Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Side 58
Páskablað 15.–22. apríl 201458 Lífsstíll
Heimur
Hendrikku
Það eru rúm fimm ár frá hruni
eða tæplega sex, eftir því hvort
hentar manni betur. Til að fyrir-
byggja allan misskilning þá tek
ég skýrt fram að mér finnst ekkert
að því að fólk eða fyrirtæki ákveði
á einhverjum tímapunkti að játa
sig sigrað fyrir bönkum og öðrum
fjármálastofnunum og byrji upp
á nýtt eftir erfiðan róður. En þetta
fólk sem virðist komast endalaust
upp með það að stofna ný félög
á „leigðum“ kennitölum skyld-
menna og vina, það er óþolandi!
Félög sem hafa skilað tapi
ítrekað síðustu árin, poppa upp
með nýja kennitölu og hreint
borð. Stjórnendur slíkra fé-
laga halda einbýlishúsum, bíl-
um, sumarvillum hér og þar um
heiminn utan við félög sín. Af
hverju skyldi það vera? Treysta
þeir ekki sjálfum sér fyrir eign-
um sínum, en ætlast til að þjóð-
in borgi fyrir taprekstur félaga
þeirra?
Síðan er fjöldi fólks sem vill
verða heiðarlegt og er með allt
uppi á borðum, en fær enga að-
stoð frá bönkum né nokkrum
öðrum.
Þeir sem eru gjaldþrota mega
ekki skrá börn sín í tómstund-
ir né tryggja fjölskyldu sína hjá
tryggingafélögum. Ríka og fræga
fólkið heldur öllu sínu og er boð-
ið í öll „fínustu“ partíin og er
GULLTRYGGT!
Þetta lið heldur sig saman
og helst hönd í hönd í gegnum
óþverrann og er nákvæmlega
sama um Guggu og Bjössa sem
búa í félagslegu húsnæði og eru
á bótum. Gugga og Bjössi lentu
illa í því í hruninu og misstu allt
sitt. Þau fengu áfallastreituröskun
í kjölfarið og þróuðu með sér
vefjagigt og þunglyndi. Þau
misstu vinnuna líka, en einhvers
staðar þurfa þau að búa, ekki
satt? Það eina sem þau höfðu efni
á eftir að hafa gengið í gegnum
margra mánaða ferli til að öðlast
bótarétt sem nemur um 180 þús-
und krónum á mann á mánuði,
var lítil sæt íbúð í hverfi sem þyk-
ir ekki fínt hjá efnuðum einstak-
lingum.
Nýjar kennitölur eru vel-
komnar í kokteilboð í Hörpunni í
boði Eimskipa á meðan „lýður-
inn“ getur hópast saman á næsta
hverfispöbbi í hverfi sem þykir
ekki flott – og drekkt sorgum sín-
um þar.
Ég skal játa það að fyrir hrun
þá skildi ég ekkert í fólki sem
þáði bætur og var með gigt eða
eitthvað þvíumlíkt. Ég var spillt
og skildi ekki venjulegt fólk sem
þurfti að hafa fyrir því að eiga
ofan í sig og á. Mikið lærði ég
mikið á þessum tíma sem betur
fer og þegar ég lít til baka þá
skammast ég mín.
Ég er mikið erlendis og mér
brá verulega þegar ég kom heim
um daginn og sá risaverslun sem
er verið að opna á Laugavegi.
Manninum, sem stendur á bak
við þann nýja rekstur, hefur tek-
ist að setja félög í sinni eigu oftar
einu sinni á kollinn. Þetta er nú
meira bananalýðveldið sem við
búum í. Verum góð við Guggur
og Bjössa og hættum að snobba
fyrir fólki sem gengst upp í því
að fara illa með fé annarra. Nýjar
kennitölur í gömlum umbúðum
eru ekki smart!
