Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Blaðsíða 54
54 Skrýtið Páskablað 15.–22. apríl 2014  Julia Roberts og Nick Nolte Á tökustað rómantísku gamanmyndar- innar I Love Trouble árið 1994 lenti Juliu Roberts og Nick Nolte saman. Í myndinni léku þau blaðamenn á sitthvoru dagblað- inu sem kunna illa við hvort annað, raun- veruleikinn var víst mun verri. Leikurunum gekk illa að vinna saman og var meira að segja gripið til þess ráðs að taka upp senurnar þeirra í sitthvoru lagi. Rimman hélt síðan áfram löngu eftir að slökkt var á myndavélunum en Julia Roberts hefur meðal annars opinberlega lýst Nolte sem „algjörlega ógeðslegum“. Í viðtali hjá David Letterman árið 2009 rifjaði hún síðan upp slæm kynni sín af mótleikara sínum. Neita að vinna hver með öðrum n Stallone kom af stað brjáluðum orðróm um Gere n Dunaway skvetti þvagi á Polanski L eikarar eru eins og annað fólk – þeim kemur ekki alltaf vel saman. Við gerð kvik- mynda verja leikarar mörg- um stundum saman, í litlu rými og við krefjandi aðstæður. Það er því í sjálfu sér skiljanlegt að illdeil- ur komi upp stöku sinnum. Heima- síðan The Richest hefur tekið saman tíu leikara pör sem hefur ekki tekist að leggja til hliðar gömul sárindi og neita að vinna með hver öðrum. n  Faye Dunaway og Roman Polanski Þessi illdeila fer hugsanlega í sögubækurnar sem ein sú hatrammasta í Hollywood. Illindin hófust árið 1974 þegar Polanski leikstýrði Dunaway í meistaraverkinu Chinatown. Þeim lenti fyrst saman þegar Polanski stóð upp til þess að plokka nokkur hár úr höfði Dunaway sem hann sagði eyðileggja skotið. Þegar Dunaway reyndi síðar að skilja persónuna sína betur og vildi fá að vita hvað það væri sem hvatti persónuna áfram svaraði Polanski: „Segðu bara fjandans orðin, launin ættu að hvetja þig áfram.“ Kornið sem fyllti mælinn var þegar Polanski neitaði Dunaway um salernishlé við tökur. Hún á þá að hafa skvett fullum kaffibolla af hlandi framan í leikstjórann. Dunaway hefur aldrei staðfest þessa sögu og bregst ætíð illa við spurningum blaðamanna um atvikið.  Sylvester Stallone og Richard Gere Þessum tveimur stórleikurum lenti saman á tökustað við myndina The Lords of Flatbush en tökur voru vart hafnar þegar rifrildið hófst. Stallone heldur því fram að Gere hafi hellt yfir hann kjúklingafitu af ásettu ráði og fékk því framgengt að Gere yrði leystur af hólmi í myndinni. Deilunni lauk ekki þar því Gere hefur ásakað Stallone um að hafa kveikt hinn illræmda stökkmúsaorðróm. Fyrir nokkrum árum gekk sem sagt hávær orðrómur í Hollywood um að Richard Gere hefði verið lagður inn á sjúkrahús með stökkmús fasta í endaþarminum. Sagan fékkst aldrei staðfest.  Bette Davis og Joan Crawford Tíminn læknar ekki öll sár, eins og dæmin sanna, og það á svo sannarlega við hjá þess- um stórleikkonum. Illdeilur þeirra má rekja allt til ársins 1935 þegar Joan Crawford gift- ist mótleikara Bette Davis í kvikmyndinni Dangerous, Franchot Tone. Davis var að sögn ástfangin af Tone og sagði Crawford hafa stolið honum frá sér. Þegar þær tvær léku síðan saman í kvikmyndinni What Ever Happened to Baby Jane er Davis sögð hafa látið koma upp Coca-Cola-sjálfsala í búningsherbergi Crawford en eiginmaður hennar á þeim tíma var framkvæmdastjóri Pepsi. Illindin stóðu allt til hins síðasta en þegar Joan Crawford lést lét Bette Davis hafa eftirfarandi eftir sér: „Þú átt aldrei að segja vonda hluti um þá dánu, aðeins góða. Joan Crawford er dáin – gott.