Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Síða 37
Páskablað 15.–22. apríl 2014 Fólk Viðtal 37
harm þinn í hljóði. Það var ekki fyrr en
löngu seinna sem ég áttaði mig á því
hvað þetta gekk nærri mér.“
Fyrsti félagsráðgjafinn
Guðrún var staðráðin í að halda
skólagöngunni áfram í Reykjavík.
Það þótti viðeigandi að senda hana í
Kvennaskólann og með vinnu komst
hún í gegnum inntökuprófin. „For
eldrar mínir voru verkafólk og höfðu
ekki mikið umleikis en vildu styðja
okkur krakkana í nám. Þau sáu okkur
fyrir mat og húsnæði en við urðum
sjálf að sjá um vasapeningana.“
Næstu þrjú árin vann hún handa
vinnu, saumaði og bróderaði og naut
þess að vera í skóla. Hún ákvað hins
vegar að ljúka ekki náminu heldur
taka landspróf og fara í menntaskóla.
Að honum loknum varð hún að gera
upp við sig hvað hún ætlaði þá að
gera. Hér á landi var hægt að læra til
prests, fara í lögfræði eða læknisfræði.
Ekkert af þessu höfðaði til hennar. Úr
varð að hún fór til Svíþjóðar í félags
ráðgjöf og var fyrsti Íslendingurinn
sem kom heim með þessa menntun.
„Það var dálítið kúnstugt að gera grein
fyrir sér þegar ég var að sækja um
vinnu og marka hvað það væri eigin
lega sem ég gæti gert.“
Erfiðasta starfið
Það hafðist þó og Guðrún hóf störf
hjá Barnaverndarnefnd Reykjavíkur.
„Það var alveg skelfilegt,“ segir hún.
Braggahverfin voru enn uppistand
andi en braggarnir voru úr sér gengn
ir. Þeir sem þar bjuggu eygðu enga
möguleika á að verða sér úti um betra
húsnæði. Það kom í hennar hlut
að rölta um braggahverfin og sinna
barnaverndarmálum þar. Barna
verndin hafði aðallega afskipti af fjöl
skyldum þar sem ofdrykkja var mikil.
Í þá daga var engin áfengismeðferð
og engin önnur úrræði voru heldur
til. „Vonleysið var algjört. Þetta var svo
fáránleg staða, það er eiginlega ekki
hægt að lýsa því. Ástandið á börnun
um var alveg skelfilegt.“
Börnin ræddu aðstæður sínar
aldrei við Guðrúnu. „Ég var náttúrlega
óvinur númer eitt, barnaverndarkerl
ingin sem myndi kippa þeim burt ef
allt færi til andskotans. Ég var í hálf
gerðu lögregluhlutverki, að skakka
leikinn og rífa börnin að heiman þegar
allt var á hvolfi og nefndin ákvað að
senda þau í sveit. Þangað voru börnin
send þegar allt um þraut.
Þetta var það svartasta af öllu svörtu
og þegar ég hugsa til þessara ára fyllist
ég óhug. Ég þoldi þetta ekki og hætti
um leið og ég gat fengið eitthvað ann
að að gera. Ég held að þetta sé eitt það
erfiðasta sem ég hef gert um ævina.“
Ekki batnaði það þegar hún fór
að vinna á Stígamótum og hitti kon
ur sem voru börn á þessu tímabili og
sögðu henni sögu sína. „Ég held að
það séu erfiðustu stundir sem ég hef
átt í starfi.“
Braust úr gömlum viðjum
Guðrún lét víða til sín taka og vann
á flestum sviðum í hinu opinbera
kerfi fram til ársins 1976. Þá fór hún
að kenna, kenndi í Fóstruskólanum,
Kennaraháskólanum og var síðan
ráðin sem kennslustjóri í félagsráð
gjöf í Háskólanum þegar félagsráð
gjafanámið var stofnað. Þar var hún
fram til ársins 1992 þegar hún hóf fullt
starf á Stígamótum.
Í millitíðinni tók hún ákvörðun
sem breytti öllu þegar hún ákvað að
taka sæti á lista Kvennaframboðsins.
Hún lenti efst á lista og var kjörin í
borgarstjórn árið 1982.
