Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2011, Blaðsíða 15
Fréttir | 15Helgarblað 16.–18. september 2011
Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is • dorma@dorma.is
OPIÐ
Virka daga frá kl. 10-18
Lau frá kl. 11-17
Ótrúlegt
verðNature’s Rest heilsurúm
styður við bakið á þér !
Nature’s Rest
Stærð cm. Dýna Með botni
90x200 39.000,- 65.900,-
100x200 42.000,- 69.900,-
120x200 48.000,- 75.900,-
140x200 53.000,- 79.900,-
160x200 67.900,- 99.900,-
180x200 73.900,- 109.900,-
Gegnheilar
viðarlappir
100%
bómullaráklæði
Svæðaskipt
pokagormakerfi
Góðar
kantstyrkingar
Sterkur
botn
J
enney Sigrún Halldórsdóttir
hóf tveggja anna flugþjón
ustunám í Flugakademíu Keil
is haustið 2010 og var hún elst
í sínum bekk. Hún komst að
því, áður en hún tók lokapróf hjá Ice
landair, að hún væri of gömul til að
fá vinnu út á námið. „Ef ég átti aldrei
möguleika á því að fá vinnu hjá Ice
landair, af hverju átti ég þá að fara í
prófið hjá Icelandair?“ spyr hún, nú
skuldug eftir námið og án réttinda.
Samstarf við Icelandair
Síðari hluti námsins var kenndur í
samstarfi við Icelandair og hafði það
verið tekið fram þegar námið var
auglýst um haustið. Að loknu starfs
námi hjá Icelandair áttu nemendur
að fara í próf þar sem lagt var mat á
kunnáttu þeirra í starfi flugþjóna og
flugfreyja hjá fyrirtækinu. Eftir próf
ið áttu nemendurnir einnig að fljúga
með vélum Icelandair og starfa sem
hluti af áhöfn til að kynnast starf
inu betur fyrir útskrift. Í vikunni fyr
ir prófið birtist hins vegar auglýsing
frá Icelandair þar sem óskað var eftir
flugþjónum og flugfreyjum til starfa
hjá fyrirtækinu. Í auglýsingunni var
tekið fram að umsækjendur mættu
ekki vera eldri en 30 ára. Þegar Jenn
ey sá auglýsinguna brá henni veru
lega, enda orðin 38 ára og því ljóst
að hún átti þess ekki einu sinni kost
að sækja um starf hjá fyrirtækinu
sem hún hafði verið í starfsnámi hjá
í nokkra mánuði. Jenney hætti því
samstundis í náminu.
Hálf starfsævin eftir
Jenney gerir sér grein fyrir því að Ice
landair, líkt og önnur fyrirtæki, get
ur ákveðið hvaða kröfur þeir gera
til umsækjenda til starfa, en henni
finnst aldurstakmarkið 30 ár þó
mjög lágt. „Ég meina, það er næstum
því helmingurinn af starfsævinni eft
ir,“ bendir hún á. Hún er mjög ósátt
við af hverju það var ekki tekið fram
í upphafi síðari annarinnar, sem var
eins og hún lýsir, eingöngu kynning á
starfi flugþjóna og flugfreyja hjá Ice
landair, að þeir sem væru komnir yfir
þrítugt ættu ekki möguleika á starfi
hjá fyrirtækinu.
Náminu margbreytt
Jenney á gamla auglýsingu um
námið frá árinu 2008 og þar er tekið
fram að námið sé kennt í samstarfi
við Icelandair, Iceland Express og
einnig erlend flugfélög. Þegar Jenn
ey hóf sitt nám var aðeins kennt í
samstarfi við Icelandair. Nú hefur
náminu aftur verið breytt og sam
starfi við flugfélög hefur alveg ver
ið hætt. Á heimasíðu Keilis kemur
fram að boðið sé upp á tvær leiðir á
flugþjónustubrautinni. Á fyrri önn
inni fer fram grunnþjálfun í sam
ræmi við evrópskar kröfur, sam
þykkt af Flugmálastjórn Íslands, og í
lok annarinnar fá nemendur í hend
urnar vottun fyrir grunnþjálfun.
Á seinni önninni er nú hins
vegar eingöngu boðið upp á þjálfun
í ýmsum greinum ferðaþjónustu.
Kennslu á bókunarkerfi ferðaskrif
stofa og hótelstörf, svo sem gesta
móttöku og bókun. Þá er tekið fram
að námið sé lánshæft hjá Lána
sjóði íslenskra námsmanna. Tekið
er fram að nemendur þurfi að vera
orðnir 18 ára og er það eina aldurs
takmarkið.
Veitir engin réttindi
Jenney er ósátt við alla framsetn
ingu Keilis á flugþjónustunáminu
og hún skilur ekki af hverju nám
ið er lánshæft hjá LÍN. Eftir að hafa
hætt á miðri síðari önninni fór hún
og kynnti sér betur hvað hún hefði í
raun í höndunum með svokölluðu
vottorði fyrir grunnþjálfun. Miðað
við þær upplýsingar sem hún hef
ur aflað sér þá hefur komið í ljós að
slíkt vottorð virðist ekki vera mik
ils metið. Jenney fékk það staðfest
frá flugmálastjórn að vottorðið veiti
engin starfsréttindi og hefur DV þau
bréfasamskipti undir höndum. Þá
hefur hún safnað saman nokkrum
atvinnuauglýsingum frá flugfélög
um, þar sem óskað er eftir freyjum
og þjónum, og í þeim er aldrei tekið
fram að flugþjónustunám eða vott
orð fyrir grunnþjálfun hafi einhverja
vigt.
„Eftir þetta þá hafði ég strax sam
band við skólann og spurði hverslags
nám þetta væri.“ Að sögn Jenneyjar
fékk hún þau svör frá Flugakademí
unni að Keilir „væri ekki ráðningar
skrifstofa.“
Tveggja milljóna skuld
„Núna stend ég uppi með tvær millj
ónir í skuld. Ég skulda tvær milljón
ir eftir þetta rugl. Bæði hjá LÍN og
í framfærslu hjá bankanum vegna
þess að ég hætti á miðri önn. Svo
fékk ég skólagjöldin borguð fyrir
fram og nú vilja þeir fá það borgað
til baka strax, 200 þúsund kall.“
Jenneyju finnst jafnframt mjög
skrýtið að Icelandair hafi ekki séð
hag sinn í að ráða fólk útskrifað úr
flugþjónustunáminu, enda námið
hugsað til að spara flugfélögunum
námskeiðagjöld. „Hver er tilgang
urinn eiginlega með þessu?“ spyr
Jenney og er mjög reið. „Það var ein
af hundrað manns sem fékk vinnu
hjá Icelandair, pældu í þessu.“
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
n Jenney fór í flugfreyjunám en Icelandair mat hana svo of gamla
til starfans n Situr uppi með milljónaskuld en engin réttindi
Reyndist
of gömul
eftir námið
Mjög reið Jenney skilur
ekki tilgang flugþjón-
ustunáms á vegum Keilis,
enda veitir það engin
rétting né forgang í störf.
„Ég skulda
tvær milljón-
ir eftir þetta rugl