uls snemma sum-
ars. Það á upp-
tök sín nálægt
Öskju og kem-
ur jarðfræðing-
um nokkur á óvart.
Gosið minnir töluvert
á gosið sem varð í Vikraborgum
1961. Öskufall er ekkert en tölu-
verður hraunstraumur og stafar
fólki því lítil hætta af. Miklar deilur
verða um aðgengi ferðamanna því
Almannavarnir heimila ekki ferð-
ir á gosstöðvarnar og verður mikið
havarí í kringum þá sem stelast til
þess að flytja ferðamenn í sjónfæri
við gosið.
Hlaup í Markarfljóti
n Á útmánuðum verða
einhvers konar hrær-
ingar undir Mýr-
dalsjökli án þess
þó að um eiginlegt
eldgos sé að ræða.
Bráðnun undir jökl-
inum kallar fram mik-
ið hlaup í Markarfljóti og
völvan sér það brúngrátt af drullu
og leir sullast yfir brúargólfið á
þjóðvegi eitt og flæmast víða um
nágrennið. Framburður fljóts-
ins er gríðarmikill og safnast fyrir í
kringum ósa fljótsins og nágrenni
hinnar marghrjáðu Landeyjahafn-
ar. Vandræði í kringum siglingar í
Landeyjahöfn aukast mjög í kjöl-
farið og völvan sér miklar fram-
kvæmdir við höfnina sem eiga
að leysa umrædd vandræði í eitt
skipti fyrir öll.
Óhapp sem verður við höfn-
ina fáum mánuðum eftir hlaup
verður til þess að koma skriði á
málið.
Öræfajökull gýs
n Undir haust verða svo mikil tíð-
indi í íslenskri eldgosasögu þegar
Öræfajökull gýs stórgosi. Eldsum-
brotin valda miklum jökulhlaupum
sem valda landspjöllum á stærri
skala en áður hefur sést á Íslandi
á síðustu 200 árum. Gríðarlegt
magn af vikri og ösku kemur upp
og leggst þykkt lag yfir stórt svæði
umhverfis jökulinn og risavaxnir
jakar skolast niður á sand og rísa
þar sem kastalar. Þessar ham-
farir valda miklum breyting-
um á landslagi í Öræfum líkt og
gosið 1362 gerði og völvan sér
þungbúna jarðfræðinga á sjón-
varpsskjánum ræða um land-
auðn á stórum svæðum. Völvan
sér erlenda vísindamenn flykkj-
ast til landsins til þess að fylgjast
með þessum hamförum en hníp-
in þjóð horfir á eftir ómetanlegum
náttúruperlum sem hverfa í móðu
eldsumbrotanna. Gosið stendur
með hléum það sem eftir lifir árs og
völvan sér rauðan bjarma yfir Ör-
æfajökli lýsa inn í myrkan vetur.
Eldgos og
náttúruhamfarir
Landbúnaður
n Völvan sér algera sprengingu í
sölu beint frá býli á nýja árinu. Sífellt
fleiri verslanir skjóta upp kollinum
sem sérhæfa sig í sölu þessháttar
varnings. Umræðan um hreinleika
íslenskra landbúnaðarvara verður
háværari og völvan sér nokkur tilvik
í fréttum þar sem fjallað er um að-
búnað dýra, hollustu framleiðslunn-
ar og fleira því tengt.
n Fleiri mál þar
sem framleiðsla
matvæla er
stöðvuð og sala
frá búi bönnuð
komast í sviðs-
ljósið og völvan
sér skugga sorgar
og harmleiks hvíla yfir
einu slíku máli.