Fram að því hafði hún ekki ver
ið virk í jafnréttisbaráttunni, fylgd
ist með Rauðsokkahreyfingunni úr
fjarlægð en tók ekki þátt. „Ég hef oft
spurt mig að því af hverju ég tók ekki
þátt. Við áttum litla stúlku, ég var úti
vinnandi og kappkostaði að vera full
komin húsmóðir, allt í senn. Ég vildi
ekki að neinn hankaði mig á því að
ég væri útivinnandi og þar af leiðandi
ekki að sinna heimilinu. Ég var enn
föst í gömlum viðjum.
Með framboðinu braust ég út úr
því og þá fannst mér ég loks fara að
njóta mín. Í alvöru,“ segir hún af full
um þunga. „Þetta var svolítið seint en
margar af mínum jafnöldrum hafa
aldrei gert það. Sumar konur af minni
kynslóð vildu ekki láta bendla sig við
kvenréttindi.“
Sérstök spurning
Í raun hafði hún ekki velt stöðu
kvenna mikið fyrir sér. Hún setti engin
spurningarmerki við að það þætti
sjálfsagt að hún sæi um heimilið þótt
hún væri í fullri vinnu utan heimil
is. Það var aðeins einu sinni sem það
bærðust með henni einhverjar bylgj
ur innvortis, einhver tilfinning fyrir
því að ástandið væri ekki alveg eðli
legt.
Hún hafði þá verið að vinna síð
an hún kom heim úr námi árið 1957.
Maðurinn hennar var enn í námi
þegar þau hófu búskap og hún var fyr
irvinna fjölskyldunnar. Það þótti sjálf
sagt en þegar hann hafði lokið námi
og var kominn með ágætiskaup þurfti
hún að svara ágengum spurningum.
„Þá spurðu konurnar í fjölskyldunni
af hverju ég væri enn að vinna, hvort
hann væri svona lélegur skaffari
hann Óli. Það kom svolítið á mig. Mér
fannst þetta sérstakt.
Það var enn framandlegur þanki
að konur væru að vinna
af því að þær hefðu
áhuga á starfinu eða af
því að þær hefðu afl
að sér menntunar til að
gegna einhverju starfi.
Það þótti alls ekki sjálf
sagt.
Þetta opnaði augu
mín fyrir því hvað þetta
var skrýtið. Fram að
því hafði ég aldrei sett
spurningarmerki við
þetta, þetta var bara
svona.“
Kvennaframboðið
Kvennaframboðið olli
straumhvörfum í lífi
hennar. Guðrún var far
in að skynja sterkt hvað
staða hennar og annarra kvenna var
yfirleitt bágborin og hvað þær voru
beittar miklu misrétti, bæði varð
andi laun og kerfið allt, þar sem sjón
arhorn kvenna komst nánast aldrei
að. „Málefni kvenna voru ekki rædd
og það var ekki tekið mark á því sem
konur höfðu fram að færa. Í kringum
vald og peninga var karlamúr og þar
sást hvergi kvenmaður.“
Kvennaframboðið vakti lukku
og þær komust tvær í borgarstjórn.
Framboðið átti að vera mótmælaað
gerð sem hafði það að markmiði að
draga fram hvernig misréttið birtist í
pólitíkinni og þeim málaflokkum sem
snertu konur. „Við ætluðum að draga
þetta fram í dagsljósið og hætta síð
an. Það var á stefnuskránni að leggja
flokkinn niður eftir kjörtímabilið.
En það er alltaf til fólk sem vill halda
áfram og telur sig geta rekið hugsjón
ir sínar inni í svona kerfi. Nema hvað
kerfi og hugsjónir falla ekkert mjög vel
saman þannig að það versta sem get
ur komið fyrir pólitíska hreyfingu er
að komast til valda. Hugsjónir gleym
ast og það er dauðadómur.
Fyrstu fjögur árin gerðist margt
en síðan fór þetta að verða dálítið
stofnanagert.
Ég veit ekki hvort þið hafið séð
myndirnar?“ spyr hún síðan.
Mættu forneskjulegu viðhorfi
Myndirnar voru teknar við eina eftir
minnilegustu mótmælaaðgerð þessa
tíma. Það var þannig að Davíð Odds
son varð borgarstjóri um leið og þær
komu inn í borgarstjórn útskýrir hún.
