Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Blaðsíða 80
Láttu þá
heyra
það, Jón!
Lokað á Kaffi-
félaginu
n Fastagestir á Kaffifélaginu
gengu um bæinn á fimmtudag í
leit að nýju kaffihúsi til að fara á.
Fastagestir á borð við Egil Helga-
son fjölmiðlamann og Benedikt
Erlingsson leikstjóra fundu sér
samastað á kaffihúsi Te og Kaffi í
Aðalstræti í staðinn. Kaffifélagið
á Skólavörðustíg hefur
lengi verið þekkt
fyrir að laða að sér
þekkta einstak
linga en kaffið
þar þykir einkar
gott, þó lokað sé
um jólin.
Einlægur og
tárvotur ritstjóri
n Björn Þorláksson, ritstjóri Akur
eyrar vikublaðs, er virkur og vin
sæll á samskiptavefnum Facebook.
Hann verður
seint sakaður
um að busla
á yfirborðinu.
Á fimmtudag
deildi hann fal
legri upplifun
sinni með hátt
í 2.000 vinum
sínum, þar af
1.000 sem hann þekkir ekki neitt.
„Mér finnst ég verða að deila því,
að ég sit hér í sveitinni, tárvotur af
hamingju með litlu krílin mín að
leik, dansandi, syngjandi og lukku
leg í alla staði. Þegar maður hefur
gengið dimma dali og ekki haft
burði til að fá það út úr sjálfum sér
og lífinu sem að var stefnt – þá geta
runnið lækir [af] gleði – og þannig
er þetta kvöld.“ Stöðuuppfærslurn
ar verða ekki mikið einlægari.
Skellti sér á
Hobbitann
n Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón
Gnarr, skellti sér á kvikmyndina
Hobbitann í jólafríinu. Hann gef
ur myndinni ágæta umsögn en á
Facebooksíðu sína skrifar hann:
„Dálítið löng og hæg byrjun og
jafnvel ruglingsleg en samt mjög
góð.“ Hann vitnaði svo í galdra
manninn Gandalf þar sem hann
segir að hversdagsleg verk venju
legs fólks sé það sem heldur illu í
skefjum. Þess má að auki geta að
Jón hefur undanfarna daga gagn
rýnt Bandaríkjamenn harðlega
fyrir lög byssueign og
viðbrögð við þeirra
fjöldamorðinu
á dögunum.
„Hvenær ætlið þið
að læra af mistök
unum?“ spyr
borgarstjór
inn á Face
book.
N
ú er eiginlega alveg eins veður
spá og þegar þau giftu sig árið
1962,“ segir Þórhallur Harðar
son, yngsti sonur Harðar Þór
hallssonar, sem heldur upp á 50 ára
brúðkaupsafmæli sitt um helgina
ásamt eiginkonu sinni Ólöfu Hall
björgu Árnadóttur.
Laugardagurinn er merkisdagur
innan fjölskyldunnar, þá verða haldin
þrjú brúðkaupsafmæli; eitt gullbrúð
kaup og tvö perlubrúðkaup. Þar að
auki á Ólöf afmæli þann 31. Því munu
hjónin koma saman ásamt afkomend
um sínum að fjórföldu tilefni. „Þetta
verður einhvers konar jóla og ára
mótaboð,“ útskýrir Þórhallur. Brúð
kaup þeirra Ólafar og Þórhalls fór fram
í Húsavíkurkirkju á laugardegi árið
1962 en fjölskyldan mun koma saman
á Nípá, Útkinn – á Suðausturlandi –
á laugardeginum. Margt er líkt með
dögunum tveimur, en nokkrir gest
anna þurfa vegna slæmrar veðurspár
fyrir austan að flýta ferð sinni suður,
það þurftu einnig sumir gestir að gera
– og af sömu sökum – þegar Ólöf og
Hörður giftu sig. „Menn ætla að reyna
að koma saman á Nípá þrátt fyrir
veðurspána,“ segir Þórhallur en þar
halda þau Ólöf og Hörður bú sitt. Þar
koma saman börn, barna og barna
barnabörn hjónanna og er heildar
fjöldinn rúmlega 30 manns.
Perlubrúðkaupin sem haldið verð
ur upp á eru brúðkaupsafmæli tveggja
barna þeirra. Árið 1982 giftist Gunnar
Rafn Harðarson Guðrúnu Hörpu Vil
hjálmsdóttur, og sama dag giftist Hjör
dís Sævar Harðardóttir Kára Karlssyni.
Þau voru gefin saman í Húsavíkur
kirkju, sömu kirkju og foreldrarnir,
á laugardegi fyrir 30 árum. Það sem
tengir brúðkaupin enn frekar er sú
skemmtilega staðreynd að Ólöf gekk
með Hjördísi undir belti þegar hún
giftist Herði. „Hann tengist á margan
hátt þessi 29.,“ segir Þórhallur.
Þrjú brúðkaup og afmæli
n Mikill fögnuður hjá afkomendum Harðar og Ólafar
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 28. dEsEmBEr–3. Janúar 2013149. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Hörður og Ólöf Hjónin giftu sig í
Húsavíkurkirkju árið 1962.