Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Page 19
ÍBÚAR Á REYKJANESI
Í VERSTU MÁLUNUM
Fréttir 19Páskablað 27. mars-2. apríl 2013
Hrossi misþyrmt
n Hrottaleg árás á íslenskt hross í Skotlandi
Í
slenskur hestur fannst illa lim-
lestur á hestabúgarði í Edinborg
í Skotlandi síðastliðinn fimmtu-
dag. Hesturinn gengur undir nafn-
inu Hrafn og er 23 vetra. Hann fannst
afar illa útleikinn á Swanston-hesta-
búgarðinum en búið var að skera
getnaðarlim hans svo hann hékk á
þvagrásinni einni saman að því er
BBC greindi frá.
Þurfti hrossið að undirgangast
bráðaskurðaðgerð til að láta fjar-
lægja liminn.
John Toule, eftirlitsmaður á
dýra verndarsamtökunum SPCA í
Skotlandi, sagði að notast hefði verið
við beitt áhald til að fjarlægja liminn,
líkt og dýralæknir hefði lagt til.
„Eigandinn fann Hrafn síðast-
liðinn fimmtudagsmorgun,“ seg-
ir Toule. „Hún hafði litið á hann
kvöldið áður og því er gengið út frá
því að árásin hafi átt sér stað seinna
um kvöldið eða aðfaranótt fimmtu-
dags.“
Toule sagði Hrafn hafa misst mik-
ið af blóði og að hann sé afar veik-
burða. „Það er erfitt að átta sig á því
hvers vegna einhver geri varnarlausu
dýri þetta,“ sagði Toule við BBC.
„Þetta var heigulslegur og
grimmi legur verknaður,“ sagði eig-
andi Hrafns við BBC. n
n Íbúar í Sandgerði og í Vogum eru langskuldsettastir n Íbúar í Garðabæ og á Seltjarnarnesi í betri málum
Misþyrmt Hesturinn Hrafn varð fyrir viður-
styggilegri árás í Edinborg. SKJÁSKOT AF VEF BBC
„Þetta eru sláandi tölur
og segja því miður ekki
alla söguna því þegar
meðaltal íbúðaskulda
á móti eignum er svona
hátt er alveg ljóst að
skuldir hjá mörgum
eru komnar langt yfir
fasteignaverðmæti.
Hjá þessum hópi ríkir
sannarlega neyðará-
stand og er það sorgleg
staðreynd að allt of stór
hluti þeirra hefur nú
þegar misst húsnæði sitt
sé miðað við tölur um
fjölda nauðungarsala á
svæðinu,“ segir Ragn-
heiður Elín Árnadóttir,
þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins í Suður-
kjördæmi, í samtali við DV um hátt hlutfall
fasteignaskulda hjá íbúum í Sandgerði og í
Sveitarfélaginu Vogum.
Hún bendir einnig á að greiðslugeta fólks
komi ekki fram í þessum tölum. Á Reykjanesi
sé mjög hátt atvinnuleysi og því stefni
margir í gjaldþrot ef ekkert verði gert. Lélegt
atvinnuástand komi einnig niður á fast-
eignaverði. Ragnheiður telur nauðsynlegt
að fara í aðgerðir gagnvart yfirskuldsettum
heimilum alls staðar á landinu. Hvergi sé
þörfin þó meiri en á Reykjanesi. „Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur sett fram raunhæfar leiðir
til þess að ráðast að rót vandans og munu
þær aðgerðir leiða til 20 prósenta lækkunar
á höfuðstól húsnæðislána á kjörtímabilinu.
Þetta eru aðgerðir sem hægt er að fara í
strax og þarf ekki að skipa fleiri nefndir og
starfshópa til þess að hefjast handa. Einnig
má nefna svokallað lyklafrumvarp sem gerir
yfirskuldsettum fjölskyldum tækifæri til
þess að skila lyklunum til bankans án þess
að til gjaldþrots þurfi að koma,“ segir hún.
Mjög margir íbúar hafa flúið land
Í síðustu viku héldu Hagsmunasamtök
heimilanna borgarafund í Stapanum í
Reykjanesbæ. Árni Sigfússon, bæjarstjóri
í Reykjanesbæ, segir að á fundinum hafi
hann kynnt fólki að á svæðinu væru um 20
prósent íbúa atvinnulaus. Fólk hafi þurft
að flýja land, vera á atvinnuleysisbótum og
þeir sem ekki nutu atvinnuleysisbóta segja
sig á bæinn. Samkvæmt tölum frá Hagstofu
Íslands fluttu 1.800 manns frá Reykjanes-
bæ til útlanda á árunum 2009 til 2013 og
segir Árni það ansi hátt hlutfall í 14 þúsund
manna sveitarfélagi. Þeim sem hafi fengið
fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins hafi fjölgað
um 60 prósent frá 2009 og níu prósent af
heimilum íbúa í Reykjanesbæ hafi verið sett
á nauðungaruppboð.
„Þessi hópur missti allt sitt í bankahruninu.
Þessi hópur bíður lausna á húsnæðislánum
sínum, sem hafa snarhækkað um leið og
markaðsverð eigna hefur lækkað. Þau leita
ekki síður lausna á atvinnumálum sínum.
Þannig eru þeim allar bjargir bannaðar því
þau hafa ekki atvinnu og þeir sem hafa
atvinnu standa vart undir greiðslu veðskuld-
anna,“ segir Árni. Margir stjórnmálaflokkar
lofi lausnum vegna komandi alþingiskosn-
inga en hann áréttar að íbúar á Reykjanesi
vilji sjá lausnir sem fyrst ekki bara tillögur. n
Ragnheiður Elín Árnadóttir
og Árni Sigfússon:
Skelfilegt
ástand á
Reykjanesi
RANNSAKA HREIÐAR
FYRIR INNHERJASVIK
n Hagnaðist á stórfelldri markaðsmisnotkun sem hann skipulagði
Græddi nærri 325 milljónir Hreiðar
Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, seldi
hlutabréf í Kaupþingi inn í eigið einkahlutafé-
lag í ágúst 2008 og græddi nærri 325 milljónir.