„Hann var ekki hrifinn af okkur og
fannst við heldur hjákátlegar, ljótar
og vitlausar og gaf það iðulega í skyn
að okkur fannst. Hvað eruð þið kerl
ingarnar að kvabba? Hvað haldið þið
að þið skiljið einhverjar tölur? Þetta
var viðhorfið sem við mættum.“
Með ræðu sem hann hélt þegar
verið var að krýna fegurðardrottn
ingar árið 1983 gekk hann svo endan
lega fram af þeim. „Ræðan var birt
opinberlega og inntakið í henni var
að hrósa þessum fallegum stúlkum
fyrir fegurðina. Ef þessar kvennafram
boðskerlingar væru svona fallegar
eins og þið þá veit ég að ég ætti ekki
möguleika á að ná kosningu, sagði
hann síðan.
Við urðum svo reiðar yfir því
að hann gerði útlitið inntakið í því
þegar hann talaði við þessar stúlkur,
að hann gerði þær að ímyndum um
það hvernig stúlkur ættu að líta út og
að hann talaði niður til okkar með
þessum hætti. Með dylgjum um að
við værum óalandi og óferjandi og
hefðum ekkert fram að færa af því
að við værum ekki nógu snoppu
fríðar. Þannig að við ákváðum að taka
hraustlega á móti honum.“
Fegurðardrottningar í borgarstjórn
Og þarna sátu þær, þrettán fegurðar
drottningar, á næsta borgarstjórn
arfundi, ellefu á pöllunum og tvær í
salnum, klæddar í samkvæmiskjóla
og bikiní með borða yfir sér með til
vísunum í staðalímyndir um konur.
Þarna var ungfrú góðhjörtuð, ung
frú hjartahlý og ungfrú meðfærileg.
„Ég valdi mér það,“ segir hún með
stríðnisglampa í augum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sat
með Guðrúnu í borgarstjórn en var
í fæðingarorlofi þegar þetta gerðist. Í
hennar stað sat Magdalena Schram
í salnum. „Þetta er í eina skiptið sem
ég hef séð Davíð verða orðlausan og
missa stjórn á sér. Hann varð svo reið
ur. Ég get ekki lýst því,“ segir hún og
hlær. „Davíð bölsótaðist þarna á bak
við, rauk úr salnum og skellti hurðum.
Hann sagði að við værum að misvirða
borgarstjórn en við könnuðumst ekki
við það, prúðbúnar
sem aldrei fyrr með
kórónur úr álpappír.
Allan borgarstjórn
arfundinn hegðuð
um við okkur eins og
brúður. Í hverju mál
inu á fætur öðru lögð
um við fram bókanir
þar sem við sögðumst
ekki getað ákveðið okk
ur, Davíð segði eitt og Sigurjón ann
að, og hvernig ættum við þá að geta
gert upp hug okkar? Við yrðum bara
að sitja hjá.
Þetta var svo gefandi uppákoma
því ég náði að losna við uppsafnað
ergelsi og endurnýja orkuna.“
Fann fyrir frelsinu
Aðgerðirnar urðu fleiri á næstu árum
en alltaf var lagt upp með að koma
skilaboðum á framfæri með sjónræn
um og skemmtilegum hætti. „Okkur
tókst yfirleitt að gera þetta þannig að
þetta væri fyndið. Að við værum ekki
bara reiðar kerlingar. Og þvílíkt frelsi.
Ég hef aldrei fundið fyrir annarri
eins frelsistilfinningu eins og þegar
við vorum í þessum aksjónum.
