Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 46
Páskablað 15.–22. apríl 201446 Fólk Viðtal
reynir hann einfaldlega að nýta tíma
sinn sem best hann getur. Síðustu
ár hafa verið krefjandi að þessu leyti
enda þarf íþróttaálfurinn að vera í
toppformi og maður á fimmtugsaldri
þarf að hafa meira fyrir hlutunum til
að halda sér í formi. Þá er ótalið að
halda úti jafn viðamiklum fyrirtækja
rekstri og Latibær er á sama tíma.
Það er þess vegna sem forstjórinn og
íþróttaálfurinn Magnús þarf að gera
armbeygjur á flugvöllum heimsins,
hoppa á meðan hann bíður í röðum,
taka fundi á skokki í kringum húsið
eða í verslunarferðum.
„Menn fatta ekki stundum að ég
æfi mjög lítið vegna anna. Ég þarf ein
hvern veginn að koma æfingaáætlun
inni í mitt daglega líf og það kemur
mér oft í þau vandræði að ég er talinn
geggjaður.
Ég er með nokkrar undarlegar æf
ingavenjur sem ég fylgi til að halda
mér í formi. Til að mynda að gera 200
armbeygjur áður en ég fer í flug. Það
er ekkert gaman fyrir þá sem ferðast
með mér. Ég er að gera armbeygjur
um allan flugvöll.
Ferðafélagar mínir biðja mig um
að gera þær í hvarfi, til dæmis á bak
við töskubeltið eða bekki.
Svo geri ég 20 hopp á meðan ég bíð
eftir leigubíl. Ég hef setið fundi þar sem
ég er að lyfta lóðum eða gera maga
æfingar, ég hef einnig beðið fólk um
að mæta til fundar við mig í jogging
gallanum og svo tökum við fundinn á
skokki í kringum húsið. Þeir fundir eru
hins vegar oftast styttri en ella.
Skeggjaður aðdáandi vekur ugg
Það skiptir Magnús hreint engu
máli hvort fólki finnist hann haga
sér furðulega þar sem hann hoppar
um á förnum vegi. Álit barna skiptir
hann meira máli. Mörg þeirra barna
sem hann hefur hitt geymir hann sér
í hjartastað.
„Mjög snemma á ferlinum áttaði
ég mig á því að Latibær hefur mjög
mikil áhrif á börn. Mér hefur alltaf
fundist krakkar treysta íþróttaálfinum
og trúa honum fyrir mörgu og segja
honum sögur, þeir sjá líka í gegnum
mann ef maður er ekki heill. Þér verð
ur að þykja vænt um hvað þú ert að
gera og börn sjá það strax í augunum á
þér ef þú ert ekki heill í því sem þú ert
að gera. Ég hef hitt svo mikið af krökk
um og það sem er áhugavert fyrir mig
er þegar krakkar vilja sýna mér hvað
þau vilja vel, hvað þau eru dugleg og
áhugasöm. Það gleður mig. Ég fer á
leikskóla og ég fer út í búð og krakk
ar taka upp á því að sýna mér alls kyns
leikfimikúnstir – splitt, armbeygjur og
hopp. Það kemur reyndar oft fyrir að
fullorðnir geri slíkt hið sama sérstak
lega ef þeir rekast á mig á þegar þeir
eru að skemmta sér.
Um daginn fór ég út í Melabúð og
þar var alskeggjaður maður sem að
þakkaði mér það að hann reykti ekki
vegna þess að ég hafði komið í skól
ann hans með fyrirlestur. Ég hugsaði
með mér, hvað er ég eiginlega orðinn
gamall? Ér ég er orðinn 100 ára? Þá var
þetta bara vel skeggjaður ungur mað
ur í nýjustu tísku og leit út fyrir að vera
miklu eldri.
Ég hef líka heimsótt ótal börn sem
njóta ekki sömu lífsgæða og önnur
börn. Börnum í krabbameinsmeð
ferðum og öðrum erfiðum meðferð
um vegna illvígra sjúkdóma. Ég er oft
beðinn um að koma af læknum, for
eldrum og aðstandendum. Ég hef
kynnst þessum börnum og skemmt
þeim og mætt með hollan mat handa
þeim að borða. Í sumum tilvikum hef
ég flogið hálfan hnöttinn með íþrótta
nammi handa þessum vinum mínum.
