Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Page 54
Bestu leikir ársins
46 Annáll 28. desember 2012 Áramótablað
n Farið yfir 10 bestu leiki ársins n Nokkrir frábærir titlar væntanlegir á nýju ári
1 Mass Effect 3 Lokakaflinn í hinum magnaða geimþríleik kom
út í mars á þessu ári. Það er nánast sama
hvert er leitað, Mass Effect 3 hefur fengið
glimrandi dóma gagnrýnenda og er á öllum
topplistum ársins hjá sérfræðingum í
leikjaútgáfu. Það er ekki að ástæðulausu
en leikurinn að margra mati í hópi bestu
tölvuleikja síðustu ára. Í leiknum ertu í hlut-
verki Commander Shepard sem hefur það
hlutverk að bjarga mannkyninu frá glötun.
Þjóðflokkur sem ber nafnið Reapers hefur
gert árás á sólkerfið og yfirtekið jörðina.
Það er í þínum höndum að bjarga því sem
bjargað verður. Magnaður tölvuleikur og
líklega besti leikur ársins.
Spilast á: PS3, PC, Xbox 360, Wii U.
2 Dishonored Algjörlega geggjaður þriðju persónu ævintýraleikur sem
kom mörgum á óvart í haust og fékk fjóra og
hálfa stjörnu hjá gagnrýnanda DV. Leikurinn
gerist á Viktoríutímabilinu (1837–1901) í
fantasíuborginni Dunwall sem byggir að
stóru leyti á Lundúnum þess tíma. Þú ert
í hlutverki Corvos, fyrrverandi lífvarðar
keisaradrottningarinnar sem tekin er af lífi
af hrottum borgarinnar sem höfðu það eitt
að markmiði að steypa henni af stóli. Þú ert
handtekinn grunaður um morðið og hent í
grjótið. Góðviljaður hópur manna veit hins
vegar hið sanna í málinu og með dyggri að-
stoð hópsins sleppurðu úr fangelsi og hefst
þá leiðangur í leit að misyndismönnunum
sem drápu drottninguna.
Spilast á: PC, Playstation 3, Xbox.
3 Borderlands 2 Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða fram-
hald af hinum geysivinsæla Borderlands
sem kom út það herrans ár 2009. Þetta er
fyrstu persónu skotleikur sem fengið hefur
frábæra dóma hjá tölvuleikjagagnrýnend-
um á árinu sem er að líða. Leikurinn er
nokkurs konar geimvestri og gefst notend-
um einnig færi á að spila leikinn á netinu –
sem er gríðarlega mikilvægt eigi leikurinn að
endast notendum. Leikurinn fékk rúmlega
90 stig á Metacritic sem þykir býsna gott og
virðast flestir á einu máli um það að hér sé
á ferðinni einn af bestu leikjum ársins. Þú
verður einfaldlega að prófa þennan.
Spilast á: PC, Xbox, Playstation 3.
5 Call of Duty: Black Ops 2 Call of Duty-leikjaröðin hefur fyrir löngu
fest sig í sessi og er ein vinsælasta leikjaröð
sögunnar. Nýjasti leikurinn, Black Ops 2,
kom út í nóvember og gefur forverum sínum
ekkert eftir. Magnaður fyrstu persónu
stríðsleikur með góðri einspilun og flottum
söguþræði (e. campaign). Líkt og áður snýst
þó allt um netspilunina sem hefur verið
tekin í gegn og hefur raunar aldrei verið
flottari. Black Ops 2 gerist í framtíðinni og
því eru vopnin nýtískulegri en gengur og
gerist. Algjörlega geggjaður skotleikur sem
erfitt er að slíta sig frá. Fékk fína dóma hjá
gagnrýnanda DV eftir að leikurinn kom út í
nóvember.
Spilast á: PC, PS3, XBox, Wii U og fleiri
vélar.
4 FIFA 13 Það verður ekki hjá því komist að setja besta fótboltaleik
sögunnar á lista yfir bestu tölvuleiki ársins.
FIFA 13 er endurbætt sigurformúla frá FIFA
12 og leikur sem allir sannir knattspyrnu-
unnendur verða að spila. Í FIFA 12 var
varnarleikurinn tekinn rækilega í gegn en í
FIFA 13 er það sóknarleikurinn sem gengur
í gegnum endurnýjun lífdaga. Þá hefur
gervigreindin aldrei verið betri og stundum
engu líkara en að maður sé að horfa á – og
taka þátt í – alvöru fótboltaleik. Allir bestu
leikmennirnir og öll bestu liðin eru hér á
sama stað og það verður ekki mikið betra.
Þessi leikur fékk fjórar stjörnur í DV í haust
og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda.
Spilast á: PC, PS3, Xbox og fleiri vélar.
6 Assassins Creed 3 Þó að leikurinn heiti Assassins Creed 3 er
í raun um að ræða fimmta leikinn í þessari
mögnuðu seríu. Sögusviðið er frelsisstríðið
í Bandaríkjunum frá 1753 til 1783 og sem
fyrr geturðu flakkað óhindrað um allar
trissur. Verkefnin í leiknum eru óteljandi
og fá þeir sem kaupa leikinn nóg fyrir pen-
inginn. Grafíkin er einnig til fyrirmyndar og
söguuppbyggingin er auk þess góð. Frábær
ævintýraleikur sem allir sannir aðdáendur
tölvuleikja mega ekki láta framhjá sér fara.
