Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Side 30
Helgarblað 21.–24. mars 201430 Fólk Viðtal hægt að selja góða hluti. Með því að selja hótelið náði ég að losa okkur úr þessari stöðu.“ Eiginkona hans flutti heim með börnin sumarið 2009. Guðmundur Franklín varð eftir til þess að ganga frá sölunni á hótelinu og kom heim í nóvember. Flokkurinn Fljótlega eftir heimkomuna fór Guð- mundur Franklín að velta viðjum samfélagsins fyrir sér. Svo upptekinn varð hann af samfélagslegum vanda- málum að hann talaði um skoðan- ir sínar alla daga þar til félagar hans fengu hann til að stofna stjórnmála- flokk. Aðallega til að losna við nöldrið í honum. Eða svo segir hann. Hægri grænir, flokkur fólksins, hafði það á stefnuskránni að afnema verðtryggingu og leiðrétta skuldir heimilanna. „Ég hafði nægan tíma til að hugsa og móta stefnuskrá flokks- ins, sem varð mun ítarlegri en ég lagði upp með. Margt af því hafði þó kom- ið fram áður. Ég var ekki að reyna að finna upp hjólið,“ segir Guðmundur Franklín þar sem hann situr í sófan- um og fylgist náið með manni sem gengur fram hjá glugganum í sér- merktum klæðnaði. Spyr síðan hvort þetta sé nokkuð stöðumælavörður. Tilhugsunin um mögulega stöðu- mælasekt truflar hann ekki lengi og hann heldur áfram: „Ég er ekki mjög pólitískur en ég sá snemma að skuldaniðurfelling yrði aðalmálið í kosningabaráttunni. Vandinn felst í því að fólk geti ekki keypt sér fasteign án þess að lenda í skuldafangelsi fyrir lífstíð. Fyrir utan það hvað leiguverðið er hátt hér á landi.“ Ekki kjörgengur Á tímabili mældist flokkurinn með meira fylgi en Vinstri græn í að- draganda kosninganna, eða um sex prósenta fylgi. Í apríl kom hins vegar í ljós að eftir áralanga búsetu erlendis hafði formanninum láðst að flytja lög- heimilið aftur til Íslands. Sem þýddi að hann var ekki á kjörskrá og var þar af leiðandi ekki kjörgengur. Frestur- inn til þess að flytja lögheimilið og komast þannig á kjörskrá var runninn út. Og sem íslenskur ríkisborgari bú- settur erlendis hefði hann þurft að sækja um að komast á kjörskrá mörg- um mánuðum fyrr. Fyrir mann í fram- boði var þetta vonlaus staða og Guð- mundur Franklín neyddist til að finna annan mann í sinn stað. „Veistu. Ég hef ofsalega lítinn áhuga á pólitík. En auðvitað var þetta klúður,“ viður- kennir hann. „Af því að ég tók þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni í október 2012 hélt ég að ég væri alveg öruggur. Mér datt ekki í hug að það gætu verið einhverjar reglur í gildi sem myndu allt í einu kippa undan mér fótun- um. Þegar ég uppgötvaði mistök mín var orðið of seint að bæta úr þeim. En ég er ekkert svekktur. Ímyndaðu þér hvernig það væri að vera þarna niður frá,“ segir hann og við Alþingi. Ölvunaraksturinn Satt best að segja lítur hann á sig sem sigur- vegara kosninganna. Af því að hann þurfti ekki að taka sæti á þingi en kom sín- um málum inn í um- ræðuna, eins og hann segir frá: „Okkar mál voru málin sem unnu. Skuldaniður- fellingin og þjóðarat- kvæðagreiðslan um ESB voru mál sem hinir flokkarnir öp- uðu upp eftir okkur. Þannig að við get- um með sanni sagt að Hægri grænir hafi verið áhrifaríkur þrýstihópur. Þegar við náðum flugi og vorum komin með nokkurra prósenta fylgi þá leist mér ekkert á blikuna. Ég hefði gert hvað sem var til að losna úr þessu. Svo mér leið ágætlega þegar þetta fór svona. Það var hálfgerður léttir. Því það er eitt að koma fram með hugmynd- ir, annað að hrinda þeim í framkvæmd.“ Guðmundur Franklín hélt engu að síður stöðu sinni sem formaður flokksins. En vand- ræðin héldu áfram. Tíu dög- um eftir að það uppgötvaðist að hann væri ekki kjörgengur sendi hann út yfirlýsingu á fjölmiðla þar sem hann játaði á sig ölvunarakstur. Í yfirlýsingunni sagðist hann hafa ver- ið í matarboði þar sem hann hefði drukkið hvítvín en verið stöðvaður við umferðareftirlit á leiðinni heim og látinn blása í blöðru. Áfengismagn hefði reynst vera yfir mörkum, um al- gjört dómgreindarleysi væri að ræða og þakkaði hann lögreglunni árvekn- ina. „Ég var tekinn fyrir of hraðan akstur eftir að hafa fengið mér einn bjór með Ara.“ Brúðkaupið Að stofna stjórnmálaflokk var ein besta ákvörðun lífsins. Sem og það að flytja til Ameríku, ganga í hjónaband og eignast börn. „Það er auðvitað það besta sem ég hef gert,“ segir hann um hjónabandið en verður allur hinn vandræðalegasti þegar hann er inntur eftir því hvar brúðkaupið hafi farið fram. „Ég man ekki hvað kirkjan heitir,“ viðurkennir hann svo. „Enda hafði ég aldrei komið þangað fyrr og aldrei aftur eftir þetta. En kirkjan stóð við Bústaðaveg, á æskuslóðum fyrrverandi eiginkonu minnar.