Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Side 14
Páskablað 15.–22. apríl 201414 Fréttir
Spá meiri
verðbólgu
Vísitala neysluverðs mun hækka
um 0,5 prósent í apríl og þar með
mun verðbólga aukast úr 2,2 pró-
sentum í 2,5 prósent. Þetta er mat
Greiningar Íslandsbanka. „Verð-
bólguhorfur fyrir yfirstandandi
ár eru lítið breyttar, en horfur fyr-
ir næsta ár hafa lítillega batnað,
þótt við gerum líkt og áður, ráð
fyrir aukinni verðbólgu á komandi
misserum. Verðbólga verður þó að
mati okkar minni næstu árin en
hún hefur að jafnaði verið undan-
farin ár,“ segir á vef Greiningar en
Hagstofan birtir nýjar tölur fyrir
apríl þann 29. apríl næstkomandi.
Það eru fyrst og fremst þrír liðir
sem skýra væntingar um hækk-
un vísitölunnar í apríl, að sögn
Íslandsbanka. Þannig eru vís-
bendingar um að markaðsverð
íbúðarhúsnæðis hafi haldið áfram
að hækka undanfarið, og er hækk-
unartakturinn öllu hraðari gert
var ráð fyrir. Samhliða þessu mun
húsaleiga hækka. Í þriðja lagi hefur
eldsneytisverð hækkað um 2,5 pró-
sent að jafnaði frá marsmánuði.
Þá bendir verðkönnun Greiningar
til þess að verð á flugfargjöldum til
útlanda hafi hækkað talsvert þriðja
mánuðinn í röð. „Samanlagt vega
því þessir þrír liðir til 0,4% hækk-
unar. Aðrir liðir hafa samanlagt
áhrif til 0,1% hækkunar í apríl.“
„Óásættanleg
aðstaða“
Stjórn Vinstrihreyfingarinnar
- græns framboðs fagnar stofn-
un hagsmunasamtaka um
byggingu nýs Landspítala.
Þetta kemur fram í ályktun sem
var samþykkt á stjórnarfundi
VG síðastliðinn föstudag. Eins
og greint hefur verið frá voru
samtökin stofnuð á dögunum
og verður hlutverk þeirra að
þrýsta á um nýjan Landspítala,
eins og nafn samtakanna ber
með sér. „Nauðsynlegt er að
framkvæmdir hefjist sem fyrst,
enda ljóst að aðstaða fyrir sjúk-
linga, starfsfólk og aðstand-
endur er óásættanleg með öllu
við núverandi aðstæður. Nýr
landspítali er stórt hagsmuna-
mál fyrir alla Íslendinga, bæði
núlifandi og komandi kynslóð-
ir,“ segir í ályktuninni frá VG.
Grímur Karl Sæmundsen er nýkjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
S
íðastliðinn fimmtudag var
Grímur Karl Sæmundsen,
forstjóri Bláa lónsins og einn
af eigendum þess, kjörinn
formaður Samtaka ferða-
þjónustunnar (SAF), eða sama dag
og skýrsla nefndar um rannsókn á
orsökum og falli sparisjóðanna var
kynnt almenningi. Þar er meðal
annars greint frá því að félag Gríms
og viðskiptafélaga hans, SM1 ehf.,
hafi ekki greitt krónu fyrir þriggja
milljarða króna hlut sem félagið
keypti í Sparisjóðabankanum (Ice-
bank) í árslok 2007. Eftir að viðskiptin
höfðu gengið í gegn tók Grímur sæti í
bankaráði Icebank. Í skýrslunni kem-
ur jafnframt fram að á árunum 2005
til 2008 hafi lánafyrirgreiðsla Spari-
sjóðs Keflavíkur til Bláa lónsins og
tengdra félaga hækkað úr 300 millj-
ónum í rúman 1,2 milljarða. Grímur
sem sat í stjórn Bláa lónsins á þessum
tíma var einnig hluthafi í sparisjóðn-
um sem og forstöðumaður fjármála-
sviðs sparisjóðsins.
