Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Side 29
Helgarblað 21.–24. mars 2014 Fólk Viðtal 29 Eins brjálað og þetta virðist vera þá hefur allt sína merkingu, hver handa- hreyfing þýðir eitthvað.“ Lífið á Wall Street var framandi fyrir ungan mann frá Reykjavík. „Þarna var ég kominn, einhver gaur frá Íslandi þegar enginn vissi hvar Ísland var. Bara það að fara með lyftunni upp á 50. hæð var algjört ævin týri. En það vandist fljótt,“ útskýrir hann. Hratt, stórt og mikið eru orðin sem hann notar til að lýsa lífi verðbréfasal- ans á Wall Street. „Hjartað slær öðru- vísi þarna. Það gerist allt hratt og þú þarft að fylgjast með öllu, því það hef- ur allt áhrif á það sem þú ert að gera. Hver dagur er ólíkur öðrum og þú ert alltaf að takast á við ný vandamál, ný tækifæri og nýtt fólk. Þú þarft alltaf að vera á tánum og vera skarpur til að vita hvað þú ert að gera. Þú sérð menn í kringum þig brenna upp vegna streitunnar en á sama tíma virðast aðrir þrífast best í umhverfi þar sem allt er alltaf tryllt. Þú lærir fljótt að láta ekkert koma þér á óvart.“ Vildi meira Fljótlega sá Guðmundur Franklín að þetta litla fyrirtæki var ekki það sem hann var að leita að. Ári eftir komuna þangað sannfærði hann samstarfs- mann sinn um að færa sig um set með honum. „Ég sýndi honum fram á að við gætum grætt meira annars staðar. Það væri betra að vera hjá öðru fyrirtæki þar sem möguleikarn- ir væru meiri en í þessum litlu þræla- búðum. Wall Street er fullt af pínulitl- um fyrirtækjum þar sem allir eru að reyna að gera eitthvað. Þar sem pabbi hans var hátt skrif- aður í bransanum töluðum við við hann. Hann reddaði okkur í vinnu hjá Oppenheimer, sem var gott gyðinga- firma. Við fórum þangað sem teymi og vorum þar í nokkur ár. Þá fórum við nokkrir saman sem klíka yfir til Burnham Securities, sem var frægt fyrirtæki. Einn stofnenda þess var fyrsti gyðingurinn sem varð formaður sam- taka verðbréfasala. Hann var svo gamall að hann mundi eftir sjálfum sér í Kauphöllinni í Pennsylvaníu í hruninu 1929. Hann var enn að. Þeir deyja margir fram á skrifborðið sitt, því það er svo erfitt að hætta. Fyrir utan það hvað það er góður matur þarna.“ Græddi aldrei nóg Í þrettán ár var Guðmundur Franklín verðbréfasali og allan þann tíma sner- ist lífið fyrst og fremst um að græða peninga. „Lífið var bara vinnan. Ég var alltaf í vinnunni. Ég gat aldrei far- ið í frí því ég var að vinna fyrir sjálf- an mig og fékk prósentur af því sem ég seldi. Því meira sem ég vann og því meira sem ég seldi því meira fékk ég. Sem þýddi að ég var alltaf að. Á morgnana tók ég símtöl til Evrópu og á kvöldin hringdi ég til Hawaii. Ég gat verið að alla nóttina þess vegna. Það var engin regla á neinu.“ Og þó. Þar sem Guðmundur Franklín var fjölskyldumaður reyndi hann að eiga helgarnar fyrir fjöl- skylduna og fara þá út úr bænum eða gera eitthvað skemmtilegt. „En ég var alltaf með símann á mér og áreitið var stanslaust. Því lengra sem þú ert þarna því dýpra sekkur þú. Þetta var partur af mynstrinu, ofið í teppið sem þú varst að vefa. Þetta snerist allt um að búa til pen- inga og hvað var nóg, 100 dollarar, 1.000 eða milljón? Það var aldrei neitt nóg. Í raun var vinnan fúsk, algjört „bullshit“. Að búa til eitthvert djöfuls- ins bull og fá menn til að kaupa það. Þetta er bara brjálæði.