Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 56
Páskablað 15.–22. apríl 201456 Skrýtið Sakamál
S
hepherds's Bush-morðin 12.
ágúst, 1966, áttu sér reynd-
ar stað í East Acton í vestur-
hluta Lundúna, skammt frá
Wormwood Scrubs-fangels-
inu, en fjölmiðlar þess tíma nefndu
ávallt Shepherd's Bush sem vettvang
morðanna.
Blár, dældaður bíll vekur athygli
Klukkan korter yfir þrjú síðdegis
þennan örlagaríka dag, í Braybrook-
stræti, ráku þrír óeinkennisklæddir
lögreglumenn á eftirlitsferð augun
í bláan, dældaðan Standard Vangu-
ard-bíl með skráningarnúmerið
PGT-726. Það sem vakti athygli lög-
reglumannanna var að hvergi var
að sjá „tax disc“, sérstakan hringlaga
miða sem sýna á að bifreiðagjöld hafi
verið greidd fyrir viðkomandi bifreið.
Þrír á móti þremur
Lögreglumennirnir sem um ræð-
ir voru Christopher Head, 30 ára,
David Wombwell, 25 ára, og und-
ir stýri var Geoffrey Fox, 41 árs. Í
bláa, dældaða bílnum voru einnig
þrír menn, en af allt öðrum toga;
glæpamennirnir John Witney, John
Duddy og Harry Roberts, en um það
höfðu lögreglumennirnir enga hug-
mynd þegar þeir gengu að Standard
Vanguard-bílnum með einhverjar
spurningar í huga.
Og eftir var einn
Það voru þeir Christopher og David
sem röltu að bílnum og spurðu John
Witney út í tax-diskinn sem vant-
aði og sáu í sömu andrá að bíll-
inn var óskoðaður og ótryggður.
Þegar Christopher Head gekk
yfir að vinstri hlið bifreiðarinnar
greip Harry Roberts, sem sat í far-
þegasætinu frammi í, 9 millimetra
Luger-skammbyssu og skaut Dav-
id Wombwell í vinstra augað og lést
David samstundis.
Christopher sá sitt óvænna og
hljóp að bíl sínum en Harry elti hann
og skaut hann í höfuðið. Eftir var
Geoffrey sem sat enn undir stýri bif-
reiðar lögreglumannanna.
Geoffrey Fox felldur
John Duddy, sem sat í aftursætinu,
lét ekki sitt eftir liggja, stökk út úr
bílnum vopnaður .38 Colt-skamm-
byssu og lét kúlunum rigna yfir bif-
reið lögreglumannanna með þeim
afleiðingum að allar rúður brotnuðu.
Geoffrey Fox reyndi í örvæntingu
sinni að komast undan, en Duddy
skaut hann í höfuðið. Deyjandi steig
Geoffrey á inngjöfina með þeim af-
leiðingum að hann ók yfir líkama
Christophers Head, sem var í dauða-
teygjunum.
Tveir gripnir strax
Þó nokkur vitni urðu að morðunum
og John Witney og John Duddy voru
handteknir innan skamms, en Harry
Roberts tókst að komast undan og
segir sagan að hann hafi notið þess
sem hann hafði lært fyrrum í breska
hernum.
Harry tókst að forðast arm laganna
í þrjá mánuði, en var að lokum hand-
tekinn 15. nóvember í Hertfordskíri.
Réttarhöld yfir þremenningun-
um hófust 5. desember og urðu lyktir
þeirra þær að allir voru sakfelldir og
fengu lífstíðardóm og skyldu afplána
30 ár hið minnsta.
John Duddy yfirgaf jarðlífið í
Parkhurst-fangelsinu árið 1981. John
Witney var sleppt árið 1991, og var
barinn til bana í ágúst 1999. Harry
Roberts er enn á bak við lás og slá. n
Shepherd's
Bush-morðin
n Grunlausir lögreglumenn féllu fyrir hendi forhertra glæpamanna
Fórnarlömb forhertra glæpamanna F.v. Christopher Head, David Wombwell og
Geoffrey Fox.
Af vettvangi
Hér voru lög-
reglumennirnir
þrír myrtir.
„Deyjandi steig
Geoffrey á inngjöf-
ina með þeim afleiðing-
um að hann ók yfir lík-
ama Christophers Head.
Flest morð
í Hondúras
Morðtíðni er hvergi hærri en í
Mið-Ameríkuríkinu Hondúras,
samkvæmt niðurstöðum skýrslu
sem fíkniefna- og afbrotamála-
skrifstofa Sameinuðu þjóðanna
birti í síðustu viku. Árið 2012 voru
90,4 morð framin í landinu fyrir
hverja hundrað þúsund íbúa.
Þetta sama ár voru 437 þúsund
manns myrtir, samkvæmt skýrsl-
unni. Hondúras var einnig á
toppi síðasta lista sem náði yfir
árið 2011. Í skýrslunni er einnig
tíundað hvaða vopn voru al-
gengust í umræddum morðmál-
um. Í ljós kom að skotvopn voru
notuð í 41 prósenti tilvika og beitt
áhöld, til dæmis hnífar, í 24 pró-
sentum tilvika.
Frá sjötta áratug liðinnar aldar
hefur morðtíðni í löndum Mið-
og Suður-Ameríku verið fimm til
átta sinnum hærri en að meðal-
tali í ríkjum Evrópu og Asíu. Hér
að neðan má sjá þau lönd þar
sem hlutfallsega flest morð voru
framin árið 2012. Talan fyrir aftan
nafn landsins er fjöldi myrtra á
hverja hundrað þúsund íbúa.
1) Hondúras – 90,4
2) Venesúela – 53,7
3) Belís – 44,7
4) El Salvador – 41,2
5) Gvatemala – 39,9
6) Jamaíka 39,3
7) Svasíland – 33,8
8) Sankti Kristófer og Nevis – 33,6
9) Suður-Afríka 31,0
10) Kólumbía 30,8
Játaði á sig
40 morð
Bandaríkjamaðurinn José Manu-
el Martínez, sem er af mexíkósku
bergi brotinn, hélt til Kaliforníu
frá Alabama í marsmánuði til
að heimsækja ættingja sína. Það
sem átti að verða róleg fjölskyldu-
heimsókn endaði með hörmung-
um þegar Martínez skaut tveimur
skotum í höfuð kunningja síns
sem hafði móðgað dóttur hans.
Margt athyglisvert kom fram
við yfirheyrslur yfir Martínez,
einna helst það að morðið á
kunningjanum var langt í frá
fyrsta morðið sem hann hafði
á samviskunni. Hann játaði við
yfir heyrslur að hafa myrt 30 til
40 manns í starfi sínu sem leig-
umorðingi fyrir mexíkósk fíkni-
efnagengi. Hann hefur nú verið
ákærður fyrir níu sík morð í Kali-
forníuríki sem hann er sagður
hafa framið á árunum 1980 til
2011. Þá er hann grunaður um
morð í Flórída og fleiri morð í
Alabama. Verði hann fundinn
sekur gæti hann átt dauðarefs-
ingu yfir höfði sér.
PáskaoPnun
á Hverfisgötu
skírdagur: Opið frá kl. 17.00 - 22.00
föstudaginn langa: Opið frá kl. 17.00 - 22.00
Laugardaginn: Opið frá kl. 11.30 - 23.00
Páskadagur: Lokað
annar í páskum:
Opið frá kl.
17.00 - 22.00
ATHUGIÐ: Það er lokað
á Skúlagötunni alla páskana
gLeÐiLega
Páska Kryddlegin HjörtuMeð hjartað á réttum stað