“  William Shatner og George Takei Deila William Shatner og George Takei nær aftur til Star Trek-áranna. Árið 2008 kvartaði Shatner yfir því opinberlega að hafa verið sá eini úr Star Trek-leikarahópnum sem ekki var boðið í brúðkaup Takei. Í nýlegum þætti af Watch What Happens Live talaði Takei um Shatner og sagði hann sjálfselskan hrokagikk sem léti allt snúast um sjálfan sig. Shatner skvetti síðan olíu á eldinn þegar hann sagði Takei sjúkan og geðveikan og að öllum væri sama um hvenær hann kæmi út úr skápnum sem samkynhneigður.  Shannen Doherty og Alyssa Milano Shannen Doherty er þekkt fyrir að ganga illa að þola mótleikkonur sínar frá því hún lék í þáttaröðinni vinsælu Beverly Hills 90210. Doherty og Alyssa Milano hafa hins vegar haft óvenju hátt um illdeilur sínar og verið einstaklega berorðar í garð hvor annarrar. Doherty er sögð hafa fórnað hlutverki sínu í farsælu þáttunum Charmed vegna ósættis síns við Milano. Leikkonurnar hunsuðu hvor aðra í myndveri og gekk deilan svo langt að fenginn var óháður sáttasemjari til þess að reyna að hjálpa þeim að leysa málin. Hann hefur ekki haft árangur sem erfiði.  Robert Downey Jr. og Terrence Howard Terrence Howard hefur frá ýmsu að segja aðspurður hvers vegna hann hafi ekki leik- ið í síðustu tveimur kvikmyndunum í Iron Man-þríleiknum. Howard segist meðal annars hafa hjálpað Downey Jr. að landa hlutverki stálmannsins en þegar kom að því að gera mynd númer tvö í þríleiknum hafi sá síðarnefndi samið um að persónu Howards yrði sleppt. Robert Downey Jr. á síðan að hafa hirt þær launagreiðslur sem áttu upphaflega að fara til Howards.  Shirley Maclaine og Debra Winger Báðar hafa það orð á sér að vera erfiðar í umgengni og í stórmyndinni Terms of Endearment lenti þeim illa saman. Shirley Maclaine lét hegðun Debru Winger á töku- stað fara í taugarnar á sér en hegðunina má rekja til fíkniefnaneyslu. Ágreiningurinn hafi versnað þegar Winger leysti vind af ásettu ráði í átt að Maclaine sem brást reið við og sýndi henni miðfingurinn. Samkeppnin þeirra á milli harðnaði þegar báðar leikkon- urnar voru tilnefndar sem besta leikkona í aðalhlutverki á Óskarsverðlaunahátíð- inni árið 1984 en það var sem kunnugt er Shirley Maclaine sem bar sigur úr býtum. Í þakkarræðunni sagði hún meðal annars: „ég á þetta skilið“ sem margir tóku sem persónulegum skilaboðum til Winger.  James Franco og Tyrese Gibson James Franco og Tyrese Gibson fóru í hár saman við tökur á myndinni Annapolis árið 2006. Haft hefur verið eftir Gibson að hann vilji aldrei aftur starfa með Franco og segist viss um að sá síðarnefndi hafi heldur ekki áhuga á því. Gibson segir Franco enn fremur hafa verið dónalegan við hann við tökurnar og segir hann hafa kýlt sig af fullum þunga þegar þeir æfðu fyrir boxsenu í myndinni. Franco heldur því hins vegar fram að hann sé stöðugt í karakter við tökur og að Gibson hafi tekið því persónulega.  Lucy Liu og Bill Murray Margir hafa velt því fyrir sér hvers vegna stórleikarinn Bill Murray var ekki í framhaldsmynd Charlie‘s Angels. Ástæðan ku vera vegna rifrilda við leikkonuna Lucy Liu. Orðrómurinn á tökustað var sá að að Murray hafi stöðvað tökur á senu með aðalleikkonunum Drew Barrymore, Cameron Diaz og Lucy Liu, bent á þær tvær fyrrnefndu og sagt: „Ég skil hvers vegna þið eruð hér. Þið eruð hæfileikaríkar. En hvað í andskotanum ert þú að gera hér? Þú getur ekki leikið!“ Lucy brást reið við og steytti hnefann að Bill. Starfsmenn neyddust til að skilja leikarana að sem hrópuðu skammaryrðum að hvor öðrum. Murray neitaði að vinna með Liu aftur og var því skipt út fyrir Bernie Mac í framhaldsmyndinni. Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.