Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2011, Síða 54
54 | Fólk 16.–18. september 2011 Helgarblað
Frægir í
„fanzone“
„Fanzone“ er vinsæll liður í
kringum enska boltann á Sky-
sjónvarpsstöðinni þar sem
stuðningsmenn, tveggja liða
sem etja kappi, sitja saman
inni í litlum klefa og öskra
hvor á hinn þegar þeirra lið
skorar. Sportbarinn Úrilla
Górillan hefur tekið þetta upp
og verður frumraunin þreytt
um helgina. Venni Power mun
styðja sína menn í Totten-
ham gegn grínistanum Sveini
Waage sem heldur með Liver-
pool, en liðin mætast í úrvals-
deildinni um helgina. Þá mun
markaðsgúrúinn og frasa-
kóngurinn Jón Gunnar Geirdal
styðja sína menn í Manchester
United gegn Þorsteini Halldóri
og hans mönnum í Chelsea.
Arnar og
Ívar í Vegas
Hraustmennin Arnar Grant
og Ívar Guðmundsson eru
þessa dagana staddir í Vegas
til að fylgjast með keppninni
Mr. Olympia sem einnig er
risastór vörusýning. Kapparn-
ir eru án tökumanna svo ekki
er um framhaldstökur á sjón-
varpsþáttunum Arnar og Ívar
á ferð og flugi enda er óvíst
um framhald þeirra þátta.
Piltarnir eru greinilega ekki
komnir til að djamma og spila
því samkvæmt Facebook voru
þeir komnir á fætur fyrir allar
aldir. Líklega hafa þeir haldið
beint í æfingasalinn á hótelinu
New York New York þar sem
þeir dvelja á þrítugustu hæð.
Mr. Olympia er svakaleg vaxt-
arræktarkeppni en árið 1969
stóð Arnold Schwarzenegger
uppi sem sigurvegarinn.
T
ónlistarmaðurinn
Berndsen upplýsti á
Face book-síðu sinni í
vikunni að poppgoð-
sögnin Herbert Guðmunds-
son hefði leitað til hans varð-
andi það að pródúsera nýtt lag
fyrir Eurovision.
„Herbert Guðmundsson
goðsögn kom í kaffi í dag og
var að spyrja mig hvort ég gæti
pródúserað nýja Eurovision-
lagið hans,“ ritaði Berndsen á
Facebook.
Herberti brá nokkuð í brún
þegar DV bar þetta undir
hann. „Ríkir ekki nafnleynd
yfir höfundum?“ Hann viður-
kenndi þó að Eurovision-þátt-
taka væri eitthvað sem hann
væri að skoða. „Þetta er eitt-
hvað sem ég er að skoða al-
varlega. Ég er svona að skoða
mína möguleika,“ segir Her-
bert og bætir við að hann sé
alltaf að semja lög. „Þau renna
út eins og heitar lummur,
maður. Það hefur aldrei staðið
á mér að semja.“
Aðspurður hvort hann
haldi sig vera með sigurlag í
höndunum svarar Herbert:
„Já, ég held það. Það borgar
sig samt að vera ekki með of
stór orð um það. Ég hef aldrei
tekið þátt í þessu áður.“
Berndsen er ekki eini tón-
listarmaðurinn sem Herbert
hefur leitað til. „Ég er búinn
að tala við fleiri en Berndsen,“
segir Herbert en gefur ekki
upp nein nöfn.
Herbert hefur aldrei áður
tekið þátt í Eurovision en við-
urkennir að þetta sé nokkuð
spennandi.
„Það er gaman að skoða
þetta en maður veit svo aldrei
hvernig fer. Maður verður
bara að bíða og sjá.“
tomas@dv.is
n Herbert Guðmundsson klár með Eurovision-lag og leitar að pródúsent
„Búinn að tala við fleiri en Berndsen“
Ætlar í Eurovision
Herbert Guðmunds-
son er á því að hann sé
með sigurlagið klárt.
mynd SiGtryGGur Ari
V
ið erum búnir að selja
í kringum þrjátíu og
fjögur þúsund dósir af
Silver-gelinu þannig að
það var kominn tími á
að gera eitthvað meira. Þetta er
eiginlega alveg ótrúlegt miðað
við það að við Íslendingar erum
bara um þrjúhundruð þúsund,
við erum komnir yfir tíu pró-
sentin,“ segir markmaðurinn
knái Björgvin Páll Gústavsson
en hann og Logi Geirsson hafa
selt gríðarlegt magn af hárgelinu
Silver.
Velgengni hárgelsins hef-
ur gert það að verkum að þeir
ætla að setja á markað nýja vöru,
sturtusápu fyrir bæði kynin.
