Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Síða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Síða 57
Menning 57Páskablað 27. mars-2. apríl 2013 Nýtir viðskiptabakgrunninn í skriftunum Bókin, sem ber nafnið Drekinn, gerist í nútímanum og við skrifin sótti Sverrir í reynslubrunn sinn í viðskiptaheiminum. „Mér fannst mikilvægt að nýta þetta um- hverfi sem við erum í, í dag. Hér er þriðja hver frétt af einhverjum fjár- málamisferlum, svona viðskipta- tengdu. Það er kannski svona þar sem minn bakgrunnur er. Nafnið er vísun í Drekasvæðið. Sagan á að gerast núna og í henni koma fyrir olíuleitar mál og hlutir tengd- ir því; þrotabú bankanna og vog- unarsjóðirnir. Aðalsöguhetjan er óhefðbundin að því leyti að hann er ofboðslega venjulegur, einstæð- ur faðir sem flækist inn í hlutina en hann vinnur hjá fyrirtæki sem tekur að sér rannsóknir tengdar fjármálum,“ segir Sverrir leyndar- dómsfullur um framhaldið. „Við vorum í viðskiptum mjög lengi og söguþráðurinn byggir að vissu leyti á þeirri reynslu og þekkingu,“ segir Sverrir. Gaman að sjá persónurnar verða til „Mér finnst ótrúlega skemmtilegur þessi viðskiptabakgrunnur í bók- inni,“ segir Ragnhildur sem hefur verið dyggur yfirlesari bókarinnar meðan á vinnslu hennar hefur staðið. Þau hafa bæði haft gaman af því að sjá persónurnar nánast öðl- ast sjálfstætt líf meðan bókin varð til. „Það kemur manni mikið á óvart hvað persónurnar breytast mikið á meðan bókin verður til. Það eru líka forréttindi þegar maður er að skrifa að ef manni leiðist einhver karakter þá bara tekur maður hann út. Mað- ur ræðir bara alveg hvað allir segja og gera,“ segir Sverrir hlæjandi. Ragnhildur segist ekki hafa vitað af því að hún byggi með rithöfundi. „Það er ótrúlega gaman að sjá að maðurinn minn, sem ég hef búið með í 25 ár er allt í einu orðinn rit- höfundur. Maður hélt maður þekkti mann …“ segir hún í léttum tón. Sverrir segist vera spenntur að sjá viðbrögð fólks við bókinni en á sama tíma sé það dálítið stressandi. „Ég hef rosalega gaman af því að skrifa. Það er mikill plús ef einhver hefur gaman af því að lesa þetta, ég hef allavega haft rosalega gam- an af því að skrifa þetta. Á margan hátt er þetta ekkert svo fjarlægt því sem maður er búinn að vera að fást við. Viðskipti eru oft að hugsa út fyrir boxið – tengja saman ólíka punkta. Þannig að þessi kreatífi þankagangur, maður hefur þurft að rækta það dálítið í viðskipta- hliðinni,“ segir hann. „Ég vona að fólk verði spennt og geti ekki lagt hana frá sér. Mig langar að ná fram þessum hughrifum sem mér finnst svo gaman að sem lesanda. Þegar maður er með bók og maður er ekki sofnaður fyrr en fjögur.“ Sverrir er strax byrjaður á næstu bók en vill lítið gefa upp um innihald hennar. „Ég fékk hug- myndina að henni líka fljótlega en það verður að koma í ljós seinna hvernig hún verður,“ segir hann. n Hannar fyrir ungbörn Ragnhildur hóf fyrir um tveimur árum að hanna vörur fyrir ungbörn. Gamlir draumar fengu líf Rafrænn og umbúðalaus Grant B andaríski tónlistarmaðurinn John Grant hefur verið afar áberandi í íslensku tónlistar- lífi undanfarin misseri. Grant hefur verið búsettur hér á landi undanfarið þar sem hann nemur íslensku og hefur unnið að plöt- unni Pale Green Ghosts. Plötuna hefur Grant unnið í samstarfi við Birgi Þórarinsson, sem oftast er kall- aður Biggi Veira og er kenndur við sveitina GusGus. Grant stígur hér inn á svið raf- rænu tónlistarinnar með liðsinni Bigga Veiru og er útkoman ágæt. Það verður samt að segjast að það virð- ist oft vera sem Grant sé að syngja GusGus-lög á plötunni. Það er svo sem ekkert slæmt en það er nokk- uð sterkur svipur á plötunni og eru þetta eflaust mikil viðbrigði fyrir þá sem hafa hlustað á eldri tónlist Grants, þó svo að inn á milli takt- fastrar rafrænu tónlistarinnar séu lög sem minna á fyrra efni Grants. Hann sýnir á plötunni að hann er ekki hræddur við að prófa nýja hluti og er það ávallt virðingarvert. Persónulega finnst mér ekkert laganna á plötunni ná sömu hæð- um og hann nær í laginu I Wanna Go To Marz, sem er eitt það besta sem hann hefur gert. Hann er þó greini- lega leitandi tónlistarmaður sem vill ekki festa sig líkt og Pale Green Ghost gefur til kynna og á þar góða spretti. Á plötunni gerir hann upp ástar- samband sitt og gerir það frem- ur umbúðalaust og er ekki mikið fyrir að tala undir rós. Til að mynda í laginu You Don´t Have To segir hann: „Remember how we used to fuck all night long. Neither do I because I always passed out. I needed lots of the booze to handle the pain.“ Þetta er ekki dýr kveðskapur en engu að síður afar hreinskilinn. Óþægilega hreinskilinn gæti sumum þótt en einlægur engu að síður sem er eitt af aðalsmerkjum Grants á þessari plötu sem líður vonandi betur eftir að hafa komið þessu frá sér. Þetta er ágætis plata hjá Grant þar sem lagið Ernest Borgnine stendur upp úr en fast á hæla þess kemur titillag plötunnar Pale Green Ghosts og Black Belt. n „Við feng- um rosalega góðar verslanir til þess að selja vörurnar en það er mikilvægt að vera á réttum stað Tónlist Birgir Olgeirsson birgir@dv.is Pale Green Ghosts John Grant Útgefandi: Bella Union „Krefjandi en góður“ „Það besta sem ég hef enn séð til Bjartmars sem leikstjóra“ God of War: Ascension PS3 Hundalógík Bjartmar Þórðarson „Yfirþyrmandi stórverk“ Les Misérables Tom Hooper Grant við píanóið „Hann er þó greinilega leitandi tónlistarmaður.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.