Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 20
20 Fréttir Erlent Helgarblað 21.–24. mars 2014
Hvað varð um vélina?
n 10 kenningar um afdrif farþegaþotu Malaysia Airlines n Var henni flogið til Kasakstans eða er hún vandlega falin í norðurhluta Pakistans?
M
eð hverjum degi sem
líður verður hvarf far-
þegaþotu Malaysia
Airlines sífellt dular-
fyllra. Vélin hvarf spor-
laust fyrir tæpum hálfum mánuði
þegar hún var á leið frá Malasíu til
Kína. Síðan þá hefur fjöl mörgum
kenningum, misgáfu legum,
verið varpað fram um hvarfið.
Rannsókn á afdrifum vélarinn-
ar er enn í fullum gangi og á hverj-
um degi berast nýjar fréttir af gangi
hennar. Á fimmtudag komu áströlsk
yfirvöld auga á brak sem mögulega
er úr vélinni, en gervihnattarmynd-
ir sýndu tvo hluti á floti í sjónum
undan ströndum landsins. Yfirvöld
hvöttu fólk þó til að halda ró sinni,
enda langt því frá öruggt að um
sé að ræða brak úr vélinni. Annar
þessara hluta er 24 metrar á lengd
og lét samgönguráðherra Malasíu
hafa eftir sér að vísbendingin
væri nokkuð „áreiðanleg“.
DV tók saman tíu kenningar
sem verið hafa fyrirferðarmikl-
ar í umræðunni undanfarinn hálf-
an mánuð. Þó að sumar þeirra
kunni að vera langsóttar skyldi
ekki útiloka neitt varðandi hvarf
vélarinnar. n
Fréttir hafa verið sagðar af því
að vélin hafi á einum tímapunkti
stefnt að Andaman- og Nicobar-
eyjunum á Indlandi. Það svæði er
í austasta hluta indverskrar loft-
helgi – á milli Taílands og Búrma.
Fréttir hafa verið sagðar af því
að jafnvel hafi verið slökkt á rat-
sjá hersins á því svæði, þar sem
alla jafna er lítil þörf fyrir eftirlit
á þeim slóðum. Fréttamaður
Andaman Chronicle-dagblaðsins
hefur útilokað að flugvélin gæti
hafa lent á svæðinu. Um sé að
ræða fjórar flugbrautir og að eftir
því hefði verið tekið ef vélin hefði
lent þar. Frá þessu greindi CNN. Á
hinn bóginn eru eyjarnar á svæð-
inu um 570 – aðeins er búið á 36
þeirra. „Ef vélinni hefur verið rænt
er þetta svæði fýsilegur kostur til
að lenda henni, svo lítið beri á,“
segir Steve Buzdygan, fyrrverandi
BA 777-flugmaður. Hann segir að
þó það væri erfitt, væri vissulega
hægt að lenda vélinni á strand-
lengju. „Hættan er sú að hjólin
grafi sig í sandinn. Ef ég ætti að
lenda á sandi myndi ég ekki setja
niður hjólin, heldur lenda vélinni
á kviðnum.“ Hann segir að við slík-
ar aðstæður sé vængjunum hætta
búin. Í þeim sé eldsneyti og það
geti leitt til sprengingar. Ólíklegt
sé að flugvél sem lent hefur verið á
sandi geti tekið á loft aftur.
Hugsanlegt er að vélinni hafi verið
flogið til Kasakstans, sem er nyrst á
því svæði sem skilgreint hefur ver-
ið sem leitarsvæði. Flugmaðurinn
Sylvia Wrigley, höfundur bókar-
innar Why Planes Crash, segir að
vélinni hafi mögulega verið lent í
eyðimörk í landinu, sem er gríðar-
stórt. Það sé í það minnsta senni-
legri lendingarstaður en að lenda
henni á strönd. Hún bendir hins
vegar á að ef þetta sé raunin hafi
vélinni verið lent í órafjarlægð frá
byggð, á mjög einangruðu svæði.
Enn hefur ekki komið fram
hvað leyndist í farmi vélarinnar.
Vangaveltur hafa verið uppi um að
farmurinn hafi verið afar dýrmæt-
ur – og þar með eftirsóttur. Einnig
hafa verið vangaveltur um að um
borð hafi verið einhverjir millj-
arðamæringar.
Eftirlitsstofnanir í Kasakstan
hafa útilokað þetta og fullyrða að
ekki hefði verið hægt að fljúga vél-
inni óséð inn í þeirra lofthelgi.
Vélin hafi auk þess, til að komast
til Kasakstans, þurft að fljúga um
lofthelgi Indlands, Pakistans og
Afganistans. Vart þarf að fjölyrða
um eftirlitið sem þar er haft með
loftförum hvers konar. Wrigley seg-
ir hugsanlegt að gloppur séu í rat-
sjáreftirliti þessara landa. Tækja-
búnaður sé víða úr sér genginn og
gamaldags.