Spilast á: PS3, Xbox, Wii U, PC.
7 Max Payne 3 Hinn grjótharði Max Payne snéri aftur til leiks með
hvelli í vor. Max Payne 3 hlaut einróma lof
gagnrýnenda enda frábær skemmtun. Þegar
hér er komið við sögu er Max Payne hættur í
löggunni og orðinn háður verkjalyfjum. Hvað
er þá betra en að flytja til Brasilíu og hefja
nýtt líf. Þar gengur hann í gegnum endurnýjun
lífdaga og tekur að sér starf sem felst í að
vernda fjölskyldu hins moldríka Rodrigo
Branco. Þrjótar vilja hins vegar fá skerf af
auðævum hans og ræna eiginkonu hans og
krefjast lausnargjalds. Frábær leikur með góð-
um en einföldum söguþræði og flottri grafík.
Spilast á: PC, PS3, Xbox.
8 Journey Án nokkurs vafa einn óvæntasti smellur ársins. Leikurinn
var einungis gefinn út fyrir PS3 sem er
miður fyrir eigendur annarra véla. Hér er
um mjög svo óhefðbundinn leik að ræða og
vilja margir hreinlega skilgreina hann sem
listaverk. Hann gerist í ónefndri eyðimörk og
þú ert í hlutverki lítillar veru sem er þar á ferð.
Ferðinni er heitið að fjalli sem sést í fjarska
og þarftu að leysa ýmis verkefni á leiðinni.
Virkilega fallegur leikur sem vekur upp
tilfinningar hjá þeim sem spilar hann. Athugið
að leikurinn er stuttur og tekur það vana
spilara einungis um tvo tíma að klára hann.
Spilast á: PS3.
9 XCOM: Enemy Unknown Hér er á ferðinni óvæntur geimhasar sem
fékk góða dóma frá gagnrýnendum þegar
hann kom út í haust. Til að gera langa sögu
stutta snýst leikurinn í kringum alþjóðlegan
hóp hermanna, XCOM, sem hefur það hlut-
verk að berjast við geimverur sem hafa gert
árás á jörðina. Þetta er herkænskuleikur og
snýst algjörlega um að finna réttu leiðina
til að sigra óvininn. Hér þýðir ekkert að vaða
áfram og drita úr byssum. Vandaður leikur
en umfram allt fínasta skemmtun fyrir þá
sem hafa gaman af herkænsku.
Spilast á: PS3, Xbox, PC.
10 NBA 2K13 NBA2K-leikirnir hafa notið mikilla vinsælda meðal
körfuboltaunnenda allt frá því að þeir komu
fyrst fram á sjónarsviðið fyrir margt löngu.
Það breyttist ekkert með tilkomu NBA2K13
í haust. Rétt eins og með FIFA 13 er um að
ræða endurbætta sigurformúlu frá NBA
2K12. Möguleikarnir í spiluninni eru margir og
fjölbreytilegir og það er það sem heillar. Allir
geta fundið eitthvað við sitt hæfi í þessum
leik sem er, að öðrum ólöstuðum, einn allra
besti íþróttaleikur ársins.
Spilast á: PS3, Xbox, PC og fleiri vélar.
Spennandi leikir árið 2013
1 The Last of Us Þetta er leikur sem margir bíða spenntir eftir
enda eru stiklurnar úr honum hreint
stórkostlegar. Hér er á ferðinni þriðju
persónu skotleikur sem gerist eftir að
nánast allt líf hefur þurrkast út á jörðinni.
Þróaður af Naughty Dog sem er ákveðinn
gæðastimpill.
2 Crysis 3 Þriðji leikurinn í þessari frábæru röð og beint framhald Crysis
2 sem kom út á síðasta ári. Leikurinn hefur
verið í þróun hjá Crytek og verður gefinn út
af Electronic Arts.
3 The Walking Dead Leikur sem er byggður á sjónvarpsþáttunum vin-
sælu og segir frá baráttu manna við hina lif-
andi dauðu. Fyrstu persónu skotleikur sem
verður gefinn út af Activision, sem hefur séð
um Call of Duty-leikina. Verði leikurinn jafn
góður og þættirnir, eiga tölvuleikjaunnend-
ur von á góðu.
4 Dead Space 3 Dead Space-leik-irnir eiga dygga aðdáendur um allan
heim enda vart hægt að finna betri hryll-
ingsleiki. Það má búast við þessum í febrúar
næstkomandi fyrir PC, PS3 og Xbox. Það er
eins gott að spila með ljósin kveikt því þessi
mun vekja hrylling og láta þér bregða.
5 Gears of War: Judgment Þriðju persónu skotleikur og
eitt af flaggskipum Xbox enda kemur
leikurinn bara út fyrir Xbox. Þriðju
persónu skotleikur og sá fjórði í Gears of
War-leikjaröðinni. Leikur sem ætti ekki
að geta klikkað.
Búast má við að næsta ár verði flott hvað tölvuleikjaútgáfu varðar en DV hefur hér tekið saman helstu titlana sem margir bíða eftir með eftirvæntingu. Hafa ber í huga
að útgáfudagar þessara leikja hafa ekki verið staðfestir og því mögulegt að einhverjir
þeirra líti ekki dagsins ljós fyrr en árið 2014 – þó það þyki ólíklegt.