Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2013, Side 67
Dýrt á toppnum í enska
Sport 67Páskablað 27. mars-2. apríl 2013
Reynir að finna ræturnar
n Rory McIlroy æfir sveifluna á almenningsæfingasvæði
F
átt hefur frést af Rory McIlroy
eftir að hann strunsaði fúll af
velli í miðju móti á PGA-mót-
aðröðinni fyrr í mánuðinum.
Tannpína var sögð orsökin þang-
að til kappinn viðurkenndi að hafa
látið slæmt gengi ná tökum á sér
og hann hafi bara orðið of fúll til að
halda áfram keppni á Honda Classic-
mótinu.
Síðan hefur hann ekki sést slá
bolta ef frá er talin mynd sem vegfar-
andi smellti af á opnu almennings-
æfingasvæði nálægt Miami í Banda-
ríkjunum. Þar hafði Norður-Írinn
komið sér fyrir við hlið áhugamanna
og hamraði bolta í rúma klukkustund
eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Venjan er nefnilega ekki að stór-
stjörnur í golfinu spásseri um á al-
menningsvöllum og þaðan af síður
æfi sig á þeim völlum eins og hver
annar sveitalubbi. Sérstaklega þar
sem hver einasti eðalklúbbur í heim-
inum myndi loka vellinum fyrir öðr-
um til þess eins að leyfa Rory McIlroy
að æfa sig ef svo bæri undir.
McIlroy hefur reyndar verið leg-
ið á hálsi að hafa ofmetnast helst til
mikið af velgengni sinni á golfvell-
inum og fjölmiðlar í heimalandinu
stæra sig ekkert sérstaklega af kapp-
anum lengur. Kannski það sé ein
ástæða þess að hann ákvað að æfa
sig bara á gamla mátann með öllum
hinum áhugamönnunum að hann
vilji reyna að tengjast aftur rótum
sínum.
Vart er vanþörf á því, ef marka má
spilamennsku hans þetta árið. Hvort
sem um er að kenna ofmati hans
sjálfs eða nýju kylfunum frá Nike þarf
McIlroy aldeilis að taka til hendinni
ef hann á ekki að falla mun neðar á
heimslistanum í golfi en hann þegar
hefur gert. Tiger Woods henti hon-
um af toppnum um síðustu helgi og
Woods virðist í betra formi en um
margra ára skeið. n
n Arsenal er eina stórliðið sem hagnast á leikmannamarkaðnum n Árangur í deildinni dýru verði keyptur
förnum árum ekki alltaf verið skynsamleg.
Þeir hafa eytt háum fjárhæðum í dýra fram-
herja, til dæmis Steven Fletcher, framherja
Wolves, sem þeir keyptu á 15,2 milljónir punda
nýverið. Félagið hefur frá árinu 2006 eytt á
bilinu 20 til 40 milljóna punda í leikmenn á
hverju ári. Félagið hefur þó líka verið duglegt
að selja leikmenn, fyrir þokkalegan pening, en
betur má ef duga skal.
Manchester United
88 milljóna punda tap
↓ Það er orðið æ sjaldgæfara að Manchester
United pungi út svimandi háum upphæðum
í leikmenn. Félagið keypti Robin van Persie á
22 milljónir punda í fyrra en hann er dýrasti
leikmaðurinn sem félagið hefur keypt frá því
Berbatov var keyptur á 31 milljón tímabilið
2008/2009. Ein aðalástæðan fyrir því að
tap United á leikmannaviðskiptum er ekki
meira en raun ber vitni er 80 milljóna punda
salan á Cristiano Ronaldo árið 2009.
Aston Villa
92 milljóna punda tap
↓ Aston Villa hefur lengi verið í deild
þeirra bestu en sjaldan á undanförnum
árum gert tilkall til titla. Félagið hefur,
þrátt fyrir mögur ár, eytt 92 milljónum
punda umfram það sem liðið hefur selt.
Það hefur nánast verið árviss viðburð-
ur undanfarin ár að besti leikmaður
félagsins hafi verið seldur að sumri.
Félagið á enda í vanda og er í raunveru-
legri fallhættu þrátt fyrir að hafa árlega
eytt 25 til 48 milljónum punda í leikmenn
undanfarin ár.
