Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 30
30 Umræða Páskablað 15.–22. apríl 2014
Heimsókn gamla mannsins
M
argir lesenda kannast sjálf
sagt við leikrit Friedrich Dür
renmatts, Heimsókn gömlu
konunnar (þ. Der Besuch der
alte Dame). Aðalpersónan, hin há
aldraða Klara, snýr aftur til fæðingar
bæjar síns, fokrík kona.
Hún hafði nánast verið hrakin það
an ung, svikin í tryggðum af kærasta
sínum, Alfreð.
Hún gerir nú bæjarbúum magnað
tilboð, sá sem drepi Alfreð fái millljarð
dollara að launum. Í fyrstunni streit
ast bæjarbúar á móti en á endanum er
gert út af við Alfreð og einhver verður
milli fyrir vikið.
Hugsum okkur að gamall maður
snúi aftur til Íslands, hafandi þénað
morðfjár í útlöndunum stóru. Hann
gerir hinum fégráðugu Íslendingum
tilboð sem erfitt er að hafna.
Hann býðst til að borga útrásar
gaurum, businesstossum, málníð
ingum, enskusnobbhænsnum,
tískuÍslendingum og erkiameríkani
seruðum, bílóðum græðgisplebbum
stórfé fyrir að flytjast úr landi.
Þeirra bíði hjólhýsaborg í Texas og
tveir amerískir bílar á fjölskyldu, ham
borgarar og pitsur eins og hver geti í
sig látið.
Vel mætti hugsa sér að þriðjungur
þjóðarinnar tæki tilboðinu. Og Ísland
yrði skárra land fyrir vikið. n
Generáll Björn Umsjón: Henry Þór Baldursson
1 Véfengir framburð Pistorius: „Hvar var
Reeva?“
Saksóknarinn í máli hlauparans segir
vörn hans hreinan uppspuna.
72.455 hafa lesið
2 Átakanlegt bréf Vil-hjálms til látins sonar
Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi
á Akranesi, skrifaði hjartnæma færslu á
Facebook um fráfall sonar síns.
40.015 hafa lesið
3 „Þá gengur þú í málið, sama hvað“
Harpa Dís hjálpaði rænulausri stelpu
sem ókunnugir strákar reyndu að draga
heim af djamminu.
30.258 hafa lesið
4 Neyða íbúa til að taka ný lán fyrir íbúðunum: „Það
eru bara allir í sjokki“
Haldinn var krísufundur með íbúum
Öldrunarmiðstöðvarinnar Hafnar um
liðna helgi.
23.937 hafa lesið
5 Sambýlisfólk ákært fyrir 70 milljóna fjárdrátt
Sérstakur saksóknari hefur ákært sam-
býlisfólk, þau Hildi Nönnu Jónsdóttur og
Sig trygg Leví Kristófersson, fyrir
fjárdrátt.
21.488 hafa lesið
6 „Það er ruglað fólk sem gerir svona“
Þriggja ára telpu var rænt af heimili sínu
í Ástralíu en skilað aftur.
Lesið: 21.280
Mest lesið
á DV.is „Hann gerir hinum
fégráðugu
Íslendingum tilboð sem
erfitt er að hafna.
Stefán
Snævarr
Af blogginu
T
vö hugtök og hugsjónir
virðast öðrum fremur gefa
mönnum lagaleg, félagsleg
og siðferðileg réttindi um
fram það sem dýrin njóta.
Það eru friðhelgi og mannhelgi,
sjálf kjarnahugtök siðvæðingar og
andlegrar tilveru mannsins. Lög
gjafinn hefur ekki skilgreint þessi
mikilvægu hugtök. Hér er gerð til
raun til þess að þrengja skilgrein
ingu á þessum hugtökum til þess
að gera notkun þeirra markvissari
og notadrýgri. Mannhelgi er innsti
og helgasti kjarni mannlegs lífs.
Friðhelgi einkalífs er landhelgi eða
varnarmúr um mannhelgina. Hér
er litið á frelsi sem dyggð, meðalhóf
milli ofuraga og óreiðu. Frelsi án
ábyrgðar er merkingarlaust.
Friðhelgi er félagslegur réttur
manns til þess að gera það sem hug
ur hans stendur til án þess að vera
stöðvaður. Friðhelgi verndar ferða
frelsi, félagafrelsi, atvinnufrelsi,
athafnafrelsi og tjáningarfrelsi
manns frá afskiptum samfélagsins.
Friðhelgi vísar til neikvæðs frels
is Isaiah Berlin, þ.e.a.s. frelsi frá af
skiptum (e. freedom from interfer
ence). Þessi réttur skerðist brjóti
einstaklingur rétt á öðrum.
Mannhelgi er réttur til persónu
legs öryggis og hýsir sjálfsmynd
okkar, kynvitund, kynáttun, hugar
far, hjartalag, trúarlíf og andlegt líf
mannsins. Mannhelgi er sjálfsá
kvörðunarréttur einstaklings, þ.e.
persónubundinn réttur manns
til þess að vera og verða það sem
hann kýs sér sjálfur. Mannhelgi
hýsir virka merkingarleit manns
ins sem fer eftir þremur lögmál
um að mati Viktors E. Frankl. Tign
fjallar um hæfileika, vilja og getu
til þess að elska og vera elskað
ur. Göfgi er hæfileikar, vilji og geta
til þess að skynja og skapa fegurð,
iðrast og fyrirgefa. Reisn felur í sér
hæfileika, vilja og getu til þess að
skynja og skapa lausnir sem skaða
ekki aðra. Mannhelgi samrýmist já
kvæðu frelsi Isaiah Berlin um rétt
til sjálfstæðrar persónumótunar
(e. freedom as selfmastery, which
asks not what we are free from, but
what we are free to do). Mannhelgi
er okkar helgustu vé sem enginn
ytri máttur má snerta, nema líf liggi
við eða vel skilgreind samfélagsleg
ógn.
Hér hefur tveimur mikilvægum
hugtökum og hugsjónum verið lýst
og gerð tilraun til hugtakagrein
ingar. Friðhelgi er neikvætt frelsi
Isaiah Berlin og metur frelsi út frá
sjónarhóli samfélagsins. Mann
helgi er jákvætt frelsi þar sem horft
er á frelsið út frá okkur sjálfum og
dýpstu strengjum merkingarleitar.
Þegar einhver er sviptur neikvæðu
frelsi er honum hamlað að gera það
sem hann vill. Þegar jákvætt frelsi
er brottnumið felst í því hömlun á
að vera eða verða sá sem hver vill. n
Mannhelgi og friðhelgi
„Mannhelgi er
okkar helgustu vé
sem enginn ytri máttur
má snerta.
Björn Hjálmarsson
læknir
Kjallari
Mynd Eyþór ÁrnaSon