Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Síða 48
Páskablað 15.–22. apríl 201448 Fólk Viðtal
V
ið vorum á svipuðum tíma í
guðfræðinni og kynntumst
fyrst þar. Við héldum alltaf
vinskap eftir það en urðum
svo ekki hjón fyrr en fyrir
tæplega fimm árum,“ segir Kristín
Þórunn Tómasdóttir prestur. Blaða-
maður hitti þau hjónin, Kristínu og
eiginmann hennar, Árna Svan Dan-
íelsson, í Vídalínskirkju í Garðabæ
þar sem frúin er prestur um þessar
mundir. Árni hins vegar gegnir starfi
vefprests hjá Þjóðkirkjunni og sinn-
ir líka öðrum verkefnum fyrir kirkj-
una. Í vetur leysti hann til dæmis af
sem sóknarprestur í Bústaðakirkju.
Kynntust í kjölfar skilnaðar
Árni og Kristín kynntust við guð-
fræðideild Háskóla Íslands þar sem
þau námu guðfræði á sama tíma en
voru þá bæði í samböndum. „Við
héldum vinskap eftir námið en fór-
um sitthvora leiðina, eignuðumst
okkar börn og lifðum okkar lífi. Síð-
an fundum við okkur í sömu að-
stæðum á sama tíma í lífinu,“ segir
Árni. Slitnað hafði upp úr þeim
samböndum sem þau voru í og þau
fóru að vera saman. Fyrir tæpum
fimm árum giftu þau sig og eiga nú
stóra samsetta fjölskyldu.
Öllum semur vel
Þau Árni og Kristín eiga stóra fjöl-
skyldu. Börnin eru samtals sex,
15 ára og yngri, og því oft fjörugt á
heimilinu. Kristín átti þrjú börn úr
fyrra sambandi; Unni Baleku, 15 ára,
Jakob Agni 12 ára og Tómas Viktor,
7 ára. Árni átti fyrir dæturnar Guð-
rúnu Maríu, 12 ára, og Elísabetu, 7
ára. Saman eiga þau svo Heiðbjörtu
Önnu sem er tveggja ára. „Maður
dáist að börnunum sínum, þau eru
öll ólík en hvert og eitt með fallega
aðkomu að lífinu og gefa manni svo
mikið,“ segir Árni.
Fjölskyldan er stór og því alltaf
nóg um að vera. „Elsta stelpan er
fimmtán ára og sú yngsta er tveggja
ára,“ segir Kristín og sýnir stolt fal-
lega innrammaða mynd af barna-
hópnum. Þau segja oft vera líf og
fjör á heimilinu og nóg að gera.
Samskipti systkinanna eru nokk-
uð góð og lítið um árekstra. „Það
semur öllum vel og það er fyrir öllu.
Það er gaman að fylgjast með þeim
og sjá umhyggjuna sem þau sýna
hvert öðru. Börnunum líður vel
saman og þá gengur þetta vel,“ seg-
ir Árni og bætir við: „Kristín kemur
úr stórum systkinahópi og er vön
þessu. Ég á hins vegar bara einn
bróður og því er stórfjölskyldan
nýrri fyrir mér.“
Stundum púsluspil
Sum börnin eru alltaf á heimilinu,
sum eru aðra hverja viku eða aðra
hverja helgi. Hjónin viðurkenna
að það geti verið púsluspil að sam-
eina fjölskyldulífið og prestskapn-
um. „Stundum þarf extra skipulagn-
ingu en þetta fer bara vel saman.
Þegar Árni var að leysa af í Bústaða-
kirkju í janúar og febrúar og við vor-
um þá bæði í stórum sóknum þá var
það kannski aðeins meira álag en
það hefst allt. Við eigum líka góða
að, það eru afi og amma í spilinu
og guðforeldrar líka,“ segir Kristín
brosandi.
Lærdómsríkt að
eiga fatlað barn
Synir þeirra tveir hafa báðir þurft
að glíma við fötlun. „Annar strák-
urinn okkar er einhverfur og er í
Klettaskóla og svo er hinn strák-
urinn með heyrnarskerðingu og
þroskahömlun. Þeir glíma við sína
fötlun og það gerir þá einstaka. Að
eiga fatlað barn er eitt af því sem
er ótrúlega lærdómsríkt í lífinu
og kennir manni svo margt,“ segir
Kristín. „Það er lærdómsríkt og ekki
síst að sjá hvað við eigum mikið af
góðu fagfólki. Strákurinn okkar,
sem er sjö ára, byrjaði í Klettaskóla
síðasta haust. Það er svo gaman að
fylgjast með einstaklingi eins og
honum, sem passar ekki alls stað-
ar inn, finna sig svo vel þarna í skól-
anum. Hann sprettur upp eins og
gorkúla á morgnana því hann er
svo spenntur að fara í skólabílinn,“
segir Árni.
Hjálpa fólki í
gleði og sorg
Prestshjónin Árni Svanur Daníelsson og
Kristín Tómasdóttir kynntust fyrst í guð-
fræði en urðu ekki par fyrr en mörgum árum seinna,
þá bæði fráskilin. Þau eiga stóra fjölskyldu, sex
börn og gengur vel að sameina prestskapinn og
barnauppeldið og búa að dýrmætri reynslu. Þau
eru ný kynslóð presta sem stjórna guðsþjónustum
vopnuð iPad, blogga, búa til stuttmyndir og vilja
stuðla að því að færa kirkjuna til nútímans.
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Samhent hjón Þau Árni og Kristín
kynntust fyrst í guðfræði við Háskóla
Íslands en tóku ekki saman fyrr en
mörgum árum síðar. Mynd Sigtryggur Ari