Fréttatíminn - 23.10.2015, Qupperneq 86
Norræn kvikmyndaveisla
Græna ljósið í samstarfi við Nordisk
Film & TV Fond stendur fyrir Norrænni
kvikmyndaveislu í Háskólabíói frá 23.-27.
október. Á hátíðinni verða sýndar allar
fimm myndirnar sem tilnefndar eru í ár til
Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs.
Opnunarmynd hátíðarinnar að þessu sinni
er framlag Svíþjóðar, kvikmyndin Gentle-
men. Í einu aðalhlutverka myndarinnar
er Íslendingurinn Sverrir Guðnason, sem
meðal annars lék í verðlaunamyndinni
Monica Z. Myndin fjallar um Klas Öster-
gren, sem er ungur rithöfundur á skjön
við umheiminn. Úr öruggu skjóli íbúðar
sinnar í Stokkhólmi segir hann sögu fyrrum
sambýlinga sinna. Aðrar myndir eru Stille
hjerte frá Danmörku, Mot naturen frá
Noregi, Þau hafa flúið, sem kemur frá Finn-
landi og hin íslenska mynd Dags Kára, Fúsi.
Miðasala er á eMiði.is
Unnsteinn allsstaðar
Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manúel mun
fá næga athygli í vetur. Í næstu viku byrjar
þátturinn Hæpið aftur á dagskrá RÚV, þar
sem Unnsteinn er þáttastjórnandi ásamt
Katrínu Ásmundsdóttur. Það hefur ekki
farið fram hjá neinum að hann er
einn þjálfara í þáttunum Voice á Skjá
1. Hann leikur svo eitt hlutverk-
anna í spennuþáttunum Réttur
sem nýhafnir eru á Stöð 2 svo
hann er áberandi í dagskrá
allra stóru stöðvanna í vetur.
Það er spurning hvort
ÍNN, N4 og Hringbraut
bregðist ekki við
Unnsteinsleysi í sinni
dagskrá?
Ég hefði sætt mig
meira við að vera
kallaður „maður“
segir hann og hlær.
„Ég ímynda mér
alltaf bara einhvern
í kringum sjötugt
þegar ég heyri
einhvern tala um
„kall.“
Sjónvarp Sigurður Þór óSkarSSon vekur athygli í rétti
Ekki verið kallaður
„kall“ áður
Leikarinn Sigurður Þór
Óskarsson leikur eitt hlut-
verkanna í sjónvarpsþættinum
Réttur, sem frumsýndur var
á Stöð 2 um síðustu helgi.
Í þáttunum leikur Sigurður
ungan mann sem vinnur í fé-
lagsmiðstöð og er flæktur inn
í vafasaman hring atburða-
rásar þáttanna. Sigurður Þór,
eða Siggi Þór eins og hann er
kallaður, er vanur því að leika
unga menn enda er útlitið
unglegt, enda er hann ekki
nema 27 ára gamall. Hann
leikur einnig í sýningunni um
Hróa hött í Þjóðleikhúsinu þar
sem hann fær að vera vondi
karlinn.
D aginn eftir frumsýningunni á Rétti birtist færsla á Fa-cebook-síðunni „Beauty-
Tips“ þar sem spurt var „Hvað á
þessi kall að vera gamall?“ og mynd
af Sigga, Sigurði Þór Óskarssyni, í
hlutverki sínu fylgdi með. Siggi seg-
ist ekki vera viss hvernig hann eigi
að taka því að vera kallaður „kall“
aðeins 27 ára gamall. „Ég er ekki
vanur því að vera kallaður „kall“,“
segir Siggi. „Það er samt mjög al-
gengt að ég sé látinn leika niður
fyrir mig í aldri,“ segir hann. „Mér
finnst það bara fínt. Ég veit að ég er
unglegur og það er bara flott, en ég
vil ekki festast í því samt. Ég græði
samt á því verandi tiltölulega ný-
kominn úr skóla og slíkt. Það þarf
oft einhvern unglegan. En svo vill
maður líka fá að leika sinn eigin
aldur,“ segir Siggi.
„Í Hróa fæ ég að leika vonda karl-
inn sem er gjörspilltur og siðlaus
náungi, sem er önnur áskorun. Fyr-
irmyndin af honum er kannski King
Geoffrey í Game Of Thrones sem
er svona ungur, dekraður drengur
sem fær allt upp í hendurnar. “Hlut-
verkið mitt í Rétti er ungur strákur
sem vinnur í félagsmiðstöð og án
þess að gefa neitt upp er viðriðin
ýmislegt grunsamlegt“ segir Siggi.
„Í undirbúningnum las ég ýmis
dómsmál um svipuð málefni og tal-
aði við fólk sem vinnur í félagsmið-
stöðvum til að fá smjörþefinn af því
hvernig stemningin í þeim er í dag.
Svo skoðaði ég líka góða í þessum
karakter,“ segir hann. „Ég leitaði
að því góða í honum því ég held að
hann átti sig sjálfur ekkert á afleið-
ingum gjörða sinna. Hann er algjör-
lega blindur á það hvað er siðferðis-
lega rétt og rangt,“ segir Siggi.
