Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Page 21
Fréttir Erlent 21Helgarblað 21.–24. mars 2014
Hvað varð um vélina?
n 10 kenningar um afdrif farþegaþotu Malaysia Airlines n Var henni flogið til Kasakstans eða er hún vandlega falin í norðurhluta Pakistans?
14. mars Greint var frá því að merki hefðu borist frá vélinni
að minnsta kosti fjórum tímum eftir að hún hvarf af ratsjá.
Ekki var þó hægt að nota umrædd merki til að staðsetja
vélina eða komast að því í hvaða átt hún var að fara.
15. mars Forsætisráðherra Malasíu, Najib Razak,
tilkynnti á blaðamannafundi að svo virtist sem
ákvarðanir sem teknar voru um borð, meðal annars
að slökkva á samskiptatækjum vélarinnar og beina
henni í aðra átt, hefðu verið teknar af yfirlögðu
ráði áður en hún náði austurströnd Malasíu. Razak
staðfesti að vélin hefði snúið við og flogið í vestur
áður en hún breytti um stefnu til norðvesturs. Sér-
fræðingar töldu að vélin hefði annaðhvort haldið í
norður, áleiðis til Kasakstans eða Túrkmenistans,
eða í suður að Indlandshafi.
16. mars Leitarflokkar frá 25
þjóðum tóku þátt í leitinni.
Svartsýni gætti hjá samgöngu-
ráðherra Malasíu sem sagði að
leitin væri mjög „erfið“. Farþegar
og áhöfn vélarinnar var rannsökuð
nákvæmlega og sagði lögreglustjóri Malasíu
að ekkert væri útilokað, hvorki flugrán eða slys.
Greint var frá því að húsleit hefði verið fram-
kvæmd á heimilum flugmannanna, en á heimili
annars þeirra fannst flughermir.
17. mars Leit á mögulegum svæðum norður og
suður af Malasíu hófst. Miðaðist leitin við þær upplýs-
ingar sem fyrir lágu; að vélin hafi annaðhvort flogið í
norður eða suður. Leitarflokkar í Ástralíu og Indónesíu
leituðu í sinni landhelgi, en án árangurs.
18. mars Kínverjar
sendu skip til leitar
að vélinni og var
leitarsvæðið nú
orðið gríðarstórt,
eða á stærð við Ástralíu.
Kenning um að eldur hafi kviknað
í einu af dekkjum vélarinnar var
fyrirferðarmikil. Gekk hún út á
það að reykur hefði fyllt læstan
flugstjórnarklefann með þeim
afleiðingum að flugmennirnir
létust. Vélinni hafi verið snúið
af leið til að komast sem fyrst
á næsta flugvöll. Vélin hafi hins
vegar verið á sjálfstýringu og
væntanlega brotlent þegar hún
varð eldsneytislaus.
19. mars Yfirvöld í
Taílandi tilkynntu að þau
hefðu séð vélina á flugi
sex mínútum eftir að hún
hvarf augum flugumferð-
arstjórnar Malasíu. Þetta
þótti renna stoðum undir þá
kenningu að vélinni hafi ver-
ið flogið til vesturs. Engar
upplýsingar voru þó um
stefnu vélarinnar eftir það.
Nýjar vísbendingar komu
þó fram þess efnis að íbúar
Maldíveyja hefðu mögulega
séð vélina. Sögðust nokkrir
íbúar hafa séð þotu fljúga
mjög lágt yfir suðurhluta
eyjanna.
Chris Goodfellow, sérfræðingur sem
bloggar um flugtengd málefni, hefur
skrifað að ýmislegt bendi til þess
að eldur hafi komið upp í vélinni.
Skyndileg stefnubreyting sem vél
in tók, til vinstri, hafi getað verið ör
væntingarfull tilraun flugmannanna
til að komast sem fyrst til lendingar.
„Flugstjórinn gerði allt rétt í stöðunni.
Hann brást við bráðum vanda með
því að beygja af leið og fara stystu leið
að næsta flugvelli,“ skrifar Goodfell
ow. Hann hafi viljað koma í veg fyrir
að vélin hrapaði yfir miðri borg eða
í fjalllendi. Því hafi hann tekið beina
stefnu að Palau Langkawi. Engar
hindranir séu í vegi í því aðflugi. Ef
hann hefði tekið stefnuna aftur á Ku
ala Lumpur hefði hann þurft að fljúga
yfir 4.000 metra háan fjallshrygg.
Kenning Goodfellow gerir ráð fyrir
því að vélin hafi hrapað áður en hún
náði að Langkawi.
New York Times hefur fullyrt að
kenningin standist ekki. Ef upp hafi
komið neyðartilvik hefði vélinni ör
ugglega verið snúið með stýrinu. Í ljós
hefur hins vegar komið að einhver í
stjórnklefanum hafi slegið inn sjö eða
átta stafa kóða inn í tölvu sem staðsett
er á milli flugstjórans og fyrsta flug
manns. Blaðið segir að þetta bendi
til þess að það hafi verið yfirveguð og
fyrirfram tekin ákvörðun að beygja af
leið á þessum tímapunkti. Það bendi
til þess að brögð hafi verið í tafli.
