Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 40
Páskablað 15.–22. apríl 201440 Fólk Viðtal S em barn hljóp hann tugi kíló- metra á dag með símskeyti, á námsárum sínum í Noregi bjargaði hann skólafélögum sínum með því að grafa þá í fönn, sem ungur maður fór hann af stað með hugmynd sem öllum þótti brjáluð en er nú orðin að stórveldi. Það kostaði blóð, svita og tár. Bók- staflega. Fall hefur margsinnis verið fararheill á vegferðinni. Hann gekk handleggsbrotinn á höndum, ældi blóði fyrir mikilvægan fund þar sem söluvaran var heilbrigði og sleit sér út við vinnu. Magnús hefur að auki átt merkileg kynni við marga af þekktustu þjóðar- leiðtogum heims. Hann hefur gert armbeygjur með Berlusconi, lagt sjálfri Michelle Obama lið og verið rænt í Kólumbíu á aðkallandi fund með forseta landsins. Heima á Íslandi stendur hann hins vegar oft í stappi við stjórnvöld til þess að fá þau til að viðurkenna verðmæti iðngreinarinn- ar sem hann stendur í stafni fyrir. Magnús tekur á móti blaðamanni í stúdíói Latabæjar í Garðabæ. Það lætur lítið yfir sér. Gráleitt kassalaga bárujárnshús sem er ekki einu sinni merkt Latabæ. Þarna inni hafa hins vegar verið framleiddir yfir 100 þættir af einu vandaðasta barnaefni í heimi sem seldir hafa verið til yfir 170 landa í heiminum. Allir unnir innanhúss, frá hugmynd að fullunninni vöru. Verðmætið er gríðarlegt og að baki því er þrotlaus vinna frumkvöðuls- ins Magnúsar og þess fólks sem hann hefur fengið til liðs við sig en magnið sem framleitt hefur verið innan þessara veggja samsvarar framleiðslu 26 bíómynda í fullri lengd. Latibær hefur verið til í 20 ár. Í upphafi var boðskapurinn festur á bók, þá leikrit og seinna braut hann sér leið í sjón- varpsþáttum þeim sem allir þekkja og hafa ratað á sjónvarpsskjái á yfir 500 milljónum heimila um allan heim. Dýrmætari en fiskur Magnús er skjótur á fæti og skýst um húsið á meðan hann rekur söguna og kynnir blaðamanni hvern krók og kima hússins. Hann hefur að miklum hluta byggt innviði hússins sjálfur. Reyndar virðist hann koma að flest öllu sem við kemur rekstrin- um, jafnvel smæstu smáatriðum. Aðstoðarmaður hans er honum inn- an handar, ekki er vanþörf á. Flestir samstarfsmanna hans lýsa því að þeir eigi fullt í fangi með að fylgja Magnúsi eftir. Orka hans er engu lík. Hann hlýtur að vera dýrmætari fyrir landsframleiðsluna á Íslandi en fisk- ur. „Hann lítur út eins og karlmaður frá Skandinavíu sem er fastur í líkama lífvarðar frá Ástralíu,“ sagði blaðamaður Times dagblaðsins eftir að hafa tekið viðtal við hann fyrir nokkrum árum. Hann hefur sjaldan verið í betra formi og síðustu árin hafa reynst honum ákaflega krefjandi. Fyrir fyrir tæpum fjórum árum urðu vatnaskil í rekstrinum þegar fjölmiðlarisinn Turner festi kaup á Latabæ. Undir Turner-samsteypuna heyra sjónvarpsstöðvar á borð vð CNN, TNT og Cartoon Network. Turn- er setti það skilyrði að Magnús yrði áfram bæði forstjóri fyrirtækisins og í hlutverki íþróttaálfsins. Þess vegna þurfti hann að koma sér í toppform og leggja enn harðar að sér við rekstur- inn. Seinna segir hann frá stórfurðu- legum aðferðum sínum til að máta líkamsræktina við daglega rútínu. Hver mínúta skiptir máli Nú er verið að leggja lokahönd á fjórðu seríu þáttanna og annirnar eru miklar. Það þarf að ljúka vinnslu á þrettán nýjum þáttum fyrir páska og það má greina í andrúmsloftinu að hver mínúta skiptir máli. Reglu- lega koma aðvífandi starfsmenn með skjöl til undirritunar eða til að bera eitthvað undir Magnús. Honum er einkar lagið að afgreiða allt sem að höndum ber fumlaust og án þess að missa þráðinn. Slökunarherbergi vekur athygli blaðamanns, hvítir leðurstólar og hvít tjöld. „Ég þurfti að búa mér til eitt- hvert skjól hér á vinnustaðnum því hér þurfti ég stundum að vinna heilu sólarhringana samfleytt. Álagið getur stundum verið fullmikið,“ segir hann og er þar með rokinn aftur af stað. „Það er nauðsynlegt að hvíla sig til að ná áttum,“ kallar hann, því hann veit að blaðamaður er einhvers staðar á eftir honum og mögulega að dragast aftur úr. Suðupottur Í hverjum kima fyrirtækisins er hæfileikafólk að störfum. Bæði Ís- lendingar og sérfræðingar utan úr heimi. Stefán Karl Stefánsson situr í hljóðveri og leikur eftir ískur í skóm gamallar konu. Hann gerir það svo spaugilega og vel að það er ekki ann- að hægt en að skella upp úr. Í tölvuveri vinnur tækniteymi að tölvuteiknuðum brellum. Blaðamað- ur fær nasasjón af því og það er óhætt að segja að þættirnir hafa þróast hratt, persónur Latabæjar fara út í geim í þeim þætti sem hann fær að sjá stutt brot úr. Þarna eru staddir íslenskir tæknigúrúar og erlendir sérfræðingar sem leggja krafta sína saman. Þannig er andrúmsloftið í Lata- bæ, suðupottur af hugmyndum og fólki sem hefur hæfileika til að fram- kvæma þær. Keppir við þá bestu í heimi Leiðin liggur í stórt fundarherbergi hússins. Tússtafla þekur stóran vegg og er þéttskrifuð. Önnur stór tússtafla stendur í herberginu, einnig þéttskrif- uð. Það er líka skrifað á gluggana. Það er lýsandi fyrir stemninguna. Hún er bæði hamslaus og öguð í senn. Yfir- þyrmandi og krefjandi. Í skál á borðinu eru ávextir og Magnús gæðir sér á vínberi og vipp- ar fótunum upp á borð meðan hann talar. Honum er efst í huga – eftir leið- angurinn um fyrirtækið – hversu mikið vatn hefur runnið til sjávar og það fólk sem hefur lagt honum lið. Latibær á eins og áður sagði 20 ára af- mæli á árinu og hefur á þeim tíma fest Magnús kveður álfinn Magnús Scheving stendur á merkum tíma- mótum í lífi sínu. Hann verður fimmtugur á árinu, er nýskilinn og stígur úr hlutverki íþróttaálfsins sem á hug og hjarta barna víða um heim. Við slík tímamót er eðlilegt að líta bæði um öxl og fram á veginn. Kristjana Guðbrandsdóttir ræddi við Magnús um við- burðaríkt líf hans sem jafnast á við Íslendingasögu þar sem hver æsileg dáðin rekur aðra. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Í mörgum hlutverkum Magnús upplifir frelsi nú þegar hann er loks laus úr búningi íþróttaálfsins, að verða fimmtugur. Hann hefur snúist í ótal hlutverkum í lífi sínu. MynD OZZO PHOtOGraPHy
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.