Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Qupperneq 41
sinni og byggja upp grunn fyrir líf
ið en síðan voru hinar sem voru
nektardansmeyjar af guðs náð og
gerðu þetta af nautn.“
Hjón létu loka staðnum
Á meðal gesta hjá Garðari á Óðali
kenndi ýmissa grasa. Meðal
annars voru þar hjón sem Garðar
man eftir enn þann dag í dag.
„Þetta fólk er svo virt í þjóð
félaginu að ef það hefði boðið sig
fram til forsetaembættis þá hefði
það hlotið fjölda atkvæða. Þau
hjónin hringdu alltaf á undan sér
í miðri viku og pössuðu að enginn
væri inni á staðnum þegar þau
komu. Hann fékk sér kaffi á með
an eiginkonan fór í „dótakassann“
en þar valdi hún sér konur til þess
að dansa fyrir sig. Stundum spurði
hún eiginmanninn hvort hún
mætti fá tvær í einu og síðan fór
hún með þeim inn í klefa að leika
sér. Maðurinn hafði engan áhuga
en konan var æst í þetta,“ segir
Garðar sem heldur enn trúnað við
sína gömlu viðskiptavini.
„Það var passað upp á að vændi
væri ekki stundað inni á Óðali, en
konurnar höfðu íbúð á okkar veg
um sem við gátum ekki vaktað.
Hvað gerðist þar veit ég ekki, en
sjálfsagt hafa einhverjar sofið hjá
fyrir pening án þess að ég geti full
yrt af eða á um það,“ segir Garðar.
Ráku föður dansarans út
Hann segir mörg eftirminnileg at
vik hafa átt sér stað á þessum tíma.
„Ein dansmeyjanna fæddist sem
karlmaður en það var ekki að sjá
á henni. Einn viðskiptavinur varð
ástfangin af henni og urðu þau par.
Það var ekki fyrr en eftir þriggja
mánaða samband sem hann komst
að því að um kynskipting væri að
ræða.
Þá fengum við alls konar fólk
á Óðal, en eitt atvik varð til þess
að Inga nánast kastaði upp. Það
var þannig að það kom sjómað
ur með heila skipshöfn með sér
til þess að horfa á nektardans
en dóttir hans var að dansa það
kvöld. Stelpunni var mikið brugð
ið þegar hún sá föður sinn með
al áhorfenda en hann var ölvaður.
Stelpan lét sig hafa það og dans
aði áfram. Faðirinn stakk upp á
því að áhöfnin fengi einkadans hjá
dótturinni, en þegar faðirinn gekk
líka inn til þess að horfa á dóttur
sína dansa einkadans var okkur
Ingu nóg boðið. Við rákum hann
út,“ segir Garðar.
„Allar þessar konur sem störf
uðu fyrir mig voru í þessu starfi
af eigin vilja. Ég þekki ekki orðið
mansal sem slíkt því þessar konur
voru í þessu fyrir peningana og
litu fyrst og fremst á þetta sem at
vinnutækifæri. Við sóttumst aldrei
eftir dönsurum erlendis né hér
lendis. Þær höfðu allar samband
að fyrra bragði og sóttust eftir því
að fá að vinna hjá okkur.“
Mannorðið fór á tímabili
Garðar segist stundum hafa verið
litinn hornauga af samborgurum
sínum þegar hann rak Óðal
„Ég hugsa að ég hafi misst mann
orðið á einhverjum tímapunkti,
það var fólk sem vildi ekki tala við
mig. Að fjölskyldumaður á miðj
um aldri skyldi hafa farið út í þetta
þótti mönnum óskiljanlegt. Ég lét
lítið fyrir mér fara á þessum tíma en
þverskurðurinn af þjóðfélaginu sótti
þennan stað.“
Þingmenn, lögfræðingar, sjó
menn og verkamenn í ýmsum stöð
um voru viðskiptavinir Óðals að
hans sögn. „Við Inga vorum eiginlega
búin að fá nóg og við seldum staðinn
langt undir markaðsvirði en gátum
þó keypt okkur hús og bíl og ferðast,“
segir Garðar. „Þetta var sjúkur heim
ur sem er mannskemmandi,“ segir
Garðar.
Óðal seldu þau Inga í kringum
aldamótin og fljótlega tók við nýtt
ævintýri.
Nasa kemur til sögunnar
Um hálfu ári eftir að þau seldu
Óðal tóku þau á leigu húsnæði
Nasa við Austurvöll og innréttuðu
það sem skemmtistað, en þar var
áður mötuneyti. „Við opnuðum
árið 2001 og staðurinn fylltist strax.
Þarna var leyfi fyrir fimmhundruð
og fimmtíu manns en við vorum
alltaf með níuhundr uð. Það var
ótrúleg stemning á Nasa og þarna
vorum við komin í allt annan heim
á Óðali,“ segir Garðar.
„Þarna kynntist ég nýrri hlið á
skemmtanalífinu en ég sá mikið
af framhjáhaldi og fólk missa
sjálfsvirðinguna á fimmta glasi.
Gráthillan var óspart notuð af
karlmönnum til þess að ná sér í
konu. Þetta er hilla sem sést oft á
skemmtistöðum en hún er í þeirri
hæð að auðvelt er að leggja oln
bogann á hana og röfla um hversu
ömurleg eiginkonan sé til þess að
öðlast samúð hjá konunni sem
á að negla það kvöldið. Við það
myndast oft tár sem falla á hill
una en þaðan kemur nafnið grát
hillan.“
Hann segir að á þessum tíma
hafi Bakkus verið farinn að stjórna
lífi hans meira en góðu hófi gegndi.
„Á þessum tíma var ég farinn
að drekka töluvert en þegar
maður vinnur innan um vín þá
hættir maður að bera virðingu
fyrir því. Flestir sem vinna á
skemmtistöðum drekka áfengi í
vinnunni,“ segir hann.
„Þegar fólk hringdi á sunnu
dagsmorgni til að athuga hvort
veski, kápa eða önnur flík hefði
fundist frá kvöldinu áður þá
bauðst ég til að aka því heim til
fólks á sunnudeginum.
Mér leið betur með sjálfan
mig eftir að hafa séð viðkomandi
þunnan og illa útlítandi eftir átök
kvöldsins áður. Þannig fékk ég
staðfestingu á því að ég væri ekki
sá eini sem drykki um of.“
Kóngurinn við Austurvöll
Framtíðin er björt
Garðar lítur framtíðina
björtum augum og er
reynslunni ríkari.
Viðtal 41Páskablað 27. mars-2. apríl 2013
„Ég hugsa að ég
hafi misst mann-
orðið á einhverjum tíma-
punkti, það var fólk sem
vildi ekki tala við mig.
Konungborin Hér eru þau Matte Marit og Hákon krónprins Noregs ásamt Ingu. En þær
stöllur brugðu sér á salernið á meðan lífverðir stóðu vörð.
Nasa Hér eru Inga
og Garðar á Nasa.
„Margar konur
komu í þeim er-
indagjörðum að hjálpa
fjölskyldu sinni og
byggja sér upp grunn
fyrir lífið en síðan eru
hinar sem voru nektard-
ansmeyjar af guðs náð
og gerðu þetta af nautn.
Kóngurinn Tákn-
mynd veldistíma
Garðars. MyNd: Séð og HeyRt