Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2011, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2011, Qupperneq 19
Erlent | 19Helgarblað 16.–18. september 2011 FLOTTASTA SYNING I HEIMI Fusi Froskagleypir Leikfélag Hafnarfjarðar kynnir Sýnt í Gaflaraleikhúsinu við Víkingastræti Gaflaraleikhúsið - Strandgötu 50 Hafnarfirði Sími: 565 5900 - gaflarar@gaflaraleikhusid.is snyr aftur Fyrsta sýning 1. okt Önnur sýning. 2. okt Þriðja sýning. 8. okt Fjórða sýning. 9. okt Miðasala á midi.is og á midasala@gaflaraleikhusid.is Nánari upplýsingar um sýningardaga í síma 565 5900 eða á www.gaflaraleikhusid.is R ithöfundurinn Joe McGinn- iss sendi á fimmtudag frá sér bók um ævi Söruh Palin. Í bókinni kemur ýmislegt nýtt fram í sviðsljósið um fortíð Palin en hún er meðal annars sögð hafa átt í ástarsambandi við NBA- körfuboltaleikmann á meðan hún var í sambandi með núverandi eigin- manni sínum. Sarah Palin hefur verið gífurlega áberandi í bandarískum stjórnmálum allt frá því hún var útnefnd sem vara- forsetaefni Repúblikanaflokksins fyr- ir síðustu forsetakosningar í landinu. Palin hefur verið orðuð við framboð til forseta allt síðan þá en hafi hún haft einhverja drauma um embættið gæti verið að þeir séu að engu orðnir. Sögð hafa haldið ítrekað framhjá Bandaríska götublaðið National En- quirer hefur birt brot úr bókinni. Í þeim texta sem birtist þar er ljóst að Sarah hefur gert marga hluti sem bandaríska þjóðin er líklegast ekki ánægð með. Númer eitt er að sjálf- sögðu meint framhjáhald Palin með NBA-stjörnunni Glen Rice. Framhjá- haldið er sagt hafa átt sér stað á með- an Palin starfaði sem íþróttafrétta- maður hjá sjónvarpsstöð í heimaríki sínu Alaska. Rice er sagður hafa stað- fest framhjáhaldið við höfund bókar- innar. Þetta er þó ekki eina skiptið sem Palin er sögð hafa haldið framhjá eig- inmanni sínum. Í National Enqui- rer segir að gögn í bókinni leiði í ljós framhjáhald Palin með viðskipta- félaga eiginmanns síns. Eiginmaður Palin, Todd Palin, rak snjósleðaum- boð ásamt kunningja sínum Brad Hanson. Mun hann hafa hætt störfum fyrir umboðið og leyst það upp eftir að hann komst að því að Palin og Hanson hefðu átt í ástarsambandi. Tók kókaín af olíutunnu Palin er harðlínuhægrikona í banda- rískum stjórnmálum og er talin með allra íhaldssömustu stjórnmála- mönnum þar í landi. Hún hefur þó leyft sjálfri sér að fara frjálslega með eiturlyf en í bókinni er sagt frá því að hún hafi sogið kókaín í nefið af olíu- tunnu á meðan hún var í snjósleða- ferð með nokkrum vinum sínum. At- vikið er sagt hafa átt sér stað áður en hún var kjörin ríkisstjóri í Alaska. Kókaínsagan er höfð eftir vini Pal- in-hjónanna til margra ára en hann segir einnig að eiginmaður Palin hafi verið tekinn fyrir að keyra undir áhrif- um kókaíns. Palin er þó sögð hafa not- að fleiri fíkniefni en kókaín að sögn National Enquirer. Í bókinni kemur fram að hún hafi reykt maríjúana með háskólaprófessor, sem var faðir vin- konu hennar. n Ævisaga Söruh Palin varpar nýju ljósi á fortíð hennar n Sögð hafa haldið ítrekað framhjá eiginmanni sínum og neytt kókaíns n Draumar Palin um að verða forseti Bandaríkjanna líklega að engu orðnir„Framhjáhaldið er sagt hafa átt sér stað á meðan Palin starf- aði sem íþróttafrétta- maður hjá sjónvarpsstöð í heimaríki sínu Alaska. Kókaín og kynlíf Söruh Palin Körfuboltastjarna Í bókinni er greint frá meintu framhjáhaldi Söruh með Glen Rice. Ýmislegt á samviskunni Sarah Palin getur að líkindum kvatt drauma sína um frekari frama í pólitík eftir að bókin kemur út. Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is Bandaríkin S jónvarpssálfræðingurinn dr. Phil tryggði sér ítarlegt viðtal við hjónin George og Cindy Anthony, foreldra Ca- sey Anthony, sem sýknuð var fyrr í sumar af ákæru um að hafa myrt barnunga dóttur sína Caylee. Málið varð eitt stærsta fréttamál Bandaríkjanna og allt ætlaði um koll að keyra þegar Casey var sýkn- uð, enda hafði ákæruvaldið mjög sterk sönnunargögn gegn henni. Flest benti raunar til þess að móð- irin unga hefði myrt dóttur sína. Ca- sey hefur verið í felum síðan hún var sýknuð og ekki veitt eitt einasta við- tal eða sést opinberlega. Foreldrar hennar hafa nú hins vegar rofið þögnina og gáfu dr. Phil sínar skýringar á því hvernig þau telja að dóttir þeirra hafi myrt barnabarn þeirra. Cindy sagði við dr. Phil að hún tryði hluta þeirr- ar sögu að Caylee hefði drukknað í sundlaug, en því hélt verjandi Casey fram í réttarhöldunum. „Ég kaupi það að Caylee hafi drukknað en ég trúi ekki sögunni í kringum það,“ sagði Cindy. George var miklu meira afger- andi í garð dóttur sinnar og kom með allt aðra kenningu í viðtalinu. „Ég held að eitthvað annað hafi komið fyrir hana... Ég held að Ca- sey eða einhver sem var með henni hafi gefið litlu stúlkunni of stóran skammt. Hún sofnaði og vaknaði ekki aftur.“ Dr. Phil spurði George af hverju Caylee hefði fengið stóran skammt. „Trúlega af einhvers kon- ar lyfi eða öðru slíku,“ svaraði Ge- orge. Þegar hann var spurður hvaða ástæður Casey hefði fyrir því að gefa dóttur sinni lyf, sagði George: „Til að fara út og skemmta sér. Til að geta verið með vinum sínum.“ Sýknuð Casey var sýknuð þrátt fyrir yfir- gnæfandi sönnunargögn. Hjónin opna sig n Foreldrar Casey Anthony í viðtali

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.