Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Page 63
Helgarblað 21.–24. mars 2014 Páskaferðir 7
F
iskurinn er klár og í raun og veru
er þessi kuldi mjög góður fyrir
bleikjuna. Henni líður mjög vel
í köldu vatni.“ Þetta segir Ingi
mundur Bergsson, stofnandi og fram
kvæmdastjóri Veiðikortsins.
Segja má að vorveiðin hefjist
formlega eftir rúma viku, þann 1.
apríl, þó veiða megi í nokkrum
vötnum allt árið eða þegar ísa leys
ir. 1. apríl markar oft upphaf veiði
tímabilsins hjá stangveiðimönnum.
Það er því handan við hornið. Veiði
kortið veitir aðgang að 36 vatnasvæð
um, landið um kring. Kortið kostar
6.900 krónur fullu verði en stéttar
félögin veita flest góðan afslátt.
Á meðal þeirra vatnasvæða
sem verða opnuð núna 1. apríl
eru Hraunsfjörður á Snæfellsnesi,
Meðal fellsvatn í Kjós, Vífilsstaðavatn
í Garðabæ og Elliðavatn. Ingimund
ur segir að óvenju mikill ís hafi verið
á vötnum á suðvesturhorninu í vetur.
„Ég kíkti á Vífilsstaðavatn í fyrradag
og það er byrjað að ryðja sig,“ en
vatnið er afar vinsælt á vorin – enda
stutt fyrir íbúa höfuðborgarsvæðis
ins að fara. Ingimundur segir að ís
inn sé meiri fyrir norðan enda verði
flest vötnin þar ekki opnuð fyrr en 1.
maí.
Víða í vötnum á Íslandi hefur
bleikjan átt erfitt uppdráttar undan
farin ár. Urriðinn hefur sótt á. Ingi
mundur segir, þó hann sé ekki fiski
fræðingur, að kuldinn sem verið
hefur í vetur sé ef til vill góður fyrir
bleikjuna. Ef til vill eigi hún betri tíð
í vændum ef veturnir fari að verða
kaldari á nýjan leik.
Tvö ný vötn hafa bæst við Veiði
kortið þetta árið; Vestmannsvatn í
mynni Reykjadals í S.Þingeyjarsýslu
og Gíslholtsvatn í Holtum.
Veiða má á flugu, maðk og spún
alls staðar þar sem veiðikortið gildir
að frátöldu Þingvallavatni, en sá
háttur er nú á að aðeins má veiða á
flugu frá opnun þar, 20. apríl, til 1.
júní. Eftir það má veiða á maðk og
spún líka. n baldur@dv.is
Fiskurinn er klár
Vorveiðin hefst formlega 1. apríl
Fiðringur Aðeins 10
dagar eru í vorveiðina.
Barcelona fyrir
120 þúsund
Lággjaldaferðasíðan Price of
Travel hefur síðastliðin ár haldið
úti svokallaðri bakpokaferða
mannavísitölu sem sýnir hvaða
borgir í Evrópu eru ódýrastar
sem og dýrastar fyrir ferða
menn. Vísitalan tekur saman
kostnað við næturgistingu á
ódýrasta farfuglaheimili borg
arinnar sem þó fær góða dóma,
tvær ferðir með almennings
samgöngum, þrjár ódýrar mál
tíðir á dag og þrjá ódýra bjóra
á dag. Það kemur eflaust fáum
á óvart að allar ódýrustu borgir
Evrópu eru í austurhluta álfurn
ar. Búkarest í Rúmeníu er ódýr
ust evrópskra borga en þar getur
ferðalangur lifað á tæpum þrjú
þúsund krónum á dag.
Ódýrasta borgin sem Ís
lendingar fjölmenna til er
Tenerife á Kanaríeyjum. Sú borg
er í sautjánda sæti yfir ódýrustu
borgir Evrópu
og er sam
kvæmt vísi
tölunni vel
hægt að
lifa á um
sex þús
und krón
um á dag þar.
Af þeim borgum í Evrópu sem
flogið er beint til frá Íslandi er
Barcelona á Spáni ódýrust, þar
þarf daglegt uppihald ekki að
kosta meira en tæpar átta þús
und krónur á dag. Miðað við að
flug sé pantað tímanlega þarf
heildarkostnaður við vikuferða
lag til Barcelona ekki að kosta
meira en um hundrað og tutt
ugu þúsund krónur á mann.
Sé hins vegar skoðað hvaða
borgir Evrópu séu dýrastar fyrir
ferðalanga má sjá að
áætlunarstaðir
sem eru vin
sælir meðal
Íslendinga
raða sér í
efstu sætin.
London er
næstdýrasta
borgin, þar kostar
dagurinn að meðaltali um tutt
ugu og fimm þúsund krónur.