„Þetta eru sturtusápur fyrir bæði
karla og konur. Það er svona
ekta karlalykt af karlasápunni
og svo er svona mild vanillu-
og ávaxtalykt af konusápunni,“
segir Björgvin um nýju vörurn-
ar sem eru væntanlegar á mark-
aðinn fljótlega. Þeir ætla þó ekki
að láta staðar numið við sturtu-
sápurnar heldur stefna á frekari
framleiðslu.
„Við viljum byggja upp snyrti-
vörulínu hægt og rólega. Við vilj-
um gera þetta vel og hafa vör-
urnar góðar. Planið er að koma
með nýja vöru kannski á hálfs
árs fresti. Það er fullt af vörum
sem mig langar til að setja á
markaðinn og margar hug-
myndir í gangi.“
Breyting hefur orðið innan
fyrirtækisins en nýlega keypti
Björgvin Páll Loga út úr því. „Ég
er búinn að kaupa hans hlut en
hann er ennþá stjórnarformað-
ur. Ég er nú einn eigandi merk-
isins og það er í raun eini mun-
urinn. Það er eiginlega betra að
einn eigi þetta. Við erum hvor í
sínu landinu og þetta er þægi-
legra upp á öll peningamál að
gera.“
Ný auglýsing Silver-merkis-
ins var frumsýnd í gær og þekkt-
ir menn fara með aðalhlutverk í
henni. „Aron Pálmarsson og Al-
freð Finnbogason eru nýju Sil-
ver-andlitin í auglýsingunni
ásamt Stefáni Sölva sem er að
fara að keppa í sterkasta manni
heims. Svo er eitt óvænt andlit í
enda auglýsingarinnar en það er
enginn annar en Hemmi Gunn.
Það er alltaf klassík að hafa
Hemma. Hann klikkar aldrei,
alltaf svo glaður og kátur,“ segir
Björgvin hlæjandi.
Fleiri leikarar leika minni
hlutverk í auglýsingunni, þar á
meðal grínistinn Nilli. Aðspurð-
ur um hvar konurnar í auglýs-
ingunni séu svarar hann. „Þær
eru reyndar bara í aukahlut-
verki í þessari auglýsingu en við
stefnum á að gera aðra. Ungfrú
Reykjavík leikur aukahlutverk í
þessari ásamt nokkrum öðrum
stelpum.“
Allir leikararnir gáfu vinnu
sína við auglýsinguna. „Þeir
gerðu þetta allir frítt. Aron og
Alfreð komu með þá hugmynd
að láta þann pening sem hefði
annars farið í að borga þeim
laun renna frekar til góðgerð-
armála,“ segir Björgvin, en enn
hefur ekki verið ákveðið hvaða
málefnis eigi að gefa til. „Við
erum að fara að leggjast yfir það
núna. Finna eitthvert gott mál-
efni.“
Björgvin segir þetta vera
í anda þeirra félaga „Það er í
anda okkar fyrirtækis. Við vilj-
um láta gott af okkur leiða og
erum ekki að gera þetta til þess
að verða moldríkir. Við græð-
um meira á reynslunni af því að
reka fyrirtæki heldur en að eign-
ast einhverja peninga.“
Hemmi aug lýsir
sturtugel Silver
n Björgvin Páll Gústavsson og Logi Geirsson setja sturtugel markað n Frægar íþróttahetjur
og Hemmi Gunn í nýju Silver-auglýsingunni n Björgvin keypti Loga út úr fyrirtækinu
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Viðtal
Auglýsingin Margir þekktir leikarar leika í auglýsingunni.
Fyrir konur
og karla
Hér má sjá
sápurnar
sem verða
fáanlegar
fyrir bæði
konur og
karla.
Stefna á frekari
framleiðslu
Silver setur á markað
sturtusápur fyrir bæði
kynin í kjölfar mikillar
velgengni hárgelsins
frá fyrirtækinu. Björg-
vin Páll segist stefna á
frekari framleiðslu.
Sest á
skólabekk
Leikkonan Brynhildur Guð-
jónsdóttir hefur vent kvæði sínu
í kross og er flutt til New Haven
í Bandaríkjunum. Þar sett-
ist hún á skólabekk og nemur
nú leikritun við Yale-háskóla.
Brynhildur er ein vinsælasta
leikkona þjóðarinnar og hlaut
meðal annars Grímuna árið
2008 fyrir túlkun sína á Edith
Piaf. Hún er ekki alveg ókunn
leikritaskrifum því hún skrifaði
meðal annars leikritið Brák sem
hún lék sjálf í og var leikstýrt af
fyrrverandi eiginmanni hennar,
Atla Rafni Sigurðssyni.