SM1 ehf. var í eigu fjárfestingarfé-
lagsins Suðurnesjamanna ehf., en það
fór í gjaldþrot í mars 2009. Grímur var
framkvæmdastjóri félagsins og einn
hluthafa í gegnum félagið Hvatningu.
Grímur er stjórnarformaður Hlíðar-
fótar og einn af aðstandendum Vals-
manna hf. Þá situr hann sem vara-
maður í stjórn Keilis. Grímur hefur
jafnframt átt sæti í stjórn Samtaka
atvinnulífsins (SA) frá árinu 2004
og setið í framkvæmdastjórn frá ár-
inu 2006. Þá er hann formaður fjár-
festingarráðs Icelandic Tourism
Fund, sem er í rekstri Landsbréfa.
Frjáls verslun valdi hann sem mann
ársins í íslensku viðskiptalífi árið 2013
fyrir rekstur Bláa lónsins.
Gjaldþrota Suðurnesjamenn
Grímur er 59 ára, læknir að mennt,
kvæntur Björgu Jónsdóttur en saman
eiga þau þrjú uppkomin börn og tvö
barnabörn. Hann hafði forystu um
stofnun Bláa lónsins hf. árið 1992 og
hefur verið framkvæmdastjóri og síð-
ar forstjóri félagsins frá upphafi. Á
vefsíðu Samtaka ferðaþjónustunnar
er greint frá því að Grímur muni í
störfum sínum fyrir samtökin leggja
áherslu á að þau verði „óumdeilt for-
ystuafl“ um vöxt íslenskrar ferða-
þjónustu. Þá er markmiðið sagt vera
að knýja fram breytingar á lagaum-
hverfi ferðaþjónustunnar og að stefnt
sé að því samtökin verði virkur þátt-
takandi í starfi Samtaka atvinnu-
lífsins, en Grímur hafði frumkvæði
að því að SAF fengju sæti í fram-
kvæmdastjórn SA á sínum tíma.
Eins og fyrr segir kemur nafn
Gríms fyrir í skýrslu nefndar um
rannsókn á orsökum og falli spari-
sjóðanna. Fjallað er sérstaklega um
eignarhaldsfélagið SM1 sem var í eigu
Suðurnesjamanna ehf. en það var að
hluta til í eigu Gríms. Félagið keypti
hlutabréf í Icebank í árslok 2007,
samtals 8,5 prósenta hlut, og ætlaði
Sparisjóðurinn í Keflavík að tryggja
fjármögnun viðskiptanna að hluta.
Þetta var hins vegar ekki gert. Félag-
ið keypti samt sem áður hlutabréfin,
fékk þau, en greiddi aldrei eiginfjár-
framlagið. Sparisjóðurinn í Keflavík
gerði það ekki heldur. Suðurnesja-
menn fóru í gjaldþrot árið 2009.
Styrkir íþróttafélög
Eins og fyrr segir er einnig greint frá
því í skýrslunni að fyrirgreiðsla Spari-
sjóðs Keflavíkur til eignarhalds fé-
lags um hlut í Bláa lóninu hafi hækk-
að úr rúmum 315 milljónum króna
í rúman 1,2 milljarða frá því í maí
2005 til október 2008. Greint er frá
því að félagið hafi fengið 317 millj-
óna króna lán í erlendum myntum
gegn veði í hlutafé Bláa lónsins sem
og sjálfskuldarábyrgðum þriggja að-
aleigenda félagsins. Lánið var aldrei
tekið fyrir á lánanefndarfundi eins
og kveðið var á um í útlánsreglum
sparisjóðsins. Þá er fjallað sérstak-
lega um félagið Örðu sem var alfarið
í eigu Gríms. Fram kemur að eignir
Örðu hafi mestmegnis verið hlutabréf
í Bláa lóninu en Sparisjóðurinn í
Keflavík fjármagnaði þau með veði í
bréfunum.