2 Flugvélin lenti á Andaman-eyjum
1 Vélinni flogið til Kasakstan
Baldur Guðmundsson
Einar Þór Sigurðsson
baldur@dv.is/ einar@dv.is
3 Vélinni
flogið suður
Fram hefur komið að vélin hafi
gefið frá sér merki í fimm til sex
tíma eftir að hún flaug út úr loft-
helgi Malasíu. Norman Shanks,
fyrrverandi yfirmaður hjá BAA
og prófessor í flugöryggi hjá há-
skólanum í Coventry, telur að
líklegra sé að vél, sem ekki hafi
sést á ratsjám, hafi verið flog-
ið suður á bóginn. Leita ætti frá
ystu leitarmörkum í suður og
þaðan norður, frekar en öfugt.
Getgátur hafa verið uppi um að
vélinni gæti hafa verið rænt af að-
skilnaðarsinnum úr röðum Uighur-
múslima, sem rekja þjóðerni sitt til
Mið-Asíu og hafa sakað Kínastjórn
um kúgun og undirokun með því
að hefta menningu þeirra, tungu-
mál og trú. Komið hefur fram að 153
farþegar af 239 hafi verið kínverskir
ríkisborgarar. Hugsanlegur áfanga-
staður, miðað við þessa kenningu,
sé Taklamakan-eyðimörkin. Eyði-
mörkin, sem í alfræðiorðabókum er
þekkt undir heitinu „Great Desert of
Central Asia“ er einhver sú víðáttu-
mesta í heimi. Þar er í það minnsta
enginn hörgull á plássi til að lenda
flugvél. Fréttamaður BBC, Jonah
Fisher, hafði eftir malasískum ráða-
mönnum þann 15. mars síðastliðinn
að líklegast væri að vélina væri að
finna í námunda við landamæri Kína
og Kirgisistan. Það myndi hins vegar
þýða, eins og raunar um fleiri tilgátur,
að vélin hafi farið óséð um lofthelgi
nokkurra landa.
Engu nær um hvarfið
Atburðarásin síðustu tvær vikur
8. mars Vélin lagði af stað frá Kuala Lumpur klukkan
00.41 að staðartíma. Vélin missti samband við flug-
umferðarstjórn eftir klukkustundarflug. Síðast var
vitað um vélina þegar hún var stödd 120 sjómílur út
af austurströnd bæjarins Kota Bharu í Malasíu. Veður
var gott þegar hún hvarf. Í kjölfarið hófst leit.
9. mars Frumrannsókn leiddi í ljós vísbendingar um að vélinni
hefði verið snúið við á leið til Peking. Leitarsvæði var stækkað
og fleiri þjóðir buðu fram aðstoð við leitina, þar á meðal Kín-
verjar og Bandaríkjamenn. Interpol staðfesti að tveir farþegar
vélarinnar hefðu notað stolin vegabréf til að komast um borð.
10. mars Malasísk yfirvöld könnuðu olíu-
brák sem grunur lék á að væri eldsneyti úr
vélinni. Niðurstöður þeirrar rannsóknar
leiddi í ljós að svo var ekki, um var að
ræða olíu sem flutningaskip nota.
Leitarsvæðið var stækkað enn frekar og
náði nú einnig yfir stóra hluta Taílandsflóa,
milli Víetnam og Malasíu.
11. mars Interpol tilkynnti að mennirnir tveir
sem notuðu stolin vegabréf væru Íranar, 18 og
29 ára. Við sama tilefni tilkynnti Interpol að
ekki léki grunur á að vélinni hefði verið grandað.
Leyniþjónusta Bandaríkjanna vildi ekki útiloka
hryðjuverk. Malasísk yfirvöld könnuðu frekar
hvort vélinni hefði verið snúið við eftir að hafa
flogið yfir Kota Bharu. Lögreglan í Malasíu hóf
rannsókn á afdrifum vélarinnar.
12. mars Leitarsvæðið var stækkað enn frekar
og náði til Suður-Kínahafs og Malacca-flóa. 42 skip
og 39 flugvélar tóku þátt í leitinni. Víetnamar til-
kynntu að þeir myndu draga úr leitinni í landhelgi
sinni. Kínversk fréttastofa birti gervihnattarmynd-
ir af braki sem jafnvel var talið vera af vélinni.
13. mars Samgönguráðherra
Malasíu sagði ekkert hæft í
fréttum Wall Street Journal að
möguleiki væri á að vélin hefði
flogið í fjórar klukkustundir eftir
að síðast spurðist til hennar. Flug-
málastjórn Kína sagði að brakið sem fannst
daginn áður væri ekki úr vélinni.
„… það er engin
þörf á að eyða
þessum gögnum.
4 Taklamakan-eyðimörkin
í norðvesturhluta Kína