Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Síða 42
Helgarblað 21.–24. mars 201442 Sport
Chelsea verður meistari
n mourinho og félagar eiga auðveldustu andstæðingana eftir n meistaradeildin gæti hins vegar komið í bakið á þeim n City hefur tapað fæstum stigum
C
helsea á áberandi léttari and
stæðinga eftir en hin þrjú
liðin sem bítast um Englands
meistaratitilinn í knattspyrnu.
Manchester City, sem á þrjá
leiki til góða og vinnur titilinn ef það
vinnur síðustu 11 leikina, á mjög
erfiða leiki eftir, rétt eins og Arsenal.
Liverpool á einnig frekar erfiða
leiki eftir í samanburði við Chelsea.
Verði úrslitin samkvæmt bókinni er
því líklegast að Chelsea verði Eng
landsmeistari í vor. Liðið hefur núna
fjögurra stiga forystu á næsta lið.
Liðið á aðeins eftir einn leik
gegn liði sem fær tvö stig eða fleiri
að meðaltali út úr viðureignum sín
um. Samkvæmt úttekt DV á liðið
eftir þrjá heimaleiki eftir gegn liðum
sem fá eitt stig eða ekkert á útivöll
um að jafnaði. Liðið á eftir fjóra
miðlungs erfiða leiki (þeirra erfið
astur er leikurinn um næstu helgi á
móti Arsenal).
Auðveldur, miðlungs
eða erfiður andstæðingur
Þessar skilgreiningar miðast við að
andstæðingur sem hefur fengið eitt
stig eða minna að meðaltali í leik,
ýmist á heimavelli eða útivelli eftir
því hvað við á, flokkast sem auðveld
ur. Miðlungs erfiður andstæðingur
er lið sem hefur fengið á bilinu eitt
til tvö stig að meðaltali í leik. Erfið
ur leikur er gegn liði sem hefur feng
ið tvö stig eða meira að jafnaði. Það
gildir til dæmis um útileiki Arsenal
og City gegn Everton. Everton hefur
fengið 2,36 stig að meðaltali á sínum
Baldur Guðmundsson
Einar Þór Sigurðsson
baldur@dv.is/ einar@dv.is
Chelsea
– 66 stig
n spilaðir leikir: 30
n sigrar: 20
n Jafntefli: 6
n töp: 4
n titlar: 4
n síðast meistarar: 2010
Leikir sem eru eftir: Fjórir heimaleikir, fjórir útileikir
Leikir gegn topp fimm: Tveir
Chelsea þarf á sigri að halda gegn Arsenal á laugardag eftir vonbrigðin gegn Aston Villa
um liðna helgi. Eftir Arsenal-leikinn tekur við tímabil þar sem liðið mætir tiltölulega
þægilegum andstæðingum; Crystal Palace (17. sæti), Stoke (11. sæti) og Sunderland (18.
sæti). Liðið verður að fá níu stig úr þeim leikjum ætli það sér að hampa Englandsmeist-
aratitlinum. Eftir þessa leiki tekur við stórleikur gegn Liverpool á Anfield. Vel gæti farið
að sá leikur skeri úr um hvaða lið stendur uppi sem sigurvegari. Lokaleikir Chelsea í
deildinni eru svo gegn Norwich (15. sæti) áður en liðið heimsækir Cardiff (19. sæti) á
útivelli í lokaumferðinni.
Ályktun: Chelsea mætir fjórum af sex neðstu liðunum í síðustu átta leikjunum sem
þýðir að liðið á eitt auðveldasta prógrammið eftir af toppliðunum fjórum.
Chelsea er þó eina liðið sem enn er eftir í Meistaradeild Evrópu og komist liðið
lengra en í 8-liða úrslit gæti það haft áhrif á lokasprettinum
þegar þreyta fer að sækja að leikmönnum.
liverpool
– 62 stig
n spilaðir leikir: 29
n sigrar: 19
n Jafntefli: 5
n töp: 5
n titlar: 18
n síðast meistarar: 1990
Leikir sem eru eftir: Fimm heimaleikir, fjórir útileikir
Leikir gegn topp fimm: Þrír
Liverpool er líklega heitasta lið úrvalsdeildarinnar eins og sakir standa. Liðið hefur
skorað 18 mörk í síðustu 5 leikjum sínum sem allir hafa unnist. Liðið er auk þess eina lið
deildarinnar sem enn hefur ekki tapað leik á árinu 2014. Liverpool mætir Cardiff á útivelli
um helgina áður en liðið tekur á móti Sunderland og Tottenham í lok mánaðarins. Upp
úr miðjum apríl gæti tímabilið ráðist; þann 14. apríl fá þeir Manchester City í heimsókn
áður en þeir taka á móti Chelsea hálfum mánuði síðar. Góðu fréttirnar eru
þær að Liverpool hefur aðeins tapað einum leik á heimavelli í allan vetur.
