Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Blaðsíða 10
10 Fréttir 27. mars-2. apríl 2013 Páskablað
Sýknaður af
hótun
Hæstiréttur Íslands sýknaði á
þriðjudag karlmann sem ákærð-
ur var fyrir að hóta öðrum karl-
manni. Sneri þannig Hæstiréttur
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem
hafði áður dæmt manninn í tveggja
mánaða fangelsi. Hótunin sem
maðurinn var ákærður fyrir sendi
hann öðrum manni í sms-skila-
boðum og þau voru svohljóðandi:
„Ertu búin að nauðga einhverri
13 ára nýlega gerpið thitt? Mundu
bara að thú sleppur aldrei undan
skuldinni. Thað er bedid eftir thér
I steininum ef ég næ thér ekki ádur
barnaperrinn thinn.“
Í dómi Hæstaréttar kemur fram
að samkvæmt ákvæðinu „væri hót-
un því aðeins refsiverð að ljóst væri,
hlutlægt séð, að sá sem hana hefði
í frammi hótaði því að gripið yrði
til verknaðar sem myndi hafa jafn
alvarlegar afleiðingar í för með sér
og þar væru greindar. Ummælin
í skeytinu hafi verið ósæmileg og
yrðu ekki réttlætt. Þegar efni þess
væri virt í heild sinni yrði hins vegar
ekki talið að í því hafi falist hótun
sem lýst væri refsiverð […]“ Með til-
liti til þessa taldi Hæstiréttur sms-
skilaboðin ekki geta talist hótun
og sýknaði þar af leiðandi mann-
inn af ákærunni. Málskostnaður
greiðist úr ríkissjóði, þar með talin
málsvarnarlaun skipaðs verjanda
ákærða á báðum dómstigum.
Sinubruni
trekkti að
Talsvert mikill eldur og reykur kom
frá sinubruna sem logaði glatt við
Norræna húsið á þriðjudagskvöld.
Eldurinn var þó á takmörkuðu
svæði, en vegfarandi sagði eldinn
vera umtalsverðan og að reykjar-
lykt mætti finna víða í Vesturbæn-
um. Dælubíll slökkviliðsins kom
til að slökkva eldinn, en fólk hafði
hópast að svæðinu og var að taka
myndir. Þá var einnig sinubruni
við Nesstofu og því ekki að furða að
reykjarlykt mætti finna í nærliggj-
andi hverfum. Í samtali við DV
sagði slökkviliðsmaður að mikill er-
ill hafi verið hjá slökkviliðinu á höf-
uðborgarsvæðinu þetta kvöld. Fyrir
utan sinubrunana þurfti að dæla
upp úr bát í Reykjavíkurhöfn og all-
ir sjúkrabílar voru í útköllum um
kvöldmatarleytið.
Á
miðvikudaginn í síðustu viku
var tilkynnt að félagið Fáfnir
Offshore ehf. hefði samið um
smíði dýrasta skips íslenska
flotans. Skipið fær nafnið Fáfn-
ir Offshore og er fyrsta íslenska skip-
ið sem er ætlað til þjónustu vegna
olíuleitar. Það er sérhannað fyrir haf-
ís og verður afhent í júlí á næsta ári.
Það mun kosta 330 milljónir norskra
króna, eða 7,3 milljarða íslenskra
króna.
Aðaleigandi Fáfnis Offshore er
Steingrímur Bjarni Erlingsson, sem
áður rak umfangsmikla útgerð í
Kanada. Skipið er hannað og byggt af
Havyard Technologies sem er í Fosn-
avåg, en á því svæði er miðstöð fyrir-
tækja sem byggja skip til að þjónusta
olíuiðnaðinn. Össur Skarphéðins-
son, utanríkisráðherra var viðstaddur
opin fund í Fosnavåg í Noregi þar sem
hann tilkynnti um samning um smíði
skipsins.
Seldi útgerð í Kanada
Samkvæmt heimildum DV seldi
Steingrímur hlut sinn í útgerðarfyrir-
tækinu Bjarnari árið 2011. Mun hann
hafa innleyst nokkur hundruð millj-
óna króna hagnað í þeim viðskiptum.
Bjarnar kemur að rekstri í sjávarút-
vegi í Kanada en helsti viðskiptafélagi
Steingríms var Finnur Björn Harðar-
son sem nú fer með 81 prósents hlut í
Bjarnari. Steingrímur fór með 46 pró-
senta hlut í fyrirtækinu áður en hann
seldi. Bjarnar á fyrirtækið Nataaqnaq
Fisheries Inc. sem skráð er í Kanada.
Höfuðstöðvar Nataaqnaq Fisheries
eru í St. Johns á Nýfundnalandi. Ger-
ir fyrirtækið út þrjá frystitogara sem
veiða við strendur Kanada og einnig í
lögsögu Grænlands. Þannig má segja
að Steingrímur sé í svipaðri stöðu og
Skúli Mogensen fjárfestir sem kom
með mikið af fjármunum til Íslands
eftir að hafa selt tölvufyrirtækið OZ til
finnska símarisans Nokia.