Erfiðustu heimsóknirnar
„Erfiðast hefur mér fundist að heim
sækja börn á líknardeildum, börn
sem ég veit að eru að kveðja þennan
heim. Eiga kannski bara viku eftir. Þá
hefur maður þurft að vera sterkur og
til staðar fyrir þessi börn.
Ég hef oft verið nærri því að brotna
saman í þessum aðstæðum, en þegar
ég horfi til baka sé ég að þessar stund
ir hafa gefið mér styrk. Ég er mjög
meðvitaður um það hversu dýrmætt
og viðkvæmt líf og heilsa barna er að
öllu leyti. Sárasta minningin er um
dreng sem ég heimsótti á líknardeild.
Við gáfum þessum strák skó íþrótta
álfsins og sendum honum sérstakan
svona tíukristal, eins og Íþróttaálfur
inn er með á brjóstinu. Foreldrarnir
mynduðu stundir okkar saman til
minningar og grétu allan tímann. En
þau voru samt svo ánægð að ég hefði
komið að hitta hann. Seinna var strák
urinn jarðsunginn í búningnum.“
Armbeygjur með Berlusconi
Ferðalög Magnúsar hafa einnig falið
í sér fundi með þjóðarleiðtogum og
merkisfólki um allan heim. Hann hef
ur átt fjörlegan fund með Berlusconi,
verið rænt í Kólumbíu, rætt við David
Cameron, talað á ráðstefnu með Colin
Powell og verið beðinn um ráð af for
seta Chile.
„Þetta eru allt mjög litríkt fólk.
Þegar ég talaði á ráðstefnu með Colin
Powell, voru 5.000 gestir. Það voru
2.000 manns í röð að fá eiginhandar
áritun hjá mér eftir fyrirlesturinn fyrir
börnin sín. En enginn sóttist sérstak
lega eftir eiginhandaráritun Powells.
Hann sagði við mig: ég þyrfti nú eigin
lega að fá lánaðan hjá þér búninginn
til að auka vinsældir mínar.“
„Á Ítalíu var mikið fjör með
Berlusconi, hann kallaði til allt starfs
fólk í ráðuneyti sínu og aðstoðarmenn
til að horfa á mig gera kúnstir. Ég
þurfti að henda mér niður fyrir hann
að gera armbeygjur og hann var hinn
skemmtilegasti karl en sérstakur.“
Rænt í Kólumbíu
„Ég varð svo ansi skelkaður á ferðalagi
í Kólumbíu. Þar var ég staddur í við
tali og var ekki í ósvipuðum aðstæð
um og núna. Allt í einu komu fjórir
menn inn með vélbyssur og tilkynntu
mér fjarrænir á svip að ég þyrfti að
koma með þeim undir eins. Ég skildi
ekki hvað var að gerast en stóð upp. Þá
sagði einn þeirra vopnuðu að ég yrði
að gjöra svo vel að koma og ræða við
bæði forseta landsins og heilbrigðis
ráðherra. Þeir skelltu mér með vopna
fylgd aftan í gamlan Range Rover og
keyrðu svo á undan á mótorkrosshjól
um með vélbyssurnar út í loftið eins
og brjálæðingar. Mér var hent inn í
ráðuneytið í myndatöku og þar fékk
ég afhenta hnausþykka bók og sagt við
mig: Offita í Kólumbíu er 49% Fix it!
Smá pressa sko. Svo var mér skellt
aftur til baka sömu leið aftur í viðtalið.
Frekar sérstæð lífsreynsla.“
Með Michelle Obama
Magnús tók þátt í lýðheilsuherferð
Michelle Obama í Bandaríkjunum
og tók upp auglýsingar með forseta
frúnni í Hvíta húsinu. Hann hefur oft
ar unnið með ríkisstjórnum landa að
ýmsum heilsutengdum efnum.
