Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2011, Blaðsíða 29
Viðtal | 29Helgarblað 16.–18. september 2011
hann um að eignast lítinn
búgarð þar sem synir hans
geta alist upp við áhyggju-
leysi. Hégómann segir hann
vera horfinn úr lífi sínu. „Lífið
breyttist til frambúðar þegar
ég eignaðist minn fyrsta son,
Oliver Erik Solér Fjölnisson.
Hann er fimm ára í dag, að
verða sex, og býr með móður
sinni Mailinn í Svíþjóð. Oliver
á heimili í Svíþjóð en kemur
þó oft til Íslands og eyðir tíma
með mér í Hveragerði. Okkur
líður vel saman og við erum
nánir. Þau bjuggu áður í Nor-
egi og var ég duglegur að ná í
hann þangað. Nú getur hann
komið í fylgd flugfreyju svo
það verður ekki jafndýrt.
Hann kallar mig pabba
en ekki stjúpföður sinn og
það segir mikið um hversu
sterka tengingu við höfum.
Ég læt hann vita af öllu sem
er í gangi hjá mér og hann er
stoltur af mér og ég af honum.
Þetta var erfitt þegar hann
var lítill því þá gat hann ekki
komið jafnoft. En núna er
hann orðinn svo stór að hann
getur komið oftar og get-
ur verið með mér í alls kyns
verkefnum í sveitinni. Það er
krúttlegt að sjá svona lítinn
polla leika sér með hjólbörur,“
segir hann og brosir breitt.
Fyrir tveimur árum
eignaðist Fjölnir yngri son
sinn, Alexander Óðin, með
Sjöfn Sæmundsdóttur.
„Strákarnir eru líf mitt og
yndi. Ég er mjög meðvitaður
um að lífið er til þess gert að
við verðum nógu vel úr garði
gerð til þess að gefa börnum
okkar styrk og hlýju. Ég vil
endilega eignast stelpu líka,“
segir hann. „Ég er meira að
segja búinn að kaupa á hana
fallegan kjól,“ bætir hann við.
Segist reyndar hafa gert það
áður en Alexander Óðinn
kom í heiminn og hann og
Sjöfn vissu ekki kynið.
Þorði ekki að hætta með
kærustunni
Sviðsljósinu geta vissulega
fylgt gallar eins og Fjölnir hef-
ur fengið að kynnast. Hann
hefur oft lent á milli tannanna
á fólki en hann hefur ekki lát-
ið það á sig fá. „Ég geri mér
grein fyrir því að ég hef oft
gefið kost á því að talað sé um
mig. Ég tek það alls ekki nærri
mér þegar fólk skemmtir sér
á minn kostnað. Mér er sama
hvort fólk haldi að ég sé eitt-
hvað ruglaður, eða hvað því
dettur í hug að segja. Ég á vini
og þeir vita hver ég er. Fólki
sem er fast í afbrýðisemi líð-
ur bara illa og á að leita sér
hjálpar. Ég mæli með því að
það fari í Al-Anon. Ég hef haft
gott af því sjálfur. Faðir minn
var gríðarlega stjórnsamur og
mamma meðvirk og stjórn-
söm líka og ég þurfti að vinna
úr því. Ég þorði til að mynda
ekki að hætta með kærust-
unni minni á unglingsárun-
um því mamma stjórnaði,“
segir hann og hlær.
„En í fyllstu alvöru þá eru
Al-Anon frábær samtök til að
losna við meðvirkni og allir
verða sterkari á því að með-
taka þau sannindi að þeir
stjórna ekki því hvað öðru
fólki finnst. Ég passa mig til
að mynda á því í dag að láta
ekki reiði eða utanaðkom-
andi hluti hafa of mikil áhrif á
mig því það hefur áhrif á mig
sem foreldri. Það er óþarfi því
þannig á lífið svo sannarlega
ekki að vera. Fullorðnir eiga
ekki að kúga börnin sín með
eigin vanlíðan.“
Hefur lært af mistökum
sínum
Fjölnir segist hafa þroskast
mikið í lífinu. Hann hafi oft
hlaupið á veggi og gert mis-
tök. En hann hafi lært af því
og tekið fulla ábyrgð á gjörð-
um sínum. Einhverju sinni
gerði hann mistök í viðskipt-
um sem enduðu illa. Hann
er enn að borga skuldir sín-
ar vegna þeirra mistaka. „Ég
borga þær skuldir sem ég efni
til. Þannig maður vil ég vera.
Þótt ég geti ekki gert það á
réttum tíma. Þá læt ég bara
vita af því. Það eru 14 ár síðan
ég tók á mig skuldbindingar
vegna mistaka í viðskiptum
og ég er ennþá að borga.“
En helst myndi hann vilja
breyta því þegar skapið hljóp
með hann í gönur. „Ég er eins
og allir aðrir. Ég myndi breyta
mörgu fengi ég tækifæri til. Ég
myndi þá helst vilja taka það
aftur þegar ég særði ástvini
mína og líka ef ég fór illa með
sjálfan mig. Ég tel til dæmis að
fólk eigi ekki að nota of mikið
áfengi og þegar ég hef gert það
þá sé ég alltaf eftir því. Það er
betra að lifa heilsusamlegu og
heiðarlegu lífi. Ég held ég hafi
lært af mistökum mínum, vin-
átta mín við fyrrverandi maka
og fjölskyldur þeirra segir til
dæmis margt um það, og ég
er afar þakklátur fyrir að hafa
kynnst þessu yndislega fólki“
segir hann og brosir.
„Eftir að
ég varð
faðir þá áttaði
ég mig á því
hversu sterk
kona hún
móðir mín er.
„Læknirinn var
töluvert í glasi
þegar hann sagði
mér frá því að hann
hefði fjarlægt úr mér
rifbein þegar ég var
þriggja ára. Það hefði
hann gert vegna þess
að ég hefði verið með
krabbamein.
„Ég átti mjög
erfitt með að
vinna úr missinum
og í heilt ár á eftir var
ég brjálaður í skap-
inu. Það mátti ekk-
ert segja við mig. Ég
slóst og ég öskraði
og réðst á menn af
minnsta tilefni.
Lífið kemur stöðugt
á óvart Eins og Fjölnir
hefur komist að.
mynd gunnar gunnarsson