Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 54
Helgarblað 21.–24. mars 201454 Fólk
„Þessi 87 ára öðlingur
er með ólíkindum“
Frændurnir Skapti Ólafsson og Siggi Björns hittust í fyrsta sinn
V
ið Pálmi Sigurhjartar
píanó leikari, hittumst í
Berlín, þar sem ég bý, í
fyrravetur þegar Pálmi
bjó hér tímabundið,“ seg-
ir Sigurður Björnsson eða Siggi
Björns tónlistarmaður eins og
hann er jafnan kallaður, um til-
urð þess að hann og Skapti Ólafs-
son söngvari tóku saman upp lagið
Tveir vinir. Þar leikur sameiginleg-
ur vinur þeirra beggja, Pálmi Sig-
urhjartarson stórt hlutverk. Skapti
er hvergi nærri hættur að syngja
þrátt fyrir að vera orðinn 87 ára en
hann var hvað þekktastur upp úr
miðri síðustu öld þegar hann sló í
gegn með lög eins og Allt á floti alls
staðar og Syngjum hátt og dönsum.
Skapti gaf út sína fyrstu sólóplötu
árið 2008, þá 81 árs.
Fannst þeir líkir
Það er skemmtileg sagan af því
hvernig samstarf þeirra Sigga og
Skapta kom til. „Þegar Pálmi var
hér úti í Þýskalandi þá héldum við
nokkra tónleika saman og byrjuð-
um að semja tónlist saman. Þetta
var í fyrsta skipti sem við Pálmi
gerðum eitthvað saman og það fór
að pirra Pálma eitthvað að það var
svo margt við mig sem kom honum
kunnuglega fyrir sjónir án þess að
hann hefði orð á því við mig þá. Það
var svo ekki fyrr en að við sátum í bíl
á þýskri hraðbraut að Skapti Ólafs-
son barst í tal, en Pálmi og hann
höfðu starfað saman við leikhús-
verk fyrir nokkrum árum og orðið
góðir vinir. Þegar ég sagði Pálma að
við Skapti værum náfrændur, hló
hann mikið og sagði að þarna væri
komin skýringin því sem kom svo
kunnuglega fyrir sjónir – við vær-
um svo líkir að ýmsu leyti. Ég hafði
aldrei hitt Skapta þrátt fyrir þenn-
an skyldleika, hafði aldrei mætt á
ættarmótin sem hann kom á og við
höfðum alltaf farið á mis við hvorn
annan,“ segir Siggi.
Mikil gleði
Það var svo í síðustu viku sem ná-
frændurnir Siggi og Skapti hittu-
st í fyrsta skipti fyrir tilstilli Pálma.
Það var mikið fjör í hljóðverinu
þegar þeir loksins hittust. „Það var
þegar við Pálmi ákváðum að taka
upp nokkur þessara laga sem við
höfðum unnið að úti og að ég kæmi
heim í málið. Pálmi hringdi svo í
mig rétt áður en ég kom til Íslands í
upptökurnar og sagðist vera búinn
að semja lag fyrir mig og Skapta og
hvort við ættum ekki bara að taka
það upp. Ég samþykkti það með
mikilli gleði. Hann hafði svo sam-
band við öldunginn og með sín 87
ár sló Skapti til og mætti í stúdíó,“
segir Siggi.
Skapti fór á kostum
Siggi segir lagið sem Pálmi samdi
fyrir þá frændur vera í djössuðum
stíl en texti lagsins er eftir Kára
Waage. Þeir skemmtu sér vel í stúd-
íóinu en Skapti hafði aldrei heyrt
lagið áður og lærði það á staðn-
um. „Þetta varð hin skemmtileg-
asta uppákoma og mér þótti mik-
ið til koma að vera syngja dúett
með manni sem var „on the road“
löngu áður en ég fæddist og er ég
ekki með yngstu mönnum. Skapti
fór á kostum og var greinilegt að
þetta hafði hann gert áður, röddina
þekkir maður aftur þó það séu
komin mörg ár síðan hann þeyttist
um sveitir landsins í spilamennsku.
Þessi 87 ára öðlingur er með ólík-
indum,“ segir Siggi um frænda sinn
Skapta, en lagið er væntanlegt í
spilun á næstu vikum. n
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Engu gleymt Skapti sýndi það og sann-
aði að þrátt fyrir að vera orðinn 87 ára þá
getur hann enn sungið. Myndir SjöFn ÓlaFSdÓttir
ræddu málin Það var Pálma Sigurhjartarsyni að þakka að frændurnir hittust. Hann
samdi lagið fyrir þá.
„Skapti fór á
kostum
Þ
átturinn fjallar um misheppn-
aða rannsóknarblaðamanninn
Hjálmar sem langar til að vera
frægur og áhrifamikill en það
gengur ekkert upp hjá honum,“ segir
Hjálmar Örn Jóhannsson sem, ásamt
Sigurði Hannesi Ásgeirssyni, stendur
að baki þáttunum Háski sem sýndur
er á sjónvarpsstöðinni Bravó.
