Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Page 76

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Page 76
68 Fólk 28. desember 2012 Áramótablað Hvað er að gerast? 28. desember 2012 – 1. janúar 2013 Föstudagur28 des Laugardagur29 des Sunnudagur30 des Já, elskan Um er að ræða nýtt sviðsverk eftir Steinunni Ketilsdóttur í samvinnu við hóp sviðslista- fólks sem frumsýnt verður í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 28. desember. Hvernig aðlögum við okkur og hver eru þolmörk okkar í samskiptum við ástvini og fjölskyldu? Hversu mikið er hægt að teygja þessi mörk og toga? Hvaða leyndarmál fá að grafa um sig og við hvaða kringumstæður blómstra ósögð orð og tilfinningar sem fá ekki útrás? Með þessar hugleiðingar í farteskinu fer hópurinn í ferðalag og þróar sýninguna Já, elskan. Dansarar og leikarar: Árni Pétur Guð- jónsson, Aðalheiður Halldórsdóttir, Berglind Pétursdóttir, Hannes Þór Egilsson, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Magnús Guðmundsson, Snædís Lilja Ingadóttir. Sýningin er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Kassinn 20:00 Rokk og ról í Þjóðleikhúskjallaranum Stebbi Ó. Swingsextett blæs til dansleiks í Þjóðleikhúskjallaranum föstudagskvöldið 28. desember. Boðið verður upp á sígilda rokk og ról-tónlist í bland við klassíska sveiflu- söngva og dægurperlur. Svo er aldrei að vita nema nokkur vel valin árstíðabundin tónlist slæðist með. Nú er um að gera að pússa dansskóna og klára árið með dansandi stæl. Þjóðleikhúskjallarinn 22:00 Áramótabomba Mið-Íslands Uppistandshópurinn Mið-Ísland ætlar að kveðja gamla árið með uppistandi á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Fram koma Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Björn Bragi, Dóri DNA og Anna Svava. Kynnir er Jóhann Alfreð. Uppistandssýningar Mið-Íslands hafa slegið í gegn í Þjóðleikhúsinu og hópurinn fyllti hverja sýninguna á fætur annarri á síðasta leikári. Um er að ræða tveggja klukkustunda veislu fyrir hláturtaugarnar. Þjóðleikhúsið 20:00 og 23:00 Jólaóratorían í Eldborg Í tilefni 30 ára afmælis Mótettukórs Hall- grímskirkju efnir kórinn til tónleika í Hörpu dagana 29. og 30. desember ásamt Alþjóð- legu barokksveitinni í Den Haag. Verkið sem flutt verður er Jólaóratorían eftir J.S. Bach. Jólaóratórían er eitt af stórvirkjum barokk- tímans, samin fyrir jólahátíðina 1734 og ætluð til flutnings á stórhátíðardögunum frá jóladegi til þrettándans. Jólaboðskapurinn er rakinn í gleðisöngvum, hugljúfum aríum og íhugulum sálmum þar sem fjallað er um það kraftaverk sem varð þegar frelsarinn fæddist fyrir rúmum 2.000 árum. Einsöngvarar eru Herdís Anna Jón- asdóttir sópran (Íslandi), Daniel Cabena kontratenór (Kanada), Benedikt Kristjáns- son tenór (Íslandi), Stephan MacLeod bassi (Sviss). Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Eldborg 17:00 Síðasti sjéns 2012 Skemmtunin Síðasti sjéns 2012 fer fram í Vodafonehöllinni þann 30. desember. Þar munu leiða saman hesta sína Retro Stefson og Hermigervill. Er það markmið kvöldsins að ekki verði þurr þráður á kroppi gesta sökum stuðs og fjörs. Síðasti sjéns er orðinn árlegur viðburður. Tilvalið tækifæri fyrir fólk að hrista af sér jólaspikið og koma sér í áramótagírinn. Vodafonehöllin 20:00 Nýárstónleikar Garðars Thórs Cortes Tenórinn Garðar Thór Cortes blæs til nýárstónleika í kringum áramótin bæði í Reykjavík og á Akureyri. Fyrri tónleikarnir fara fram í Grafarvogskirkju sunnu- dagskvöldið 30. desember og seinni tónleikarnir verða í Hofi á Akureyri þann 5. janúar. Grafarvogskirkja 22:00 Áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu 2012 Hentug partíspjót Kjöt á spjótum er einstaklega þægilegt að bera fram á mann- fögnuðum, sérstaklega ef um er að ræða standandi partí. Spjótin gera það að verkum að matur- inn helst á sínum stað þangað til hann ratar upp í munn og ofan í maga. Spjótin koma þannig í veg fyrir hvimleiðan subbugang sem gjarnan fylgir snittum og öðrum fingramat. Hægt er að nota hvaða kjöt sem er en kjúklingalundir með sesam- fræjum eru töluvert vinsælar. Þær má bara fram með ýmiss konar sósum. Til dæmis súrsætri sósu eða hvítlauksmajónesi. Þá er einnig hægt að bera fram grænmeti á spjótum, eða hvað það sem hugurinn girnist. ÆGISÍÐA SKERJAFJÖRÐUR LAUGARÁSVEGUR SUÐURHLÍÐAR GEIRSNEF ÚLFARSFELL FYLKISBRENNA SUÐURFELL GUFUNES V/SJÁVARGRUND V/SMÁRAHVAMMSVÖLL ÁSVELLIR ULLARNESBREKKA KJALARNES VIÐ KLÉBERG Reykjavík 1. Við Ægisíðu, stór brenna, kl. 20.30 2. Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna, kl. 20.30 3. Gufunes, stór brenna, kl. 20.30 4. Geirsnef, stór brenna, kl. 20.30 5. Við Suðurfell, lítil brenna, 20.30 6. Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna, 20.30 7. Skerjafjörður gegnt Skildinganesi 48–52, lítil brenna, kl. 20.30 8. Vestan Laugarásvegar móts við Valbjarnarvöll, lítil brenna, kl. 20.30 9. Fylkisbrennan, við Rauðavatn, stór brenna, kl. 20.30 10. Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg, lítil brenna, kl. 14.30 Seltjarnarnes Valhúsahæð, kl. 20.30 Kópavogur Við Smáravöll, kl. 20.30 Hafnarfjörður Að Ásvöllum, við Tjarnarvelli 7 kl. 20.30. Garðabær Sjávargrund, kl. 21.00 Álftanes Norðan við Gestshús Mosfellsbær Ullarnesbrekka Kjalarnes Við Kléberg VALHÚSAHÆÐ NORÐAN V/ GESTSHÚS Tímahylki fjölskyldunnar Af hverju ekki að nota tíma- mótin til þess að minnast góðra stunda með fjölskyldu og vin- um. Það má prenta út myndir og safna saman litlum hlutum sem minna á árið. Aðgöngu- miðar í tívolí, farmiðar, ljós- myndir, steinvölur frá áfanga- stöðum og fleira má setja í litla glerklukku. Á næstu ára- mótum er svo hægt að stilla upp krukku síðasta árs með. Með árunum verður til hin skemmtilegasta og persónuleg- asta skreyting sem völ er á.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.