Liverpool
124 milljóna punda tap
↓ Eigendaskipti hafa verið tíð í bítla-
borginni undanfarin ár. Liverpool hefur
verið duglegt á leikmannamarkaðnum en
ýmislegt hefði betur mátt fara. Félagið
keypti til dæmis Andy Carroll á 35 millj-
ónir punda 2011 en hann hefur sannarlega
ekki blómstrað og var raunar lánaður
frá félaginu í fyrra. Áhangendur eru
orðnir langþreyttir á titlaleysi liðsins en
spurningin er hvort pyngjur eigendanna
séu botnlausar.
Chelsea
233 milljóna punda tap
↓ Það urðu ákveðin vatnaskil í enska
boltanum þegar Roman Abramovich
eignaðist lið Chelsea árið 2003. Rússa-
gullið flæddi í stríðum straumum og
Chelsea varð að stórveldi í boltanum.
Abramovich hefur haldið áfram að eyða
peningum – ekki síst í knattspyrnustjóra
– og hefur keypt ótal stórstjörnur til
liðsins.
Manchester City
427 milljóna punda tap
↓ Sheik Mansour kom sem stormsveipur
inn í enska boltann þegar hann keypti
„litla liðið“ í Manchester-borg, City, árið
2008. Fordæmalaust fjáraustur virðist
engan endi ætla að taka. Hver stjarnan
á fætur annarri er keypt til félagsins og
má þar nefna Sergio Aguero, Robinho,
Edin Dzeko og Carlos Tevez. Félagið hefur
beinlínis keypt sér árangur því félagið
varð enskur meistari í fyrra. Óvíst er
hversu lengi ævintýrið endist.
–
42
7 m
. £
–
12
4
m
. £–
9
2 m
. £
–
88
m
. £
–
88
m
. £
–
80
m
. £
–
72
m
. £
–
65
m
. £
–
56
m
. £
–
23
3 m
. £
Seigir piltar
Piltarnir í U21 árs landsliði Íslands
í knattspyrnu byrjuðu með látum
í riðli sínum í undankeppni EM
2015. Liðið lagði Hvít-Rússa 1–2
á útivelli á fimmtudag. Jón Daði
Böðvarsson, leikmaður Viking í
Noregi, kom Íslandi yfir á fjórðu
mínútu en Emil Atlason, leikmað-
ur KR, bætti við öðru marki á 51.
mínútu.
Fyrirliðinn Sverrir Ingi Inga-
son, leikmaður Breiðabliks, fékk
að líta rauða spjaldið á 72. mín-
útu þegar hann braut á leikmanni
andstæðinganna innan vítateigs.
Hvít-Rússar skoruðu úr vítinu og
hleyptu þannig spennu í leik-
inn. Þeim tókst hins vegar ekki að
knýja fram jafntefli og höfðu Ís-
lendingar því sigur í fyrsta leik.
Næsti leikur í keppninni er við
Armeníu á útivelli. Hann fer fram
6. júní ytra.
Íslendingar í
8-liða úrslitum
Evrópumeistararnir í Kiel mæta
ungverska meistaraliðinu
Vezprém í 8 liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu í handknattleik.
Alfreð Gíslason þjálfar lið Kiel en
með því leika einnig Íslendingarn-
ir Aron Pálmarsson og Guðjón
Valur Sigurðsson. Liðin hafa áður
mæst í keppninni því þau voru
saman í riðli og unnu hvort sinn
leikinn. Ólafur Gústafsson og fé-
lagar í Flensburg mæta löndunum
sínum í Hamburg. Metalurg mæt-
ir pólska liðinu Kielce en með því
leikur hornamaðurinn Þórir Ólafs-
son stórt hlutverk. Þá eigast við
spænsku stórliðin Atletíco Madrid
og Barcelona.
Liðin mætast tvisvar. Fyrri leik-
irnir fara fram á tímabilinu 17.–21.
apríl og síðari leikirnir 24.–28.
apríl.
Þung brúnin McIlroy fallinn af toppnum í golf-
heiminum og reynir að finna ræturnar að nýju.