Ljóst er að Grímur hefur verið
stórtækur í viðskiptum á síðustu
árum. Rétt eins og á tímum góðæris-
ins þegar útrásarvíkingar dældu fé
í ýmiss konar styrki til íþrótta- og
menningarmála, hefur Grímur veitt
íþróttafélögunum á Suðurnesjum
drjúga styrki á síðustu árum. Þannig
veitti hann sex milljónum í slíka styrki
árið 2012 en héraðsmiðillinn Víkur-
fréttir fjallaði sérstaklega um málið.
Greindi blaðið frá því að Grími þætti
bæði ánægjulegt og mikilvægt fyrir
Bláa lónið að koma með öflugum
hætti að íþrótta- og æskulýðsstarfi á
Suðurnesjum. „Við hjá Bláa lóninu
gerum okkur vel grein fyrir því mikil-
væga og óeigingjarna starfi sem er
unnið innan íþróttahreyfingarinnar.
Alls veitum við um 30 styrki í dag og
er það táknrænt fyrir fjölbreytt og öfl-
ugt íþróttastarf hér á Suðurnesjum.“
Stórframkvæmdir framundan
Grímur tengist fyrirhuguðum stór-
framkvæmdum á Hlíðarendasvæðinu
í Vatnsmýri. Fjölmiðlar hafa greint frá
því að framkvæmdir á jörðinni eigi
að hefjast næsta haust en fyrir ligg-
ur deiliskipulag um landsvæðið
sem heimilar byggingu sextíu þús-
und fermetra íbúðarhúsnæðis á
því. Um er að ræða um 600 íbúðir
sem eiga að kosta á bilinu 25 til 30
milljarða króna. Framkvæmdirnar
eru einar þær mestu á Íslandi á síð-
ustu árum.
DV greindi frá því í mars að fé-
lög tengd Grími hefðu fengið rúm-
lega 300 milljóna afslátt frá borginni
í tengslum við framkvæmdirnar.
Fram kom að Reykjavíkurborg hefði
skuldað fasteignafélaginu Hlíðarfæti
samtals 385 milljónir króna í tafa-
bætur vegna frestunar sem urðu á
framkvæmdum félagsins á Hlíðar-
endasvæðinu. Grímur er stjórnar-
formaður Hlíðarfótar en það er í
eigu knattspyrnufélagsins Vals og
einstaklinga og aðila sem tengjast
því íþróttafélagi í gegnum hlutafé-
lagið Valsmenn hf. Grímur er einn af
aðstandendum Valsmanna.
Krafa Valsmanna var notuð til
að lækka skuld félagsins við Reykja-
víkurborg vegna kaupa á Hlíðarenda-
landinu í fyrra. Í ársreikningi Hlíðar-
fótar fyrir árið 2012 kemur fram að
skuld félagsins við Reykjavíkurborg
hafi numið tæplega 935 milljónum
króna í lok þess árs. Á móti þessari
skuld átti félagið kröfu á borgina
vegna umræddra tafabóta sem leiddi
til lækkunar á kröfunni. Í samkomu-
laginu um lokauppgjör á milli Vals-
manna og Reykjavíkurborgar kemur
fram að heildargreiðslan sem Vals-
menn eigi að greiða til borgarinn-
ar sé 605 milljónir króna. Tafabæt-
urnar leiddu því til þess á endanum
að Valsmenn þurftu að borga ríflega
þriðjungi minna fyrir Hlíðarenda-
landið en félagið hefði annars þurft
að gera. n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Fékk bankahlut
á silFurFati „Valsmenn þurftu að borga ríflega þriðjungi minna
„Framkvæmdirnar
eru einar þær
mestu á Íslandi á síðustu
árum.
Borguðu ekkert Félagið
SM1 greiddi ekkert af því
milljarðs króna eiginfjárfram-
lagi sem það átti að greiða
fyrir hlutabréf í Icebank.
Grímur Sæmundsen, fram-
kvæmdastjóri Bláa lónsins
og einn af forsvarsmönnum
Vals, var stjórnarmaður í
félaginu. Mynd Srphoto