Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.10.2015, Side 30

Fréttatíminn - 23.10.2015, Side 30
„Það var samt síðasti sénsinn til þess að vinna sér inn rétt til þess að keppa á Hawaii. Það er þokkalegt að ná þessu á þessum tíma hafandi bara keppt einu sinni áður,“ segir Geir með semingi og það er greini- legt keppnisskap í honum. „Ég var betri í Kaupmannahöfn, en það eru allir þeir bestu að keppa á Hawaii og aðstæður erfiðari. Það var rúmlega 30 gráðu hiti, sem er óvenju heitt, og rakt. Ég hafði undirbúið mig undir það með því að hjóla inni í hita, og í meiri fötum en ég er vanur. Svo var ég töluvert í gufu, en ég held að við litlu mennirnir þolum hita betur en margir aðrir. Margir kvörtuðu yfir hitanum en hann var ekki að trufla mig mikið,“ segir Geir. „Gordon Ramsey var á meðal keppanda, en hann náði ekki að klára,“ segir hann með glotti. 20 tímar á viku í æfingar „Það eru töluvert miklar æfingar fyr- ir svona langa keppni en ég tók þetta á löngum tíma,“ segir Geir. „Lengstu vikurnar var ég að æfa um það bil 20 tíma á viku og meira en helminginn á hjólinu. Annars voru þetta svona 12-20 tímar á viku. Maður verður að taka hvíldir inn á milli því það er auð- velt að ofþjálfa sig í þessum aðstæð- um. Margir halda að þríþraut sé bara þessar löngu vegalengdir, en það eru margar útgáfur af þessu,“ segir Geir. „Það er mjög gaman að taka þátt í mörgum af þessum keppnum og þetta er grein sem margir geta tekið þátt í. Þeir sem hafa verið að hlaupa í maraþoninu eða verið að hjóla eins og er vinsælt, geta fundið keppni sem henta þeim. Við sem erum í þessari hreyfingu hér heima erum alltaf að hvetja fólk til þess að koma og prófa stutta keppni,“ segir hann. „Þetta snýst ekki bara um járnkarl- inn, heldur bara um góða hreyfingu. Það er auðvelt að stýra því hvað maður gerir mikið í hverri keppni.“ Gerði þarfirnar á hjólinu Geir segir að fyrir utan það að vera í góðu formi þá skipti hugarfarið gríðarlega miklu máli þegar kem- ur að því að taka þátt í keppni eins og járnkarlinum. „Ég var ágætlega undirbúinn,“ segir hann. „Ég kom vel undirbúinn frá Danmörku og vissi að ég mundi alltaf klára þetta. Ég dó samt svolítið hlaupinu og það hægðist á mér jafnt og þétt. Ég hugsaði samt aldrei um að stoppa nema til þess að fá mér að drekka og henda á mig klökum til þess að kæla mig. Það kom aldrei hugsunin að hætta. Svona keppni snýst 90% um hausinn á manni. Ég vildi samt helst ekki gefast upp, kominn alla þessa leið með fjölskylduna með mér,“ segir Geir en eiginkona hans, Hrefna Thoroddsen, var með í för ásamt dætrum þeirra tveimur. „Það var ómetanlegt að hafa þær með, og gaman að geta gert ferð úr þessu. Ekki á hverjum degi sem maður fer á þessar slóðir. Algert ævintýri fyrir stelpurnar og okkur. Ég er sterkastur í hlaupinu, þó það hafi ekki gengið sem best hjá mér á Hawaii. Ég hef alltaf verið góður að hlaupa síðan maður var í útihlaupunum með ÍK í Kópavog- inum í gamla daga,“ segir hann. „Auðvitað þarf maður að næra sig á þessum langa tíma og ég tók inn svokallað gel sem inniheldur öll helstu næringarefnin, en maður vill síður vera að stoppa til þess að fara á klósettið og slíkt. Maður þarf bara að gera sitt á hjólinu,“ segir Geir og hlær. „Maður þarf samt að æfa það og það er erfitt,“ segir hann. „Þetta er dellusport eins og annað og það er auðvelt að missa sig í því að kaupa dýrustu og flottustu hjól- in og hjálmana. Það er samt ekkert mál að keppa í þríþraut á fjallahjól- inu sínu og synda bara í venjulegri sundskýlu. Það geta allir tekið þátt,“ segir hann. „Þríþraut hefur verið vinsæl hjá miðaldra skrifstofufólki sem þarf á meiri hreyfingu að halda en yngra fólki er að fjölga í grein- inni sem er jákvæð þróun.“ Alltaf fleiri að taka þátt Geir var ekki eini Íslendingurinn sem keppti en ásamt honum keppti Þurý Guðmundsdóttir í járnkarl- inum á Hawaii. „Hún býr í Banda- ríkjunum og var að keppa í annað sinn,“ segir Geir. „Það var mjög gott að hafa hana innan handar til þess að segja manni ýmislegt um þetta,“ segir hann. „Við tókum æfingar saman og undirbjuggum okkur fyrir þetta. Planið mitt eftir þetta er að keppa hérna heima á næsta ári, sem mér finnst hrika- lega gaman. Það er metnaður hjá þríþrautarfélögunum að fá hingað erlenda keppendur til að keppa. Þetta er viðurkennd grein innan ÍSÍ og það er uppgangur í þessu og með því að fá gott fólk úr sundinu og öðrum greinum til þess að prófa þá er hægt að ná langt í þessu. Ég fékk gríðarlegan stuðning frá sundfélaginu Ægi, sem ég æfi hjá, og vinnustaðnum mínum, Odda, þar sem ég var hvattur vel áfram,“ segir Geir Ómarsson þríþrautar- kappi. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Geir ásamt dætrum sínum tveimur og Þyrí Guðmundsdóttur sem einnig tók þátt í járnkarlinum á Hawaii, við opnunarathöfn keppninnar. 30 viðtal Helgin 23.-25. október 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.