Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 19
Fréttir 19Páskablað 15.–22. apríl 2014
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Súkkulaði-karamellusósa
75 g smjör
75 g ljós púðursykur
1 tsk. saltflögur (Maldonsalt), fínmuldar
150 g rjómi
150 g Pipp með karamellufyllingu
Bræðið smjörið í þykkbotna potti. Setjið
púðursykur saman við og hrærið í þar til
hann er bráðinn. Blandið salti og rjóma
saman við. Hrærið að lokum súkkulaðið
í litlum bitum saman við. Berið sósuna
fram heita eða kalda.
Gerðu vel við þig og þína um páskana með ljúffengri
Pipp ostaköku. Hún er gómsæt með ljúfum
piparmyntutónum sem koma þér í hæstu hæðir.
Til að gera hana enn girnilegri þá er gott að bera
hana fram með sætri súkkulaði-karamellusósu.
Búsetukjarnar byggðir
n Úrræði fyrir fatlað fólk með miklar sérþarfir n Kostar 800 milljónir
B
orgarráð hefur samþykkt
áætlun um byggingu fimm
nýrra búsetukjarna fyrir fatl-
að fólk með miklar og sér-
tækar þjónustuþarfir. Samkvæmt
áætluninni munu 28 einstaklingar,
þar af fimm börn, fá tilboð um bú-
setu og þjónustu innan þessara nýju
kjarna. Með nýjum húsnæðisúrræð-
um losnar um þjónustu sem hægt
er að bjóða öðru fólki en biðlistar
eru eftir skammtímaheimilum og
stuðningsþjónustu.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg
kemur fram að áætlað sé að hús-
næðið verði tilbúið á næstu tveimur
árum. Byggingarkostnaður er áætl-
aður 800 til 900 milljónir króna en
árlegur rekstrarkostnaður verður
um 540 milljónir.
Samkomulag hefur verið gert
við Félagsbústaði sem hefur haf-
ið undirbúning með Velferðarsviði
Reykjavíkurborgar og Umhverfis-
og skipulagssviði. Staðsetning bú-
setukjarnanna verður á Austurbrún,
Þorláksgeisla, Kambavaði og Ein-
holti. Aðrar lóðir koma einnig til
greina, en þó ekki fyrr en árið 2017.
„Íbúar nýrra þjónustukjarna
fá einstaklingsmiðaða þjónustu
út frá sínum þörfum og óskum, þó
svo um búsetukjarna sé að ræða.
Kjarnarnir eru einungis byggðir fyr-
ir þá sem þurfa vegna fötlunar sinn-
ar mjög sértækt húsnæði þar sem
tekið er mið af aðstæðum strax á
hönnunarstigi,“ segir í tilkynningu
frá borginni.
Annað fatlað fólk getur búið í
eigin húsnæði, í búseturéttaríbúð-
um og eða á leigumarkaði. „Með til-
lögu þessari er fundin leið til þess
að leigan verði afar sanngjörn þó
svo húsnæðið sé í sjálfu sér dýrt.
Íbúarnir munu greiða þá fermetra
sem eru í sinni íbúð og miðast fer-
metraverð við leiguverð Félagsbú-
staða í nýbyggðum fjölbýlishúsum,“
segir að lokum í tilkynningunni. n
einar@dv.is
Norðlingaholt
Staðsetning búsetu-
kjarnanna verður meðal
annars við Kambavað í
Norðlingaholti. MyNd dV
Uppsagnir
hjá CCP
Tölvuleikjaframleiðandinn CCP hef-
ur tilkynnt að hann hafi hætt þróun
á tölvuleiknum World of Darkness.
Um leið tilkynnti fyrirtækið að fækk-
að yrði um 56 stöðugildi á skrifstofu
CCP í Atlanta í Bandaríkjunum, en
þar hefur leikurinn einmitt verið í
þróun. Hluta þeirra starfsmanna
sem missa vinnuna verður boðinn
annar starfi hjá CCP. Hilmar Veigar
Pétursson, forstjóri CCP, segir að
sú ákvörðun, að hætta framleiðslu
leiksins, sé ein sú erfiðasta sem
hann hefur tekið.
Baugur og tengdir
aðilar tóku Byr yfir
svo meðal annars notaðir til að
greiða eigendum Byrs út arð upp á
meira en tólf milljarða króna: Upp-
hæð sem var um átta milljörðum
krónum hærri en sá arður sem Byr
mátti greiða út lögum samkvæmt.
Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Byrs, virðist
ekki hafa verið meðvitaður um
að arðgreiðsla Byrs árið 2008 – 12
milljarðar króna – hefði verið um-
fram heimildir. Í samtali við rann-
sóknarnefndina sagði hann: „Arð-
greiðslan ákvaðst náttúrulega út frá
arðsemi þess rekstrarárs sem þetta
er gert en rekstrarárið hafði verið
mjög gott.“ Rannsóknarnefndin
bendir einnig á að veðin fyrir lán-
unum sem Glitnir veitti í stofnfjár-
aukningunni hafi verið „með veði í
bréfum og væntum arði“.
Af ofangreindu má sjá hvernig
búið var að samtengja hagsmuni
Glitnis og Byrs á þessum tíma.
Hluthafar Glitnis voru stærstu
skuldararnir í Byr, Glitnir fjármagn-
aði stofnfjárbréf eigenda Byrs og
var með veð í þeim og væntanleg-
um arði af bréfunum í sparisjóðn-
um. n
Réttlætti arðgreiðslu Jón Þorsteinn
Jónsson réttlætti arðgreiðsluna út úr Byr
fyrir árið 2007.