Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Page 2
2 Fréttir 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
Hræringar í Heklu
n Lítill fyrirvari á síðasta gosi fyrir 13 árum
H
ekla gaus með litlum fyrirvara
síðast,“ segir Martin Hensch,
jarðskjálftafræðingur hjá Veð-
urstofu Íslands. Síðastliðnar
tvær vikur hefur verið lítil skjálftahrina
í norðausturhlið Heklu á um ellefu
kílómetra dýpi. Skjálftarnir hafa alls
verið sjö talsins og allir undir einum
á Richter-skalanum að sögn Martins.
„Þetta er fremur óvenjulegt fyrir virkn-
ina í Heklu,“ segir hann í samtali við
DV en í öðrum eldfjöllum mælast slík-
ar skjálftahrinur fremur oft.
Það var á þriðjudagsmorgun sem
lýst var yfir óvissustigi almannavarna
vegna jarðhræringa í Heklu. Veður-
stofan hafði upplýst almannavarna-
deild Ríkislögreglustjóra um óvenju-
legar jarðhræringar í fjallinu en
samhliða þessu var eftirlitsstig Heklu
hækkað í gult vegna flugumferðar
sem þýðir að Hekla sýni óvenjulega
virkni.
Enga kvikuhreyfingu er að sjá
enn sem komið er í Heklu að sögn
Martins en það gæti þýtt að það sé
þrýstingur á kvikukerfið. „Við höfum
ekki miklar áhyggjur af því að þetta
gerist á næstunni, það er hins vegar
ekki hægt að spá nákvæmlega fyr-
ir um hvenær Hekla gýs. Síðast var
vitað með eins klukkutíma fyrirvara
að Hekla myndi gjósa,“ segir Martin.
Lögregluyfirvöld vara fólk við ferð-
um að Heklu á meðan óvissustig er
í gildi.
Síðast gaus í Heklu þann 26. febr-
úar árið 2000, en það gos var stutt
en kraftmikið. Það varði í tólf daga
og fimmtán kílómetra langan mökk
lagði frá eldstöðinni. n birgir@dv.is
Presturinn
vill ekki flytja
n Fresta sameiningu í Hrísey og á Möðruvöllum n Vilja velja sér prest
H
ætt var við sameiningu
tveggja prestakalla á
Norðurlandi tímabund-
ið meðal annars vegna
þess að sóknarprestur-
inn í öðru prestakallinu vildi ekki
flytja. Á síðasta kirkjuþingi var
ákveðið að draga sameininguna til
baka en hún hafði verið samþykkt
á fyrra kirkjuþingi og átti að taka
gildi um leið og annar presturinn í
þessum tveimur prestaköllum léti
af störfum. Það gerðist svo 1. sept-
ember síðastliðinn að presturinn í
Möðruvallasókn var valinn vígslu-
biskup á Hólum og þar með átti
presturinn í Hrísey að taka við.
Ákveðið hafði verið að presturinn
í nýsameinaðri sókn ætti að vera
búsettur að Möðruvöllum en ekki
í Hrísey.
Bíða eftir prestinum í Hrísey
Í tillögu sem samþykkt var á kirkju-
þingi í fyrra segir að þrátt fyrir ítrek-
aðar óskir sóknarnefndar hafi ekki
fengist svör við því hvort og þá
hvenær sóknarpresturinn í þessu
nýja og sameinaða prestakalli flytji
aðsetur sitt og lögheimili að prests-
setrinu á Möðruvöllum. „Vegna
þessa telja flutningsmenn rétt að
hverfa aftur til fyrra horfs hvað varð-
ar prestakallaskipan á svæðinu,“ seg-
ir í athugasemdum sem fylgdu til-
lögunni. Flutningurinn hefur lengi
legið fyrir þar sem í tillögunni að
sameiningu prestakallana tveggja
kemur skýrt fram að bústaður prests-
ins yrði á Möðruvöllum. Tillagan var
samþykkt á kirkjuþingi árið 2009, eða
fyrir fjórum árum.