Höfuðborgir Norðurlanda
eru samkvæmt vísitölunni
sömuleiðis mjög dýrar borgir
fyrir íslenska ferðaferðamenn,
Helsinki og Kaupmannahöfn
þó ódýrastar en þar kostar
dagurinn um tuttugu þúsund.
Til gamans má geta að Reykja
vík er langódýrust höfuðborga
Norður landa en samkvæmt vísi
tölunni kostar dagurinn þar að
jafnaði um fimmtán þúsund
krónur.
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
n Rokkhátíð alþýðunnar tíu ára n Best að huga snemma að gistingu
A
ð vera vel skóaður og
nestaður, er það ekki alltaf
gott ráð?“ segir Birna Jón
asdóttir, rokkstjóri tónlist
arhátíðarinnar Aldrei fór ég
suður, aðspurð hvað gestir hátíðarinn
ar eigi að hafa í huga, en hátíðin ísfirska
fagnar tíu ára afmæli sínu um páskana.
„Ég myndi mæla með góðum
skóm, því ert stendur á skemmugólfi
eins lengi og þú þolir að vera á tón
leikum þannig að það er ekki gott að
vera á óþægilegum hörðum hæla
skóm eða strigaskóm sem blotna um
leið og komið er í snjó þannig að það
borgar sig að vera vel búinn til fótanna
til að halda á sér hita. Svo getur veðrið
breyst á svipstundu.“ Hún segir engan
vanda að vera hvort tveggja hlýtt og
töff. „Lopapeysurnar hafa verið ríkj
andi síðustu ár og það er oft talað um
lopapeysufólkið sem kemur að sunn
an,“ segir Birna. „Það eru ýmsar týpur
sem maður sér sem maður ímyndar
sér að væru aldrei í lopapeysu nema
þegar þær fara út á land á rokkhátíð.“
Allra veðra von
Flug til Ísafjarðar tekur aðeins um
hálftíma en ef fólk ætlar að keyra
vestur mælir Birna með því að fólk
sé á vel útbúnum bílum því þrátt fyrir
að komið sé fram í apríl sé allra veðra
von. Það gildi því það sama og með
klæðnaðinn á hátíðinni að vera við
öllu búinn.
Birna segir mikilvægt fyrir þau
sem ætla á hátíðina að fara að huga að
gistingu. „Það er fljótt að bókast upp
og ekki seinna vænna að fara að vinna
í þeim málum. Bærinn fyllist og erfitt
að mæta bara á svæðið og vera ekki
með fyrirfram bókaða eða ákveðna
gistingu. Ef það er allt uppbókað á
Ísafirði er upplagt að kíkja á bæjarfé
lögin í kring, Bolungarvík, Súðavík,
Flateyri og Suðureyri og ýmsa staði í
grenndinni. Þannig að það eiga allir
sem vilja að komast fyrir,“ segir hún.
Pakkfullt af snjó
Skíðavika fer einnig fram á Ísafirði um
páskana og hefst hún á miðvikudegi
og stendur alla páskahelgina. „Skíða
svæðið er troðfullt af snjó þannig að
ég myndi ekki hika við að hafa með
mér skíðagræjurnar ef maður hefur
gaman af slíku. Hér er líka endalaust
hægt að labba og njóta,“ segir Birna og
bætir við: „Svo eru sundlaugar í öll
um bæjarkjörnum og sniðugt að hafa
sundfötin með sér til að skella sér í
sund eftir skíðin eða til að fríska sig
upp daginn eftir góða tónleika.“
Ljósmyndasýning á afmælisári
Í tilefni af 10 ára afmæli hátíðarinnar
verður efnt til ljósmyndasýningar
með myndum af hátíðinni gegnum
árin en enn hefur ekki komið fram
hvar hún verður sett upp.
Undirtitillinn „Rokkhátíð alþýð
unnar“ vísar í það að ókeypis er inn
á hátíðina og engin miðaútgáfa. Það
þýðir að oft getur orðið ansi þröngt
á þingi í skemmunni. Auk þess fær
hvert band einungis 20 mínútur til
að spila og sitja allar hljómsveitir við
sama borð hvað það varðar. Enginn
fær greitt fyrir að koma fram á hátíð
inni og allir sem starfa að henni gera
það í sjálfboðavinnu en hátíðin nýtur
ýmissa styrkja.
Hátíðin fer fram föstudaginn
18. og laugardaginn 19. apríl næst
komandi í húsnæði Gámaþjónustu
Vestfjarða þar sem hátíðin hefur verið
haldin undanfarin ár. n fifa@dv.is
Lopapeysufólkið
kemur að sunnan
Fram koma
Endanlegur listi í næstu viku
n Maus
n Retro Stefson
n Cell 7
n Mammút
n Grísalappalísa
n Tilbury
n DJ. flugvél og
geimskip
n Glymskrattinn
n Sigurvegari
Músíktilrauna
Grísalappalísa
Ein fjölmargra
hljómsveita sem
koma fram á
Aldrei fór ég suður
í ár. mynd dAvíð þór