Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 8
Páskablað 15.–22. apríl 20148 Fréttir
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Ólíkar skoðanir á hugmyndum ASÍ um félagslegt húsnæðiskerfi
A
lþýðusamband Íslands
boðar hugmyndir um nýtt
félagslegt húsnæðiskerfi á
vegum sveitarfélaganna í
nýútgefinni skýrslu. Kerfið
á til að mynda að koma til móts við
þann hóp sem ekki fær að njóta
skuldaleiðréttinga ríkisstjórnarinn-
ar. ASÍ segir að stórir hópar í sam-
félaginu búi við óbærilega háan
húsnæðiskostnað og ráði ekki við
markaðsleigu.
Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs og borgarstjóraefni
Samfylkingarinnar, segir að hug-
myndir ASÍ séu í takti við það sem
Samfylkingin boðar varðandi hús-
næðismál. „Við lítum á okkur sem
mikla bandamenn, borgin og verka-
lýðshreyfingin, í þessum húsnæðis-
málum.
Það er ákveðinn hópur í sam-
félaginu sem mun alltaf eiga mjög
erfitt með að greiða þá leigu sem að
hinn svokallaði leigumarkaður kall-
ar eftir ef ekkert annað kemur til.
Þess vegna erum við að þróa leið-
ir til þess að ná leiguverðinu niður í
gegnum nýja hugsun,“ segir Dagur.
„Við erum að hugsa um húsnæð-
ismarkað fyrir alla, en ekki bara þá
sem hafa mikið fé á milli handanna
og geta keypt dýrar og fínar eignir.“
„Það á að láta markaðinn
um þetta“
Aðspurður um hugmyndir ASÍ
segir Halldór Halldórsson, borgar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins, að við
fyrstu sýn líti þetta út fyrir vera meiri
félagsvæðing húsnæðiskerfisins en
nú þegar er. „Það á að láta markaðinn
um þetta.“
Varðandi skort á litlum íbúðum
telur Halldór að markaðslausnirnar
leysi það betur en allt annað. „Gjald-
skrárkerfi Reykjavíkurborgar vinn-
ur gegn þessu markmiði eins og það
er núna. Við viljum breyta því,“ seg-
ir Halldór og telur að fast verð á
hverja íbúð geri það óhagkvæmara
að byggja smærri íbúðir. Þessu vilji
hann breyta með því að breyta gjald-
skránni. Sömuleiðis þurfi að finna
leiðir til að lækka lóðaverð fyrir al-
mennan íbúðamarkað og auka lóða-
framboð.
Halldór segir Sjálfstæðisflokkinn
ekki vera á sömu bylgjulengd og Sam-
fylkingin og ASÍ varðandi félagslegt
húsnæðiskerfi en hann sé þó tilbúinn
að skoða allar lausnir. „Við vörum við
nálgun þar sem skattgreiðendur eigi
að taka á sig mismuninn, það er ekki
góð framtíðarnálgun.“
Gæti lagast af sjálfu sér
„Það geta allir lækkað leiguna ef þeir
fá einhvern annan til að borga,“ segir
Sigurður Helgi Guðjónsson, formað-
ur Húseigendafélagsins. Hann seg-
ir vandamálið byggja á því að leigan
sé of há til að fólk hafi efni á að borga
hana en of lág til að standa undir
kostnaði. „Það er gjá þarna á milli.
Byggingarkostnaðurinn er svo hár
að leigan sem fæst að lokum stendur
ekki undir honum.
Kaupmáttur þyrfti að aukast og
byggingarkostnaður og vextir að
lækka, þá myndi þetta lagast af sjálfu
sér,“ segir hann.
„Við erum hlynntir aðgerðum til
að koma til móts við þá sem verst
eru staddir. Það þarf einhver úrræði
handa þeim. En hvort það sé ná-
kvæmlega þetta sem dugir, svona
stórt og mikið kerfi og húsnæðissam-
vinnufélag, ég sé það ekki ganga alveg
upp en við erum ekki búnir að skoða
þetta til hlítar.“
Fyrirfinnst víða í Evrópu
Alþýðusamband Íslands seg-
ir í nýútgefinni skýrslu að félags-
legt húsnæðis kerfi sé að finna víða
í Evrópu. Þar nái félagslega hús-
næðiskerfið til um fimmtungs allra
íbúða í Evrópusambandinu og er
eignarhaldið almennt í höndum hús-
næðissamvinnufélaga, búseturéttar-
félaga eða húsfélaga í eigu sveitar-
félaga. Það er þó aðeins í Austurríki,
Bretlandi og Írlandi þar sem sveitar-
félög eru beinir eigendur að íbúðum.
