Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Page 48
40 Viðtal 28. desember 2012 Áramótablað „Dauðinn er tabú“ n Anna Ingólfsdóttir deilir reynslu sinni af því að missa makann í bókinni Makalaust líf É g hefði ekki getað gert þetta almennilega nema með því að leggja allt á borðið. Mér fannst það skipta öllu máli. Það var samt mikil áskor- un; að vera einlæg, kannski mesta áskorunin,“ segir Anna Ingólfs- dóttir, rithöfundur og jógakennari og einn höfunda bókarinnar Maka laust líf. Byggð á dagbókarfærslum Í bókinni segir Anna frá reynslu sinni af því að missa manninn sinn, Árna Margeirsson. Hún var 35 ára þegar hann lést frá henni og þremur ungum dætrum eftir að hafa veikst af krabbameini. Auk sögu Önnu skrifar Guðfinna Eydal, sérfræðingur í klínískri sálfræði, kafla um ást og makamissi, sorg og sorgarviðbrögð og Jóna Hrönn Bolladóttir sóknarprestur tók við- töl við fjóra Íslendinga sem misst hafa maka á ólíkum aldri. Anna byggir sögu sína á dag- bókarfærslum og segist í gegnum árin hafa velt fyrir sér hvort hún ætti að gefa skrifin út á bók. „Ég skrifaði þetta á meðan þetta gerð- ist. Síðan sótti það á mig af og til með árunum hvort ég ætti að gera eitthvað meira við þetta. Hugsjón mín fólst í þeirri trú að saga mín gæti hjálpað fólki sem tekst á við sorg; að þegar fólk les mína sögu gefi hún því leyfi til að fara inn í eigin sorg, sína eig- in vanlíðan. Ég held að við leitum í bókmenntir að einhverju leyti til að leita að okkur sjálfum, við finnum oft hluta af okkur með því að lesa um reynslu annarra. Þannig trúi ég og vona að sagan mín verði til þess að einhverjir finni sig í henni.“ Spjallaði við Frankl Hún segir lestur bókanna Leitin að tilgangi lífsins, eftir austurríska geðlækninn Viktor Frankl, og The Wheel of Life, lífssögu Elisabeth Kubler-Ross, hafa haft mikil áhrif á viðhorf sín, svo mikil að hún vildi hitta báða þessa höfunda. „Ég veit ekki hvað varð til þess eða hvers vegna ég tengdist þeim svona sterkt en mér datt til dæmis í hug að hringja í Viktor Frankl. Hann svaraði í símann og spjallaði við mig í smá- stund. Það ýtti undir tilfinninguna hjá mér að láta af þessu verða.“ Anna segir dauðann erfitt um- ræðuefni. „Dauðinn er tabú. Fólki finnst dauðinn óþægilegur. Okk- ur finnst það öllum og margir eiga erfitt með að ræða dauðann. Hann er svo endanlegur, sorglegur og erfiður, það er einhvern veginn of erfitt að fara í gegnum hann og við viljum það ekki. Við viljum frekar tala um baráttuna fyrir lífinu því þegar dauðinn er orðinn raunveru- legur er einhvern veginn allt farið. Auðvitað heldur fólk áfram að lifa eftir ástvinamissi og reynir að finna út úr lífi sínu á einhvern hátt, finnur sér ný baráttumál og nýjar hugsjón- ir. Slíkt getur tekið tíma og við höfum mismikinn hæfileika til að hlúa að okkur sjálfum. Eins og Viktor Frankl segir þá þarf hver og einn að finna sinn sérstaka tilgang, það er óháð því hvar við erum stödd í lífinu.“ Bókin er meðferðartæki Anna segir sína sögu í rauninni eiga erindi við alla og hefði þess vegna getað komið út sem sjálfstætt verk, sem hefði líklega höfðað meira til al- mennings sem almenn saga. „En við ákváðum að hanna bókina meira sem verkfæri fyrir syrgjendur, með sálfræði, viðtölum við fólk á ólíkum aldri sem tekst á við sorg, verkefnum, hugleiðslu og djúpslökun. Þannig getur bókin nýst á beinan hátt sem meðferðartæki og getur aðstoðað fólk í sorgarúrvinnslu og hjálpað því að átta sig á því hvar það er statt í sorg sinni og um leið verið hvatning til að leita sér hjálpar ef á þarf að halda en það er mjög eðlilegt fyrir fólk í sorg. Bókin býr líka til rými fyrir fólk til að slaka á sem mikil þörf er á. Mér fannst saga mín einhvern veginn betur komin með stuðningsúrræð- um fyrir syrgjendur, ég hugsaði alltaf út frá þeim. Og ég er mjög ánægð með útkomuna og með þetta mikla og kröftuga samstarf okkar Guðfinnu. Ég hef lesið margar bækur um sorg en yfirleitt eru þær þannig skrifaðar að þær fjalla um sorgina almennt, þar sem til dæmis einung- is eru aðskildir kaflar um hvert mál- efni, bara einn kafli um makamissi og annar um barnsmissi, og svo framvegis. Mér fannst sérstakt að gera þessu málefni ítarleg skil.“ Lífið er núna Anna segir að henni þyki vænt um að heyra viðbrögð annarra við bókinni. „Fólk hefur þakkað mér fyrir og það er mér gífurlega mikils virði. Ef bókin styður á einhvern hátt þá sem syrgja gefur það mér dýpri tilgang og meiri sátt að hafa látið af þessu verða,“ segir hún og nefnir dæmi um konu sem hafði samband við hana eftir að hafa lesið bókina. „Maðurinn henn- ar hafði greinst með krabbamein en komist yfir veikindin. Hún grét í tvö kvöld yfir lestri bókarinnar. Í kjölfar- ið tóku þau hjónin upp umræðu um lífið og dauðann. Sú umræða leiddi þau til að panta sér langþráða ferð til vinafólks í útlöndum, eitthvað sem þau voru farin að fresta frá ári til árs. Þau fóru út og eru komin heim sátt við fína ferð. Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Viðtal „Það er martraðar- kennt þegar hriktir í stoðum fjölskyldunnar, lífsins og framtíðarinnar. Þegar maður hefur ekkert haldreipi. Lífið er núna Anna segir okkur eiga til að gleyma að lífið sé núna. Þau Árni komust ekki í frí saman því hann var orðinn of veikur. mynd Eyþór ÁrnaSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.