Liverpool endar tímabilið á leikjum gegn Crystal Palace á útivelli (17.
sæti) og Newcastle (8. sæti) á heimavelli.
Ályktun: Úrvalsdeildin er eina verkefni Liverpool til vors; engin
Evrópukeppni eða bikarkeppni er til að trufla liðið. Ef liðið nær í sex stig
úr heimaleikjunum gegn Chelsea og City ætti titillinn að verða þeirra.
Liðið er á ótrúlegu skriði og fátt sem bendir til þess að
það breytist.
Staðan
1 Chelsea 30 20 6 4 56:23 66
2 Liverpool 29 19 5 5 76:35 62
3 Arsenal 29 19 5 5 53:28 62
4 Man.City 27 19 3 5 71:27 60
5 Tottenham 30 16 5 9 37:38 53
6 Everton 28 14 9 5 40:28 51
7 Man.Utd 29 14 6 9 46:34 48
8 Southampton 30 12 9 9 43:37 45
9 Newcastle 29 13 4 12 37:40 43
10 Aston Villa 29 9 7 13 32:38 34
11 Stoke 30 8 10 12 32:44 34
12 West Ham 29 8 7 14 32:38 31
13 Hull 29 8 6 15 30:37 30
14 Swansea 29 7 8 14 38:43 29
15 Norwich 30 7 8 15 24:48 29
16 WBA 29 5 13 11 33:43 28
17 Cr.Palace 29 8 4 17 19:38 28
18 Sunderland 27 6 7 14 26:42 25
19 Cardiff 30 6 7 17 23:52 25
20 Fulham 30 7 3 20 30:65 24
Næstu leikir
22.3.14 Chelsea - Arsenal
22.3.14 Everton - Swansea
22.3.14 Cardiff - Liverpool
22.3.14 Norwich - Sunderland
22.3.14 Newcastle - Cr. Palace
22.3.14 Man. City - Fulham
22.3.14 Hull - WBA
22.3.14 West Ham - Man. Utd
23.3.14 Tottenham - S'ton
23.3.14 Aston Villa - Stoke
Aron fær
samkeppni
Aron Jóhannsson, leikmaður AZ
Alkmaar í Hollandi og bandaríska
landsliðsins, fær meiri samkeppni
um framherjastöðuna í lands
liðinu á næstunni. Julian Green,
einn efnilegasti leikmaður Bayern
München, tilkynnti í vikunni að
hann hygðist leika fyrir lands
lið Bandaríkjanna í framtíðinni.
Green, sem er 18 ára, er fæddur í
Bandaríkjunum en alinn upp að
mestu í Þýskalandi. Hann hefur
leikið vel fyrir varalið Bayern
München að undanförnu, en í
heildina hefur hann skorað 15
mörk í 20 leikjum. Jürgen Klins
mann, landsliðsþjálfari Bandaríkj
anna, sagði að hann væri himin
lifandi með ákvörðun Greens.
Coleman ekki
til United
Roberto Martinez, stjóri Everton,
gefur lítið fyrir þann orðróm að
Seamus Coleman, hægri bak
vörður félagsins, sé á leið til Man
chester United. Colemen er einn
allra besti bakvörður deildarinn
ar, en þessi 25 ára Íri hefur átt frá
bært tímabil með Everton. „Þeir
hljóta að vera í viðræðum við
annan Coleman því við höfum
aldrei átt í viðræðum við neinn
um hann,“ sagði Martinez við
breska fjölmiðla og bætti við að
Coleman væri orðinn mjög mik
ilvægur hluti af Evertonliðinu.
Þrátt fyrir að leika sem bakvörður
er Coleman næstmarkahæsti
leikmaður Everton í deildinni á
tímabilinu með sex mörk, fjórum
færri en Romaleu Lukaku og jafn
mörg mörk og Kevin Mirallas.
spurs á
toppnum
San Antonio Spurs er með hæsta
vinningshlutfall allra liða í banda
rísku NBAdeildinni í köfubolta.
Aðfaranótt fimmtudags vann liðið
sinn ellefta leik í röð og er vinn
ingshlutfallið nú 76,1 prósent.
Oklahoma City Thunder er í öðru
sæti Vesturdeildarinnar með 73,1
prósents vinningshlutfall en Los
Angeles Clippers og Houston
Rockets koma þar á eftir.
Meistari síðustu tveggja ára,
Miami Heat, er með næstbesta
vinningshlutfallið í Austur
deildinni, eða 69,7 prósent. Indi
ana Pacers virðist ætla að vinna
Austurdeildina, en liðið er með
73,5 prósenta vinningshlutfall.
Flest lið deildarinnar eiga eftir að
leika um 20 leiki áður en úrslita
keppnin hefst.