Kannski af því að ég var orðin svolítið
reið inni í mér. Misréttið varð svo skýrt
þegar ég fór að skoða það og semja
stefnuskrá fyrir framboðið. Það víkk
aði sjóndeildarhringinn og gerði mig
reiða. Reiðin gerði mér gott því ég gat
fundið henni þennan farveg.“
Þetta voru þó ekki eintómar „aks
jónir“. Konurnar í kvennaframboð
inu stóðu fyrir alls konar verkefnum í
þágu kvenna. Þær stofnuðu til dæmis
áhugahóp um kvennarannsóknir og
samtök kvenna á atvinnumarkaði. Þar
kom í ljós að konur í öllum stöðum
samfélagsins upplifðu sama valda
leysi og launamisrétti. Þær stofnuðu
líka kvennaráðgjöf þar sem félagsráð
gjafar og lögfræðingar voru til staðar
eitt kvöld í viku fyrir konur sem þurftu
á því að halda. „Þá fórum við að heyra
sögur af nauðgunum og sifjaspellum
og líkamlegu ofbeldi.“
Kvennaframboðið tók einnig þátt í
stofnun Kvennaathvarfsins. „Og þegar
við fórum að ræða málið innan hóps
ins þá kom í ljós að við vorum æði
margar sem höfðum sjálfar reynslu af
kynferðisofbeldi. Þegar ég settist nið
ur og fór að skilgreina hverju ég hafði
lent í og skoða ákveðin minningabrot
þá rifjuðust upp fyrir mér atvik sem ég
hafði aldrei gert neitt með.“
Flúði káfandi karl
Hún mundi eftir atvikum frá því að
hún var stelpa. Hún mundi eftir því
þegar strákur beraði sig við þær vin
konurnar. Hún mundi líka eftir því
þegar hún var unglingur í Reykjavík
og sótti stíft í alla knattspyrnuleiki eitt
sumarið. Á knattspyrnuleikjum voru
aðallega karlar á þessum tíma, og
strákar. Nema hvað hún og vinkona
hennar urðu algjör knattspyrnufrík.
Einu sinni smygluðu þær sér inn á
Melavöllinn í gegnum girðinguna.
„Þar var karl sem ég þurfti að hlaupa
undan því hann ætlaði að káfa á mér.
Þetta voru atvik sem komu ljós
lifandi upp í huga mér. Af því að þau
höfðu áhrif á mig. Þar sem ég hafði
ekki sagt neinum frá því sem gerðist
sat ég uppi með ógeðs og skammar
tilfinningu. Ég hélt að þetta hefði eitt
hvað með mig að gera en ekki þá sem
komu svona fram. Að ég væri orsaka
valdur að þessu með einhverjum hætti
sem ég gat ekki útskýrt fyrir sjálfri mér.“
Síminn stoppaði ekki
Kynferðisofbeldið var Guðrúnu hug
leikið. Hún náði sér í erlendar fræði
bækur og fór að lesa sér til, sérstaklega
um sifjaspell. Síðan ræddi hún þetta
við nemendur sína í félagsráðgjöf. „Ég
var sannfærð um að þetta væri vanda
mál hér ekki síður en annars stað
ar og byggði það á reynslu minni úr
kvennaráðgjöfinni.
Þetta endaði með því að við stofn
uðum hóp kvenna sem samanstóð
annars vegar af nemendum mínum
og hins vegar af konum sem höfðu
staðið að stofnun Kvennaathvarfsins
og voru búnar að mynda ráðgjafahóp
um nauðganir. Við unnum saman í
heilt sumar að því að afla okkur þekk
ingar. Að lokum ákváðum við að fara í
fjölmiðla og segja frá grun um að börn
væru beitt kynferðisofbeldi á Íslandi í
talsverðum mæli, tala um sifjaspell og
nauðganir og láta vita að í þrjú kvöld
myndum við hafa opinn síma ef ein
hver vildi hafa samband.
„Davíð bölsótaðist
þarna á bak við, rauk
úr salnum og skellti hurðum.
„Þetta
var það
svartasta af
öllu svörtu og
þegar ég hugsa
til þessara ára
fyllist ég óhug
Ungfrú meðfærileg Guðrún og Magdalena Schram tóku hraustlega á móti Davíð Oddssyni, þáverandi borgarstjóra, eftir ræðu sem hann
flutti þegar fegurðardrottningar voru krýndar. Þær mættu prúðbúnar eins og fegurðardrottningar á borgarstjórnarfund. Á pöllunum sátu
fleiri fegurðardrottningar í síðkjólum eða bikiníum. Mynd Þjóðviljinn / Einar ólaSon
Sterk skilaboð Ári eftir að Stígamót voru stofnuð fylktu þolendur liði og gengu á milli stofnana í minningu þeirra mála sem voru felld niður í kerfinu.