5 Vélinni var flogið í átt að Langkawi-
eyju vegna elds eða annarrar bilunar
Fjölmiðlamógúllinn Rubert
Murdoch vakti talsverða athygli
þegar hann tísti á samskiptavefnum
Twitter. Sagði Murdoch að mögu
lega hefði vélinni verið stolið, henni
flogið til norðurhluta Pakistans
þar sem hún var falin – rétt eins og
Osama bin Laden gerði. Pakistan
ar hafa borið þessa kenningu til
baka og segja að það væri ómögu
legt. Fulltrúi forsætisráðherra
landsins tjáði sig um kenninguna á
dögunum og sagði að þar sem vélin
hefði ekki sést á ratsjám væri ekki
möguleiki á að hún væri í Pakistan.
Líklega hefur hann rétt fyrir sér
enda er óvíða jafn mikið eftirlit og
í lofthelgi Pakistans. Og þó að hálf
gerð vargöld hafi ríkt í norðurhluta
landsins er eftirlit úr lofti þar mik
ið, þar sem drónar og gervihnettir
vakta flest það sem fram fer.
6 Vélinni flogið til Pakistans
9 Átök um borð
Enn sem komið er hefur öllum heims
ins sérfræðingum ekki tekist að útskýra
með nákvæmum hætti hvers vegna
vélin breytti um stefnu og hvers vegna
hún flaug jafn óreglulega og hún gerði.
Hún flaug í 45 þúsund feta hæð, (13,7
kílómetrar) langt yfir ráðlagðri hæð
fyrir vélar af sömu tegund, áður en
hún lækkaði flugið aftur. Þessar miklu
sveiflur renna stoðum undir þá kenn
ingu að einhvers konar átök hafi átt sér
stað í flugstjórnarklefanum, að sögn
Steve Buzdygan. Eftir 11. september
var öryggi flugmanna betur tryggt, en
þrátt fyrir það er alls ekki ómögulegt
að komast inn í klefann. Buzdygan,
sem hefur reynslu af því að fljúga sömu
þotutegund og hvarf, segir að hann
myndi ekki hika við að freista þess að
rugla mögulega flugræningja í ríminu
með því að hækka og lækka flugið til
skiptis – allt til þess að komast hjá því
að óprúttnir aðilar nái stjórninni.
Flugmálabloggarinn Keith Ledger
wood, sem þykir nokkuð virtur
á sínu sviði, heldur því fram að
vél Malaysia Airlines hafi flogið í
„skugganum“ af vél Singapore Air
lines. Vitað er að vél Singapore Air
lines (SA) hafi verið á svipuðum
slóðum og vélin sem hvarf. Hann
segist hafa skoðað fyrirliggjandi
gögn og séð að malasíska flugvél
in hafi breytt um stefnu og flogið
beint fyrir aftan vél SA. Þannig hafi
flugumferðarstjórar á jörðu niðri
ekki numið merki vélarinnar á rat
sjám. Ledgerwood segir að lík
lega hafi hún elt vél SA og komist
óséð í gegnum lofthelgi Indlands
og Afganistans. Þar sem slökkt var á
fjarskiptatækjum hafi flugmenn SA
ekki áttað sig á að því að farþegaþot
an væri steinsnar frá vélinni. Vél SA
var flogið til Spánar en á einhverj
um tímapunkti hefur vél Malaysia
Airlines breytt um stefnu og flogið
annað, að sögn Ledgerwood; mögu
lega til Kína, Kirgisistans eða Túrk
menistans. Hugh Griffiths, ratsjár
sérfræðingur við University College
í London, segir að þessi kenning sé
ekki svo fráleit.
8 Flaug í skugga annarrar vélar
7 Farþegar
létust úr eitrun
Ein kenning um hvarf vélarinnar
snýst um það að vélinni hafi verið
flogið upp í 45 þúsund feta hæð
til að drepa farþegana um borð
á skjótan hátt. Þetta segir Sean
Maffet, fyrrverandi sérfræðing
ur hjá breska flughernum, við
BBC. Tilgangurinn með þessu
hafi verið sá að koma í veg fyrir að
farþegar gætu notað farsímana
sína. Eftir þetta hafi vélin lækkað
flugið. Vegna þrýstingsminnkun
ar myndu súrefnisgrímur falla úr
loftinu í farþegarýminu, en súr
efnið væntanlega klárast eftir 12 til
15 mínútur. Farþegarnir – þjakaðir
af kolsýrlingseitrun – myndu falla
í yfirlið og deyja að lokum. Flug
mennirnir, eða þeir sem voru um
stjórn, hefðu einnig fengið kol
sýrlingseitrun – nema þeir hafi haft
aðgang að aukabirgðum af súrefni.
10 Rænt og
notuð til
voðaverka
Ein langsóttasta kenningin er
sú að vélinni hafi verið rænt af
hryðjuverkamönnum í þeim til
gangi að nota hana til að fremja
hryðjuverk, líkt og gert var 11.
september 2001. Halda einhverj
ir því fram að vélin hafi lent heilu
og höldnu á afviknum stað og hún
verði vandlega falin. Hryðjuverka
mennirnir sem rændu vélinni bíði
færis eftir rétta augnablikinu til að
fljúga henni á ákveðið skotmark.
Það sem gerir þessa kenningu
langsótta er það að afar erfitt er að
fela heila flugvél og fljúga henni
svo aftur, að sögn Seans Maffetts,
sérfræðings í flugöryggismálum,
sem BBC ræddi við. Það er samt
ekki útilokað, að hans mati. Hann
segir að hvarf vélarinnar sé svo
dularfullt að taka verði tillit til allra
möguleika, sérstaklega í ljósi þess
að flestar eðlilegar skýringar á
hvarfi vélarinnar hafi leitt lítið ljós.