Málið er til rannsóknar sem innherjasvik.
MYND SIGTRYGGUR ARI
E
ftirlitsaðilar hafa rann-
sakað viðskipti Hreiðars
Más Sigurðssonar, fyrrver-
andi forstjóra Kaupþings,
með hlutabréf í Kaupþingi í
ágúst 2008 sem innherjasvik. Þetta
herma heimildir DV. Greint er frá
þessum viðskiptum Hreiðars Más
í ákæru sérstaks saksóknara gegn
honum og nokkrum öðrum fyrrver-
andi starfsmönnum Kaupþings sem
gerð hefur verið opinber. Ákæran er
vegna markaðsmisnotkunar. Málið
hefur bæði verið til rannsóknar hjá
Fjármálaeftirlitinu og embætti sér-
staks saksóknara.
Embætti sérstaks saksóknara
hefur nú þegar gefið út tvær ákær-
ur í innherjasvikamálum og hafa
ákærðu verið sakfelldir í báðum til-
fellum. Þetta eru þeir Baldur Guð-
laugsson, sem seldi hlutabréf í
Landsbankanum í aðdraganda
banka hrunsins, og Friðfinnur Ragn-
ar Sigurðsson, fyrrverandi starfs-
maður Glitnis, sem seldi bréf sín í
bankanum árið 2008.
Hagnaðist um nærri 325 milljónir
Í ákæru sérstaks saksóknara gegn
Hreiðari Má segir að hann hafi
nýtt sér kauprétti í bankanum
þann 6. ágúst 2008, tæpum tveim-
ur mánuðum fyrir bankahrunið.
Þá keypti Hreiðar Már 812 þúsund
hluti bankanum á genginu 303 eða
fyrir nærri 250 milljónir króna. Um
leið og Hreiðar Már hafði nýtt sér
kaupréttinn seldi hann hlutabréf-
in inn í eignarhaldsfélag sitt, Hreið-
ar Már Sigurðsson ehf., á genginu
704 og var kaupverðið því meira en
570 milljónir króna. Kaupþing lán-
aði eignarhaldsfélagi Hreiðars fyr-
ir kaupverðinu og hagnaðist hann
persónulega um nærri 325 millj-
ónir króna. „Hagnaður Hreiðars af
viðskiptunum var alls 324.873.892,“
segir í ákærunni.
Hreiðar Már seldi því eigin
hlutabréf í Kaupþingi, sem hann
var nýbúinn að kaupa á gengi bréf-
anna eins og það var árið 2004, til
eigin eignarhaldsfélags, með láni
frá bankanum sem hann stýrði
sjálfur, og hagnaðist persónulega
um meira en 300 milljónir fyrir vik-
ið. Þetta gerði Hreiðar Már rúmum
tveimur mánuðum áður en Kaup-
þing banki var yfirtekinn af Fjár-
málaeftirlitinu.
Héldu uppi verðinu
á hlutabréfunum
Í ákærunni gegn Hreiðari Má og fyrr-
verandi samstarfsmönnum hans
er rakið hvernig hlutabréfaverðinu
í Kaupþingi var haldið uppi með
viðskiptum deildar eigin viðskipta
Kaupþings með bréfin í bankan-
um. Um þetta segir meðal annars
í ákærunni: „Um samfellda mark-
aðsmisnotkun var að ræða á öllu
tímabilinu þar sem háttsemi ákærðu
miðaði allan tímann að því að halda
verði hlutabréfa í bankanum stöð-
ugu eða draga úr verðlækkun með
því að halda inni stórum kauptilboð-
um og kaupa hlutabréf í bankanum
sem voru umfram eftirspurn.“
Þá er einnig rakið hvernig um-
fangsmikil viðskipti Kaupþings með
eigin hlutabréf voru til þess gerð
að reyna að halda uppi hlutabréfa-
verðinu í bankanum. Í ákærunni
er rakið hvaða félög það voru sem
keyptu hlutabréfin með þessum
hætti að því er talið er, meðal annars
Gift, Desulo Trading, Holt Invest-
ment Group og Q Iceland Finance. Í
þessum viðskiptum var um að ræða
hlutabréf sem deild eigin viðskipta
hafði keypt og þurfti að losa sig við
en um þetta segir meðal annars í
ákærunni: „Þessi utanþingsviðskipti
voru þannig bæði afleiðing stór-
felldrar og kerfisbundinnar mark-
aðsmisnotkunar ákærðu og forsenda
þess að ákærðu gætu haldið henni
áfram.“ Þannig tengdust kaup eigin
viðskipta Kaupþings á hlutabréfum
í bankanum og sala bankans á þess-
um bréfum í umfangsmiklum við-
skiptum til utanaðkomandi aðila.
Þegar Hreiðar Már seldi bréf sín
í ágúst 2008 til eigin eignarhaldsfé-
lags byggði verðmatið á hlutabréf-
unum því á áralangri markaðsmis-
notkun sem hann sjálfur er talinn
hafa skipulagt, bæði uppkaup eigin
viðskipta Kaupþings á bréfunum og
eins sölu á bréfunum til annarra að-
ila. Þannig má segja að Hreiðar Már
hafi hagnast persónulega á markaðs-
misnotkuninni. n
„Hagnaður Hreiðars
af viðskiptunum var
alls 324.873.892 krónur.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Ragnheiður
Elín Árnadóttir
Árni Sigfússon