Kennitöluflakk
flotta fólksins
Huggulegir
náttfatapáskar
Ragnhildur Jónsdóttir sýnir hvernig má skreyta heimilið með litlum tilkostnaði
R
agnhildur Anna Jónsdóttir
lét þann draum sinn að
hanna línu undir eigin
merki rætast. Hún rekur
fyrirtækið Jónsdóttir & Co
og framleiðir ungbarnaföt, sam-
fellur og smekki úr lífrænni bóm-
ull með Fairtrade-vottun. Sam-
fellurnar lætur Ragnhildur sauma
í Tansaníu í Afríku, þar sem lífræn
bómullin er tínd og unnin. Þá
er prentunin á samfellurnar og
smekkina unnin með vatnsleysan-
legum umhverfisvænum hlutum
þar sem liturinn fer inn í bómull-
ina en liggur ekki utan á henni líkt
og þegar aðferðum silkiprentunar
er beitt.
DV leitaði til Ragnhildar og bað
hana um að skreyta fyrir sig páska-
borð en hún framleiðir margt fleira
af samfélagslegri ábyrgð, svo sem
litla gjafapoka, dúka og fleira. Margt
af þessu er saumað í vinnustofunni
Ási, sem er verndaður vinnustað-
ur. Vörurnar selur Ragnhildur í fjöl-
mörgum verslunum, svo sem Epal,
Minju og Þjóðminjasafninu.
Stolt af samstarfinu
„Ég er stolt af samstarfinu, á Ási
vinnur einstakt fólk og það eru
mér forréttindi að nýta starfs-
krafta þeirra. Páskapokarnir sem ég
skreyti borðið með og dúkurinn er
hannað þar. Ég gerði svolitla páska-
línu í ár. Þeir sem vilja kynna sér
hana geta haft samband við mig í
gegnum heimasíðu mína, jonsdott-
ir.is eða á Facebook-síðu minni.“
Nýtin
Ragnhildur segist nýtin þegar hún
skreytir heimilið. „Ég á ótrúlega
margt fallegt geymt í skápum sem
ég dreg fram ár eftir ár. Ég keypti að-
eins fáeina hluti, til að mynda þess-
ar fallegu birkigreinar og sítrónurn-
ar. Mér finnst gaman að lífga upp á
heimilið með þessum bjarta gula
lit og það er varla hægt að ná sér í
ódýrara páskaskraut.“
Hefðbundinn hátíðarmatur
Það verður fjölskyldan sem fær þess
notið að sitja til borðs með Ragn-
hildi. Hún ætlar að lauma páska-
eggi í litla sérsaumaða poka sem
liggja við hvern disk. Á boðstólum
verður hefðbundinn hátíðarmatur.
„Það verður alveg örugglega páska-
lamb á boðstólum en okkur langar
líka að prófa að vera með pöru-
steik.“
Náttfatapáskar
Annars ætlum við að njóta hátíðar-
innar í mestu rólegheitum. Við eig-
um stóran hund, við munum fara
með hann í langar gönguferðir og
hafa það sem notalegast. Dóttir
okkar gaf okkur Netflix, og því er
einnig freistandi að kíkja á góða
þætti. Þetta verða að mestu líkind-
um náttfatapáskar með teppið á
sófanum.“ n
Innblástur úr náttúrunni Ragnhildur
notar náttúruleg efni til skrauts. Birki-
greinar úr gönguferðum og sítrónur prýða
heimilið yfir páskana. MyNdIR SIgtRygguR ARI
Kristjana guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Stílhreint og líflegt Yfir páskana vilja
flestir láta minna sig á vorið og þá litagleði
sem í vændum er.
Vel skreytt páskaborð Það er fjölskyldan sem fær þess notið að sitja við vel skreytt
borð Ragnhildar. Í ár verður boðið upp á lambakjöt og ef til vill pörusteik.
Egg og sítrónur Dröfnóttu eggin gaf
eiginmaður Ragnhildar henni.
Litlir pokar Skemmtilegir pokar sem
Ragnhildur útbjó, þá má fá hjá henni. Í
þá ætlar hún að setja lítil páskaegg fyrir
fjölskylduna.
Kerti og greinar Gul kerti og greinar
prýða heimilið.
„Ég á ótrúlega
margt fallegt
geymt í skápum sem ég
dreg fram ár eftir ár.