Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Blaðsíða 60
Páskablað 15.–22. apríl 201460 Lífsstíll
P
áskarnir eru dásamlegur
tími fyrir fjölskylduna og er
um að gera að sameinast
án þess að vera með tölvur
og síma uppi við allan lið-
langan daginn. Hér eru nokkrir leik-
ir sem allir fjölskyldumeðlimir geta
tekið þátt í.
1 Hve mörg egg? Það sem þarf til að fara í
þennan skemmtilega leik, sem allir
fjölskyldumeðlimir geta tekið þátt
í er:
n 1-Stór, glær krukka
eða blómavasi.
n 2-Fullt af litlum
páskaeggjum. Því
minni egg því betra.
n 3-Miðar og blý-
antar.
Leikreglur eru einfaldar:
Sá sem tekur ekki þátt í leiknum,
fyllir krukkuna eða blómavasann af
páskaeggjunum. Þátttakendur eiga
að giska á hve mörg egg eru í ílátinu
og skrifa fjöldann á miða ásamt
nafni sínu. Miðarnir eru settir í pott
og sá eða sú sem giskar á rétta tölu
eða næst henni fær að eiga öll eggin.
2 Hvar eru eggin? Farið er í þennan leik á mörgum heim-
ilum um páskana og fylgir honum
ávallt mikil spenna. Það skemmir
ekki fyrir að allir vinna í þessum
leik og til að gera hann enn meira
spennandi er gaman að færa hann
út í náttúruna.
Það sem þarf er:
n 1 – Jafn mörg páskaegg og fjöldi kepp-
anda er.
n 2 – Miðar og blýantur.
Svona er hann leikinn:
Vísbendingar eru skrifaðar á
miða og er öllum leikmönnum af-
hentur upphafsmiði með fyrstu vís-
bendingunni að egginu. Til dæmis
getur fyrsta vísbendingin leitt leik-
mann að bökunarofni í eldhúsinu
þar sem hann finnur annan miða
sem leiðir hann á annan spennandi
felustað. Þetta er svo gert koll af
kolli þangað til eggið er fundið.
Það er um að gera að láta mið-
ana rata út úr húsi og fá þannig
leikmenn til þess að leika sér úti
í leiðinni. Því meira hugmynda-
flug hjá þeim sem skrifar vís-
bendingarnar, því skemmtilegri
verður leikurinn og spennan magn-
ast hjá þeim yngstu.
3 Hvað heitir landið? Þessi leikur er fræðandi og
reynir einnig á hugann. Hann er
einfaldur og krefst einungis landa-
fræðibókar og vísbendinga sem
leiða leikmann að rétta svarinu.
Svona er hann leikinn:
Nokkur lönd eru valin af þeim sem
stjórnar leiknum og teiknar hann
þau upp á blöð eða blað. Teiknar-
inn þarf alls ekki að vera fagmaður
því auðvelt er að teikna í gegnum
þunnt blað eftir landafræðibók. Síð-
an eru nokkrar vísbendingar skrif-
aðar á blöð sem fylgja hverju landi.
Til dæmis er hægt að skrifa trékloss-
ar, myllur eða túlípanar við Holland.
Við Sviss mætti síðan skrifa ostur
eða Alparnir. Stjórnandinn bendir á
eitt land og gefur vísbendingar og sá
sem er fyrstur að fatta hvaða land er
átt við, vinnur leikinn. nFrumlegar
skreytingar
Föndrum saman á páskum
Um páskana er gaman að skreyta
heimilið með fallegu skrauti og
oft leynist ýmislegt heima við
sem má nýta.
Gulir litir voru almennt ríkjandi
í páskaskreytingum hér á árum
áður, en nú hafa tímarnir breyst.
Það er mjög flott að blanda saman
gullnum, svörtum, og gulum lit.
Útkoman verður fáguð og einföld.
Bleikir, grænir og bláir litir er vin-
sælir og gefa bjartan svip á heim-
ilið. Einnig eru kransar eins og við
þekkjum frá jólum, að koma sterk-
ari inn með hverju árinu á páskum.
Krakkar elska að fá verðlaun fyr-
ir unnið verk og er margt vitlausara
en að búa til leik í kringum nam-
mikransinn. Til dæmis væri hægt
að leyfa eitt nammi fyrir að fara út
með ruslið, taka til í herberginu,
lesa fyrir svefninn og svo framveg-
is. Það er um að gera að láta hug-
myndaflugið ráða. iris@dv.is
Egg í bakka með blómum Þetta
er einfalt að gera og mjög flott í glugga
eða á borði.
Blóm á glasi með nammieggjum
Lúpína er falleg skreyting sem kostar
lítið sem ekkert.
Kertaegg Settu sprittkerti í eggja-
skurn og útkoman er rómantísk og flott.
Greinar með eggjum Hér eiga allt
heimilisfólkið sitt pláss með sínu eggi.
Gyllt og svart Penslaðu egg með
lími og veltu síðan upp úr glimmeri og
útkoman er þessi.
Gult skal það vera á þessum tíma árs
F
yrir þá sem vilja tolla í tískunni
allan ársins hring og halda
í hefðir, kemur guli liturinn
sterkur inn um þessar mundir.
Gulir litir fara alls ekki öllum vel.
Það er hins vegar hægt að vera með
fylgihlut eins og belti eða skart til
að vera páskaleg og smart.
Gult naglalakk er flottara en það
hljómar og er hægt að gera heilu
listaverkin á fingurna með frjóu
hugmyndaflugi.
Lítill gulur kjóll við brúna fót-
leggi og svart belti er mjög flott.
Einnig er æðislegt að nota lítið gult
belti við svartan kjól. Flestar konur
geta komist upp með það og litið
vel út. Gulir skór eða skór með gulu
mynstri geta verið mjög flottir við
gallabuxur sem og kjól.
Á meðfylgjandi myndum má sjá
nokkrar hugmyndir þar sem guli
liturinn er áberandi. n
iris@dv.is Glæsilegt Fallegir kjólar
sem gætu vart verið gulari.
Fræðandi leikur Skemmtilegar vísbendingar um hvert land eru lykillinn að því að gera
leikinn skemmtilegan en fræðandi um leið.
Páskalegt og smart fyrir þá sem vilja tolla í tískunni
Leikum okkur
um páskana
n Skemmtilegt fyrir fjölskylduna n Eggjaleit og getraunir
Íris Björk Jónsdóttir
iris@dv.is