“ Seldi málaferli Hugmyndaauðgin var takmarkalaus. Einu sinni seldi Guðmundur Frank- lín málaferli. „Til mín leitaði maður sem hafði lent uppi á kant við risa- banka. Bankinn hafði farið illa með hann og hann var kominn með góða lögfræðistofu í málið, en það var ansi kostnaðarsamt. Þannig að mér datt í hug að það gæti verið sniðugt að selja málaferlin sem skuldabréf. Sem hann myndi borga til baka ef hann tapaði málinu. En ef hann ynni mál- ið og fengi bætur þá væri það bónus fyrir alla. Ég náði að selja málið, hann vann og það voru allir glaðir,“ seg- ir Guðmundur Franklín hlæjandi. „Þetta hafði aldrei verið gert áður og þótti helvíti smart. Í þessum bransa varstu alltaf að selja nýja vöru. Þú þurftir bara að vera nógu frakkur og vera skrefi á undan öðrum svo þú gætir boðið eitthvað sem kúnnanum þætti áhugavert. Ef ég legg mig fram við það þá get ég selt allt. Ég seldi hugmyndir og allt sem mér datt í hug að hægt væri að selja. Ef þú ert rosalega duglegur ertu tíu ár á toppinn, en það er líka auðvelt að tapa öllu.“ Tapaði öllu Því fékk hann að kynnast upp úr aldamótunum þegar internetbólan sprakk. Þá tapaði hann háum fjár- hæðum. „Ég tapaði ansi miklu. Í raun kom þetta mér ekki á óvart. Ég vissi að þetta myndi gerast. Ég tók samt þátt í þessu því ég hélt alltaf að ég gæti reddað mér út úr þessu. Þegar þú vilt ekki að þetta gerist þá viltu ekki trúa því að þða muni gerast. Þannig að þú heldur áfram þar til það er orðið of seint að hætta. Sem betur fer er ég ekki svo pen- ingagráðugur að peningar séu aðalat- riðið í lífi mínu. Þannig að ég sá aldrei eftir því sem ég tapaði, en lífið breytt- ist auðvitað. Svo sendi Osama bin Laden sitt fólk fljúgandi inn í tvíburaturnana. Þá hrundi allt. Markaðnum var lok- að og hann var lokaður í marga daga. Á meðan hrundu verðbréfin í verði. Með tímanum jafnar markaðurinn sig alltaf en eftir stóð þessi spurning – hvort þetta væri rétti staðurinn til að vera á. Ég komst að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki og við ákváðum að flytja frá New York.“ Ljúfa lífið Fram að því hafði lífið leikið við hann. Guðmundur Franklín hafði komið ár sinni vel fyrir borð og græddi á tá og fingri. Hann sem bjó í pínulítilli stúd- íóíbúð fyrst eftir komuna til New York átti orðið rúmgóða íbúð á besta stað í Upper West Side-hverfinu á Manhatt- an. Þar bjó hann í Oliver Cromwell- byggingunni, á sögufrægum slóð- um, en hinum megin götunnar stóð Dakota-byggingin þar sem John Lennon var ráðinn bani. „Ég sé eftir þeirri íbúð. Hún var æðisleg. Við vor- um með stórkostlegt útsýni og svalir yfir Central Park. Ég lifði góðu lífi og var góðu vanur.“ Bestu stundirnar voru samt ein- faldar. Þær fólust í því að borða góða steik, „prime rib“, í góðum félags- skap. Á tímabili tók hann upp á því að hlaupa maraþon og ganga á fjöll. „Aðallega af því að það fór í taugarnar á mér að menn væru að monta sig af því að hafa hlaupið maraþon eða klif- ið einhver helvítis fjöll þegar þúsund- ir manna gera það á hverjum einasta degi. Ég gerði þetta til að sanna kenn- inguna um að þetta væri ekkert mál og þetta var ekkert mál. Ég mæli samt ekki með þessu því þetta er bæði hundleiðinlegt og eyðileggur á þér hnén. Jújú, það er fínt útsýni ofan af fjallinu en það er ekki þess virði.“ Mont Blanc var á meðal áfanga- staða, sem og Kilimanjaro. Um hæsta fjall Evrópu segir hann: „Ég fór bara upp og niður. Það var ekkert mál. Þetta tók tvo daga og var ekki eins hræðilegt og af er látið.