„Það hafði lengi verið draumur
hjá mér að gera sjónvarpsþátt,“ segir
Hjálmar. Þegar þeir Sigurður fréttu af
sjónvarpsstöðinni Bravó þá sendu þeir
inn prufuþátt til stjórnenda stöðvar-
innar sem veittu þeim tækifæri til þess
að láta ljós sitt skína. „Þetta er ótrú-
lega skemmtilegt og sérstaklega þar
sem 20 ára draumur er að rætast,“ seg-
ir Hjálmar sem starfaði í fjölda ára sem
bílasali en faðir hans á bílaumboðið
Brimborg. Fyrir nokkrum árum venti
hann hins vegar kvæði sínu í kross og
ákvað að róa á ný mið. „Núna vinn ég á
leikskóla fyrir skammarlega léleg laun
en hef gaman af,“ segir Hjálmar sem er
óhræddur við að taka áhættu og prófa
nýja hluti. Þátturinn Háski er hluti af
því en þar leikur hann einmitt nafna
sinn Hjálmar.
„Karakterinn Hjálmar er dálítið
misheppnaður. Það gengur eiginlega
ekkert upp hjá honum en hann langar
rosalega að vera góður rannsóknar-
blaðamaður og á sér stóra drauma
en er engan veginn tilbúinn að leggja
mikið á sig.“ Hjálmar lítur mikið upp
til Sölva Tryggvasonar sem vill þó lítið
með hann hafa en Sölvi kemur við
sögu í þáttunum. „Í næsta þætti reynir
Hjálmar að hringja í Sölva þegar hann
sér hann á förnum vegi en sér svo
Sölva líta á símann og setja hann aftur
í vasann þegar hann sér að Hjálmar er
að hringja. Við gerð þáttanna sækja
þeir innblástur í eigið líf. „Já, ég lenti
einu sinni í svipuðu. Ég hringdi í vin
minn sem var að rölta Laugaveginn
og sá hann taka upp símann og setja
hann í vasann þegar hann sá mig hr-
ingja,“ segir Hjálmar og skellir upp úr.
Hægt er að sjá Háska-þættina á
sjónvarpsstöðinni Bravó og einnig á
heimasíðu stöðvarinnar bravotv.is. n
viktoria@dv.is
„Lengi verið draumur að gera sjónvarpsþátt“
Hjálmar leikur misheppnaða rannsóknarblaðamanninn Hjálmar
Háski
Hjálmar og
aðstoðar-
maðurinn,
sem Sigurður
Hannes
leikur.
Ríkisstjórn
Kína mætti
Barði Ólafsson og Bang Gang eru
á tónleikaferðalagi um heim-
inn og hafa spilað í sjö borgum í
Kína, frá Peking til Guang Zhou.
Barði er samhliða tónleik-
haldinu að leggja lokahönd á
fjórðu Bang Gang-plötu sína
sem von er á í lok ársins 2014.
Tónleikahaldið hefur samkvæmt
heimildum DV gengið vel og
verið afar forvitnilegt á köflum
en á einum tónleikunum voru
viðstaddir fjölmargir úr ríkis-
stjórn Kína.
Orðin leið á
leikhúsinu
Leikkonan Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir segir frá því í viðtali við
Séð og heyrt að hún sé á leið í
tímabundið leyfi frá leikhús-
inu þar sem hún hafi fundið fyrir
leiða. Fríinu ætlar hún að eyða í
útlöndum með börnunum sínum.
„Ég hef þó fundið fyrir leiða upp á
síðkastið og þá sérstaklega þegar
ég frumsýni eitt verk á föstudegi
og byrjuð að æfa fyrir nýtt næsta
mánudag. Það er engum leikara
hollt,“ segir hún í viðtalinu.
Kenndi nemum
Beyoncé-dansa
Sirkuslistamaðurinn, dans-
kennarinn og athafnakonan
Margrét Erla Maack tók sig
til á dögunum og bauð fram-
haldsskólanemum upp á frían
danstíma. Ástæðan er verkfall
framhaldsskólakennara sem
nú stendur yfir en fjölmargir
lögðu leið sína í danstímann þar
sem nemendur lærðu að dansa
eins og sjálf poppdrottningin
Beyoncé. Margrét skrifaði um
uppátækið á Facebook-síðu sína
á dögunum þar sem hún skor-
aði á fleiri að standa fyrir ein-
hverju svipuðu fyrir eirðarlausa
framhaldsskólanema.
„Gaf nemum í verkfalli
Beyoncé-danstíma. Mæting var
vonum framar. Skora á fleiri að
gefa menntaskólanemum til-
breytingu á þessum tímum,“
skrifaði Margrét.
„Þegar ég
sagði Pálma
að við Skapti
værum náfrændur,
hló hann mikið