„Það er í sjálfu sér frumorsök-
in,“ segir Stefán Magnússon, fram-
sögumaður tillögunnar um að
fresta sameiningunni á kirkju-
þingi, aðspurður hvort það hafi
verið helsta ástæða frestunarinnar
að presturinn vildi ekki flytja. „Það
var áskilið í ákvörðun kirkjuþings
árið 2009 um þessa sameiningu að
presturinn skyldi sitja að Möðru-
völlum og síðan segir í lögum um
þetta að prestur skuli hafa aðsetur
þar sem prestsetur er og eðli máls-
ins samkvæmt vildum við bara að
það gengi eftir.“
Vilja fá að velja sér prest
Þetta er þó ekki eina ástæðan sem
gefin er í athugasemdunum sem
fylgdu tillögunni um að draga sam-
eininguna að hluta til baka. Þar
segir að flutningsmenn tillögunn-
ar meti það svo að ekki sé rétt „að
svipta sóknarbörn við sameiningu
prestakalla rétti sínum til að velja
sér sóknarprest“, eins og það er orð-
að í athugasemdunum.
Stefán segir það vissulega vera
vilja sóknarbarna að fá að velja
sér prest þó að það sé ekki aðal-
ástæðan fyrir tillögunni. Hann seg-
ir það sérstakt að presturinn í Hrís-
ey getið stöðvað sameininguna
með því að vilja ekki hlíta ákvörðun
kirkjuþings. „Jú, það er dálítið sér-
stakt. Hlýtur að teljast það. En það
var ekki af okkar hálfu möguleiki
til að leysa þetta öðruvísi. Við höf-
um ekkert yfir þessu máli að segja
annað en að geta lagt fram ályktun
á kirkjuþingi,“ segir hann.
Samkvæmt nýju tillögunni er nú
fyrirhugað að sameiningin taki gildi
eftir að presturinn í Hrísey lætur af
störfum en óljóst er hvenær það
verður. n
Verður áfram Presturinn í Hrísey
verður áfram með aðsetur í eynni
þar sem sameiningu prestakallanna
hefur verið frestað þangað til hann
lætur af störfum. MYND SIGTRYGGUR ARI
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Davíð Örn
laus úr
farbanni
Davíð Örn Bjarnason er laus úr
farbanni. Dómari ákvað að leysa
Davíð úr farbanni í Tyrklandi í gær
en gerði honum að snúa aftur til
Tyrklands til að vera viðstaddur
uppkvaðningu dómsins.
Fyrir tæpum þremur vikum
var Davíð handtekinn í Tyrklandi
þar sem hann var sakaður um að
hafa ætlað að smygla fornminj-
um frá Tyrklandi en Davíð hafði
keypt marmarastein á götumark-
aði í Tyrklandi og reyndist steinn-
inn vera fornmunur. Ræðismað-
ur Íslands í Tyrklandi hefur meðal
annars beitt sér í málinu. Davíð
gæti fengið allt frá þriggja til tíu
ára fangelsisdóms.
Ríkið sýknað af
kröfu Matthíasar
Íslenska ríkið hefur verið sýkn-
að af skaðabótakröfu Matthíasar
Ólafssonar, sem sagði að ríkis-
saksóknari hefði brotið lögreglu-
lög við rannsókn á meintu auðg-
unarbroti hans. Matthías var
handtekinn grunaður um aðild að
Virðingarmálinu svokallaða sem
kom upp árið 2008 en málið leiddi
ekki til ákæru.
Húsleit var framkvæmd og
Matthías úrskurðaður í gæslu-
varðhald vegna rannsóknar á
málinu sem dróst mjög á langinn
án nokkurrar niðurstöðu. Í fyrra
var tilkynnt að rannsókn málsins
hefði verið hætt.
Matthías kvaðst hafa orðið fyrir
„stórfelldum miska og álitshnekki
vegna lögreglurannsóknarinnar“
og krafðist vegna þessa 37 millj-
óna króna skaðabóta. Dómurinn
sýknaði ríkið og taldi að rökstudd-
ur grunur hafi verið um brot hjá
ríkissaksóknara.
Minnir á sig Hekla gaus síðast þann 26. febrúar árið 2000. Lítill fyrirvari var á því gosi sem
var stutt en kraftmikið. MYND: SIGTRYGGUR ARI
Útgáfa DV
DV kemur næst út miðviku-
daginn 3. apríl eftir páska. Áskri-
fendum og lesendum er bent á
að áfram verður fréttaþjónusta á
vef blaðsins, DV.is, alla páskana.