„Ég var nærri því búinn að brjóta
kristalskrónuna í Hvíta húsinu þegar
við vorum þar að gera stökk. Fékk
Róbert fimleikastrák með mér og við
vorum að hoppa og stökkva um Hvíta
húsið. Á sama tíma voru í húsinu all
ir þingmenn Bandaríkjanna í teboði.
Þennan eina dag á ári sem allir hittast.
Um leið og ég var kominn heim
úr herferðinni með Michelle fékk ég
símtal frá forsetafrúnni í Chile, sem
vildi gera eins og Michelle. Þannig að
við fórum þangað og til Mexíkó. Það
er áhugavert að nefna í þessu sam
bandi að ég reyndi sjálfur að fá fund
við heilbrigðisráðherrann á Íslandi.
Það tókst ekki. Ég fékk hins vegar
fund með heilbrigðisráðherranum
í Mexíkó klukkan fjögur um nótt. Af
því að ég var að fara í flug klukkan sjö
og hann vildi ekki missa af fundi með
mér.
Hann kom bara klukkan fjögur
og hitti mig. Við erum búin að vera í
mörgum löndum með heilsuherferð
ir en ekki mikið á Íslandi síðastliðin
ár. Það væri gaman að gera meira hér
heima.“
Erfiður og sár skilnaður
Magnús stendur á tímamótum í líf
sínu í mörgum skilningi.
„Það er margt sem hvílir á mér. Ég
er á miklum tímamótum persónu
lega. Ég á stórafmæli á árinu og ég
gekk í gegnum áfall í einkalífinu.
Skilnað. Það er mikill söknuður yfir
því. Skilnaður er erfiður og hann er
sár og það er sérstaklega erfitt fyrir
börnin. Það vill auðvitað enginn
ganga í gegnum skilnað en slíkt gerist.
En lífið heldur áfram og ég er staðráð
inn í að finna hamingjuna.“
Nýjar áskoranir
Þrátt fyrir að Magnús hafi klætt sig
úr níðþungum og heitum búningi
íþróttaálfsins hvílir enn á honum
þung ábyrgð og nýjar áskoranir. Frels
ið er fram undan og hann hefur um
margt að velja.
„Það er auðveldara fyrir mig að
draga mig í hlé en oft áður vegna þess
hversu langt við erum komin í þróun
Latabæjar. Það er allt mótað, klapp
að og klárt. Hugmyndafræðin er sterk
og þekkingin hefur byggst upp í góð
an grunn sem hægt er að byggja á til
framtíðar.
Nýjar fylgja því að afklæðast
íþróttaálfsbúningnum. „Ég er í rútínu
sem ég þarf að venja mig af, það verð
ur skrýtið en samtímis upplifi ég frels
istilfinningu. Ég vil ekki lengur keyra
mig áfram í þessari streitu en njóta
meira lífsins. Það er svo margt sem
ég hef ekki getað leyft mér vegna
af samninga tengdum Latabæ – til
dæmis að fara á skíði. Um leið og tök
um lauk fór ég á skíði og snjóbretti
sem ég mátti ekki gera vegna hættu
á að ég slasaði mig. Ég upplifi frelsið
í smáskömmtum og sé lífið fram und
an í björtu ljósi.“
Tækifærin mörg og víða
Ég á það til að beina kröftum mín
um víða. Hella mér í margvísleg við
fangsefni, ég óttast lítið. Undirmeðvit
undin stýrir mér. Ég get nefnt dæmi.
Ég les mikið af góðum og skemmti
legum bókum en ég les einnig bækur
sem ég hef engan áhuga á að lesa. Ég
grip þær tilviljunarkennt af bókasafni
og má ekki einu sinni glöggva í tit
il bókarinnar fyrr en ég er til dæm
is kominn upp í næstu flugvél og svo
verð að klára þær. Ég les til að róa mig
og opna á nýjar hugmyndir. Það er
nauðsynlegt að víkka út sjóndeildar
hringinn og skoða eitthvað nýtt. Þegar
ég byrjaði á þessu fannst mér þetta
stundum óspennandi en með tím
anum eru þessar bækur stöðugt að
koma mér á óvart. Það er aldrei að vita
hvað næsta bók fjallar um; stjórnmál,
ævisögur, geimferðir eða kúbverska
vindla. Innan um þessar bækur eru
gullmolar og ljóðskáld sem ég hefði
annars ekki kynnst.