“ Faðir Ásdísar var mikilsvirtur í samfé- laginu, Árni Vilhjálms- son, fyrrverandi pró- fessor við Háskóla Íslands, einn aðaleig- andi útgerðarfyrirtækis- ins Granda og einn auð- ugasti maður landsins. „Þrátt fyrir ólíkan bak- grunn fann ég aldrei fyrir stéttaskiptingu í okkar sambandi. Jú, pabbi hennar var vellauðugur en hann var mikill vin- ur minn. Hann kenndi mér að veiða og var hreint út sagt æðislegur maður. Við vorum mjög góðir vinir.“ Það var því erfitt að kveðja þegar Árni lést á síðasta ári, áttræður að aldri. Skilnaðurinn Um hálfu ári síðar fór eiginkona Guðmundar Franklíns fram á skiln- að. Hann vill lítið tjá sig um ástæður þess en segir að þau hafi gert samkomulag sín á milli. „Það var ekkert framhjáhald eða neitt slíkt í gangi. Málið er bara að ég funkera ekki í þessu þjóðfélagi. Mér finnst alveg ofboðslega erfitt að búa á Íslandi. Heimsmynd Íslendinga er svo skökk. Við höldum alltaf að all- ir séu alltaf að tala um okkur og að við skiptum máli, þegar við gerum það ekki. Það hvernig komið er fyrir þjóð- inni er vegna þess að agaleysið er al- gjört. Við höldum alltaf að allt reddist. Spillingin og viðbjóðurinn sem við- gengst hér er djöfullegur.“ Aðspurður hvernig þetta tengist hjónaskilnaði hlær hann og segist bara tala út í loftið. Aftur að skilnaðin- um: „Dísa er móðir barnanna minna og mér þykir afspyrnuvænt um hana. Við erum búin að vera gift í þrjátíu ár. Við erum búin að vera lengur saman en ekki. Ég er líka búinn að búa leng- ur erlendis en ekki. Í lífi hvers manns kemur alltaf að þeim tímapunkti að hann veltir því fyrir sér hvernig hann ætlar að verja framtíðinni. Ég er að flýja landið, af því að ég funkera betur í stærra sam- félagi. Hún á sínar vinkonur og sitt líf hér á Íslandi og hér vill hún vera. Þannig að við stöndum á tímamót- um. Við eigum ekki samleið lengur. Það er meginástæða þess að við erum að skilja en auðvitað kemur margt annað inn í það líka. Í kringum okkur er stórt og mikið fólk og eins gott að haga seglum eftir vindi. Auðvitað vildi ég að staðan væri önnur en ég get ekki tekið ákvarðanir fyrir annað fólk. Hún vildi skilnað og það er eitthvað sem ég þarf að lifa við. Eftir að hafa verið svona lengi í starfi þar sem ég var stöðugt að víla og díla um allt mögulegt er ég kominn með þykkja brynju og það kemur ekkert á óvart lengur. Ekki einu sinni þetta.“ Farinn úr landi Um leið og hún fór fram á skiln- að flutti Guðmundur Franklín út af heimilinu. Hann fékk inni á hóteli þar sem hann hefur búið síðan í október. „Ég trúi því að þegar þú ert búinn að taka ákvörðun þá þýðir ekki að ætla að skipta um skoðun seinna. Þannig að ég fór á hótel þar sem ég hef ver- ið í fínu hornherbergi og þarf ekki að hugsa um neitt. Ég þarf ekki einu sinni að elda. Það truflar mig ekki að vera fráskilinn. Í raun líður mér af- skaplega vel einum.“ Og nú er hann á leið úr landi. Nánar tiltekið til Danmerkur þar sem hann ætlar að reka lítið hótel í Gudhjem á Borgundarhólmi. Hann dregur fram símann og sýnir mynd- ir af huggulegu dönsku þorpi og litlu hóteli við sjávarsíðuna. „Ég hef lifað á loftinu síðustu mánuði. Eins og fugl- arnir. Þar til þetta datt upp í hend- urnar á mér. Þetta er eitthvað sem ég kann og ég mun nýta sumarið til að læra dönsku. Í haust ætla ég síðan að setjast á skólabekk og næra í mér heil- ann. Það er ástæða fyrir öllu. Þetta er ekki bara sól og sandur. Fyrst ég hef ekki gert neitt merki- legt enn er kannski kominn tími á það. Ég er svo mikill ævintýramað- ur að mig langar alltaf til þess að gera eitthvað spennandi og nú ætla ég að velja mér annan leikvöll. Þannig að ég er farinn – og segi bless.“ n „Peningarnir fóru til „money heaven“. Þetta brann allt upp í hruninu. „Ég er farinn – og segi bless Versta lífsreynslan Guðmundur stóð og horfði á tvíburaturnana hrynja. Áður hafði hann lent í annarri hryðjuverkaárás en nú ákvað hann að láta gott heita og fara. Verðbréfasalinn Í þrettán ár snerist lífið um að græða peninga en Guð-mundur fékk aldrei nóg. Myndin var tekin árið 1990 fyrir Frjálsa verslun. Fjallagarpur Á tímabili ákvað Guðmundur að ganga á fjöll til að sanna að það væri ekkert mál. Hér er hann á Mont Blanc. m y n d S ig tr y g g u r a r i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.