Steingrímur sótti nýlega um leyfi
til uppsetningar á tveimur 52 metra
háum vindmyllum á iðnaðarsvæði
nærri kartöfluverksmiðunni í Þykkva-
bæ í Rangárþingi ytra. Er það félgið
Biokraft ehf. sem Steingrímur fer fyr-
ir og eru vindmyllurnar hugsaðar til
orkuframleiðslu fyrir umhverfið auk
þess sem þeim er ætlað að vera vett-
vangur fyrir rannsóknir og þróun en
þetta kemur fram í umsókn Biokraft
til skipulagsnefndar Rangárþings
ytra.
Hefur enga reynslu af olíuiðnaði
Þeir sem DV ræddi við telja líklegt að
Steingrímur hafi fengið vilyrði fyrir
láni til að fjármagna um 70 prósent
af kaupunum á olíuþjónustuskip-
inu Fáfni Offshore í Noregi. Slíkt sé
oft hægt að fá þar sem norski skipa-
iðnaðurinn hafi átt erfitt uppdrátt-
ar í mörg ár. Að því gefnu má ætla
að Steingrímur hafi hins vegar þurft
að afla um 30 prósenta af kaup-
verði skipsins, sem hljóðaði upp á
7,3 milljarða íslenskra króna, annars
staðar frá eða rúmlega tvo millj-
arða króna. Þó hann hafi hagnast
um nokkur hundruð milljónir króna
á sölu 46 prósenta hluts í félaginu
Bjarnari árið 2011 hafi sá hagnað-
ur þó verið langt frá tveimur millj-
örðum króna. Ekki liggur ljóst fyr-
ir hvernig Steingrímur ætlar sér að
fjármagna kaupin á Fáfni Offshore.
Þess skal getið að hann vildi ekki
veita DV viðtal um kaupin þegar
blaðið leitaði eftir því.
Viðmælandi sem DV ræddi við
segir að olíuþjónustugeirinn sem
Fáfnir Offshore ætli sér í sé nokkuð
erfiður. Rekstur olíuþjónustuskipa
sé nokkuð líkur flugvélarekstri sem
löngum hefur þótt nokkuð áhættu-
samur. Þrátt fyrir langa reynslu af
rekstri í sjávarútvegi hefur Stein-
grímur ekki áður komið nálægt olíu-
geiranum. Kaup á nýsmíðuðu skipi
frá Noregi upp á 7,3 milljarða króna
gæti því reynst erfitt fyrir nýliða í
greininni. Talið er að Steingrímur
hefði getað keypt mun ódýrara not-
að skip í stað þess að láta smíða Fáfni
Offshore í Noregi.
Utanríkisráðherra bjartsýnn
Skipið á að vera tilbúið sumarið
2014 eins og áður kom fram. „Það
er hreint ótrúleg útgerð í kringum
tilraunaboranir einar og sér, áður
en kemur að sjálfri olíuvinnslunni,
og hún mun bæði skapa störf fyr-
ir Íslendinga og auka veltu í sam-
félaginu, ekki síst á Norður- og
Austurlandi, þar sem miðstöð þjón-
ustunnar verður. Þetta er upphaf
starfsemi sem verður landsmönnum
uppspretta verulegra tekna í náinni
framtíð miðað við það að menn hafa
áætlað að fyrsti borpallurinn vegna
tilraunaborana kunni að vera kom-
inn í vinnu upp úr 2017,“ segir Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Kaup Steingríms Bjarna Erlingsson-
ar á skipinu Fáfni Offshore virðist
vera fyrsti stóri hlutinn í olíuævin-
týrinu í kringum Drekasvæðið sem
margir binda nú miklar vonir við.
Hvernig það mun ganga verður tím-
inn hins vegar að leiða í ljós. n
Hagnaðist á sölu
útgerðar í Kanada
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar annas@dv.is
n Kaupir 7,3 milljarða olíuþjónustuskip n Óreyndur í olíugeiranum
Dýrasta skip flotans Hér má sjá Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ásamt
Steingrími Bjarna við undirritun á samningi um smíði olíuþjónustuskips í Fosnavåg í Noregi á
síðasta miðvikudag.
Hagnaðist á útgerð í Kanada Hér má
sjá frystitogarann Inuksuk I sem er í eigu
kanadíska útgerðarfyrirtækisins Nataaquaq
Fisheries en það er í eigu íslenska félagsins
Bjarnar.
Fyrsta olíuþjónustuskipið Svona mun Fáfnir Offshore, fyrsta íslenska olíuþjónustu-
skipið, líta út. Það verður smíðað af norsku skipasmíðastöðinni Havyard Technologies í
Fosnavåg og á að verða tilbúið sumarið 2014.