Ég hugsa stundum um lífið fram
undan eins og ferð á bókasafnið. Af
hverju ekki að grípa eitthvað nýtt og
kanna það? Kannski verður það ekki
þess virði, en kannski hitti ég fyrir eitt
hvað óvænt sem breytir öllu og opn
ar mér nýja sýn. Nú er bara að bíða og
sjá. Ég er opinn fyrir tækifærum lífsins.
Framtíð mín byggist á því að mig
langar að gera eitthvað öðruvísi og
stærra í sniðum. Ég held marga fyrir
lestra um allan heim en hef þurft að
takmarka það vegna vinnu upp á
síðkastið en nú ætla ég að fara að auka
við það aftur.
Mig langar líka að reyna fyrir mér í
kvikmyndagerð og hef áhuga á heim
ildamyndagerð og að gera kvikmynd
ir sem eru í allt öðrum anda en það
em ég hef hingað til unnið að hér í
Latabæ.“
Enginn getur staðið einn
Hann segist hafa lært það á veg
ferðinni að enginn geti staðið einn.
„Það vill enginn verða ofurhetja og
hafa alltaf rétt fyrir sér og bjarga heim
inum aleinn. Á bak við alla sem eru að
gera eitthvað er alltaf fjöldi fólks og þá
er auðvitað best að fjölskyldan geti
staðið með þér sem mín hefur ávallt
gert og svo er styrkur frá samstarfs
fólki og vinum mjög mikilvægur. Ég
hef verið það lánsamur að vera um
kringdur góðu starfsfólki og vinum.
Heilsa snýst um jafnvægi og ef
ég myndi draga hring í kringum all
ar Latabæjarpersónurnar, þá mundu
þeir mynda eina heilbrigða mann
eskju. Hver og einn þarf að finna sitt
jafnvægi á milli þessara persóna.
Stundum er ég íþróttaálfurinn þegar
ég vakna og mér finnst ég geta flest.
En næsta dag er kannski Glanni í mér
og ég vil gera minna. En stundum er
maður eins og Solla stirða, óhrædd
ur við að prófa nýja hluti og stökum
sinnum er maður Siggi sæti og gæl
ir sér á smá súkkulaði. Annan daginn
getur maður verið Halla hrekkjusvín
sem brýtur reglur og það þarf ekki að
vera slæmt. Við þurfum stundum að
brjóta reglur til þess að breyta rétt.
Það þekkjum við af mannréttindabar
áttu í gegnum söguna. Konur voru til
dæmis ekki með kosningarétt þangað
til einhver braut þá reglu. Enginn vill
ala upp barn sem eingöngu fylgir regl
um. Börn geta speglað sig í þessum
persónum og þau ættu aldrei að þurfa
að standa undir þeirri kvöð að vera
fullkomin og hafa alltaf rétt fyrir sér.
Börn eru fædd ofurhetjur og við
getum lært svo mikið af þeim. Ofur
hetjuhugmyndin á að felast í því smáa
en mikilvæga í lífinu, að velja heil
brigði og efla með sér sjálfstraust.
Það besta sem foreldrar gefa börn
um sínum er ótakmörkuð umhyggja
og sjálfstraust. Þeim sem hafa það
veganesti tekst að vinna þrekvirki á
lífsleiðinni.“ n
„Ég var
nærri því
búinn að brjóta
kristalskrónuna í
Hvíta húsinu
Allt unnið innanhúss Magnús
segir iðnaðinn eiga undir högg að sækja,
stjórnvöld sjái ekki tækifærin og arðinn
sem skilar sér margfalt til baka. Í Latabæ
er allt unnið innanhúss, frá hugmynd að
fullgerðri vöru. MyNd OZZO PhOTOgRAPhy
Erfiður skilnaður „Það vill auðvitað enginn ganga í gegnum skilnað en slíkt gerist. En lífið heldur áfram og ég er staðráðinn í að finna hamingjuna.“ „Ég vil ekki
lengur
keyra mig áfram
í þessari streitu
en njóta meira
lífsins