Umræðan um aldur Sigga á sam-
félagsmiðlum fór þó ekki mikið fyr-
Ég græði á því verandi tiltölulega nýkominn úr skóla og slíkt. Það þarf oft einhvern
unglegan. En svo vill maður líka fá að leika sinn eigin aldur,“ segir Sigurður Þór
Óskarsson leikari. Mynd/Hari
Nonni og Manni í
Hamborg
Söngvarinn Garðar Thor Cortes leikur um
þessar mundir aðalhlutverkið í uppfærslu
óperunnar í Hamborg á Óperudraugnum
eftir Andrew Lloyd Webber. Vinur hans,
leikarinn Einar Örn Einarsson, kom til að
sjá Garðar í hlutverki sínu á dögunum, en
Einar lék Manna í sjónvarpsþáttaröðinni
um Nonna og Manna sem sýnd var á
níunda áratugnum í íslensku sjónvarpi,
þar sem Garðar lék Nonna og skaust eftir-
minnilega fram á sjónarsviðið og hefur
ekki horfið af því síðan.
Áramótaskaup í smíðum
Áramótaskaup Sjónvarpsins er í undir-
búningi og handritsteymið er að leggja
lokahönd á handritið. Þó auðvitað sé
eitthvað eftir af árinu og enn eigi sitthvað
skemmtilegt eftir að gerast þá er beina-
grindin víst komin. Í handritsteyminu eru
þau Gói, Steindi, Katla María Þorgeirsdóttir
og Atli Fannar, ritstjóri Nútímans, ásamt
Kristófer sjálfum.
MÓÐURÁST
Allt fyrir barn og móður.
Laugavegi 178
www.modurast.is
s - 564 14 51
uppiStanD ÞórDíS naDia á reykjavík ComeDy FeStival
Er oft misskilin
u ppistandshátíðin Reykjavík Comedy Festival fer fram um helgina í Hörpu, Há-
skólabíói og í Þjóðleikhúskjallar-
anum. Margir uppistandarar, inn-
lendir sem erlendir, koma fram á
hátíðinni sem haldin er í annað sinn.
Á laugardaginn, klukkan 22.30,
koma fram þeir Ben Kronberg og
Dagfinn Lyngbo og mun Þórdís
Nadia Semichat hita upp fyrir þá.
Þórdís Nadia hefur verið mjög ið-
inn við uppistand að undanförnu og
hlakkar mikið til kvöldsins.
„Ég er mjög spennt,“ segir hún.
„Ég byrjaði í uppistandi árið 2010
og var í því í svona 2 ár og hætti í
einhver þrjú ár og byrjaði svo aft-
ur í byrjun þess árs,“ segir Nadia.
„Ég hætti því ég var að byrja á
sviðshöfundabrautinni í Listahá-
skólanum og fannst ég þurfa að
taka mig alvarlega sem listamann.
Svo eftir útskrift þá fattaði ég að
þetta væri listform sem hentaði
mér mjög vel,“ segir hún. „Ég tala
um rasisma og fordóma í mínu
uppistandi. Bæði mína eigin og
annarra. Steríótýpur og hvað ég
get verið misskilinn manneskja.
Fólk bæði misskilur mig og ég
misskil aðstæður líka oft,“ segir
hún.
„Ég hlakka mikið til að hita upp
fyrir Ben Kronberg, sem er í upp-
áhaldi hjá mér, og líka Dylan Moran
sem er líka í uppáhaldi hjá mér. Ég
ætla að reyna að sjá allt og kannski
kemur einhver nýr sem maður hef-
ur aldrei heyrt í áður. Dagskráin er
mjög fjölbreytt,“ segir Nadia sem
hefur verið iðinn við uppistandið og
nóg er fram undan hjá henni. „Við
höfum nokkur verið með mánaðar-
legt uppistand á Húrra að undan-
förnu sem við höldum áfram, og
svo er ég líka skemmta fyrir hina
og þessa,“ segir Þórdís Nadia Se-
michat uppistandari.
-hf
ir brjóstið á honum, þó honum hafi brugð-
ið við að vera kallaður „kall“. „Ég hefði
sætt mig meira við að vera kallaður „mað-
ur,“ “segir hann og hlær. „Ég ímynda mér
alltaf bara einhvern í kringum sjötugt
þegar ég heyri einhvern tala um „kall.“ Í
rauninni var þetta samt bara ágætt því þá
er ekkert geirneglt hvað hann á að vera
gamall í þáttunum. Enda skiptir það litlu
máli,“ segir Siggi sem heldur áfram að
leika unga menn eftir áramót.
„Ég er að fara að leika í spennuverk-
inu Hleyptu þeim rétta inn, þar sem ég
leik 12 ára strák,“ segir hann. „Þetta er
hrikalega spennandi verk og handritið
er æðislegt og ég er mjög spenntur að
byrja á því. Þetta er í rauninni stærsta
hlutverkið sem ég hef fengið í leikhús-
unum og um leið það mest krefjandi, sem
er bæði stressandi og spennandi,“ segir
Sigurður Þór Óskarsson leikari.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
86 dægurmál Helgin 23.-25. október 2015