Ef miðað er við reynslu Norður-
landanna þyrfti 20% alls íbúðarhús-
næðis að vera með stuðningi fyrir
tekjulága einstaklinga en á Íslandi er
hlutfallið einungis 5% samkvæmt Al-
þýðusambandi Íslands. n
„Það á að láta
markaðinn um þetta“
Ekki góð framtíðarnálgun
Halldór er tortrygginn á aukna félagsvæð-
ingu húsnæðiskerfisins. Mynd ir SiGtryGGur Ari
dagur B. Eggertsson
Hugmyndir Samfylkingar
og ASÍ eru í takt.
Það þarf einhver úrræði Er óviss um
hvort að félagslegt húsnæðiskerfi er það
sem dugi fyrir verst stöddu hópana.
Mynd KArl PEtErSSon
„Við erum að hugsa
um húsnæðis-
markað fyrir alla, en ekki
bara þá sem hafa mikið
fé á milli handanna.
Salka Margrét Sigurðardóttir
salka@dv.is
Slóðar í
umferðinni
Lögreglan á Selfossi hafði afskipti
af sex ökumönnum sem grun-
aðir voru um fíkniefnaakstur
og tveimur fyrir ölvunarakstur
í umdæminu í síðustu viku. Að
sögn lögreglu eru þetta slæm
tíðindi enda vont að hafa slíka
ökumenn í umferðinni. Þá kærði
lögreglan á Selfossi tíu ökumenn
fyrir hraðakstur og tvo fyrir að
tala í síma undir stýri án hand-
frjáls búnaðar. Að auki voru tveir
kærðir fyrir að nota ekki öryggis-
belti og tveir ökumenn reyndust
vera án ökuréttinda og aka á
ótryggðri bifreið. Sekt fyrir að aka
ótryggðri bifreið nemur 30 þús-
und krónum.
Hagvöxtur
eykst um
3 prósent
Hagstofa Íslands spáir því að hag-
vöxtur verði 2,7 prósent á þessu
ári og 3 prósent árið 2015. Þetta
kemur fram í nýrri þjóðhagsspá
sem Hagstofan gaf út á föstudag.
Í spánni er reiknað með því að
einkaneysla muni aukast um 3,5
prósent á þessu ári og fjárfesting
um 9,2 prósent. Árið 2015 er reikn-
að með að einkaneysla aukist um
3,3 prósent og nærri 3 prósent
á ári árin 2016 til 2018. Þá mun
fjárfesting aukast um 18,2 pró-
sent árið 2015 og verður vaxandi
ef frá er talið árið 2017. „Áætlun
ríkisstjórnarinnar um lækkun
verðtryggðra íbúðalána ásamt
aukningu ráðstöfunartekna, sem
meðal annars má rekja til styrk-
ingar vinnumarkaðar, styðja við
einkaneyslu á spátímanum. Spáð
er 2,6 prósenta verðbólgu árið
2014, 3,4 prósenta árið 2015 og
3,1 prósents árið 2016, en undir
þremur prósentum eftir það.
Kjarasamningum er að mestu lok-
ið á almennum vinnumarkaði en
lausir kjarasamningar opinberra
starfsmenn viðhalda nokkurri
óvissu um launa- og verðlagsþró-
un,“ segir á vef Hagstofu Íslands.
Aukinn stuldur á reiðhjólum
Hjólreiðafólk hvatt til að ganga tryggilega frá hjólum sínum
R
eiðhjólaþjófnuðum fjölgaði í
mars en það kemur fram í af-
brotatölfræði lögreglustjór-
ans á höfuðborgarsvæðinu
fyrir marsmánuð. Með hækkandi sól
og betra veðurfari tekur hjólreiða-
fólk fram hjólin sín og í kjölfarið
fylgir yfirleitt fjölgun tilkynninga um
reiðhjólaþjófnað, að sögn lögreglu.
Hjólreiðafólki er því bent á að ganga
alltaf tryggilega frá hjólum sínum,
hvar svo sem það er statt. Alls var 22
reiðhjólum stolið í mánuðinum sem
eru sex fleiri en í febrúar.
Skýrslan hefur verið gerð opinber
fyrir almenning á netinu. Fjölgun
var í flestum brotaflokkum á milli
mánaða en fjallað er um þróunina
á síðustu 13 mánuðum og tölur það
sem af er ári bornar saman við sama
tímabil síðustu þriggja ára. Alls
bárust 294 tilkynningar um þjófn-
aði í mars en innbrot og stuldur á
farsímum jókst töluvert.
Tilkynningum um kynferðis-
brot fjölgaði um helming á milli
mánaða og voru alls tíu í mars. Kyn-
ferðisbrotum hefur þó fækkað um
64 prósent samanborið við sama
tímabil síðustu þriggja ára. Þá hefur
tilkynningum um heimilisofbeldi
fjölgað um 36 prósent en í mars-
mánuði komu 23 mál á borð lög-
reglu þess efnis. n
ingolfur@dv.is
Fjölgun Það
borgar sig að
ganga tryggilega
frá reiðhjólinu.
Lögregla hefur
merkt fjölgun
í þjófnuðum á
reiðhjólum.