“ Mont Blanc er 4.800 metra hátt. Al- mennt er talað um að menn séu þrjá daga að fara þessa leið af því að þeir þurfa að venjast þunna loftinu. Guð- mundur Franklín segir það ekki hafa verið vandamál. „Ekki á Mont Blanc. Á Kilimanjaro fékk ég háfjallaveiki og tók einhverja pillu til að jafna mig á henni. Síðan hélt ég áfram daginn eft- ir. Mér finnst alls ekkert merkilegt að hafa farið þessar ferðir, ekkert til að tala um.“ Stærstu mistökin Svo kom að því að hann tapaði öllu. „Ég segi bara eins og Bjöggi: Pen- ingarnir fóru til „money heaven“. Þetta brann allt upp í hruninu. Það sorglega við það er að ég ætlaði alltaf að hætta eftir tíu ár en ég var orðinn svo gráðugur að ég gerði þau mistök að fylgja ekki eigin sann- færingu. Ég ætlaði mér aldrei að daga uppi þarna. Ég ætlaði að vera þarna í tíu ár og fara síðan að gera eitthvað annað til að halda heilanum virkum og brjóta upp rútínuna. Af því að það kemst allt upp í vana. En ég gat ekki hætt, ég ánetjaðist þessum lífsstíl. Það er meira en að segja það að hætta þegar þér er farið að ganga vel. Það er varla hægt. Eftir að ég fór hefur mér margoft verið boðið að koma aftur. Ég hef bara ekki áhuga á þessum heimi. Hann skilur ekkert eftir sig. En ég sé ekki eftir neinu, skárra væri það nú.“ Eftir stutta umhugsun tekur hann þetta til baka. „Eða jú,“ segir hann, „það er reyndar eitt sem ég sé eftir. Að hafa kynnt Guðmund Birgisson frá Núpum fyrir vinkonu minni Sonju Zorrilla.“ Sonju kynntist hann þegar hann sló á þráðinn til hennar og kynnti sig. „Það voru ekki margir Íslendingar á New York á þessum tíma. Og enginn sem hafði sömu stöðu og hún. Hún var einstök. Með okkur tókst mikil og sterk vinátta.“ Listin var henni hugleikin og átti hún mörg merkileg verk í sínu safni. Eitt þeirra var verk eftir Picasso sem hún sagði alltaf að Guðmundur Franklín ætti að fá eftir sinn dag. „Guðmundur vissi af því og ætlaði alltaf að koma myndinni til mín eftir andlát hennar. Einhverra hluta vegna hef ég ekki enn fengið myndina. Ég rukkaði hann einu sinni um hana en síðast þegar ég vissi hékk þessi mynd uppi á vegg heima hjá honum. En ef ég skyldi einhvern tímann fá þessa mynd þá myndi ég selja hana á upp- boði og gefa peninginn til Barna- heilla.“ Hótelrekstur í Prag Frá New York lá leiðin til Prag. Guð- mundur Franklín var farinn að sjá það fyrir sér í hillingum að búa í gam- alli borg í Evrópu og hægja aðeins á. Þegar það atvikaðist svo að hótel í miðborg Prag endaði í höndunum á honum í gegnum viðskiptasamning ákváðu þau hjónin að flytja til Tékk- lands og reka hótelið. Hótelrekstur er eitthvað Guðmundur Franklín hafði aldrei komið nærri áður. „En ég hafði allnokkrum sinnum gist á hóteli og vissi hvernig ég vildi hafa hlutina. Ég fór eftir því og þetta gekk glimrandi vel.“ Eftir sjö ár fór hins vegar að halla undan fæti. Árið 2008 rann upp, kreppan skall á og túristarnir létu sig hverfa. „Verðið á gistinóttum hrundi úr 200 dollurum niður í 20 dollara. Árið 2007 hafði hótelum fjölgað mik- ið á svæðinu og það hjálpaði ekki til. Sjálf höfðum við opnað annað hótel. Það var ekki rétti tíminn til þess og í rekstri skiptir tímasetningin öllu. Við klikkuðum á því. En sem betur fer er alltaf Skilinn og farinn „Ég held að sorgin hafi komið seinna, þegar ég ætlaði að hringja en hann var ekki lengur á lífi. m y n d S iG Tr y G G u r a r i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.