Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2011, Blaðsíða 21
Fréttir | 21Helgarblað 16.–18. september 2011
fjármálaverkfræði við Háskólann í
Reykjavík en er hættur því nú. Engu
að síður hefur hann haldið gleðinni í
gengum hrunið en áhugi hans á veiði
virðist óþrjótandi. Hann er mikill
veiðimaður og fór oft í þrjár laxveiðiár
á einum og sama deginum.
Bjarni Ármannsson
Býr á Íslandi þar sem hann á enn at-
hvarf í gamla glæsihýsinu sínu við
Bakkavör á Seltjarnarnesi. Hann
hagnaðist um 380 milljónir í febrú-
ar 2007 þegar hann nýtti sér kaup-
réttarsamning við bankann og efnað-
ist hratt á árunum 2008–2010. Eignir
hans eru metnar vera á bilinu átta til
tíu milljarðar í dag. Hann á Sjávarsýn,
Landssýn, súkkulaðiverksmiðjuna
Elizabeth Shaw í Bretlandi og er að-
aleigandi Gasfélagsins sem er helsti
innflytjandi á gasi og gashylkjum til
landsins, er virkur fjárfestir og hefur
meðal annars fjárfest í skuldabréfum
fyrirtækja. Þá reynir hann að ná tök-
um á N1 í samstarfi við lífeyrissjóði og
lætur sig víst dreyma um að eignast
banka aftur.
Mánaðarlaunin eru heldur ekki
af verri endanum en þau hljóða upp
á 33,3 milljónir íslenskra króna. Árið
2009 tók hann sér tæplega 400 millj-
ónir í arð út úr Sjávarsýn, sem skilaði
einmitt 400 milljóna króna hagnaði
árið 2008. Sama ár þurfti Glitnir að
afskrifa rúmlega 800 milljóna króna
skuld dótturfélags Sjávarsýnar, Imag-
ine Investment.
Hann á einnig hús á besta stað í
Ósló við götuna Hundsundveien í
Snaroyja-skaganum, sem þykir eitt
fínasta úthverfi borgarinnar, í 216 fer-
metra húsi sem er metið á 300 millj-
ónir. Húsið er í snarbrattri brekku og
virkar látlaust en útsýnið er einstak-
lega gott.
Auk þess á hann hús í Kew River-
side í London en húsin þar kosta í
kringum 400 milljónir.
Þá er það einnig alþekkt að hann
hafi sungið í öllum veislum fyrir hrun
og þess eru dæmi að fólk hafi geng-
ið út þegar hann hóf upp raust sína.
Í hópnum var gantast með það að
elska hans á Stuðmannalögum hafi
orðið til þess að þeir hættu fyrir fullt
og allt.
Þá er hann sagður þola áfengi illa,
þá sjaldan sem hann drekkur nær
hann sjaldan á ball, enda eru áhuga-
málin í heilsusamlegri kantinum og
hann er frægur fyrir framgöngu sína í
hlaupum og áhuga sinn á hekli. Mest-
an áhuga hefur hann þó á peningum,
enda þykir hann ansi vinnusamur,
metnaðargjarn og tækifærissinnaður.
Skúli Mogesen
Er að fara frá Arnarnesinu í Skerja-
fjörðinn, þar sem hann var að kaupa
sér glæsivillu við Skeljatanga. Hann
auðgaðist í Kanada á uppbyggingu
og sölu á fjarskiptafyrirtækinu Oz,
sem hann stýrði í tæknilegt gjaldþrot
ásamt Guðjóni í Oz áður en hann fór
með leifarnar út. Kom aftur til Íslands
með þrjá milljarða króna og haslaði
sér völl í fjárfestingum. Stofnaði fjár-
festingafélagið Títan og keypti hluta-
bréf í MP-banka. Viðskiptasaga hans
er mjög loðin, fáir skildu út á hvað Oz
gekk og hvað fyrirtækið gerði. Svip-
aða sögu má segja um viðskipti Skúla
í Kanada.
Hann þykir með hégómlegri
mönnum og er afar umhugað um
eigið útlit og ímynd. Skúli hefur gefið
sig út fyrir að vera einlægur aðdáandi
Einars Benediktssonar, skálds og at-
hafnamanns. Þá er sagt að hann flíki
því stundum að hann hafi lært heim-
speki um tíma í Háskóla Íslands og sé
því að einhverju leyti djúpur maður.
Skúli lauk hins vegar aldrei prófi. Vin-
ir hans tala því um hann sem hugsuð.
Ímynd hans er því sú að hann sé
ekki bara ríkur heldur einnig hugsuð-
ur. Raunin er önnur, segja þeir sem til
hans þekkja. Sumir ganga jafnvel svo
langt að segja að hann sé undirförull
og svikráður í viðskiptum.
Róbert Wessman
Býr í Fossvoginum og kom mjög illa
út úr hruninu, eignir hans í íslenskum
fyrirtækjum eru ekki miklar. Hann
átti hlut í Glitni sem hann tapaði í
hruninu og fjárfestingafélag hans Salt
Investments er mjög skuldsett. Það
stendur svo illa að það er varla rekstr-
arhæft.
Hann fer fyrir bandaríska sam-
heitalyfinu Alvogen í dag og vinnur
að uppbyggingu þess.
Hann er mikið heilsufrík og sést
iðulega í World Class en hann vill að
allt sé slétt og fellt í kringum sig. Er
þekktur fyrir að vilja vera á flottum
hótelum, drekka fín vín og þeytast um
á fögrum fákum en fátt þykir honum
eins spennandi og flott mótorhjól.
Lúxemborg
Sviss
Rússland
Bretland
Spánn
Ísland
Jóhannes
Skúli
Karl
Bjarni
Björgólfur
Róbert
Sigurjón
Jón
Lýður
Björgólfur
Thor
Magnús
Stefán
Sigurður
Magnús
Pálmi
Þorsteinn
ÓlafurMagnús
Hannes
Hreiðar Már
Ármann
Steingrímur
Sigurður
Lárus
Jón
Fjölskyldusetrið Hús Björgólfs Thors Björgólfssonar í London en þau Kristín hafa dundað
sér við að gera það upp á síðustu árum.
Aðsetur Jóns Ásgeirs og Ingibjargar Á Sóleyjargötunni. Þau leigja líka tveggja her-
bergja íbúð í London.
Hús Magnúsar í Lúxemborg Margir Íslendingar hafa komið sér vel fyrir þar.
„Ég borga,“ var
hans frasi og dró
hann iðulega upp veskið
fyrir félagana. Einu sinni
fór hann út að borða á
Akureyri og borgaði fyrir
alla á veitingastaðnum.
Fertugsafmæli Björgólfs Þá fékk hann 50 Cent til að spila en hann er enn að hlusta á
rapp, mætti á Quarashi-tónleika á Nasa í sumar.